Morgunblaðið - 14.06.1984, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 14.06.1984, Blaðsíða 2
'2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 1984 Ólíklegt að Einar fái bát sinn bættan — Báturinn sjósettur á sunnudag, en aöeins sólarhring sföar hafði danskur sjóliöi strandað honum við Engey SVO virðist sem Kinar Hákonarson, eigandi hraðbátsins, sem skipverji á danska skipinu Beskytteren sigldi í strand norðan við Engey muni ekki fá bát sinn bættan. Báturinn var sól- arhringsgamall og metinn á um eina milljón króna. Maðurinn er um borð í danska herskipinu, sem siglir til Grænlands nú á hádegi. „Gáttaður á framferði danskra stjórnvalda“ Einar Hákonarson, eigandi bátsins, sagði að báturinn hefði verið splunkunýr hraðfiskibátur, smíðaður hjá bátasmiðju Guð- mundar í Hafnarfirði og sjósettur að kvöldi hvítasunnudags. Honum var stolið á annan í hvítasunnu og siglt á rif norðan við Engey, þar sem skipverjar sanddæluskips fundu hann gjörónýtan. Báturinn var ótryggður. „Ég fékk lögfræðing og sam- kvæmt fyrstu upplýsingum frá herskipinu áttum við að fá skað- ann bætan að fullu. Síðan kom til- kynning frá skipstjóranum og danska sendiherranum, að þar sem sjóliðinn hefði verið í frítíma þegar óhappið varð þá bæri danska ríkið enga ábyrgð á mann- inum. Hann var síðan látinn laus og er um borð í skipinu. Ég verð að lýsa furðu minni á því að slíkt skuli vera vafamál að viðkomandi ríki þeirra herskipa sem hingað koma skuli ekki bera fulla ábyrgð á mönnum sínum. Heldur geta þeir komið í land og skemmt eigur einstaklings fyrir milljónir króna og siglt síðan í burtu án þess einu sinni að biðjast afsökunar á fram- ferði sínu. Ég vona að Danir sjái sóma sinn í því að koma öðruvísi fram en þeir hafa þegar gert. Is- lensk stjórnvöld hafa heldur ekki sýnt neinn vilja til að verja rétt þegna sinna. Það er kominn tími til að þau endurskoði reglur um heimsóknir herskipa þegar ekki er lengur hægt að vernda borgarana í þessu landi," sagði Einar. Lögmaður Einars vildi ekkert láta hafa eftir sér um málið þar sem það væri enn á frumstigi og ekki öll gögn komin fram. Um tryggingamálin sagði hann að þar sem tryggingastofnanir væru lok- aðar á annan í hvítasunnu hefði báturinn verið ótryggður og það væri einskær óheppni að svona skyldi fara. „En í framhaldi af þessu máli hlýtur að verða ljóst að reglur þarf um svona aðstæður og vonandi opnast augu almennings fyrir því. Þetta er ekki aðeins dómsmál heldur varðar einnig sambúð ríkjanna, og er því afar viðkvæmt." „Hef boðað danska sendiherrann á minn fund“ Aðspurður um málið svaraði Ingvi Ingvason, ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu, að hann hefði kallað danska sendiherrann á fund til sín árdegis í dag til að kanna hvort yfirlýsing dönsku stjórnvaldanna væri rétt eftir höfð og til að leita frekari skýr- inga. Hvert framhaldið verður á þessu máli ræðst eftir þann fund. „Samkvæmt úrskurði dómstóla í fyrradag er maðurinn í farbanni og fær ekki að fara úr landi. Hann er ábyrgur gerða sinna sem hann nú virðist ekki vera borgunarmað- Morgunblaðið/Páll Ólafsson. Bátur Einars llákonarsonar við sjósetningu á sunnudag. Átján lóðir seld- ar í Stigahlíð — á 3. hundrað manns um þær fjórar sem eftir eru „ÁTJÁN mönnum hafa verið boðnar átján lóðir. Allir hafa þeir þegið þær og gengið frá samningum. Þá eru fjórar lóðir eftir og það eru á þriðja hundrað manns sem koma til álita um þær. Ég á ekki von á öðru en að sala þeirra gangi fljótt fyrir sig. Hverjum þeim sem býðst að kaupa lóð er gefinn sólarhringur til aö ákveða sig og eins og ég sagði hafa allir þeir sem hafa átt kost á lóð tekið hana,“ sagði Davíð Oddsson, borgarstjóri, er hann var spurður um sölu lóða í Stigahlíð. Þær lóðir eru seldar hæstbjóðanda og er þaö í fyrsta sinn sem slíkur háttur er hafð- ur á. Að sögn borgarstjóra hefur sala lóðanna heppnast mjög vel. Hann kvaðst ekki geta gefið upp verð lóðanna, en sagðist gera ráð fyrir að borgarráði yrði fljótlega skýrt frá heildarfjárhæð af sölu lóð- anna, jafnvel í næstu viku. „Þá geta menn náttúrulega dundað við að reikna út meðalverð lóðanna," sagði borgarstjóri, en vangaveltur hafa að undanförnu verið í fjöl- miðlum um verð lóða í Stigahlíð- ur fyrir. Hvert framhald málsins verður gat Ingvi ekki tjáð sig um á þessu stigi. „Auðvitað er óeðlilegt að annar en sá seki beri skaða af þessu óhappi, og sjálfsagt að dæma manninn en svo er aftur allt annað hvort hann getur borg- að.“ Um hvort málið yrði tekið upp hjá dönskum dómstólum gat Ingvi ekki svarað. „Kokkurinn siglir meö hefti íslensk dómsvöld ekki för hans“ Fyrir svörum um borð í danska herskipinu, sem nú liggur við Daníelsbryggju, varð Schjott sjó- liðshöfuðsmaður. Hann itrekaði að hvorki dönsk stjórnvöld né danski sjóherinn bæri ábyrgð á sjóliðanum í frítíma hans. Þá væri hann eins og hver annar danskur ríkisborgari á fslandi. „Hann er ráðinn sem kokkur í þennan túr og er ekki í danska sjóhernum. Hann fer allra ferða sinna hér um borð og siglir með til Grænlands á há- degi svo fremi sem íslensk stjórn- völd hefta ekki för hans. Þá verður hann að sjálfsögðu skilinn eftir. Óhappið með bátinn mun ekki breyta stöðu hans hér um borð að öðru leyti en því, að hann fær ekki að fara í land.“ Aðspurður um hvort málið yrði tekið upp hjá dönskum dómstólum við komuna til Danmerkur svaraði hann að það færi alveg eftir aðgerðum ís- lenskra dómsvalda. Janus August Worm Paludan, sendiherra Dana á íslandi, varðist allra frétta er hann var inntur álits. Engin fyrirmæli höfðu bor- ist frá dönskum yfirvöldum hvernig bregðast skyldi við þessu atviki og því vildi hann ekkert láta hafa eftir sér hvorki persónulega né sem opinber starfsmaður. ísbjörninn hf.: Ljósm. Mbl. Emilía. Lóðin sem um ræðir er svokölluð Bárulóð, en þar á borgin hús, auk þess sem bílastæði eru á lóðinni. Hugmynd Davíðs Oddssonar, borgarstjóra: Lítið ráðhús við Tjörnina „ÞESSI hugmynd mín er lauslega sú hvort hugsanlega megi koma fyrir hógværu ráðhúsi á svokallaðri Bárulóð við norðurenda Tjarnarinnar. Ég hef beðið borgarskipulag og forstöðumann þess að skoða hvort slíkt sé mögulegt, en þetta er á vangaveltustiginu ennþá," sagði borgarstjóri, Davíð Oddson, er hann var inntur eftir hugmyndum sínum um ráðhús við Tjörnina. — Hvað kallast „hógvært" ráðhús? „Það er ráðhús sem myndi hýsa starfsemi á skrifstofu borgar- stjóra og það sem helst þarf þar að vera, auk þess sem borgar- stjórnarsalur yrði þar,“ sagði Davíð. „Móttökuhús á borgin, sem er Höfði, sem og eigið skrifstofuhúsnæði víða um Reykjavík, en skrifstofa borgar- stjóra er í leiguhúsnæði. Ég held að það færi vel á því að borgin, eins og aðrir staðir, stórir og smáir, hefði sínar höfuðstöðvar í eigin ráðhúsi í hjarta Reykjavík- ur. Það hafa áður verið uppi hugmyndir um ráðhús við Tjörn- ina. Um tíma áætlað að þar yrði geysilega stórt ráðhús, sem jafn- vel myndi hýsa borgarleikhús og átti það að ná yfir allan enda Tjarnarinnar. Ég er ekki að hugsa um slíka byggingu," sagði borgarstjóri. Tilraunavinnsla á karfa fyrir Japan ínni. f HRAÐFRYSTIHÚSI fsbjarnarins hf. í Reykjavík er unnið að tilrauna- vinnslu á karfa fyrir Japansmarkað. Karfinn er hausskorinn, slægður og hreinsaður sérstaklega vel. Síðan er sett á hann efni til að rauði liturinn haldist betur og síðan er honum pakkað í 6 kg. pakkningar. Jón Ingvarsson, framkvæmda- stjóri ísbjarnarins hf., sagði í samtali við Mbl. að þessi vinnsla væri á tilraunastigi en með henni væri ætlunin að fullreyna þá möguleika sem þarna virtust vera fyrir hendi. í upphafi væri um lít- ið magn að ræða en vonast væri til að með þessu móti fáist betra verð en fæst fyrir karfann í Evrópu og jafnvel í Bandaríkjunum. Sagði hann að Japanir væru mikil fisk- neysluþjóð og ef þeim líkaði þessi vara þá gæti opnast þarna góður markaður fyrir karfa. Þá sagði Jón að japönsku kaupendurnir gerðu miklar kröfur til gæða. Karfinn þyrfti að vera alveg nýr og mjög rauður. Meðal annars hefðu þeir mann hér til að fylgjast með vinnslunni og velja hráefnið. Atkvæðagreiðsla ólögleg — segir formaður Stúdentaráðs um vantrauststillöguna „Atkvæðagreiðslan um van- traust var ólögleg þar sem í Ijós hefur komið að einn fulltrúi félags vinstrimanna er ekki hafði rétt til að taka þátt í atkvæðagreiðslunni gerði það engu að síður. Það er því Ijóst að samþykkt vantraustsins er ómerk,“ sagði Stefán Kalmansson, formaður Stúdentaráðs, er Morg- unblaðið innti hann eftir stöðu mála í ráðinu. Eins og fram hefur komið í fréttum var vantraust borið fram á formann og stjórn Stúd- entaráðs sl. þriðjudagskvöld og var það samþykkt. Ástæður van- traustsins var óánægja með frammistöðu stjórnarinnar í lánamálum. Aðspurður sagði Stefán að vinstrimenn hefðu verið spurðir á fundinum hvort allir fulltrúar þeirra hefðu atkvæðisrétt. „Þeir fullyrtu að svo væri. Menn treystu því, en það traust var greinilega byggt á sandi.“ — En hver er framtíð sam- starfs umbótasinna og Vöku? „Það kemur í ljós nk. þriðju- dag, en þá verður fundur í Stúd- entaráði. Hins vegar er ljóst að með framkomu sinni hafa vinstrimenn sundrað stúdenta- hreyfingunni einmitt á þeim tíma þegar mest er þörf á ein- ingu og samstöðu meðal stúd- enta í hagsmunabaráttunni," sagði Stefán að lokum. Hermann Þórisson Drukknaöi í Hvítá MAÐURINN, sem drukknaði í Hvítá í Borgarfirði aðfaranótt hvítasunnudags, hét Hermann Þórisson, til heimilis að Lækjarfit 3 í Garðabæ. Hann var 21 árs að aldri, ókvæntur og barnlaus.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.