Morgunblaðið - 14.06.1984, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. JÚNl 1984
7
FERÐATÖSKUR
SKJALATÖSKUR
SNYRTITÖSKUR
GEYSíBf
1_______
Laugavegi 66, sími 23577.
Mikiö úrval af pilsum, bolum, kjólum, buxum tæki-
færisfatnaöi og fl.
Sendum í póstkröfu.
Ntna WahJgren design Svíþjód.
Jane Wikstrðm design Svíþjóö.
í pólitískum
tilgangi
Að mati Guðrúnar
Helgadóttur alþingismanns
Alþýðubandalagsins er
ekkert sjálfsagðara en að
Alþingi greiði sendingar-
kostnað vegna fundarboða
er hún sendir til félags-
manna Fnðarhreyfingar ís-
lenskra kvenna.
Samkvæmt reglum Al-
þingis er þingmönnum að-
eins leyfilegt að senda póst
á þess kostnað ef hann er í
sambandi við þeirra störf,
það er ekki til þess ætlast
að Alþingi greiði annan
sendingarkostnað. Guðrún
Helgadóttir heldur því hins
vegar fram að þátttaka í
Friðarhreyfingu íslenskra
kvenna sé hluti af þing-
mannsstarfinu: „Ég starfa í
Friðarhreyfingunni I póli-
tískum tilgangi," segir
þingmaðurinn.
Hér verður það látið
kyrrt liggja af hvaða hvöt-
um Guðrún Helgadóttir
tekur þátt í Friðarhreyfing-
unni. Það hefur lengi verið
Ijóst að störf Alþýðubanda-
lagsins innan slíkra sam-
taka miðast allt við þau
pólitísku not sem af þeim
má hafa. Friðarhugsjóninni
er varpað fyrir róða ef það
hentar.
Aftur á móti vaknar sú
spurning í framhaldi af
þessu hvort þingmaður
sem tekur þátt í félagsskap
af pólitískum ástæðum geti
tekið að sér að senda út
fundarboð á þeirra vegum
á kostnað Alþingis.
Ætli Guðrún Helgadóttir
risi ekki upp og úthrópaði
þann þingmann sem félagi
er í Samtökum um vest-
ræna samvinnu fyrir spill-
ingu og siðleysi ef hann léti
Alþingi borga sendingar-
kostnað vegna fundarboða
á ráðstefnur samtakanna.
Allt eftirlit með því að
þingmenn fari að settum
reglum í þessu efni er erf-
itt Kjósendur sem sýnt
hafa þingmönnum það
traust að velja þá á löggjaf-
arsamkomu þjóðarinnar
ætlast til þcss að þeir sanni
að þeir séu traustsins verð-
ir, en mlsnoti ekki al-
mannafé í þágu eigin
áhugamála, hvort sem þau
AFAKAFFIÐ & ÖMMUKAFFIÐ
Friðarhreyfing Lslenskra kvenna:
Fundarboð send út
á kostnað Alþingis
Á KOSTNAÐ ALÞINGIS
Einn þingmanna Alþýöubandalagsins, Guörún Helgadóttir,
sendi nýlega fundarboö á aðalfund Friöarhreyfingar ís-
lenskra kvenna á kostnaö Alþingis. Um þetta er fjallaö í
Staksteinum í dag. Þá er birtur hluti greinar er birtist í
Alþýöublaöinu í gær sem fjallaöi um fréttaflutning fjölmiöla
af skemmtunum unglinga.
eni af pólitískum eða öðr-
um toga spunnin.
Unglingar og
fjölmiðlar
Alþýðublaðið gerir að
umtalsefni hvernig frétta-
fiutningi margra fjölmiðla
af skemmtunum unglinga
um hvítasunnuna er hátt-
að. Beinir Alþýðublaðið
spjótum sínum sérstaklega
að DV og NT. Þar segir
meðal annars: „Hvíta-
sunnuhelgin er nú nýaf-
staðin. Og henni fylgja
fastir liðir eins og venju-
lega { fjölmiðlum: Ná-
kvæmlega er tíundað af
hroðalegri drykkju unga
fólksins og umgengni þess
við landið í útilegum helg-
arinnar.
Á svipaðan hátt er svo
Vershinarmannahelgin af-
greidd: Drykkja og svall
mikið á Laugarvatni örlítið
betra ástand á Þingvöllum
ojs-frv.
Og blöðin birta myndir
af hroðanum; birta myndir
af unglingum kófdrukkn-
um eða liggjandi eins og
hráviði I þungum svefni
„brennivínsdauðans" ...
Víst er það óumdeilan-
legt að drykkjuskapurinn
hjá mörgu ungu fólki er
gengdarlaus og ástandið
lítt björgulegt. Hinu má
þó ekki gleyma að lang-
stærsti hluti unga fólksins
er til fyrirmyndar og
skemmtir sér á heilbrigð-
an og eðlilegan hátt úti í
náttúrunni með félögum
sínum. Þessi stóri meiri-
hluti fær sjaldnast rúm á
síðum dagblaðanna, þegar
fréttir eru tíundaðar. Nei,
hið jákvæða er ekki frétt.
Hinn litli minnihluti fær
„skúbiö", sá minnihluti
sem hneykslan vekur.
Fréttaflutningur af mál-
efnum unglinga og ungs
fólks almennt lýsir al-
gjöru virðingarleysi í garð
þessa aldurshóps. Hann á
sér fáa formælendur í
kerfinu; hann er án kosn-
ingaréttar.
Unglingsárin eru við-
kvæm ár. Þá hefur fólk
slitið barnskónum, en á
nokkuð í land að öðlast
reynslu og þekkingu
hinna fullorðnu. Þá er
staða fólks ótrygg. Þessi
aldurshópur hangir laus,
lítt skilgreindur á milli.
Það er einatt lenska hjá
þeim sera eldri eru aö
hafa áhyggjur af æskunni.
Á hverjum tíma er venju-
lega sagt að unglingarnir
séu með versta móti.
Hegðun þeirra og tiltektir
þeirra njóta oft iítils skiln-
ings þeirra sem eldri eru,
enda þótt uppátækin séu í
eðli sínu mjög svipuð því
og gerðist þegar þeir er
fordæma voru ungir.
Unglingar eru náttúr-
lega jafn misjafnir og þeir
eru margir. Það er eins
með það atriði hjá þeim
og öðrum. Hins vegar vilja
fjölmiðlar einatt draga
allt ungt fólk í sama dilk,
alhæfa um stöðu þeirra og
tiltæki.
Altént verður að gera
þá lágmarkskröfu til
fólks, fullorðinna, fjöl-
miöla, að það virði ungl-
ingana sem einstaklinga.
Virði rétt þeirra og skoð-
anir. Meðferð fjölmiðla á
unglingum hvað varðar
drykkjuskap þeirra, er
t.a.m. óþolandi virðingar-
leysi í þeirra garð. Unga
fólkið á fullan rétt á helgi
síns einkalífs eins og aðrir
sem eldri eða yngri eru.
Því má aldrei gleyma.