Morgunblaðið - 14.06.1984, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. JÚNl 1984
Páfí óskar eftir meiri
samvinnu kirknanna
Bern, 13. júní, frá Önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Mbl.
JÓHANNES Páll páfi II er á sex
daga ferð um Svíss. Þetta er 23.
utanlandsferð hans og við komuna
til Ziirich á þriðjudag kraup hann
niður og kyssti jörðina eins og hans
er vandi á ferðum sínum. Hann ferð-
ast um landið þvert og endilangt,
flýgur milli borga, fer með lestum og
keyrir um á skotheldna páfabflnum.
Hann heimsækir kirkjur, klaustur
og söfnuði, hlýðir á og syngur mess-
ur innan dyra og utan og veifar
mannfjöldanum. Heimsóknin vekur
athygli í fjölmiðlum en allir lands-
menn eru ekki hæst ánægðir með
hana. Helmingur þjóðarinnar er
mótmælendatrúar og þykir lítil
ástæða til að gera svona mikið með
einn mann og nokkrir þrýstihópar
mótmæltu heimsókninni áður en
hann kom en það hefur farið lítið
fyrir þeim síðan.
Kaþólska kirkjan bauð páfa til
landsins. Heimsóknin stóð til fyrir
þremur árum en henni var frestað
þegar honum var sýnt banatil-
ræði. Sviss er skipt í sex biskups-
dæmi og biskuparnir skiptast á
um að eiga forsæti í biskuparáð-
inu. Erkibiskup er enginn í land-
inu. Foreti biskuparáðsins og for-
seti landsins tóku á móti páfa á
flugvellinum. Hann mun hitta rík-
isstjórnina á fimmtudag en það er
lítið gert úr því. Páfi hefur minnst
á mikilvægi samvinnu allra krist-
inna manna í ræðum sínum en
nokkurrar óánægju gæti þó eftir
fund hans með fulltrúum kirkj-
unnar manna á þriðjudag. Svo
virtist sem bilið milli kaþólsku
kirkjunnar og annarra kirkna
væri síður en svo að minnka, auk-
in samvinna lengra undan en von-
að er.
Tveir Svisslendingar, Zwingli og
Kalvín, voru meðal upphafsmanna
mótmælendakirkjunnar á 16. öld.
Zwingli hafði mikil áhrif í Zurich
og austurhluta landsins en Kalvín
var í Genf og hafði mikil áhrif
erlendis. Trúarstríð var háð í
landinu og svo fór að mjög skýr
mörk voru dregin milli svæða
samkvæmt trúarbrögðum.
Þessi mörk eru að sjálfsögðu
óljósari í dag en þó verður þeirra
enn vart. Kantónan Jura var til
dæmis stofnuð árið 1978 á kaþ-
ólsku og frönskumælandi svæði
sem tilheyrði kantónunni Bern áð-
ur. Meirihluti íbúa Bern eru mót-
mælendur og þýskumælandi.
Svissneskir kaþólikkar hafa
tekið vel á móti trúarleiðtoga sín-
um. Um 27.000 manns sóttu messu
hans í Tessin, ítalska hlutanum, á
þriðjudag, og mörg þúsund manns
voru viðstaddir messu í Fribourg í
dag. Stemmningin er þó ekki hin
sama og sagt hefur verið frá á
ferðum páfa í Asíu og suður-
Ameríku. Svisslendingar eru ró-
lyndari og sýna minni hrifningu
en blóðheitara fólk sunnar á
hnettinum. En góðmennskan skín
úr andliti páfans þegar hann
heilsar fólkinu og ánægjan ljómar
af þeim sem fá tækifæri til að
snerta hann.
Jóhannes Páll páfi II kom í gær f
höfuðstöðvar Alkirkjuráðsins í Genf
og var tekið þar með virktum. Hér
er hann að kæla teið sitt, sem hon-
um þótti fullheitt. AP
Svenn Stray hljóp á sig
Osló, 13. júní. Frá Jan Krik Laure, fréttaritara I
SVENN Stray, utanríkisráðherra,
var full fljótur á sér þegar hann boð-
aði formleg mótmæli norskra stjórn-
valda við Iraksstjórn vegna Treholt-
-málsins. Þremur mánuðum eftir yf-
irlýsingu hans liggja mótmælin enn
harðlokuð niðri í skúffu og verða
líklega aldrei send.
Stray lét ummælin falla þegar
ljóst var, að Arne Treholt hafði
ekki aðeins njósnað fyrir KGB
heldur einnig selt leyniþjónustu
íraka upplýsingar. Það þykir hins
vegar ljóst nú, að Treholt hafði
sjálfur samband við íraka og þess
vegna hafi þeir ekki brotið nægi-
lega af sér til að eiga skilið form-
leg mótmæli.
Treholt segist hafa fengið 50.000
dollara frá Irökum fyrir upplýs-
ingarnar en þeirra aflaði hann sér
sem sendimaður í aðalstöðvum Sþ
í New York. Ekki er talið líklegt,
að upplýsingarnar hafi skaðað
hagsmuni Norðmanna á neinn
hátt.
ítalski kommúnistaflokkurínn:
Nýr leiðtogi víkur vart
af stefnu Berlinguers
Berlinguer greiðir atkvæði I kosningum í fyrra, en þá hlaut flokkurinn
talsvert verri útkomu en 1976 og 1979. Árið 1976 hlaut flokkurinn 34%
atkvæða, 30,4% 1979 og í fyrra fór fylgið niður fyrir 30%.
ÓLÍKLEGT er að breyting verði á
stefnu eða störfum ítalska komm-
únistaflokksins við fráfall Enrico
Berlinguer, leiðtoga flokksins und-
anfarin 12 ár, sem átti þann draum
að leiða flokk sinn til valda með
lýðræðislegum kosningum en ekki
með byltingu. Margir þykja koma
til greina sem eftirmenn hans, en
búist er við að tilkynnt verði hver
verður nýr leiðtogi flokksins í dag.
Berlinguer var 62 ára er hann
féll frá á mánudag, fæddur 25.
maí 1922 í bænum Sasari á Sard-
iníu. Hann gekk í ítalska komm-
únistaflokkinn 1944 og tók virk-
an þátt í starfi ungliðadeildar
flokksins í Mílanó og Rómaborg.
Tók hann sæti í miðstjórn
kommúnistaflokksins 1945, 23
ára að aldri. Gegndi hann starfi
vararitara 1968—1972 ug var
leiðtogi flokksins frá 1972 til
dauðadags. Hann var kosinn á
þing 1968.
ítalski kommúnistaflokkurinn
er stærstur sinnar tegundar á
vesturlöndum og næststærstur
stjórnmálaflokka á Ítalíu, en
hefur ekki átt aðild að stjórn frá
1947. Berlinguer sveigði flokkinn
af Moskvulínunni og hans verður
minnst sem aðalhöfundar
evrópukommúnismans, sem
hann kallaði tilraun til að aðlaga
hugmyndafræði marxista að
vestrænu lýðræði. I því sam-
bandi beitti hann sér fyrir víð-
tæku bandalagi vinstri manna í
Evrópu á miðjum síðasta áratug
er afsagði sér leiðsögn frá
Moskvu.
Berlinguer þótti hófsamur í
samanburði við ýmsa frammá-
menn í flokki sínum. Þannig var
hann ákaft gagnrýndur af göml-
um harðlínumönnum í flokknum
er hann fordæmdi innrás Rússa í
Afganistan, setningu herlaga í
Póllandi og aðrar ráðstafanir
valdamanna í Kreml. Þótti
ágreiningur hans við Kreml
minna í ýmsu á deilur Stalíns og
Títós Júgóslavíuforseta eftir
stríð.
Hann kallaði reiði Kremlverja
oft yfir sig, einkum þegar hann
tók upp samband við kínverska
kommúnistaflokkinn eftir 17 ára
vinslit, en aldrei rofnaði sam-
bandið við Moskvu alveg. Tók
hann t.a.m. afstöðu með Sovét-
mönnum til staðsetningu nýrra
meðaldrægra kjarnaflauga Atl-
antshafsbandalagsins í Evrópu.
Talið var að Berlinguer hafi
ætlað til Moskvu á þessu ári til
að bæta sambúöina við ráða-
menn þar, sem verið hefur stirð
frá því herlög voru sett í Pól-
landi í desember 1981. Hann fór
síðast til Moskvu í nóvember
1982 til þess að vera við útför
Brezhnevs, en átti engar viðræð-
ur við Kremlverja. Hitti hann
Brezhnev síðast í ágúst 1979.
En þrátt fyrir afstöðu hans til
Kremlverja var efast um einurð
hans og lögðust Bandaríkjamenn
þannig hart gegn stjórnaraðild
kommúnistaflokksins, sem bauð
kristilegum demókrötum „sögu-
legar sættir" og stjórnarsam-
starf eftir góða frammistöðu
flokksins í kosningum 1976.
Leiddi það til þess að kommún-
istar tryggðu minnihlutastjórn
kristilegra demókrata í sessi, en
fengu aldrei ráðherrastóla, sem
þeir sóttust lengi eftir.
Fráfall Aldo Moro og aukin
hryðjuverkastarfsemi Rauðu
herdeildanna leiddu til meiri
einangrunar kommúnistaflokks-
ins og harðrar gagnrýni úr röð-
um flokksmanna. Sá Berlinguer
þá ekki önnur ráð en skera á
samstarfið við stjórnina og varð
þess valdandi að hún varð að
fara frá í janúar 1979. Hófst þá
lengsta stjórnarkreppa Ítalíu,
/J/jUt* v
*ooi&
VeA/osá
Á
Enrico Berlinguer með flokks-
málgagnið Unita þegar úrslit í
þingkosningunum 1976 lágu Ijóst
fyrir, en frammistaða flokksins í
þeim kosningum þótti einhver
glæsilegasta í sögu hans.
sem endaði með kosningum i
júní. í þeim hlaut kommúnista-
flokkurinn slæma útreið miðað
við 1976.
Fráfall Berlinguer var bæði
óvænt og skyndilegt og flokkur-
inn ekki undir það búin. En er
hann lézt á mánudag var mið-
stjórnin kvödd saman til að velja
eftirmann. Varist hefur verið
frétta af fundinum. Heimildum
ber þó saman um að nýr leiðtogi
muni tæpast boða meiriháttar
stefnubreytingu.
Sem eftirmenn Berlinguer eru
helzt nefndir Alessandro Natta,
formaður eftirlitsnefndar
flokksins, Alfredo Reichlin, ef-
nahagssérfræðingur flokksins,
en hann kom næstur Berlinguer
að áhrifum, Renato Zangheri,
borgarstjóri í Bologna, Ugo
Pecchioli, sem sæti á í skipulags-
nefnd flokksins, og Luciano
Lama, leiðtogi öflugra launþega-
samtaka, CGIL.
Talið er að Natta sé einna lík-
legastur eftirmaður Berlinguers,
en sú ályktun er dregin af því að
eftir veikindi Berlinguers á
fimmtudag, var hann valinn til
að taka sæti hans í sérstöku
kosningasjónvarpi í fyrradag.
Stuttfréttir
Aðgerðir Unita
l’arí.s, 13. júní. AP.
TALSMENN Unita-skæruliða
sem aösetur hafa í Parfs, sögðu í
dag að þeim hefði orðið vel
ágengt í nokkrum herförum gegn
stjórnarher Angóla í byrjun
þessa mánaðar.
Aðgerðir Unita fóru fram í 7
sýslum og drápu skæruliðarnir
75 stjórnarhermenn og 9 kúb-
anska hermenn, auk þess sem
þeir eyðilögðu 20 herflutnings-
bifreiðir.
Fallbyssuskothríð
á Víetnama
Bangkok, Thiilandi. 13. júni. AP.
VÍETNAMSKA ríkisútvarpið
greindi frá því í dag, að fall-
byssusveitir Kínverja á landa-
mærum ríkjanna hefðu haldið
uppi mikilli skothrfð á borgina
Ha Giang f annað skiptið á þrem-
ur síðustu vikum. Ekkert var lát-
ið uppi um mannfall. Klnverjar
sögðust á móti hafa drepið
„fjölda“ víetnamskra hermanna
sem höfðu ætlað sér að laumast
yfir landamærin til hryðjuverka
á sex stöðum.
Hlutlausir aðilar hafa ekki
tjáð sig um þessi síðustu tfðindi f
landamæraófriði Kína og Víet-
nam, en ýmsir vestrænir stjórn-
arerindrekar bæði f Peking og
Bangkok telja sig hafa ástæðu til
að ætla að ekki sé barist af þeirri
hörku sem deiluaðilar láta af.
Harðir dómar
í Túnis
Túnisborf;, 13. júní. AP.
DÓMSTÓLL í Túnisborg kvað
upp í dag harða dóma yfir nokkr-
um ungmennum sem voru gripin
við óspektir er óeirðir brutust út
þar í janúar á þessu ári. Um
fimm ungmenni var að ræða, 19
til 20 ára, og fengu þau 15 til 20
ára fangelsisdvöl hvert með til-
heyrandi þrælkunarvinnu.
Fjögur þeirra voru gómuð eftir
að hafa velt bifreið og lagt eld að
henni, það fimmta var gripið með
fulla vasa af sælgæti við sælgæt-
isverslun þar sem það hafði brot-
ið rúðurnar og látið síðan greipar
sópa. 80 manns létu lífið í óeirð-
unum sem hófust er það fréttist
að stjórnvöld hefðu í hyggju að
hækka mjög verulega verð á mat-
vöru í landinu.
Sluppu í frelsiö
llanover, 13. júní. AP.
TVEIR Austur-Þjóðverjar unnu
það afrek í dag að feta sig yfir
þétt jarðsprengjubelti yfir landa-
mæri Austur- og Vestur-Þýska-
lands og sleppa til sföarnefnda
landsins án þess að austur-þýskir
landamæraverðir gætu rönd við
reist.
Þetta voru 30 ára gamall kenn-
ari og 24 ára tæknifræðingur, en
nöfn þeirra voru ekki gefin upp.
Staðurinn, þar sem þeir læddust
yfir er í Neðra-Saxlandi, sem á
550 kilómetra langa landamæra-
línu við Austur-Þýskaland. Nú
hafa 42 Austur-Þjóðverjar slopp-
ið yfir landamærin það sem af er
þessu ári, og er það lægri tala en
oftast áður.
Ólæti í kröfugöngu
Lundúnum, 13. júní. AP.
Verkalýðsleiðtogar og vinnu-
veitendur settust á rökstóla f dag
til að finna lausn á hinu 13 vikna
gamla verkfalli kolanámumanna,
sem þykir hafa alið á óeiningu í
röðum námumanna heldur en
hitt. Aðeins hluti kolanámu-
manna er í verkfalli og margir
þeirra eru því mótfallnir.
Til átaka kom í kröfugöngu
hóps námumanna sem eru f verk-
falli f Bickershaw i Lancashire
og þurfti lögreglan að handtaka
30 slagsmálaseggi. Enginn fékk
alvarlega áverka, einungis glóð-
araugu og sprungnar varir.