Morgunblaðið - 14.06.1984, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR MEÐ MYNDASÖGUBLAÐI
STOFNAÐ 1913
133. tbl. 71. árg.
FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 1984
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Stríð írana og íraka:
Ekki loftárásir
á íbúðarhverfi
Manama, 13. júní. AP.
SVO VIRÐIST sem íranir og írakar virði hvorir tveggja sam-
komulag, sem tókst fyrir tilstilli Sameinuðu þjóðanna, að láta af
loftárásum á íbúðarhverfi í löndunum. Flutningaskip margra
þjóða hafa einnig fengið að lesta olíu við Kharg-eyju óáreitt og
athygli hefur vakið að áróðursmenn þjóðanna tveggja hafa ekki
verið eins herskáir í yfirlýsingum sínum í dag eins og að undan-
förnu.
Berlinguer jarðsunginn
Sandro Pertini, forseti ftalíu, við líkkistu Enrico Berlinguers, formanns kommúnistaflokks landsins, f lok
útfarar hans í dag. Hundruð þúsunda manna fylgdu Berlinguer til grafar.
Sjá frétt og grein á bls. 22 og 23.
Uppreisn hermanna
síkha er bæld niður
Fréttir berast um aftökur í Gullna musterinu i Amritsar
Fréttaskýrendur benda hins
vegar á, að þetta þurfi ekki að
vera til marks um að friðvænlega
horfi í deilu þjóðanna og benda á,
að íranir hafa safnað saman
400.000 manna vopnuðu liði her-
Evrópuþing
kosið í dag
og sunnudag
BrUtwel, 13. júní. AP.
Á MORGUN, fimmtudag, er kosið til
Evrópuþingsins í Strassborg í fjórum
aðildarríkjum Efnahagsbandalags
Evrópu, Bretlandi, Danmörku, Hol-
landi og írlandi. í öðrum bandalags-
ríkjum fara kosningarnar fram á
sunnudaginn.
Þetta er í annað sinn, sem kosið
er beint til Evrópuþingsins. Fyrstu
kosningarnar voru 1979. Á þinginu,
sem formlega er æðsta valdastofn-
un Efnahagsbandalagsins og kem-
ur saman mánaðarlega, sitja 434
fulltrúar, en samtals eru frambjóð-
endur í löndunum tfu, sem aðild
eiga að bandalaginu, 4.626. Á kjör-
skrá eru yfir 200 milljónir manna.
Nýleg skoðanakönnun, sem
framkvæmd var á vegum Efna-
hagsbandalagsins, leiddi í ljós, að
57% kjósenda í aðildarríkjunum.
telja Evrópuþingið hafa lítil sem
engin raunveruleg völd eða vita
ekki hver áhrif þess eru. 35% að-
spurðra kváðust ekki sjá neinn til-
gang í því að taka þátt í kosningun-
um.
Sjá: „Styrkleikapróf milli f)okka“
á bls. 20.
manna og sjálfboðaliða, sem
virðist vera að búa sig undir inn-
rás í Basra-hérað í suðurhluta
íraks. Á landamærum írans og
íraks við Basra kom enn til
skotbardaga í dag, en ekki er tal-
ið að mikið mannfall hafi orðið.
Utanríkisráðherrar sex araba-
ríkja við Persaflóa, Saudi-
Arabíu, Kuwait, Sameinuðu ara-
bísku furstadæmanna, Bahrain,
Qatar og Óman, sitja á lokuðum
fundi í Taif í Saudi-Arabíu og
ræða hvernig tryggja megi sigl-
ingar um flóann. Þeir segjast
vonast til þess að friður verði
senn saminn milli Irana og ír-
aka, en á meðan muni þeir verja
hagsmuni sína á flóanum, jafn-
vel þótt það kosti að þeir dragist
inn í átökin.
AmriLsar og Nýju I)elhí, 13. júní. AP.
AÐ MINNSTA kosti 102 liðhlaup-
ar úr indverska hernum, sem til-
heyra trúflokki síkha, hafa verið
felldir í átökum við lögreglu og
hermenn í níu fylkjum á Indlandi,
þar sem síkhar hafa efnt til mót-
mælaaðgerða til að lýsa andúð
sinni á árásinni á mesta helgistað
þeirra, Gullna musterið í Amritsar
í Punjab-fylki, f síðustu viku.
Um 2.000 hermenn úr flokki
síkha yfirgáfu herfylki sín um
helgina til að taka þátt í mót-
mælum trúbræðra sinna. 600
þeirra hafa verið handteknir og
flestir hinna munu hafa gefist
upp.
Talið er að um 4.000 síkhar
hafi tekið þátt í útifundi og mót-
mælagöngu í miðborg Bombay í
dag, en lögregla sundraði
mannfjöldanum.
Haft var eftir talsmanni varn-
armálaráðuneytis Indlands í
dag, að ekki hefði komið til frek-
ari uppreisna síkha í hernum og
kvaðst hann sannfærður um að
slíks væri ekki að vænta.
Frá Amritsar berast enn nýj-
ar upplýsingar um blóðbaðið þar
í síðustu viku. Er haft eftir
lækni og lögregluforingja í dag,
að margir þeirra rösklega eitt
þúsund síkha sem féllu í bardög-
um í Gullna musterinu og ná-
grenni þess, hafi verið skotnir til
bana af dauðafæri. „Ég skoðaði
lík tveggja síkha," sagði læknir-
inn, „og hendur þeirra voru
bundnar á bak aftur." Hann
kvaðst hafa heyrt um fleiri
dæmi slíks ofbeldis.
Lögregluforingi í Amritsar
kvaðst hafa vitneskju um, að
a.m.k. 13 síkhar úr Gullna must-
erinu hefðu verið bundnir á
höndum og fótum af hermönnum
stjórnarinnar og skotnir með
köldu blóði á staðnum.
Jonathan Motzfeldt
Motzfeldt lík-
legur formaður
Nuuk (iodthaab, 13. júní, frá NíIm Jörgen-
Bruun. frétUriUra Mbl. á Urænlandi.
SAMKOMULAG hefur enn ekki
tekist um myndun landsstjórnar á
Grænlandi, en kosningar til lands-
þingsins fóru fram fyrir viku. Leidtog-
ar flokkanna þriggja, Atassut, Niumut
og Inuit, hafa ræðst við, en engin
niðurstaða hefur fengist. Þó er talið
fullvíst að Jonathan Motzfeldt úr Ni-
umut-flokknum verði á ný formaður
landsstjórnarinnar.
Atassut-flokkurinn, sem var í
stjórnarandstöðu fyrir kosningar,
gerir ekki kröfu til embættis for-
manns en vill aftur á móti fá helm-
ing landsstjórnarmanna í sinn
hlut.
í forystugrein Grænlandspósts-
ins í dag er hvatt til samstarfs At-
assut og Siumut og á það bent, að
höfuðágreiningsmál flokkanna, af-
staðan til Efnahagsbandalags Evr-
ópu, sé ekki lengur á dagskrá og því
ekkert samstarfi til fyrirstöðu.
Landsþingið kemur saman til
fyrsta fundar síns eftir kosn-
ingarnar þriðjudaginn 19. júní.
Samþykkt hollenska þingsins um kjarnorkueldflaugar:
Staðfestir ákvörðun
ríkisstjórnarinnar
llaag, 13. júní. AP.
HOLLENSKA þingið samþykkti í
nótt, að staðfesta þá ákvörðun
ríkisstjórnar landsins, að hefja
uppsetningu 48 meðaldrægra
kjarnorkueldflauga Atlantshafs-
bandalagsins eftir tvö ár, ef Sov-
étmenn falla ekki frá því að
koma fyrir kjarnorkuflaugum af
gerðinni SS-20 í Evrópu.
Ruud Lubbers, forsætisráð-
herra Hollands, sagði í bing-
ræðu í dag, að samþykkt þessa
efnis væri skylda gagnvart
Atlantshafsbandalaginu. Leið-
togi kristilegra demókrata,
Bert de Vries, sagði að ef
bandalagið gæti ekki fylgt eftir
ákvörðun sinni frá 1979 mundu
Sovétmenn sjá það sem veik-
leikamerki.
Miklar deilur hafa verið í
Hollandi í hálft fimmta ár um
flaugarnar. Den Uyl, leiðtogi
Verkamannaflokksins og fyrr-
um forsætisráðherra, sagði í
dag, að ákvörðun ríkisstjórnar-
innar, að tengja uppsetningu
flaugannaa við athafnir Sov-
étmanna þýddu í raun, að hol-
lenska þingið væri „gísl banda-
rískra gervihnattamynda" og
við það væri ekki hægt að una.