Morgunblaðið - 14.06.1984, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 1984
5
Læknaþing norrænna bæklun-
arskurðlækna í Reykjavík
NORRÆNT þing bæklunarskurðlækna í Reykjavík, hefst á morgun, fimmtu-
dag, og er þetta í fyrsta sinn sem slíkt þing er haldid hér á landi, en þau eru
þriðja hvert ár á hinum Norðurlöndunum til skiptis. Þátttakendur verða um
350 talsins frá Norðurlöndunum auk Bandaríkjanna, Kanada, Englandi, Holl-
andi og Vestur-Þýskalandi. Haldnir verða 145 fyrirlestrar frá sex löndum í
húsakynnum Háskólans og Þjóðleikhúsinu, þrír samtímis. Aðalumræðuefni
verða bæklunarskurðlækningar á fótum, brjósklos í hryggjarsúlu og hin sívax-
andi tíðni bæklunarsjúkdóma. Heiðursfyrirlesarinn kemur frá Chicago, Jorge
Galante, og mun hann flytja erindi um áhrif ólífrænna hluta á beinin umhverf-
is liðinn (implant materials and bone reactions).
Að sögn Dr. Stefáns Haralds-
sonar, yfirlæknis bæklunarskurð-
deildar, forsta ráðstefnunnar og
forseta Norðurlandasambands
bæklunarskurðlækna, er þróunin
mjög ör í þessari tegund skurð-
lækninga. Til þess liggja ýmsar
ástæður. Hækkandi meðalaldur
fjölgar tilfellum slitsjúkdóma,
atvinnusjúkdómum fjölgar með
iðnvæðingu og samfara aukinni
umferð fjölgar slysum, en um 80%
af öllum slysum eru meðhöndluð af
bæklunarskurðlæknum. Auk þess
bjóðast sífellt nýir möguleikar til
lækninga sem enn eykur eftir-
spurnina. Áhugi fyrir greininni er
einnig mjög mikill eins og sjá má
af fjölda fyrirlestranna á þinginu,
en þeir hafa ekki verið svo margir
hingað til.
Tækniþróun við bæklunarskurð-
aðgerðir hefur tekið stórstígum
framförum með tilkomu gerviliða í
stað skemmdra. Sem dæmi um
þessa þróun má nefna að á rúmum
áratug sem bæklunarskurðdeild
Landspítalans hefur starfað hefur
verið skipt um mjaðmarlið á um
annað þúsund íslendingum og um
hnjáliði á annað hundrað sjúkling-
um. Yngsti mjaðmarliðsþeginn er
18 ára stúlka og yfir 90% allra
skurðaðgerða bera góðan árangur.
Nú eru bæklunarskurðlækningar
stundaðar á 4 sjúkrahúsum í land-
MorgunbladiÖ/G.B.B.
Dr. Stefán Haraldsson, yfirlæknir
bæklunarskurðdeildar Landspítal-
ans og forseti Norðurlandasam-
bands bæklunarskurðlækna.
inu og 74 rúm eru til fyrir þessa
sjúklinga sem annar engan veginn
þörfinni fyrir legurými. Á biðlista
bæklunarskurðdeildar Landspítal-
ans eru u.þ.b. 500 sjúklingar og bið-
tíminn eftir sjúkrarúmi eru 1—2
ár. „Hér á Landspítalanum munum
við loka 13 rúmum í fjórar vikur í
sumar vegna sparnaðar stjórn-
valda. Það þykir okkur afar slæmt
þar sem þörfin er mjög brýn eins
og biðlistarnir sýna. Með
bæklunarskurðlækningum er hægt
að breyta örorkuþega í vinnandi
skattgreiðanda sem hlýtur að vera
þjóðhagslega hagkvæmt svo ekki sé
minnst á hamingju og velferð
sjúklingsins og hans nánustu. Við
teljum þennan sparnað í raun dýr-
ari fyrir þjóðfélagið en að halda
deildinni í fullum gangi. Það hlýtur
að vera hverjum manni ljóst að
fjárfesting í heilbrigði þegnanna
og fyrirbyggjandi aðgerðir skila
sér margfalt. Sem dæmi mætti
nefna að okkur telst til að það sé
fjórfalt dýrara að lækna sjúkling
sem kominn er í hjólastól heldur en
þann sem enn er ekki svo bæklaður.
Við reynum þó allt sem við getum
til að hjálpa fólki sem á erfiðast og
er jafnvel komið í kör vegna lang-
rar sjúkralegu. En eins og fyrr
vantar okkur fleiri rúm. í könnun
sem gerð var í Svíþjóð 1968, taldist
reiknimeisturum að þörfin fyrir
legurými samsvaraði 0,6—0,7% af
íbúatölu þess svæðis sem þjóna
ætti. Það væru um 150 rúm en jafn-
framt hefur þörfin aukist síðan þá
svo víst er talan nokkuð hærri.
Þetta sýnir að íslendingar eiga enn
langt í land hvað varðar rými."
Aðspurður um úrbætur svaraði
Stefán að áætlað væri að bæta við
13 rúmum en hvenær það kæmi til
framkvæmda væri alveg óráðið.
„Það er nú svo að allar ákvarðanir
sem teknar eru um stofnanir sem
þessar liggja hjá embættis- og
stjórnmálamönnum en sérfræð-
ingarnir eru sjaldan hafðir með í
ráðum."
Mbl./ KEE.
Lucia Valentini-Terrani ásamt stjórnanda Sinfóníuhljómsveitar íslands
Jean Pierre Jacquillat.
Listahátíð:
— Lucia Valentini-Terrani
syngur í Háskólabíói
ÍTALSKA messósópransöngkonan Lucia Valentini-Terrani kom til lands-
ins í gærmorgun, en hún heldur tónleika í Háskólabíói í kvöld ásamt
Sinfóníuhljómsveit fslands. Stjórnandi Sinfóníuhljómsveitarinnar er J.P.
Jacquillat og hefjast tónleikarnir klnkkan 20.30.
Á efnisskrá óperutónleikanna
er meðal annars aría úr óperunni
„Rakarinn í Sevilla" eftir Rossini,
forleikur og milliþáttamúsík úr
óperunni „Carmen" eftir Bizet og
intermezzo úr óperunni „Cavall-
eria Rusticana" eftir Mascagni.
Lucia Valentini-Terrani mun
aðeins dvelja á íslandi í tvo daga
og því var í miklu snúast hjá
henni er blm. Mbl. hitti hana að
máli í gær. Aðspurð sagði hún:
„Ég fylltist hrifningu en um leið
ró er ég kom til Islands í nótt. Því
miður gefst mér ekki tækifæri til
að skoða landsbyggðina þar sem
ég held utan strax að tónleikunum
loknum, en það litla sem ég hef þó
séð af landinu sannfærir mig um
fegurð þess. Ég er ákveðin í því að
koma aftur til fslands við fyrsta
tækifæri og kynnast betur landi
og þjóð,“ sagði Lucia Valentini-
Terrani brosandi um leið og hún
kvaddi, því tíminn var naumur og
stór dagur framundan hjá henni.
28. þing Alþjóða
verslunarráðsins
„ENDURREISUM atvinnulífið —
hlutverk viðskipta'* er yfirskriftin á
28. þingi Alþjóða versíunarráðsins,
sem haldið verður I Stokkhólmi
17.—21. júní næstkomandi. Um 5
þúsund þátttakendur víðsvegar að
úr heiminum verða á þinginu. Á ann-
an tug forsvarsmanna íslenskra
fyrirtækja, stofnana og félaga sækja
þingið á vegum landsnefndar Al-
þjóða verslunarráðsins á íslandi.
Fjöldi þekktra manna mun taka
þátt í störfum þingsins. Karl
Gústav Svíakonungur mun setja
þingið, en auk hans munu Olof
Palme, forsætisráðherra Svíþjóð-
ar, Gaston Thorn, formaður fram-
kvæmdastjórnar EBE, Arthur
Dunkel, framkvæmdastjóri
GATT, og Klaus Sahlgren, fram-
kvæmdastjóri efnahagsnefndar
Sameinuðu þjóðanna í Evrópu,
ávarpa þingið.
Ýmsir þekktir talsmenn at-
vinnulífsins munu flytja erindi á
þinginu og má þar nefna: Henry
Ford II (US), Jan Carlzo, fram-
kvæmdastjóra SAS (Svíþjóð), sem
heldur erindi um atvinnu- og
stjórnunarfrelsi, Hugh Cullan
(US) ræðir um eftirlit stjórnvalda
með viðskiptum, Pehr Gyllen-
hammar, stjórnarformaður Volvo,
kynnir nýjar leiðir til atvinnu og
fjárfestingar, Jaakko Lassila frá
Finnlandi heldur erindi um fjár-
festingar, þjóðfélagskröfur og
breytileika vinnuafls, Sir Leslie
Smith (Bretlandi) mun ræða
hvernig bregðast megi við við-
skiptahöftum og Ismu Yamashita
INNLENJ
(Japan) mun ræða atvinnumögu-
leika á tímum breytinga.
Landsnefnd Alþjóða verslunar-
ráðsins á íslandi var stofnuð á síð-
asta ári. Hlutverk nefndarinnar er
að miðla félagsmönnum sínum
stefnu Alþjóða verslunarráðsins
og móta stefnu íslands í málefn-
um þess auk þess að kynna íslensk
málefni á vettvangi Alþjóða versl-
unarráðsins. Formaður lands-
nefndar Alþjóða verslunarráðsins
á íslandi er Brynjólfur Bjarnason,
forstjóri.
Styrkir úr Minn-
ingarsjóði Helgu
Jónsdóttur og
Sigurliöa
Kristjánssonar
SAMKVÆMT erfðaskrá hjónanna
Helgu Jónsdóttur og Sigurliða
Kristjánssonar, kaupmanns, var
stofnaður sjóður til styrktar efni-
legum nemendum í verkfræði- og
raunvísindanámi.
Stofnfé sjóðsins var ákveðinn
hluti af eignum þeim er þau létu
eftir sig, en heimilt er skv.
skipulagsskrá að veita styrki af
þeim vöxtum sem sjóðurinn ber.
Nú er fyrirhugað að veita
nokkra styrki úr sjóðnum og
hafa þeir verið auglýstir til um-
sóknar. Eyðublöð vegna styrk-
umsókna fást á aðaískrifstofu
Háskóla Islands og ber jafn-
framt að skila umsóknum þang-
að. Umsóknarfrestur er til 1. ág-
úst nk. og er fyrirhugað að til-
kynna úthlutun fyrir 20. sama
mánaðar. Lágmarksupphæð
hvers styrks mun væntanlega
nema kr. 50 þúsund.
FrétUtilkynning frá
stjórn minningar.sjóósins.
ÍTALSKA STÓRSTJARNAN
LUCIA VALENTINI-TERRANI
Tónleikar í Háskólabíói í kvöld fimmtudag 14. júní kl. 20.30.
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS
Stjórnandi: JEAN-PIERRE JACQUILLAT