Morgunblaðið - 30.03.1984, Side 43

Morgunblaðið - 30.03.1984, Side 43
Vilborg var listræn kona, svo sem segja má um sum ættmenni beggja foreldra hennar. Þeir eig- inleikar birtust á mörgum sviðum. Hún var lagviss og hafði yndi af söng, söng m.a. í kirkjukór hér og fyrr á árum lék hún á gítar. Á meðan fingurnir voru „heilir" fékkst hún mikið við hannyrðir og eftir að hendurnar krepptust bjó hún til fagra muni úr steinum og skeljum sem hún svo litskreytti. Þegar hún hafði horft á leikrit virtist allt verkið svo opið fyrir henni, að það var engu líkara en hún sæi hvers vegna höfundurinn lét persónurnar bregðast við á þennan veginn en ekki hinn. Hún hafði næmt auga fyrir mál- verkum og raunar allri náttúru- fegurð. Hún naut þess að skoða íslenskar landslagsmyndir, en þau hjónin höfðu ferðast nokkuð um landið m.a. fóru þau austur um í Öræfin áður en ty-ýr komu sunnan Vatnajökuls. Ennfremur fóru þau um Vestfirðina ogs heillandi staði norður í landi. Síðasta ferð þeirra til Fjalla var að fara um eina helgi einbíla inn á Emstrur. Vilborg hafði oft bók á borðinu fyrir framan sig og einkum las hún um það sem var gamalt og þjóðlegt. Ég heyrði í vetur í út- varpinu þegar hún sendi fjöl- skyldu sinni kveðju. Lagið sem hún valdi með kveðjunni var „ís- land er land þitt“. Vilborg „bar ekki á torg“ til- finningar sínar, hvorki sorg heilsuleysisins, né gleðina. Gleðina fann hún m.a. í því heimili sem hún hafði með manni sínum mótað og þó hún nefndi það ekki þá hlýtur hún að hafa glaðst vegna farsældar barna sinna. Ætli drengurinn hans Fannars hafi svo ekki komið eins og bjart- ur sólskinsgeisli. ( heilsuleysi sýndi hún æðruleysi og hetjuskap. Ég held að allt í fari hennar hafi verið yfirvegað, allt til hinstu stundar. Eftir lát hennar var fjöl- skyldu hennar afhent bréf frá henni þar sem hún tilgreindi allt varðandi útför sína: líkmenn, MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. MARZ 1984 43 sálma, prest, organista, kirkju o.fl. Þannig var fyrirhyggja hennar á öllum sviðum. Með lífi sínu og starfi og sínum innri manni var hún undir það bú- in að ganga að fyrstnefndum vegamótum. Hún mætti taka sér í munn orð víðfrægs skálds sem sagði um viðskilnað sinn: „Himininn roðnar nú í aftureldingunni og fögur liggur leiðin framundan mér“. Eiginmanni, börnum og öðrum ættingjum sendi ég samúðar- kveðjur. G.B.G. Elskuleg vinkona mín og mág- kona verður kvödd í dag frá Ás- kirkju. Sunnudagurinn 25. mars var bjartur og fagur. Það leituðu margir til fjalla eða út í náttúruna til að njóta lífsins. Það var þennan dag, sem mín góða vinkona lagði upp í sína ferð frá þessum heimi. Ferð, sem hún hafði undirbúið af stakri ró og staðfestu. Þessi bjarti dagur vitnaði um lífsstíl hennar, að sjá fegurð lífsins og njóta stundarinnar þegar sólin skein. Úr skarlatsrauðu skini sólarlags er skikkja hinnar mildu sumarnætur. Svo fellur hún í faðm hins unga dags og funann leggur inn í hjartarætur. Þá syngja fuglar yfir trjám og tjörn, og tónagleðin yljar hverju blómi, og sömu náðar njóta mannabörn í náttúrunnar milda helgidómi. Vort líf og dauði, dagur vor og nótt er dýrleg gjöf frá æðri máttarvöldum. í þeirra brunn var móðurmjólkin sótt, sem mannkyn hefur nært á liðnum öldum. Úr þeirra eldi guðagneistinn hrökk, sem glæddi lífið, jörð og himin tengir. Til þeirra beinist blessun vor og þökk, er birta fer að nótt og daginn lengir. Frá miklu hverfur sá, sem deyr í dag, en drauma sinna njóta akrar sánir, og allir fuglar syngja sama lag, og sumri fagna lifendur og dánir. Og þó er mörgum þeirra gleðifátt, sem þungu skriði nálgast hinzta boðann. En hvaðan fær sú fegurð líf og mátt, sem felur stjömur bak við morgunroðann? (Davíð Stefánsson) Vorið boðar sumarkomu og bjartar nætur. Það er í sumar- landinu, sem hún Villa mín nú býr. Vilborg Björgvinsdóttir fæddist að Bólstað í Austur-Landeyjum 11. janúar 1929. Dóttir Björgvins Filippussonar bónda þar og konu hans Jarþrúðar Pétursdóttur. Á Bólstað var æskuheimilið, en á ungdómsárunum hennar flutti fjölskyldan til Reykjavíkur. Vil- borg lauk prófi frá Kennaraskóla (slands, handavinnudeild, árið 1953 og stundaði kennslu í nokkur ár. Árið 1961 giftist hún Jónasi Guðmundssyni og flutti þá að Hellu á Rangárvöllum. Börn þeirra eru Fannar og Katrín. Lítill ömmudrengur er líka fæddur, sól- argeislinn, Birkir Snær. Ég var heppin, þegar ég ung að árum var ráðin til starfa í gisti- húsinu að Múlakoti í Fljótshlíð. Þar tók á móti mér elskulegt fólk, sem leiddi mig til starfa með kæti og góðvild. Það var í Múlakoti, sem kynni mín af Villu hófust. Þeirri heppni minni má ég ekki gleyma. Þá var hún frísk og létt á fæti, vinnan var dagsins leikur og kvöldið einn álfadans. Tillitssemi hennar og næmleiki fyrir mannlegum tilfinningum bjó með henni þá og æ síðan. Þann eiginleika ræktaði hún ásamt öðr- um góðum eiginleikum. Þess nutu þeir, sem með henni voru. Sam- vera okkar þá og síðan hefur verið mér ómetanleg. Það er morgunfagurt í Múla- koti, þegar sólin kemur upp og varpar birtu sinni á hlíðina. Þá glóir dögg á grasi og steinum. Ég veik, að morgunn þessarar mætu konu á nýjum slóðum verður ekki síður heiður og tær. Guð veri með henni og styrki hennar fólk. Sjöfn Árnadóttir Ljósm Mbl./RAX Kópayogur: Bekkuval á tveimur stöðum EIGENDASKIPTI urftu nýlega á matvöruversluninni vift Álfhólsveg í Kópavogi, sem áftur var rekin af KRON. Hinir nýju eigendur eru þeir Guftbjörn Magnússon og Skæringur Sigurjónsson, sem einnig reka verslunina Brekkuval vift Hjallabrekku og hefur búftin vift Álfhólsveg hlotift sama nafn. Að sögn eigenda eru nokkrar breytingar varðandi vöruval fyrirhugaðar í Brekkuvali vift Álfhólsveg og verftur sérstakt kapp lagt á aft auka fjölbreytni í kjötborðinu. Meftfylgjandi mynd var tekin í nýju versluninni og eru á henni f.v. Elín Andrésdóttir, starfsmaft- ur, Drífa Alfreftsdóttir, starfsmaftur, Gunnar Þórisson, starfsmaður og Skæringur Sigurjónsson, annar eigenda. f Iþrótt^félagið Grótta minnir á úrslitakeppni íslandsmótsins í handknattleik: Meistaraflokkur karla 2. deild í íþróttahúsi Seltjarnarness Föstudagur 30/3 Kl. 19.00 Þór — Grótta. Kl. 20.15 Fram — Breiðablik. Laugardagur 31/3 Kl. 17.00 Breiðablik — Þór. Kl. 18.15 Grótta — Fram Sunnudagur1/4 Kl. 14.30 Fram — Þór. Kl. 15.45 Breiðablik — Grótta. Ennfremur skal minnt á úrslitakeppni í 3. flokki kvenna sem fram fer í íþróttahúsi Seltjarnarness. Laugardag 31/3 kl. 9.00—17.00. Sunnudag 1/4 kl. 9.00—14.30. Og ekki má gleyma úrslitakeppni í 3. flokki karla sem verður í íþróttahúsinu Ásgarði, Garðabæ. Föstudag 30/3 kl. 19.00—21.00. Laugardag 31/3 kl. 14.00—19.30. Sunnudag 1/4 kl. 9.00—14.30. Grótta þakkar eftirtöldum aðilum veittan stuðning: Vörumarkaðurinn Eiðistorgi Sparisjóðurinn Seltjarnarnesi IJtvegsbankinn Seltjarnarnesi Söluturninn Melabraut 57 Seltjarnarnesi Björnsbakarí Raf stýring Nesapótek Kammaver Tröllavideo Prjónastofan Iðunn Pizzahúsið Bílaleiga Akureyrar Afram GróttaH

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.