Morgunblaðið - 26.04.1984, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 1984
3
Keppnin um „andlit 8. áratugarins“:
„Helga hefur allt
sem til þarf ... “
— segir Lacey Ford um sigurvegar-
ann á íslandi, Helgu Melsteð
HELGA Melsteð, 16 ára reykvísk
verslunarmær, var í gærkvöld valin
fulltrúi l'slands í fyrirsætukeppnina
„Face of the 80’s“ fyrir 1984, sem
haldin verður í New York í nóvem-
ber nk. á vegum bandaríska fyrir-
sætuumboðsfyrirtækisins Ford
Models Inc. Önnur í keppninni varð
Margrét Jóhannesdóttir en í úrslita-
keppninni tóku þátt sex stúlkur af
alls um 170, sem bent var á til þátt-
töku hér á landi.
Það var Lacey Ford, dóttir
hjónanna Eileen og Jerry Ford,
stofnenda og framkvæmdastjóra
Ford Models Inc., sem tilkynnti
úrslitin í hófi, er haldið var á Hót-
Morgunbladid/RAX.
Eftir sigurinn: Helga Melsteð ræðir málin við móður sína, Hrefnu Þorbjarn-
ardóttur. Faðir Helgu var Gunnlaugur heitinn Melsteð, hljómlistarmaður.
Helga Melsteð fagnar sigri ásamt Lacey Ford (til hægri) í gærkvöldi eftir að úrslit höfðu verið tilkynnt í keppninni
um fulltrúa fslands í alþjóðakeppninni „Face of the 80’s“, sem haldin vcrður í nóvember. Á bak við eru aðrar
stúlkur, sem tóku þátt í úrslitakeppninni. Frá vinstri: Svava Grímsdóttir, Halldóra Hermannsdóttir, Guðný Bene-
diktsdóttir, Ingibjörg Sigurðardóttir og Margrét Jóhannesdóttir, sem varð númer tvö.
el Sögu í gærkvöld á vegum tíma-
ritsins Vikunnar og Katrínar
Pálsdóttur, umboðsmanns Ford
Models á fslandi. Þetta er í þriðja
sinn, sem íslenskur þátttakandi er
valinn í keppnina „Face of the
80’s“ en í ár taka þátt í keppninni
24 stúlkur frá jafn mörgum lönd-
um.
„Auðvitað hlakka ég mjög mik-
ið til að fara til New York,“ sagði
Helga Melsteð í stuttu spjalli við
blm. Morgunblaðsins í gærkvöld.
„Það hvarflaði aldrei að mér að ég
myndi vinna, svo ég get ekki ann-
að en verið ánægð með þetta.“
Lacey Ford hafði ekkert nema
gott um sigurvegarann að segja: „
Hún hefur allt,“ sagði frk. Ford.
„Hún er afar falleg — með þessi
glitrandi augu og ótrúlega bros.
Hún á góða möguleika þegar kem-
ur að hinni raunverulegu og hörðu
samkeppni."
í úrslitum voru auk þeirra
Helgu og Margrétar þær Ingi-
björg Sigurðardóttir, Guðný
Benediktsdóttir, Halldóra Her-
mannsdóttir og Svava Grímsdótt-
ir.
Æðstu em-
bættismenn
þjóðarinnar
hækka um 5%
í launum
Kjaradómur ákvað á fundi
sínum 11. apríl, 5% launa-
hækkun til handa æðstu
embættismönnum þjóðarinn-
ar frá og með 1. mars. Er það
í samræmi við hækkanir
launa á almennum vinnu-
markaði, en ekki voru teknar
ákvarðanir um samsvarandi
áfangahækkanir og um
samdist á almennum vinnu-
markaði. Um er að ræða laun
forseta íslands, biskups ís-
lands, hæstaréttardómara,
ráöherra, þingmanna, ráðu-
neytisstjóra, ríkissaksóknara
og ríkissáttasemjara.
Laun framangreindra aðila
verða eftir þessa 5% hækkun
sem hér greinir: Forseta íslands,
80.568 kr., ráðherra 34.505, nema
forsætisráðherra 38.784, ríkis-
saksóknara og rikissáttasemjara
60.222, ráðuneytisstjóra 51.851,
biskups 56.561 og þingfararkaup
40.274.
Eftir hækkunina verður frá 1.
mars, dvalarkostnaður fyrir
þingmenn 250 krónur á dag, hús-
næðiskostnaður krónur 8 þúsund
á mánuði, dvalarkostnaður í
kjördæmi 46.500 krónur á árs-
grundvelli og kostnaður við
ferðalög í kjördæmi á mánuði,
krónur 3.300 í Reykjavík, 5.900 í
Reykjanesi og 9.700 krónur í öðr-
um kjördæmum. Ráðherrar
njóta jafnframt ráðherralaun-
anna, þingfararkaups.
Sem dæmi um hækkun launa í
krónum talið má nefna að laun
forseta hækka um 3.837 krónur,
þingmanns um 1.918 kr. og ráð-
herralaunin um 1.643 krónur.
INNLENT
Sumartískan kynnc
\s ~x 11 c_^. I M m •
Komiö og sjáiö fallegan sumarfatnað
sem nú er kominn í miklu úrvali.
■’Tiskus/ningar
Við höldum tískusýningar í Miklagarði
sem hér segir:_____________________
Fimmtudaginn 26. apríl .. kl. 17:15
Föstudaginn 27. april ... kl. 16 og 20
Laugardaginn 28. apríl .. kl. 11og14
Módel '79 sýna spennandi sumarfatnað
á stráka, stelpur, konur og karla.
Komið og skoðið sumar-
tískuna um leið og
heimilisinnkaupin
eru gerð.
Opið sem hér segir:
Mánud. til fimmtud.. 9-19
Föstudaga ........9-21
Laugardaga .......9-16
/MIKUGdRÐUR
MIKIÐ FYRIR LfTlÐ