Morgunblaðið - 14.06.1984, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 1984
27
Ályktun Útvegsmannafélags Vestfjarða:
Rekstrarstöðvun óhjákvæmileg
verði ekki skjótt við brugðist
Á FUNDI Útvegsmannafélags Vestfjarða, sem haldinn var á ísafirði
í gær var eftirfarandi ályktun samþykkt einróma:
Fundur í Útvegsmannafélagi til, hefur sjávarútvegurinn mátt
Vestfjarða haldinn á ísafirði 12.
júni 1984 vekur athygli á alvar-
legri fjárhagsstöðu íslenzks sjáv-
arútvegs. Ljóst er að með sama
áframhaldi munu mörg fyrirtæki í
þessari atvinnugrein leggja upp
laupana, fjöldi fólks verða fyrir
eignatjóni, atvinnuleysi hefja víða
innreið sína og fólksflótti bresta á
af landsbyggðinni.
Þrátt fyrir hagfellt árferði til
sjávarins mörg undangengin ár
hafa sjávarútvegsfyrirtæki
hrannað upp skuldum og fjölmörg
þeirra ekki getað staðið í skilum.
Eðlileg endurnýjun atvinnutækj-
anna hefur í reynd verið ókleif og
mjög hefur gengið á eigið fé fyrir-
tækja í sjávarútvegi. Á sama tíma
hafa þjónustufyrirtæki er starfa í
tengslum við þau sýnt umtalsverð-
an tekjuafgang.
Stjórnvöld játa í orði mikilvægi
sjávarútvegsins, en þessa gætir
alls ekki í reynd. Við skiptingu
þjóðarkökunnar, sem þessi
atvinnugrein hefur lagt drjúgum
sæta því að verða settur til hliðar
á meðan að aðrir hafa fengið sitt.
Mikilvægir viðskiptaaðilar sjáv-
arútvegsins borga starfsmönnum
sínum allt að fjórðungi umfram
kauptaxta, og senda fiskiðnaðar-
og fiskveiðifyrirtækjunum síðan
reikninginn. Vandamálum heillar
iðngreinar skipasmíðaiðnaðarins
er velt yfir á herðar útgerðar án
þess að neitt komi á móti. Full-
trúar ríkisvaldsins eru í stöðugum
samningaumleitunum við erlenda
aðila um verðlagningu á raforku,
en fiskiðnaðurinn, sem er einn
stærsti orkukaupandi landsins, er
látinn greiða það verð fyrir
orkuna, sem stjórnvöld ákveða
hverju sinni. Þar gildir enginn
samningsréttur.
Loks er ljóst að undanfarin ár
hafa milljarðaverðmæti verið
flutt frá útflutningi til innflutn-
ings, eins og best sést af þeim al-
varlega viðskiptahalla, sem Is-
lendingar hafa búið við. Á þennan
hátt hefur orðið til mikil fjár-
munatilfærsla frá sjávarútvegi til
annarra greina með ófyrirséðum
afleiðingum fyrir atvinnugreinina
og hinar dreifðu byggðir landsins.
í stjórnarsáttmála núverandi
ríkisstjórnar segir m.a.: „Ráðstaf-
anir verði gerðar án tafar til þess
að mæta rekstrarvanda sjávarút-
vegsins."
Þessar ráðstafanir hafa ekki
verið gerðar. Útvegsmannafélag
Vestfjarða ályktar því að verði
ekki skjótt brugðist við með full-
nægjandi aðgerðum muni rekstr-
arstöðvun verða óhjákvæmileg.
Jafnframt skorar félagið á stjórn
LÍÚ að boða tafarlaust til al-
menns félagsfundar, þar sem al-
varleg staða útgerðarinnar verði
rædd og afstaða tekin til frekari
aðgerða.
Atvinnuleysi í maí:
Batnaði lítið
frá fyrra mánuði
ATVINNULEYSI í maímánuði
minnkaði lítið frá mánuðinum á und-
an, aprflmánuði. Atvinnuleysisdagar
voru skráðir tæplega 24.000, sem
jafngildir því að 1.100 manns hafi að
meðaltali gengi atvinnulausir í mán-
Amnesty International:
Nýr formaður íslandsdeildar
SÉRA Bernharður Guðmundsson,
sem verið hefur formaður ís-
landsdeildar Amnesty Internation-
al sl. starfsár, gaf ekki kost á sér
til endurkjörs á síðasta aðalfundi
félagsins sem haldinn var 30. aprfl
sl.
Hjördís Hákonardóttir, borg-
ardómari, var kjörin í hans stað.
Aðrir í stjórn félagsins eru
Bergljót Guðmundsdóttir,
læknaritari, Sigríður Ingvars-
dóttir, lögfræðingur, Ævar
Kjartansson, dagskrárfulltrúi,
og Haraldur Ólafsson, lektor.
Varamenn eru séra Bernharður
Guðmundsson og Jóhanna Jó-
hannesdóttir tæknifræðingur.
Af starfi íslandsdeildarinnar í
vetur má t.d. nefna „Herferð
gegn pyntingum" sem mun
standa yfir allt árið. Margir nýir
félagar hafa bæst í hópinn á
starfsárinu og ýmislegt er á döf-
inni, segir m.a. í frétt frá deild-
inni. I haust eru liðin 10 ár frá
stofnun Islandsdeildarinnar og
af því tilefni hefur verið ráðist í
þýðingu og útgáfu á „Handbók"
Amnesty International og von-
ast er til að bókin komi út fyrir
árslok.
Hjördís Hákonardóttir
uðinum, en það er 0,9% af mannafla
á vinnumarkaði. Samsvarandi tölur
fyrir aprflmánuð voru 25 þúsund at-
vinnuleysisdagar eða 1200 manns at-
vinnulausir.
Skólafólks er lítið farið að gæta í
þessum tölum fyrir maímánuð. I
því sambandi má benda á að í
Reykjavík er meðaltal atvinnu-
lausra í mánuðinum 300, en siðasta
dag mánaðarins komu til atvinnu-
leysisskráningar 774 og voru 432
skólanemendur í þeim hópi.
Atvinnuleysið í maímánuði
skiptist þannig eftir landshlutum,
atvinnuleysisdagar og tala
atvinnulausra að meðaltali. Sam-
svarandi tölur fyrir 1983 innan
sviga: Höfuðborgarsvæðið 9.231
(7.543), 426 (348), Vesturland 1.695
(1.110), 78 (51), Vestfirðir 339 (170),
16(8), Norðurland vestra 2.093
(2.859), 97 (132), Norðurland eystra
5.580 (3.377), 257 (155), Austurland
1.425 (1.133), 66 (53), Suðurland
2.481 (1.139), 114 (53), Reykjanes
794 (944), 37 (44).
Eins og sjá má er atvinnuleysi
meira í ár í öllum landshlutum,
nema í Norðurlandi vestra og á
Reykjanesi, þar sem atvinnuleysið
er minna nú en það var í fyrra.
Atvinnuleysisdagar voru árið
1983 samtals 18.275, árið 1982,
7.454, og 1981, 5.690.
Vinir Doxa í myndinni „Ægisgatan“
sem tekin hefur verið til sýninga f
Nýja bíói.
„Ægisgata“
NÝJA BÍÓ hefur tekið til sýninga
myndina „Ægisgata“ (Cannery
Row). Hún er gerö eftir skáldsögum
John Steinbecks „Cannery Row“ frá
1945 sem út kom í islen.sk ri þýðingu
Karls ísfelds 1947 og „Sweet
Thursday“ frá 1954. Leikstjóri og
höfundur handrits er David S. Ward
og framleiðandi Michael Phillips,
sem m.a. hefur gert „Close Encount-
ers of the Third Kind". Aðalhlutverk
leika Nick Nolte og Debra Winger.
Myndin gerist í Monterey í Kali-
forníu og fjallar um haffræðing-
inn Doxa og unga stúlku, Suzy,
sem hvergi hefur skotið rótum og
flækst víða. Hún ræður sig í vinnu
á eitt öldurhús borgarinnar þar
sem rekin er fjölbreytt starfsemi,
miður siðvönd. Sögumaður er
John Huston.
„Hiti og ryk“
REGNBOGINN hefur tekið til sýn-
inga bresku myndina „Hiti og ryk“
(Heat and Dust), sem byggð er á
samnefndri sögu Ruth Prawer
Jhabvala. Leikstjóri er James Ivory.
Með aðalhlutverk fara Julie
Christie, Greta Sacchi og dáðasti
leikari Indverja, Shashi Kapoor.
Myndin fjallar um unga stúlku
sem fer til Indlands að kanna af-
drif annarrar breskrar konu sem
sextíu árum áður hafði yfirgefið
eiginmann sinn þar í landi. Sögur
kvennanna eru fléttaðar saman í
kvikmyndinni. Margt hefur breyst
á þessum sextíu árum þó enn sé
þar að finna menningu sem er
gjörólík hinni vestrænu.
('atharine Deneuve í hópi illvirkja.
„Tvöföld áhætta“
STJÖRNUBÍÓ hefur nú tekið til
sýninga frönsku sakamálamyndina
„Tvöföld áhætta" (A Nous Deux).
Leikstjórar eru Daniel Deschamps
og Junstine Heroux og með aðalhlut-
verk fara Jacques Duaronc og Cath-
arine Deneuve.
Myndin fjallar um samband
Francoise, sem er eftirlýst af lög-
reglunni fyrir fjárkúgun og Sim-
on, sem er margfaldur þjófur og
hefur setið meira en þriðjung ævi
sinnar í fangelsi. Þau eru á flótta
undan lögunum, þegar leiðir
þeirra liggja saman og komast síð-
an með ýmsum ráðum til Amer-
íku.
„KOSTARHANN
EKKIMEIRAr
® CHRYSLER
cnfi\s
t
vökva e
sk'Piöar oð Prmáttaf
„flDeTT1 „ r,n
•S?.* *»¥**"'
oh,86^0°
Ver»Kr .