Morgunblaðið - 14.06.1984, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. JtJNÍ 1984
23
De Cuellar ánægður
með Miðausturferð
Jerúsalem, 13. júní. AP.
PEREZ DE Cuellar, forseti Samein-
uöu þjóöanna, lauk í dag níu daga
ferö um Miðausturlönd meö þeim
oröum í áheyrn fréttamanna, að
hann væri mjög bjartsýnn á aö allan
ófrið í heimshlutanum mætti kæfa í
fæðingu, þar eö allir þeir leiðtogar
sem hann ræddi viö sýndu mikinn
vilja á aö leysa ágreiningsmál með
friösamlegum hætti.
De Cuellar heimsótti Egypta-
land, Sýrland, Líbanon, Jórdaníu
Veöur
víða um heim
Akureyri 9 skýjað
Amsterdam 20 akýjaó
Aþena 26 akýjaö
Berlfn 20 akýjaó
BrUsael 21 heiöakírt
Chicago 33 akýjað
Dublin 18 heiöakírt
Feneyjar 21 léttakýjaö
Frankfurt 22 heióskirt
Genl 24 heióskírt
Helsinki 15 skýjaó
Hong Kong 31 heiðskírt
Jerúsalem 26 heiöakirt
Kaupmannahöfn 17 heiöskirt
Laa Palmas 23 lóttakýjaó
Lissabon 31 heiöskirt
London 21 skýjað
Loa Angeles 24 skýjaö
Malaga 24 léttskýjaö
Mallorca 25 léttskýjaö
Miami 29 skýjaö
Montreal 24 skýjaö
Moskva 13 akýjaö
New York 29 skýjaö
Oaló 18 rigning
Paris 22 heiðskirt
Peking 26 skýjaö
Reykjavik 11 skýjað
Ríó de Janeiró 32 skýjaö
Róm 27 heiöskirt
Stokkhólmur 19 skýjaó
Sydney 18 heiöskírt
Tókýó 22 rigning
Vinarborg 18 heíðskirt
Þórshöfn 11 akýjaö
og ísrael. Hann vildi ekki fara út í
smáatriði i viðræðum sínum við
fréttamennina, sagði of snemmt
að fara út i slíkt, þar eð hann væri
enn að melta með sér hinar ýmsu
og mörgu hugmyndir sem leiðtog-
ar fyrrgreindra þjóða lögðu fram.
„Það sem ég get sagt á þessu
stigi er út af fyrir sig jákvætt,
allir viðmælendur mínir voru hin-
ir sáttfúsustu og það í fullri ein-
lægni. Þá geri ég mér sjálfur
miklu betri grein fyrir stöðu og
gangi mála í þessum heimshluta
nú en áður,“ sagði forsetinn.
Eitt ákveðið deilumál kom upp
og lagði De Cuellar fram þá hug-
mynd og tillögu að haldinn yrði
mikil friðarráðstefna með þátt-
töku allra hlutaðeigandi landa í
Miðausturlöndum, en undir stjórn
Sameinuðu þjóðanna. Leiðtogar
arabaríkjanna, sem De Cuellar
ræddi við, tóku vel í tillöguna,
ráðamenn í Israel höfnuðu henni
hins vegar með öllu, á þeim for-
sendum að mikils og ákveðins gyð-
ingahaturs gætti í sölum Samein-
uðu þjóðanna.
Poppstjarna úr vaxi
Poppstjarnan skæra Boy George leit tvífara sinn úr vaxi í vaxmynda-
safni Maddam Tussauds í Lundúnum í dag. „Þaö væri allt of eigin-
gjamt aö vilja kaupa gripinn," sagöi goöiö, en gat þess að hann þekkti
þá varla í sundur, gínuna og sjálfan sig. Talsvert hefur veriö rætt um
þau meintu ummæli Elísabetu Bretadrottningu, aö George væri eins og
„of fóröuö gála“. Talsmaður Buckingham-hallar sagöi síöar að drottn-
ingin heföi aldrei mælt svo, en George var ekki ánægöur meö það.
Hann sagði: „Ég var ánægöur með orö drottningar, ég vil ekki aö fólk
sé ánægt meö útlit mitt.“
Útför Berlinguers í Róm:
Milljónir fylgdu for-
manninum til grafar
Kómarborg, 13. júní. AP.
HUNDRAÐ þúsundir fylgdu til graf-
ar Enrico Berlinguer hinum frá-
fallna formanni ítalska kommúnista-
flokksins í dag, dagblöð í Róm áætl-
uöu að fjöldin gæti hafa náö einni
milljón. Margir báru rauða fána og
steyttu hnefann til himins og köllu
„Enrico“, Enrico". Ýmis stórmenni
voru viöstödd útförina, svo sem
Mikhail Gorbachev, talinn næst
æösti ráöamaður Sovétríkjanna,
Yasser Arafat, leiötogi PLO, og Zhao
Ziyang, forsætisráöherra Kína.
Pieter Dankert, forseti Evrópu-
þingsins, var einn af fimm ræðu-
mönnum yfir Berlinguer og sagði
hann að hefði verið persónugerv-
ingur Evrópukommúnismans og
hefði sameinað einkar vel hug-
myndafræðilega sannfæringu og
sjálfstæðiskenndir, en af því hefði
meðal annars leitt, að stórlega dró
úr aukningu alþjóðlegra hryðju-
verka. Einnig tóku til máls Pertini
Ítalíuforseti og Bettino Craxi for-
sætisráðherra. Enginn af stjórn-
málaleiðtogum Ítalíu lét sig vanta.
Líbanon:
Völd stjórnarinnar
eru aukin verulega
Noregur:
Skrifflnnskan
á fallandi fæti
HELDIJR ILLA er nú komið fyrir
skriffinnskunni norsku og má
segja, aö hún sé ekki nema blakt-
andi skar. Sem dæmi um það má
nefna, aö nú tekur þaö ekki nema
viku aö fá byggingarleyfi, en áður,
meöan allt lék í lyndi, var slík um-
sókn aö velkjast í kerfinu í allt aö
eitt ár. Nú tekur það opinbcra
matsmenn ekki nema klukkutíma
aö meta íbúðir manna, en áöur
þóttu þeir ekki of sælir af hálfu ári
í slíkt stórvirki.
Atlagan að skriffinnskunni
var eitt af kosningaloforðum
Hægriflokksins norska og þótt
ótrúlegt sé, þegar kosningaloforð
eru annars vegar, þá er engu lík-
ara en það eigi að efna þau. Sú
hlýtur a.m.k. að vera ástæðan
fyrir því, að búið er að þurrka út
8.000 af 27.000 reglugerðum og
opinberum fyrirmælum i Noregi.
Átta manns, með Astrid
Gjertsen í broddi fylkingar, hafa
það verk eitt að kvista niður
kerfið og skriffinnskuna og ætla
ekki að láta staðar numið fyrr en
eftir standa aðeins 6—7.000
reglugerðir.
Stefnt er að því, að allt, sem
borgararnir geti annast, verði
látið í þeirra hendur, og hinni
ósveigjanlegu löggjöf frá 1913
um opnunartíma verslana verð-
ur breytt. Verslunareigendum á
þá að leyfast að afgreiða við-
skiptavini eftir klukkan 17.00
virka daga og eftir hádegi á
laugardögum.
Norðmenn eiga þó eftir sem
áður að akta sinn herra, yfir-
völdin í landinu, en þá verða þau
líka að vinna til þess.
Æðstu embættismenn ríkisins
voru þess vegna sendir í læri hjá
Janne Carlzon, SAS-forstjóra,
sem kenndi þeim að brosa og
hlusta á undirmenn sína og al-
menning.
(Úr bladi sænska Vinnu-
reitendasambandsins
apríl/maí 1984).
Beirút, 13. júní, AP.
BARDAGAR voru í Beirút í nótt en
fjöruöu að mestu út með morgnin-
um. Rfkisstjórn Rashids Karamis,
sem nýtur stuönings Sýrlendinga,
fékk í gær traust þingsins.
Ríkisstjórnin frestaði í dag
vikulegum fundi sínum og var sagt
að það væri gert „af öryggisástæð-
um“. Sagði Karami, að ekki hefði
unnist tími til að auka gæsluna
nægilega um fundarstaðinn en
hann er í þorpinu Bikfaya nokkuð
frá Beirút. Mestur liðsafli lögregl-
unnar hefur í heila viku gætt
þinghússins í Beirútborg á meðan
þar hafa farið fram umræður um
stefnu stjórnarinnar en þeim auk í
gær með því að þingið lýsti yfir
trausti á stjórnina með 53 atkvæð-
um gegn 15.
Þingið veitti stjórninni einnig
sérstök völd til að stjórna með til-
skipunum næstu níu mánuðina en
þó aðeins í þeim tilgangi að koma
á jafnvægi milli kristinna manna
og múhameðstrúar í stjórnkerfi og
hernum. Haft er eftir heimildum,
að forystumenn trúflokkanna í
stjórninni séu enn á öndverðum
meiði um það hvernig eigi að
endurreisa líbanska herinn.
Átökin síðustu daga eru einhver
þau mestu, sem orðið hafa í borg-
inni og féllu 84 og tæplega 300
særðust. Talsmenn kristinna
manna og Amal-hreyfingarinnar,
sem eru samtök shita, kenna hvor-
ir öðrum um upptökin og ganga
klögumálin á víxl.
Vestur-Þýskaland:
Kosning um kjarnavopn
Bonn, 13. júní, AP.
ÞAU samtök í Vestur-Þýskalandi,
sem berjast gegn uppsetningu meö-
aldrægu kjarnorkuflauganna þar í
landi, hafa ákveöiö aö efna til at-
kvæöagreiðsu um þær samhliða
kosningunum til Evrópuþingsins,
sem fram fara nk. sunnudag. Hefur
þaö ráðslag þeirra valdið deilum.
Hægrimenn í Vestur-Þýska-
landi hafa gagnrýnt þessar „götu-
kosningar" harðlega og í 250 bæj-
um og borgum hafa þær verið
bannaðar. Aðstandendur þeirra
segjast þó hvorki munu hlíta boð-
um né bönnum borgaralegra yfir-
valda, þeir ætli að afla sér „um-
boðs götunnar" fyrir andstöðu
sinni við uppsetningu eldflaug-
anna. Haldi þeir því einnig fram,
að þótt þingið í Bonn hafi sam-
þykkt uppsetninguna, þá sé það
ekki að marka því að þingið hafi
ekki speglað vilja þjóðarinnar.
Þeir, sem standa að „götukosn-
ingunum“ eru aðallega kommún-
istar, jafnaðarmenn, græningjar
og nokkrir kirkjunnar menn.
Lestunar-
áætlun
Skip Sambandsins
munu ferma til íslands
á næstunni sem hér
segir:
HULL/GOOLE:
Dísarfell ...... 25/6
Dísarfell ....... 9/7
Dísarfell ...... 23/7
ROTTERDAM:
Dísarfell ...... 26/6
Dísarfell ....... 10/7
Dísarfell ...... 24/7
ANTWERPEN:
Dísarfell ...... 27/6
Dísarfell ...... 11/7
Dísarfell ....... 25/7
HAMBORG:
Dísarfell ...... 15/6
Dísarfell .......29/6
Dísarfell ...... 13/7
Dísarfell ...... 27/7
HELSINKI/TURKU:
Arnarfell ...... 18/6
Hvassafell ..... 20/7
LARVIK:
Jan ............ 18/6
Jan ............. 2/7
Jan ............ 16/7
Jan ............ 30/7
GAUTABORG:
Jan ............ 19/6
Jan ............. 3/7
Jan ............ 17/7
Jan ............ 31/7
KAUPMANNAHÖFN:
Jan ............ 20/6
Jan ............. 4/7
Jan ............ 18/7
Jan ............. 1/8
SVENDBORG:
Jan ............ 21/6
Jan ............. 5/7
Jan ............ 19/7
Jan ............. 2/8
ÁRHUS:
Jan ............ 22/6
Jan ............. 6/7
Jan ............ 20/7
Jan ............. 3/8
FALKENBERG:
Helgafell ...... 25/6
Arnarfell ...... 18/7
OSLO:
Hvassafell ..... 25/6
GLOUCESTER MASS.:
Jökulfell ...... 30/6
Skaftafell ...... 5/7
HALIFAX, KANADA:
Skaftafell ...... 6/7
SKIPADEILD
SAMBANDSINS
Sambandshúsinu
Pósth. 180 121 Reykjavík
Sími 28200 Telex 2101
Wterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamióill!