Morgunblaðið - 26.04.1984, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 1984
5
. -ýJk.
Unnið við hreinsun olíunnar úr höfninni á Akranesi.
Morgunblaðið/JG.
Akranes:
Enn óupplýst hvernig
olían komst í höfnina
Akranesi, 24. apríl.
SVO kann að vera, að „olíulekinn" I
Akraneshöfn, sem svo var nefndur,
hafi alls ekki verið leki. Hallast var að
því, að olían kæmi úr leiðslum eins
olíufélagsins, sem er með leiðslur sínar
á hafnarbotninum á Akranesi, en eftir
þrýstiprófun kom í Ijós, að olían var
ekki úr þeim. Kannsóknarlögreglan á
Akranesi rannsakar nú með hvaða
hætti olían kann að hafa borist í höfn-
ina.
Að sögn Sigurðar Þorsteinssonar,
hafnarverkstjóra, var í gærdag búið
að dæla hálfu fimmta tonni olíu úr
höfninni. Unnið var við að hreinsa
klappir og átti síðan að hefjast
handa við hreinsun bryggjanna
sjálfra. „Þetta er seinlegt og erfitt,"
sagði Sigurður og bætti því við, að
áfram yrði notast við oltugirðingu,
sem sett var í höfnina til þess að
auðvelda mönnum að ná olíunni
burt. — JG.
Fellaskóli sigraöi í skákmóti grunnskóla
DAGANA 1., 7. og 8. apríl fór fram
sveitakeppni grunnskóla í skák. 27
sveitir mættu til leiks með á annað
hundrað þátttakendur. Sigurvegari
varð A-sveit Fellaskóla með 27'/2 vinn-
ing en hana skipuðu Hannes Hlífar
Stefánsson, Sveinn Stefánsson, Jó-
hann Sigurbjörnsson, Sigurður B. Hall-
dórsson og varamaður Eyþór B. Sigur-
hjörnsson. í öðru sæti varð A-sveit
Hvassaleitisskóla með 27 vinninga og í
þriðja sæti Breiðholtsskóli með 26
vinninga.
Föstudaginn 27. apríl kl. 13.30
verður grunnskólamótinu framhald-
ið í Breiðholtsskóla. Þar verður
keppt í borðtennis, Ijósmyndun
kvikmynda- og myndabandagerð og í
bridge. Ennfremur fer fram leiklist-
armót grunnskólanna í Reykjavík.
Þátttöku er hægt að tilkynna á
skrifstofu Æskulýðsráðs Reykjavík-
ur til og með 26. apríl.
Öllum er heimill aðgangur að mót-
inu sem haldið verður í Breið-
holtsskóla eins og áður sagði.
Doktorsritgerð um
Halldór Laxness
13. APRÍI. síðastliðinn varði Árni Sig-
urjónsson, bókmenntafræðngur, dokt-
orsritgerð í bókmenntasögu við
Stokkhólmsháskóla. Kitgerðin ber
heitið. „Den politiske Laxness. Den
ideologiska och estetiska bakgrunden
till Salka Valka orh Kria Mán“. Fjallar
hún um bakgrunn Sölku Völku og
sjálfstæðs fólks frá sjónarmiði hug-
myndasögu, félagslegrar þróunar og
stjórnmála.
Stærsti kaflinn í ritgerðinni er yf-
irlit yfir bókmenntaviðhorf hérlend-
is á millistríðsárunum eins og þau
birtast i ritum og ritgerðum eftir
Guðmund Finnbogason, Sigurð
Nordal, Þórberg Þórðarson og aðra,
auk þess sem gerð er grein fyrir
hugmyndum Halldórs Laxness á
þessu sviði. í ritgerðinni er talsvert
fjallað um skrif Halldórs um Sovét-
ríkin, og í kafla um Alþjóðabókina er
m.a. rædd vísindatrúin sem kemur
fram í þeirri bók. Höfundur leitast
við að sýna hvernig Halldór þróaðist
frá „vinstriróttækni" til stalínisma,
sem fól t.d. jafnframt í sér dvínandi
trú á byltingu og vaxandi trú á
menningu. Andmælandi við dokt-
orsvörnina var dr. Peter Hallberg,
sem þekktur er fyrir rannsóknir sín-
ar á verkum Nóbelsskáldsins.
Verdbólgu-
hraöinn 21,2%
SEÐLABANKI íslands hefur
reiknað lánskjaravísitölu fyrir
maímánuA og reyndist hún vera
879 stig, cn var í aprfl 865 stig.
Hækkun milli mánuöa nemur
1,62%.
Samkvæmt þessu er hraði verð-
bólgunnar nú miðað við 12 mán-
aða tímabil 21,2%.
Dr. Árni Sigurjónsson.
Árni Sigurjónsson er 28 ára gam-
all. Hann tók stúdentspróf við
Menntaskólann í Reykjavík og
B.A.-gráðu frá Háskóla íslands.
Hann hefur numið bókmenntasögu
meðal annars í Danmörku og Þýska-
landi og frá 1977 í Svíþjóð. Foreldrar
Árna eru Sigurjón Sigurðsson og
Sigriður Kjaran. Kona hans er Lilja
Valdimarsdóttir, hornleikari. Nokk-
ur eintök af „Den politiska Laxness"
eru til sölu i bókaverslunum.
Leiðrétting
í FRÁSÖGN af eldi, sem kom upp í
bifreið í Breiðholti, var sagt að hjón
með tvö börn hefðu verið í bifreið-
inni þegar eldurinn kom upp. Það er
ekki rétt. 1 bifreiðinni var kona með
tvö börn sín, eins árs og níu ára. Mbl.
biðst velvirðingar á þessum mistök-
um.
^^Gunnar^
rÞóröarson og
hljómsveit ásamt
Dúa Dúa- j
. kvartettinumyO
Broadway-pakki Flugleiða
verö frá 3.272 krónum!
ROKKPARIÐ
sívinsæla Didda og Sæmi
rokka
Nu er siöasta tækifærið að sja
einu bestu rokksyningu a land-
inu i dag með bestu rokklögum
herna megin himins
HVER MAN EKKI EFTIR LOGUNUM:
Flugleiðir bjóða flug, gistingu í 2
nætur, kvöldverð og skemmtun á
Broadway frá 3.272 krónum!
Ii4 AI HO
FLUGLEIDIR
Oott fólh hfá traustu téiagi 4
Minnum á Vesturlandskynningu
sunnudaginn 29. maí nk.
Ferðamálaráð Vesturlands.
Borðapantanir í síma 77-500
Kynnir Páll Þorsteinsson
Aögöngumiöaverö eftir kl. 23
er kr. 15Q,_______________
Matseðill:
Hörpuskeltiskkokkteill i hvítvínssósu
meö glóöuöu brauöi og agúrkusalati.
Grilluö lambasteik bernaise meö
bökuöum jaröeplum, grænmeti, hrá-
salati og smjörsteiktum sveppum.
Vegna fjölda áskorana veröur Rokkhátíðin
stórkostlega í síöasta sinn laugardaginn, 28. apríl nk.
Guðrún
og
Kid
Jensen
veröa
gestir
kvöldsins
Þorvaldur
Jon
3 nýir
söngvarar
koma fram:
Þorvaldur Halldórsson
Jón Stefánsson
Rúnar Guðjónsson
Búnar
Mama, Do Run Run, Do You Wanna Dance? My Prayer, I Only
Have Eyes for You, Splish Splash, Personality,
ble, You’re Sixteen, Sea Cruise, Adam og
og fleiri og fleiri
Sweet Nothing, Hurt, King Creole, Trou-
Eva, Summertime Blues, At The Hop