Morgunblaðið - 14.06.1984, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 1984
3
Sendiherra Vati-
kansins heimsæk-
ir Reykjavík
SENDIHERRA Vatikansins á Norö-
urlöndunum, Luigi Bellotti crkibisk-
up, er staddur hér í Reykjavfk. Hann
hefur verið sendiherra Páfaríkisins
um nokkurt árabil og hefur komið
hingað til lands áður. Erkibiskupinn
mun lesa messu í Dómkirkju Krists
konungs, Landakotskirkju, laugar-
daginn kemur kl. 18.
Að messunni lokinni gefst
kirkjugestum tækifæri til að hitta
erkibiskupinn að máli í safnaðar-
heimili kaþólskra á Hávallagötu
16.
Sovéska sendiráðið:
Samkomulag um
að færa skerminn
NÁÐST hefur samkomulag við sov-
éska sendiráðiö um að lækka og færa
móttökuskerm, sem nú er á suð-vestur
hlið sendiráðsins, á norðausturhlið
hússins í innskot er snýr að Garða-
stræti.
Að sögn Hilmars Guðlaugssonar
formanns byggingarnefndar Reykja-
víkurborgar var hin nýja staðsetn-
ing skermsins kynnt nágrönnum
sendiráðsfólksins samkvæmt bygg-
ingarreglugerð, og komu fram engin
viðbrögð frá þeim um hinn nýja staðT
Því væri næsta skrefið að ýta á eftir
því að sovéska sendiráðið legði inn
umsókn um að færa móttökuskerm-
inn á þann stað, sem samkomulag
hefði náðst um, og yrði það gert
fljótlega.
„Eftirlit-
ið ekki
nógu gott“
— Segir Sveinn Ein-
arsson veiðistjóri um
varnir refabúanna
„ÞAÐ BAR mikið á þessu fyrir nokkr-
um árum, þegar fyrstu refabúin voru
að taka til starfa, en núna virðast varn-
irnar vera komnar í betra lag," sagði
Sveinn Einarsson veiðistjóri í samtali
við Mbl. er hann var spurur að þvf
hvort mikið væri um að alirefir slyppu
úr haldi á refabúunum en eins og fram
kom hér í blaðinu á miðvikudag þá
unnu refaskyttur greni með aliref og
íslenskri tófu um Hvítasunnuhelgi.
Er það í fyrsta skipti á siðara
skeiði íslenskrar refaræktar að slíkt
greni finnst en greni hafa fundist
undanfarin ár þar sem íslenskur ref-
ur og alilæða hafa parað sig saman.
Sveinn sagði að þó færri refir virtust
sleppa núna en þegar refaræktin var
að byrja væru varnirnar engan veg-
inn nógu góðar. Slakað hefði verið á
kröfum t.d. varðandi girðingar i
kringum búin. Þá væri eftirlit held-
ur ekki nógu gott. Sveinn sagðist
ekki vita hvaðan refurinn sem drep-
inn var um helgina hefði komið, þar
sem hann hefði verið ómerktur, en
vitað væri að nokkrir refir hefðu
sloppið frá refabúinu í Krísuvik eftir
að það var stofnað. Sagði hann að
lifdýr, þ.e. refir sem settir væru á að
hausti, ættu að vera merkt en hvolp-
ar sem ætti að felda (slátra) að
hausti væru ómerktir og ef þeir
slyppu væri erfitt að henda reiður á
hvaðan þeir væru. Þá sagði Sveinn
að grunur léki á að að minnsta kosti
1 eða 2 alirefir til viðbótar þeim sem
unnir hefðu verið á Reykjanesskag-
anum væru þar enn.
Skyndibankar
ekki á döfinni
hér á landi
— íslenzkir VISA-
korthafar geta not-
fært sér þessa þjón-
ustu erlendis á næsta
ári
í 18 löndum er nú veriö að koma
upp 600 skyndibönkum, eða sjálf-
sölum fyrir VISA-korthafa, þar sem
unnt er að fá peninga í seðlum út á
greiðslukort. Eru þessir skyndi-
bankar að ryðja sér til rúms í ná-
grannalöndum okkar, en að sögn
Einars S. Einarssonar, forstöðu-
manns VISA-greiðslukorta, verður
einhver bið á því að þeim verði
komið fyrir hér á landi. Hins vegar
gefst VISA-korthöfum kostur á að
nýta sér þessa þjónustu erlendis á
næsta ári. Þá verða komin á
greiðslukortin svokölluð persónu-
númer, sem gerir fslendingum
kleift að taka út peninga úr skyndi-
bönkunum.
Erlendis hefur þessum skyndi-
bönkum verið komið fyrir þar
sem ferðamenn geta auðveldlega
notfært sér þá, t.d. á flugvöllum,
en síðar er ráðgert að setja þá
upp á fleiri stöðum.
Þegar sekúndur
kipta sköpum
þarf réttar upplýsingar strax!
v- '
/i a
(L ^
í SOS nistiö setur þú allar mikilvægustu persónuupplýsingar ásamt læknisfræðilegum
upplýsingum. Blóöflokk þinn, um lyfjaofnæmi, sykursýki, hjartasjúkdóma, lyfjaþörf
og fl. og fl. — allt upplýsingar sem geta verið lífsnauösynlegar, hvort heldur sjúkdóma eða
slys ber skyndilega að höndum.
Sölustaðir:
Hjálparsveitir skáta — Skátabúðin við Snorrabraut — einnig flest apótek, ferðaskrifstofur
landsins og nokkrar úra- og skartgripaverslanir.
SOS- nistið, öryggishlutur og skartgripur í senn.
Halsmen
□ A1 Stál 370 kr.
□ A2 Stál m/gyllingu 390 kr.
Á úr-ól
□ B1 Stál. (krómhúdað) 12 mm,
konur, börn, 270 kr.
□ B2 Stál, 18 mm, karlmenn 390 kr.
Æ
LANDSSAMBAND
HJÁLPARSVEITA SKÁTA
í armkeðju
Q C1 Stál. breið keðja 390 kr
Q C2 Stál, grönn keðja 390 kr
//í .
/ ff O
/
/
o
r/
O