Morgunblaðið - 24.05.1984, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 1984
Nokkrir af adstandendum samkeppninnar. F.v: Þórleifur Jónsson, framkvæmdastjóri Landssambandins, Sigurður
Kristinsson, forseti Landssambandsins, Jón Böðvarsson, skólastjóri Fjölbrautaskólans i Suðurnesjum og Bragi
Hannesson, bankastjóri Iðnaðarbanka Islands. Ljósm. Mbl /Júlfus
Landssamband iónaóarmanna:
Ritgerðarsamkeppni
um íslenskan iðnað
LANDSSAMBAND iðnaðarraanna
hefur ákveðið að efna til ritgerðar-
samkeppni um innlendan iðnað og
málefni tengd honum. Rétt til þátt-
töku hefur skólafólk á öllum aldri,
allt frá barnaskólastigi upp í efstu
háskólastig. Skilafrestur er til 1.
desember nk. og verða veitt þrenn
verðlaun, að upphæð kr.25.000, kr.
15.000 og kr. 10.000, auk tíu viður-
kenninga.
Ákvörðunin um ritgerðasam-
keppnina var tekin á síðasta aðal-
fundi sambandsins, sem var sá
þúsundasti i röðinni, með það að
markmiði að vekja ungt fólk til
umhugsunar um gildi innlends
iðnaðar og iðnþróunar fyrir ís-
lenskt þjóðlíf. Þátttakendur verða
ekki bundnir við að skrifa um
fyrirfram ákveðna titla, heldur er
þeim frjálst að taka á málinu
hvernig sem þeir vilja, hvort held-
ur er um afmarkaða málaflokka
sem tengjast fslenskum iðnaði,
eða í víðara samhengi.
Dómnefnd er skipuð þeim Sig-
urði Kristinssyni, forseta Lands-
sambands iðnaðarmanna, Braga
Hannessyni, bankastjóra Iðnaðar-
bankans, Ingjaldi Hannibalssyni,
forstjóra Iðntæknistofnunar ís-
lands og Jóni Böðvarssyni, skóla-
meistara Fjölbrautaskólans á
Suðurnesjum. Dómnefndarmenn
lesa hver i sínu lagi yfir þær rit-
gerðir sem berast og verður fullt
tillit tekið til aldurs og menntun-
arbrauta þátttakenda við mat á
gildi ritsmíðanna. Þá verður haft
samstarf við samtök kennara og
námsmanna um framkvæmd sam-
keppninnar.
Samkeppnin er sú fyrsta sinnar
tegundar sem Landssamband iðn-
aðarmanna gengst fyrir, en sam-
bandið hefur áður verið aðili að
ýmiskonar samkeppnum, sem
haldnar hafa verið í tengslum við
iðnsýningar.
Borgarstjóm Reykjavíkur:
Fulltrúar í útgerðar-
ráði verða 5 í stað 7
Á FUNDI borgarstjórnar Reykjavíkur
á fimmtudag var samþykkt með at-
kværtum borgarfulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins tillaga stjórnkerfisnefndar
um breytingu á samþykkt fyrir Bæjar-
útgerð Reykjavíkur þannig að kjörnir
stjórnarmenn í útgerðarráði verði 5 í
stað 7 áður.
Borgarfulltrúar Alþýðubanda-
lagsins, Alþýðuflokksins, Fram-
sóknarflokksins og Kvennaframboð-
sins greiddu atkvæöi gegn þessari
fækkun með þeim rökum m.a., að
hún skerti möguleika fulltrúa
minnihluta borgarstjórnar til þess
að fylgjast með og hafa áhrif á gang
mála í ráðinu.
Markús Örn Antonsson, formaður
stjórnkerfisnefndar, sagði m.a., að
þessi tillaga væri í samræmi við þá
meginstefnu, sem fulltrúar meiri-
hlutans i nefndinni hefðu mótað, að
fulltrúum f nefndum borgarinnar
verði almennt fækkað úr 7 f 5, m.a. í
félagsmálaráði, fræðsluráði og heil-
brigðisráði. Breytingar á þeim
nefndum kæmu hins vegar ekki til
framkvæmda fyrr en f upphafi
næsta kjörtfmabils borgarstjórnar,
en í útgerðarráð væri kosið til eins
árs í senn og þætti rétt að fram-
kvæma þessa breytingu hvað það
varðar strax. Þessi breyting væri f
samræmi við ákvörðun borgar-
stjórnar um að fækka fjölda borg-
arfulltrúa aftur f 15 og að fagnefnd-
ir borgarinnar verði ekki fjölmenn-
ari en borgarráð, sem er mikilvæg-
asta nefndin og skipuð 5 fulltrúum.
Með þessu væri verið að tryggja
markvissari vinnubrögð við stjórn-
un borgarinnar og sparnað í því til-
Uti. Skipan fámennari nefnda verði
hins vegar óbreytt.
Um að þessi fækkun takmarkaði
möguleika minnihlutaflokka til að
fylgjast með málum sagði Markús
að í upphafi þessa kjörtímabils
hefði sú regla verið fest f samþykkt
borgarinnar, að þau framboð, sem
ekki hefðu vægi til að fá fulltrúa í
borgarráð, hefðu rétt til að skipa
áheyrnarfulltrúa á fundum ráðsins.
Mundi sú regla gilda áfram. Ráð
væri fyrir þvf gert að allar fundar-
gerðir ráða og nefnda borgarinnar
yrðu lagðar fram til kynningar á
fundum borgarráðs, en nú gildir sú
regla að þær eru lagðar fram á
fundum borgarstjórnar. Með þeirri
skipan, að þær kæmu fyrir borgar-
ráð fengju allrir fulltrúar í borgar-
stjórn tækifæri til að fjalla um þær
fyrir borgarstjórnarfundi.
„Það er meginsjónarmið okkar að
skipanin á stjórn borgarinnar eigi
að vera í nokkuð föstu formi, en ekki
breytileg eftir því hve mörg fram-
boð koma fram. Ella gæti það þýtt
öfgar í fjölda fulltrúa f nefndum og
ráðum og hreinar ógöngur, þar sem
fjöldi framboðanna getur verið
mjög breytilegur," sagði Markús
m.a.
Aðspurður sagði hann, að áætlað
væri að stjórnkerfisnefnd skilaði
tillögum sínum f haust og væru þær
almennt við það miðaðar, að þær
komi til framkvæmda 1986. Rætt
hefði verið um nýja skipan nefnda
og ráða, m.a. um að nefndir sem
vinna á skyldum verkefnasviðum
verði sameinaðar f eina nefnd. Til
dæmis að fþróttaráð og æskulýðsráð
yrðu sameinuð í fþrótta- og tóm-
stundaráð. Ennfremur, svo dæmi
væri tekið, að ný menningarmála-
nefnd verði stofnuð úr nefndum,
sem starfa á sviði menningarmála,
þannig að hún gætti samræmingar f
þessum málum og annaðist m.a.
stjórn menningarstofnana borgar-
innar.
LJOSMYNDAÞJONUSTAN HF
í NÝJA HÚSINU VIÐ LÆKJARTORG
A TVEIMUR TIMUM