Morgunblaðið - 26.04.1984, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 1984
19
nokkur einkenni hins íslenska
Haf narstúdents.
Er hann gekk um Hafnargötur á
þeim árum var Georg Brandes enn
á dögum þar í borg. Þó að Einar
Ólafur kynni að meta töfrasprota
gamla mannsins og þætti bók
hans um Goethe betri flestum, er
skrifaðar höfðu verið um skáld, þá
var hann samt enginn Brandes-
arsinni. Miklu fremur varðveitti
hann alla ævi þann unga hug og
það hjarta sem hitnað hafði við
lestur ljóða Baudelaires og spá-
mannsstíl Nietzsches, þýddi enda
kafla úr Also sprach Zarathustra.
Einar Ólafur var manna virðu-
legastur og hverjum kurteisari.
Var hann og löngum velkominn
hátíðargestur í samfélög lærðra
manna um víða veröld. Hann
hafði fengið flestan frama sem
lærdómsmaður má þiggja við há-
skólastofnanir og vísindafélög.
Alla slíka sæmd mat hann og
þótti vænt um án þess að miklast
því að undir hverri skikkju heið-
urs, sem á herðar hans var lögð,
sló áfram glaðvært hjarta glettins
stúdents, og hann varðveitti langa
ævi þann barnshug sem verður
hverri mannssál að lokum örugg-
ast athvarf.
Þegar ég nú kveð Einar Ólaf,
læriföður minn og kæran vin,
finnst mér það mikil hamingja að
hafa þekkt hann.
Hann var ótvírætt einhver
margslungnasti og merkilegasti
maður sem ég hef kynnst.
Hann var heimsvanur og vitur,
lærður og skarpur. Hann var mað-
ur hins hátíðlega og upphafna en
jafnframt alls þess sem var upp-
runalegt og blátt áfram.
Sjálfsagt hefur hann getað verið
þykkjuþungur við mótgerðir en
jafnframt vissi ég hann ávallt
taka fagnandi hverri mennskri
hlýju eins og fífillinn brosir við
sólinni.
Þessi gamli fræðaþulur átti, svo
lengi sem ég þekkti hann, opin
augu barns og horfði undrandi og
forvitinn á heiminn.
Hann var gæfumaður; unni
konu sinni, Kristjönu Þorsteins-
dóttur, falslausu hjarta og saman
áttu þau mikla hamingju í einka-
syni sínum og lífi sínu öllu.
Merkilegast þykir mér þó e.t.v.
hversu þessi margþætti maður
varðveitti heilleik sinn í sundruð-
um heimi.
Þann galdur þekkti hann einn.
Má ég þó að lokum geta méi
þess til að það hafi honum tekist
fyrir þá sök hve mjög hann unni
lífinu, unni öllu sem óx og greri
umhverfis hann. Hann unni skaft-
fellsku regni — tákni lífs og gró-
andi — andstæðu norðlensks
snævar — sem honum var tákn
dauða.
— Blessuð rigningin, sagði hann
eitt sinn við mig.
Sjálfur hlúði hann að öllum
gróðri, jafnt í garði sem fræðum.
Hann orti kvæði um mosann og
skrifaði af meiri ástúð um grasið
en aðrir menn — grasið við búða-
rústir Njáls, grasið í Mýrdalnum,
þar sem hann horfði fyrst á skýin
undrandi augum.
Það fór vel á að þessi unnandi
regns og gróðurs skyldi deyja inn í
sumarið.
Þegar ég heyrði fregnina um lát
hans, skáru hvítar eggjar fjalla
gráan himin. Nú fellur vorregn á
græna nál.
— Blessuð rigningin.
Við Vigdís sendum Sveini syni
hans og Þóru og litlu Ástu Krist-
jönu okkar hjartans kveðjur.
Sveinn Skorri Höskuldsson
ATHYGLI skal vakin á því, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með góð-
um fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði, að berast í síðasta lagi
fyrir hádegi á mánudag og hlið-
stætt með greinar aðra daga. I
minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Þess skal
einnig getið, af marggefnu til-
efni, að frumort Ijóð um hinn
látna eru ekki birt á minningar-
orðasíðum Morgunblaðsins.
Handrit þurfa að vera vélrituð og
með góðu línubili.
LADA mest seldi bíllinn á fyrsta
ársfjóröungi 229 bílar
ítalskur 219 bílar
Japanskur 191 bílar
LADA*Q± kynnt á 21 stað
LHJÆZ dagana 27. - 30. apríl
Suður- og austurland: Norðurland:
föstudagur 27. apríl v/söluskálann Vík kl. 12—14
laugardagur 28. apríl v/hóteliö í Höfn
á Hornafirði kl. 10—12
Djúpivogur síðdegis
Breiðdalsvík síðdegis
Stöðvarfjörður síödegis
Fáskrúðsfjöröur síödegis
sunnudagur 29. apríl Norðfjöröur kl. 10—12
Eskifjörður kl. 14—15
Reyðarfjörður kl. 16—18
mánudagur 30. apríl Seyöisfjörður kl. 10—12
Egilsstaöir kl. 16—20
kl. 16—20
kl. 14—16
kl. 10—16
kl. 16—20
föstudagur 27. apríl Blönduós
laugardagur 28. apríl Sauðárkrókur
sunnudagur 29. apríl Akureyri
mánudagur 30. apríl Húsavik
Vesturland:
laugardagur 28. apríl Borgarnes kl. 13—15
sunnudagur 29. apríl Búðardalur kl. 10—12
Stykkishólmur kl. 15—17
mánudagur 30. apríl Grundarfjörður
Ólafsvík
Hellissandur
P
Komið og skoöiö og reynsluakið hinum frábæra Lada LUX sem þegar
nýtur mikilla vinsælda á Íslandí.
★ Muniö að varahlutaþjónusta okkar er í sérflokki.
Verö við birtingu auglýsingar kr.
213.000,-
Lán 6 mán 107.000,-
Þér greiðið 106.600,-
Verðlisti yfir Lada-bifreiðar
fyrir handhafa örorkuleyfa:
Lada 1200 kr. 106.600
Lada 1200 station kr. 113.600
Lada 1500 station kr. 124.300
Lada 1500 Safir kr. 118.100
Lada 1600 Canada kr. 128.000
Lada Lux kr. 135.400
Lada Sport kr. 216.600
Kv
Vu
Sifelld þjónusta
&
landbúnaðarvélar hf.
Suðurlandsbraut 14, sími 38600 Söludeild sími 31236