Morgunblaðið - 14.06.1984, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 1984
Austfirskir sveitarstjórnamenn:
Sveitarfélög-
in að komast
í greiðsluþrot
SAMTÖK sveitarfélaga í Austurlandskjördæmi hafa sent frá sér ályktun
fundar formanns, varaformanns og framkvæmdastjóra sambandsins frá 5.
júní sl. þar sem vakin er athvgli á „þeim gífurlega vanda sem viö er að glíma
í sjávarútvegi á Austuriandi“ þar sem rekstrarstöðvun „blasir við í flestum
fyrirtækjum í sjávarútvegi með ógnvænlegum afleiðingum fyrir landshlut-
ann“.
Sagt er að sveitarfélögin séu
hvert af öðru að komast í greiðslu-
þrot vegna þess að burðarásar
þeirra, útgerðar- og fiskvinnslu-
fyrirtækin, geti ekki greitt til
sveitarsjóðanna. Þá er ítrekuð
fyrri ábending SSA um að hafinn
sé fólksflótti af landsbyggðinni til
höfuðborgarsvæðisins. „Takist
ekki að bægja frá aðsteðjandi vá,
mun sá flótti magnast, en það er
von okkar að það sé stefna ríkis-
stjórnar íslands að viðhalda bú-
setu á landsbyggðinni," segir að
lokum í ályktuninni. Undir álykt-
unina skrifa Þorvaldur Jóhanns-
son, Kristinn V. Jóhannsson og
Sigurður Hjaltason.
Á myndinni sést grunnflötur nýju steypuverksmiöjunnar í Garðabæ. Lengst til
hægri á myndinni heilsar Hákon Ólafsson, Rannsóknastofnun byggingariðnaðar-
ins, Olafi Björnssyni, Ósi hf., sem er eigandi nýju verksmiðjunnar.
Ný steypuverk-
smiðja í Garðabæ
í GARÐABÆNUM er nú að rísa
steypuverksmiðja, sem búin verður
nær alveg sjálfvirkjum tækjabúnaði og
er framleiðsla öll tölvustýrð, allt frá
hráefnisblöndun þar til varan kemur
fullunnin út úr verksmiðjunni. f upp-
hafi verður megináhersla lögð á að
framleiða rör, brunna, „fittings", milli-
veggjaplötur og hellur og steina af
ýmsum gerðum. Jafnframt mun verk-
smiðjan framleiða steypu til húsbygg-
inga.
I verksmiðjunni og í tengslum við
hana munu vinna 25—30 manns.
Áætlaður kostnaður við verksmiðj-
una er rösklega 70 milljónir króna.
Eigandi er Ós hf. og framkvæmda-
stjóri er Einar Þ. Vilhjálmsson.
Samkvæmt áætlun hefst framleiðsla
síðsumars. (pr rrétuiilkynningu)
Listahátíð í Reykjavík
Frá æfingu á Brúðuheimilinu í fyrradag. Laura Joensen, (t.v.) Elín Moritsen og Pétur Einarsson í hlutverkum
sínum Morgunblaðið/Emilía.
Nýstárleg uppfærsla á Brúðuheimili Ibsens:
Einstök samvinna leik-
ara tveggja frændþjóða
FYRRI sýning leikflokks Noröur-
landahússins í Færeyjum á hinu
þekkta verki Henrik Ibsen, Brúðu-
heimilinu, veröur í Félagsstofnun
stúdenta í kvöld kl. 20.30. Síðari
sýningin verður á sama stað og
tíma annað kvöld. Leikstjóri
verksins er Sveinn Einarsson, en
uppsetning hans vakti mikla at-
hygli í Færeyjum og sóttu um 2500
manns þær 7 sýningar, sem efnt
var til í Þórshöfn í vor.
Þessi uppsetning á Brúðu-
heimilinu hefur vakið verðskuld-
aða athygli og ekki að ófyrir-
synju. Auk þess sem leikararnir
eru blanda af íslenskum og fær-
eyskum starfsbræðrum þeirra er
uppsetningin byggð upp á tveim-
ur þýðingum. Annars vegar þýð-
ingu Sveins Einarssonar, sem
stuðst var við þegar Brúðuheim-
ilið var sýnt í Þjóðleikhúsinu
fyrir rúmum áratug, og hins veg-
ar þýðingu Jens Pauli Heinesen.
Samvinna íslendinga og Fær-
eyinga á leiklistarsviðinu er ekki
ný af nálinni og þá heldur ekki
samvinna Leikfélags Reykjavík-
ur, sem teflir þessu verki fram á
Listahátíð vegna örðugleika við
að setja á svið sýningu með eigin
leikurum, sem eru í leikför í
Noregi um þessar mundir, og
frænda vorra í Færeyjum. Tutt-
ugu ár eru liðin frá því LR fór
t.d. fyrst í leikför til Færeyja.
Leikararnir í þessari uppsetn-
ingu á Brúðuheimilinu báru að
Dagskrá Lista-
hátíöar í dag
20.30 HÁSKÓLABfÓ:
Tónleikar Slnfóníuhljómsveitar ís-
lands undir stjórn J.P. Jacquillat.
Einsöngvari er ítalska mezzósópr-
ansöngkonan Lucia Valentini
Terrani.
20.30 FÉLAGSSTOPNUN
STÚDENTA
Brúóuheimilíö eftir Henrik Ibeen.
Gestaleikur frá faareyaka Norraana
húainu á vegum Leikfélaga Reykja-
víkur. Leikstjóri: Sveinn Einaraaon.
samvinnan hefði gengið með
miklum ágætum og litlir erfið-
leikar komið upp. Að þeirra sögn
er ákaflega gaman að leika í
Norðurlandahúsinu, sem sé
þannig úr garði gert að mögu-
leikarnir séu margfaldir á við
það sem áður var.
Sviðsmyndin við verkið er eft-
ir Trónd Patursson og er sama
fyrirkomulagið haft hér og var í
Færeyjum, þ.e. leiksviðið er í
miðjum sal og áhorfendur til
beggja handa. Félagsstofnun
stúdenta reyndist eina húsið í
Reykjavík, sem uppfyllti þær
kröfur sem gerðar voru með til-
liti til uppfærslunnar. Komast
um 220 manns fyrir í sætum.
Sjö hlutverk eru í Brúðuheim-
ilinu. Elín Mouritsen fer með
hlutverk Nóru en Pétur Einars-
son leikur mann hennar, herra
Helmer. Borgar Garðarsson fer
með hlutverk Krogstad. Aðrir
leikendur eru Laura Joensen,
Olivur Næss, Johanna Maria
Djuurhus og Kristina Hansen.
r Ljósm. Mbl./Július.
A ferð í miðbænum með unga sína
Margir hafa orðið til að nota sér góðviðrisdagana undanfarið, spókað sig úti og litið á bæjarlífið. Þeirra á meðal var
þessi myndarlega önd, sem fékk sér göngutúr með ungana sína, frá Reykjavíkurhöfn og niður að Tjörn. Vegfarendur
sem urðu á vegi andarinnar slógust með í förina og fylgdu hópnum að Tjörninni. Gekk ferðin áfallalaust og bflstjórar
sýndu andahópnum kurteisi í hvívetna, enda ekki á hverjum degi sem slík fjölskylda fer á bæjarrölt.
Dalarallí 1984
Búóardalur, 12. júní.
DALARALLÍ 1984 verður haldið
dagana 15. og 16. júní. Að keppninni
standa Dalabúð, Bifreiðaíþrótta-
klúbbur Reykjavíkur ásamt fyrir-
tækjum hér á staðnum. Keppni þessi
er næststærsta keppni ársins og gef-
ur stig til íslandsmeistaratitils í
rallíakstri. Allir þekktustu rallíöku-
raenn taka þátt í keppninni.
Keppnin hefst við Dalabúð kl.
15 föstudaginn 15. júní. í fyrri
hluta keppninnar verður ekið um
Dali, suður Bröttubrekku um
Borgarfjörð og Kaldadal, þar sem
snúið verður við og ekið sömu leið
til baka. Áætlað er að keppendur
hafi lokið þessum hluta leiðarinn-
ar á föstudagskvöld milli 23 og 24
við Dalabúð í Búðardal. Síðari
hlutinn hefst klukkan 2.30 aðfara-
nótt laugardags og verður þá ekið
um Dali, norðanvert Snæfellsnes-
ið, fyrir jökul og síðan sömu leið
til baka. Búist er við keppendum
til Búðardals um hádegið á laug-
ardag. Um kvöldið verður verð-
launaafhending og lokahóf. í
Dalabúð verða veittar allar upp-
lýsingar um gang keppninnar.
Einnig verður sýnt af myndbandi
frá keppninni jafnóðum og myndir
berast ásamt myndum úr fyrri
keppnum og annað efni. Veitingar
verða á boðstólum allan tímann á
veitingastöðum í Búðardal og far-
ið í hópferðabílum Kristjáns
Sæmundssonar um nágrenni Búð-
ardals og á útsýnisstaði ef næg
þátttaka fæst. Upplýsingasímar
keppninnar verða 4300 og 4126.
— Kristjana
Ólafsvík:
Mikið líf
í handfæra-
veiðunum
Ólafsvík, 12. júní.
EKKI er hægt að segja að mikið sé
að gerast til sjávarins hjá okkur
þessar vikurnar. Þó eru bátar á tog-
veiðum, dragnót og á rækju. Afli hef-
ur vcrið freraur slakur.
Mesta lífið er líklega í hand-
færaveiðunum en héðan er gerður
út fjöldi smábáta á þann veiðiskap
og hefur afli þeirra verið allgóður.
Atvinna er hér fyrir alla en vinnu-
tími skammur.
— Helgi.