Morgunblaðið - 14.06.1984, Qupperneq 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 1984
Akranes:
Skipulögð dags-
ferð fyrir ferða-
menn í sumar
Ahugafólk á Akranesi verður í
samráði við bsjarstjórn og Ferða-
málaráð Akraness með skipulagðar
dagsferðir frá Reykjavík til Akra-
ness á fimmtudögum í sumar. Lagt
verður af stað með fyrstu ferð Akra-
borgar og komið aftur til Reykjavík-
ur kl. 18.30 sama dag. Á Akranesi
tekur við leiðsögn um Byggðasafnið
í Görðum, hraðfrystihúsið Heima-
skaga hf. og saumastofuna Akra-
prjón hf., sem nær eingöngu saumar
ullarfatnað. f hádeginu er snætt á
Stillholti og áður en lagt er af stað til
Reykjavíkur er komið við á litlum
útimarkaði þar sem seldar eru leir-
vörur og minjagripir.
Þórdís G. Arthursdóttir er leið-
Sögumaður í þessum ferðum. Hún
sagði, er blaðamönnum voru
kynntar þessar ferðir: „Hingað
koma fjölmargir ferðamenn ár
hvert og ráfa hér stefnulaust um
bæinn. Okkur fannst kominn tími
til að bjóða þessu fólki upp á
skipulagðar skoðanaferðir um bæ-
inn því hér er margt að sjá. Undir-
búningur hefur staðið í allan vetur
og við höfum reynt að leggja aðal-
áherslu á fiskinn og mikilvægi
hans fyrir bæjarfélagið.
í Byggðasafninu í Görðum er
mjög gott sjóminjasafn auk
margra annarra merkra gripa,
sem séra Jón M. Guðjónsson safn-
aði og gaf bænum. Hann var
merkur frumkvöðull og gerði sér
ljóst að ýmsir hversdagslegir hlut-
ir yrðu seinna að safngripum, t.d.
eins og skórnir sem hann safnaði.
Einnig eru þar líkön af gamla
barnaskólanum, fyrstu útgerðinni
í Steinsvör o.fl. Ekki er allt safnið
enn til sýnis þar sem rými skortir
en til stendur að byggja við hús-
næðið sem fyrir er. Utan við
safnhúsið stendur kútterinn, sem
Kiwanismenn gáfu Akranesbæ
1974. Nú er smiður í fullu starfi
við að gera hann upp og áætlað er
að ljúka því 1985.“
I hádeginu er snætt á Stillholti.
Innifalið í heildarverði ferðarinn-
ar er tvíréttaður matur með kaffi.
í Stillholti var hafinn rekstur
fyrir um þremur árum og hefur
það breytt bæjarbragnum talsvert
að sögn Þórdísar.
Eftir hádegisverð er farið í
hraðfrystihúsið Heimaskaga hf.
Ekki er leyfilegt að fara inn í
sjálfan vinnslusalinn vegna heil-
brigðisástæðna en þess í stað er
sýnd mynd um vinnslu fisksins
þar til hann kemur á borð neyt-
andans.
í Akraprjóni hf. eru framleidd-
ar ullarvörur. Rúnar Pétursson
forstjóri sagði að sala á ullarvör-
um hefði orðið fyrir skakkaföllum
en væri nú að rétta úr kútnum. í
Akraprjóni eru kynnt hin ýmsu
vinnslustig ullarinnar og einnig
gefst kostur á að kaupa ullarvör-
ur.
Ein af nýjungunum, sem boðið
l'timarkaðurinn á Akratorgi.
Ljósmyndir: Árni Árnason.
er upp á í Akranesferðunum, er
lítill útimarkaður sem settur hef-
ur verið upp á Akratorgi í tilefni
ferðanna. Að honum standa þrír
leirkerasmiðir í bænum: Margrét
Jónsdóttir, Anna Kamp og Júlía
Baldursdóttir. Þær selja bæði með
minjagripi og leirmuni. „Okkur
langar til að lífga örlítið upp bæj-
arlífið hér og þetta er kjörin leið,“
sögðu þær stöllur.
Þótt miðinn (kr. 900,-) gildi að-
eins í dagsferð er möguleiki að
dvelja á hótelinu á Akranesi og
nýta heimferðina daginn eftir.
Gisting er þó ekki innifalin í verð-
inu. „Við vonumst til að þessar
ferðir eigi eftir að mælast vel fyrir
hjá ferðamönnum. Seinna viljum
við svo reyna sérstaka dagskrá
fyrir skólafólk og eldri borgara,"
sagði Þórdís að lokum. Áætlað er
að halda ferðum alla fimmtudaga
frá maílokum og fram í ágúst.
skoðun í aðalskoðun Bifreiðaeftirlits ríkisins:
Eigandi bifreiðarinnar getur nú farið með bifreiðina til viðgerð-
ar á bifreiðaverkstæði, sem Bifreiðaeftirlit ríkisins hefur viöur-
kennt, og að lagfæringu lokinni nægir áritun verkstæðisins um
það í skoðunarvottorð bifreiðarinnar, þannig að ekki þarf að
færa bifreiðina til endurskoðunar hjá bifreiðaeftirlitinu.
Til reynslu verður þessi háttur aðeins hafður á til að byrja með
við bifreiðir, sem skráðar eru á A númer.
Eftirfarandi verkstæði í þessu umdæmi haf fengið viðurkenn-
ingu Bifreiðaeftirlits ríkisins til að framkvæma þessa tilraun:
Bifreiöaverkstæðið Kambur. Grundargötu 1-6, Dalvík
Bifreiðav. Sigurðar Valdimarssonar, Oseyri 5A. Akureyri
Bifreiðav. Þórshamar. Tryggvabraut. Akureyri
Bílasalan hf., Strandgötu 53, Akureyri
Bílaverkst. Dalvíkur, Dalvík
Bláfell s.f., Draupnisgötu 7, Akureyri
Höldur s.f, Tryggvabraut 14, Akureyri
Jóhannes Kristjánsson hf., Gránufélagsgötu 47, Akureyri
Vagninn s.f , Furuvöllum 7. Akureyri
Víkingur s.f., Furuvöllum 11, Akureyri
Bifreiðav. Bjarnhéðins Gíslasonar, Fjölnisgötu 2A, Akureyri.
Bílgreinasambandið
Bifreiðaeftirlit ríkisins
Þórdís G. Arthursdóttir (t.v.) og bflstjórinn Sveinn Darrason (t.h.).
í Byggðasafninu í Görðum.