Morgunblaðið - 14.06.1984, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 14.06.1984, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 1984 21 Lifandi list Leiklist Jóhann Hjálmarsson Listahátíð: Jack Helen Brut: LICHTCOPY. Jack Helen Brut er hópur finnskra listamanna sem á ný- stárlegan hátt sameinar hinar ýmsu listgreinar: dans, mynd- list, tónlist og bókmenntir. Þetta er fyrst og fremst leikræn tján- ing í anda hreyfilistar. Með tæknibrögðum er brugðið upp ýmsum myndum sem líkjast helst sjónhverfingum og eru einnig nátengdar súrrealisma og jafnvel afstraktlist. Lichtcopy er með texta úr verki Williams Blakes, Marriage of Heaven and Hell. Hjá Helen Brut var þetta magnaður flutn- ingur, sýningin lifandi, speglaði í senn yndisleik og afskræmingu mannslíkamans, einsemd hans og samkennd. Áhorfandanum verður ljóst hve margt og merkilegt er unnt að gera á leiksviði þegar ekki skortir áræði. Hópur eins og Jack Helen Brut er einmitt það sem stundum vantar í íslenska list; af honum má læra. Þar með er ekki sagt að við höfum aiger- lega farið á mis við list af þessu tagi. Sem betur fer hefur við- leitni í þessa átt komið fram. Leiklistin þarf eins og aðrar listgreinar að vera í sífelldri endurskoðun og helst leggja eitthvað til mála sem kemur okkur á óvart. Jack Helen Brut var ferskur andblær á Listahátíð 1984. Frá sýningu Jack Helen Bnit. VÖRUKYNNING A Véltak hf. vélaverslun sýnir í dag og næsti daga frystiskáp af gerð inni Plate Junior. Frysti skáparnir eru tilbúnir ti notkunar, aðeins þarf aí tengja vatn og rafmagn. Komið — leitið upplýsinga. Véltak hf. vélaverslun, Hvaleyrarbraut 3 — Hafnarfiröi — sími 50236. Einingar úr hinni nýju léttsteypu. Morgunblaðið/ Júlíus. Unnið að gerð nýrrar léttsteypu STEYPUSTÖÐ B.M. Vallá hf. vinnur um þessar mundir í samvinnu viö Rannsóknastofnun byggingariðnaðar- ins, að gerð nýrrar léttsteypu. Hjá Víglundi Þorsteipssyni, framkvstj. B.M. Vallá, fengust þær upplýsingar að unnið væri að fram- leiðslu útveggja- og lofteininga úr léttsteypu, en sú framleiðsla væri þó öll á tilraunastigi. Víglundur kvað helsta kost léttsteypunnar vera þann að rúmþyngd hennar er rétt liðlega 40% af rúmþyngd venjulegrar steypu. Af því leiðir að eiginþyngd bygginga mun minnka verulega svo og mun flutningsþyngd verksmiðju- framleiddu eininganna minnka til muna. Ennfremur sagði Víglundur, að hugmyndin væri að tilraunahúsið úr ofangreindum einingum, yrði nýr rannsóknaskáli Rannsóknastofnun- ar byggingariðnaðarins á Keldna- holti og er ætlunin að það hús rísi á hausti komanda. fluglýsing um styrki úr Minningarsjóði Helgu Jónsdóttur og Sigurlioa Kristjánssonar Stjórn Minningarsjóös Helgu Jónsdóttur og Sigur- liöa Kristjánssonar, kaupmanns, auglýsir hér meö eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum. Styrkirnir eru ætlaöir nemendum í verkfræði- og raun- vísindanámi. Umsóknareyðublöö fást á aðalskrifstofu Háskóla íslands og ber jafnframt aö skila umsóknum þang- aö. Umsóknarfrestur er til 1. ágúst nk. og er fyrir- hugað aö tilkynna úthlutun fyrir 20. sama mánaö- ar. Lágmarksupphæð hvers styrks mun væntan- lega nema kr. 50 þúsund. VERKFRÆÐINGAR-ARKITEKTAR-AUGLÝSINGASTOFUR-HÚSBYGGJENDUR LOKSINS á íslandi: I XEROX 2080 teikningaljósrítun Smækkun og stækkun á teikningum á venjuiegan pappfr, tracing pappír eöa plast hvaöa m m FJOLRITUN HF HVERFISGÖTU 105 S. 26235 (NÆG BÍLASTÆÐI BAK VIÐ HÚSIÐ OG INNGANGUR ÞAR)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.