Morgunblaðið - 14.06.1984, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 1984
37
Minning:
Margrét Stefáns-
dóttir Sigurðsson
Fædd 26. júní 1891.
Dáin 4. júní 1984.
Margrét Stefánsdóttir Sigurðs-
son er látin, nær 93ja ára að aldri.
Margrét var mikilhæf kona, sterk
og kjarkmikil.
Hún fæddist að Stóra-Knarr-
Birting
afmœlis- og
minningar-
greina
ATHYGLI skal vakin á því, að
afmalis og minningargreinar
verða að berast blaðinu með góð-
um fyrirvara. I'annig veröur
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði, að berast í síðasta lagi
fyrir hádegi á mánudag og hlið-
stætt með greinar aðra daga. í
minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. t>ess skal
einnig getið, af marggefnu til-
efni, að frumort Ijóð um hinn
látna eru ekki birt á minningar-
orðasíðum Morgunblaðsins.
Handrit þurfa að vera vélrituð og
með góðu línubili.
arnesi á Vatnsleysuströnd, dóttir
hjónanna Guðrúnar Einarsdóttur
og Stefáns Jónssonar. Fyrstu
æskuárin ólst hún upp í glaðvær-
um hópi sex systkina, sem nú eru
öll látin, að undantekinni yngstu
systurinni, Jennýju. Margrét fór
mjög snemma að vinna fyrir sér,
svo sem títt var á þeim tíma.
Hún giftist ung Ragnari Páls-
syni Leví, sem i áraraðir átti
kunna tóbaksverslun í Austur-
stræti hér í bæ. Þau eignuðust
þrjú börn: Rögnu, gifta undirrit-
uðum, Pál, kvæntan Hanne Vest-
gard, og Sigurð, er dó 32ja ára,
ókvæntur. Þau Margrét og Ragnar
skildu.
Eftir það rak Margrét í mörg ár
hattaverslun af miklum mynd-
arbrag, uns hún giftist Magnúsi
Sigurðssyni, bankastjóra, sem
verið hafði ekkjumaður um árabil.
Þau slitu samvistir.
Nú fór Margrét að búa með
yngri syni sínum, Sigurði, mikið
veikum. Hann dó árið 1949. Á
þessum árum kom best fram mikil
fórnarlund Margrétar og jafn-
framt sannaðist það, sem margir
hafa fyrr og síðar reynt, að einlæg
guðstrú getur veitt aðdáunarverð-
an styrk í erfiðasta mótlæti.
Eftir dauða Sigurðar bjó Mar-
grét ein, lengi við sæmilega heilsu.
Þegar aldurinn færðist yfir, tók
heilsan að bila, og sjúkrahúslegur,
stuttar eða langar, urðu æ tíðari,
lengst og síðast á Hvítabandinu. Á
öllum þessum deildum fékk Mar-
grét ákjósanlega meðferð og frá-
bæra ummönnun, vinsamlega og
kærleiksríka, sem hún kunni vel
að meta, og sem nánustu aðstand-
endur hennar þakka nú af einlæg-
um hug.
Margrét var örlát mjög, vinnu-
söm og afar smekkvís, hún var
glaðlynd að eðlisfari og entist
kímnisgáfan frá æskuárunum
henni langt fram eftir ævi. Sjálf
var Margrét stórglæsileg kona, og
mun samferðamönnum hennar
seint úr minni líða sérstæður
persónuleiki hennar.
Ofarlega í hugum margra verða
þakkir fyrir langa og ánægjulega
samfylgd.
Jón Sigurðsson.
ÞÚ BÓNAR TIL REYNSLU
ULTRA GLOSS er svo frábært bón, að þú verður
að hafa reynt það til þess að trúa því. Kauptu þér
brúsa og gerðu tilraun, smáa eða stóra.
VIÐ ENDURGREIÐUM
ónotaðar eftirstöðvar ef þú ert ekki fyllilega ánægður
með árangurinn.
• Auðvelt i notkun
• Hreinsar
• Margföld ending
• Gefur glæsilega áferð
• Stöðvar veðrun (oxyderingu)
• Vernd gegn upplitun
ULTRA
LOSS
Eina raunhæfa
nýjungin í bílabóni
Það sem gerir ULTRA GLOSS svo frábrugðið er,
að það inniheldur engin þau efni, sem annars er
að finna í hefðbundnum bóntegundum, svo sem
harpeis, vax, plast eða polymer efni. Grunnefnið i
ULTRA GLOSS eru glerkristallar, auk bindiefna og
herða.
Þegar bónað er með ULTRA GLOSS, þá myndast
þunnt glerungslag á yfirborði lakksins, sem bæði
styrkir það og kemur i veg fyrir að óhreinindi nái að
bíta sig föst við lakkið. Vamarskelin er það góð, að
sé bónið borið á ál eða silfur þá fellur ekki á málminn.
Með öðrum orðum, veðrun (oxydering) á sér ekki
stað. Framleiðendur benda auk þess á, að ULTRA
GLOSS endist langt umfram hefðbundnar bónteg-
undir. Þetta þarf engum að koma á óvart, því ef borin
er saman ending á vax- eða plasthúð annars vegar
og glerhúð hins vegar, þá er nokkuð augljóst hvaða
efni endist lengst.
En ULTRA GLOSS hefur fleiri kosti, þvi eins og
kunnugt er þá dregur gler úr virkni útfjólublárra
geisla, en þeir eru höfuðorsök þess að lakk á bilum
upplitast.
Erlendar umsagnir: ’
General Motors Engineenng Staff GM
GM Dessert Proving Ground
We have tested your product m vanous departments and divisions
Your product seems to be supenor in every way œmpared to other
product of simHar nature We are íhorooghly satisfied with your
product. .
SK5n
Cl.estor R. \
I’urrhajing DeþartnAt
Ford
1550S Roscoe Bouleward
Sepulveda. Cal 91343
We believe ULTRA GLOSS is exceptionaHy line product and would
enthusiasticallyTecommend itto any deatet
S'9n GALPIN MOTORSy INC.
S&r-*
Bert Boeckmann
Owner-President
Einkaumboð á islandi Háberg hf. Skeifunm 5a.
Utsölustaðir:
Bensinafgreiðslur
Oliufélagiðhf
.E
Állt trá hatti oní skó
H E R RA D E I LD
SUMARIÐ ER KOMIÐ
Viö bjóðum ,,Thermo-Clear“ tvöfalt og þrefalt
plastgler fyrir gróöurhús, garöstofur, verandir,
sólskýli, sundlaugar, iönaöarhúsnæöi og margt
fleira.
Thermo-Clear er auðvelt í uppsetningu.
Plötustærðir allt að 2,1 m x 6,0 m
Plötuþykktir: 4,5 mm, 6 mm, 8 mm, 10 mm, 16 mm.
Athugið að 16 mm platan er þreföld á við þrefalt gler.
Við veitum tæknilega ráðgjöf, ef óskað er.
— ----------------------------
%IÁ\ASTIL\(ill«
W ¥ Höfum til afgreiðslu strax fánastengur úr
áliilengdum 6-8-10-12-14-16 metra.
¥ Fánastengumar eru með öllum fylgihlutum,
hún, nál, línu og jarðfestingu.
¥ Uppsetning er auðveld, leiðbeiningar fylgja
með.
jíl
siGm
Ólafur Kr. Sigurðsson HF
Suðurlandsbraut 6, síml 83499