Morgunblaðið - 14.06.1984, Qupperneq 46
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 1984
• Konurnar úr Stjörnunni sem sýna í Garöabæ í kvöld og í Noregi um aöra helgi.
ir. ■ l- H ■rjht* Æizm,
jrim <æ w • vJ r P1 Br íaí, w W ... m RrÍ j m /ír
Fimleikahópar til Noregs
Tveir sýningarhópar Irá islandi
halda til Noregs til þétttöku i
norrænni fimieikahátíó. Slíkar
hátíöir eru árlegur vióburöur og
næsta ár verður hún haldin hár á
landi. Hóparnir sem fara utan eru
frá Stjörnunni í Garóabæ og ÍMA
á Akureyri. Hátíó þessi mun
standa dagana 24.—30. júní og
munu vera um 600 þátttakendur.
Á sama tíma fara átta stúlkur úr
Björkunum til italíu og munu þær
sýna þar í nokkrum bæjum. Þessi
hópur sýndi einnig á síöasta ári á
italíu. Hóparnir frá Björkunum og
Stjörnunni munu halda sýningu i
Garðabæ i kvöld og hefst hún
kl.20.30 í Ásgaröi.
Tveir leikir í kvöld:
V-Þjóðverjar hefja
titilvörn sína
TVEIR leíkir fara fram í Evrópu-
keppninni í knattspyrnu í kvöld.
V-Þjóðverjar leika gegn Portúgal
í Strassborg og Rúmenar mæta
Spánverjum í St. Etienne.
Leikur Þjóöverja og Portúgala
veröur mjög í sviösljósinu. Flestir
telja V-Þjóðverja mjög sigur-
stranglega í keppninni en liö
Portúgala er gott og gæti hæglega
komiö á óvart. Portúgalir slógu
Rússa út úr keppninni og hafa leik-
iö vel aö undanförnu. Leikmenn
liösins eru eingöngu frá Benfica og
Porto.
( liði V-Þjóöverja eru átta leik-
menn sem uröu Evrópumeistarar
áriö 1980. Liöin í kvöld veröa
þannig skipuð:
V-Þýskaland: Schumacher,
Briegel, Karl-Heinz Förster, Stiel-
ike, Bernd Förster, Rolff, Brehme,
Buchwald, Rummenigge, Voller,
Allofs.
Portúgal: Bento, Joao Pinto,
Eurico, Lima Perreira, Alvaro,
Carlos Manuel, Frasco, Pacheco,
Chalana, Diamantino, Jordao.
Fyrsti sigur ÍBV
EINN leikur fór fram í 2. deild í
gærkvöldi, Njarövík lék á heima-
velli gegn líðí ÍBV og varö aö
sætta sig vió tap, 0—1. Þetta er
fyrsti sigur ÍBV í 2. deildinni á
keppnistímabilinu. Það var Sigur-
jón Kristjánsson sem skoraöi sig-
urmark ÍBV á 67. mínútu leiksins.
Leikmenn Njarövíkur sóttu mun
meira i fyrri hálfleiknum, en tókst
ekki aö skora þrátt fyrir aö eiga
sæmilega góö tækifæri. Fram aö
marki ÍBV sóttu leikmenn Njarö-
víkur meira, en eftir markiö gáfu
þeir eftir og ÍBV átti þá mun meira
í leiknum. Mark iBV kom úr fyrsta
upphlaupi þeirra í síöari hálfleik.
OT/ÞR.
• Geysilegur fjöldi þátttakenda
er í maraþonhlaupum erlendis
oftast nær. Reiknaó er meö um
200 þátttakendum í hlaupiö hér
heima.
Reykjavíkurmaraþon í ágúst
— Puma-fyrirtækiö veitir
glæsileg verðlaun
SUNNUDAGINN 26. ágúst nk. fer fram á götum Revkjavíkurborgar
alþjóólegt maraþonhlaup, hiö fyrsta sinnar tegundar á Islandi. Hlaupió,
sem hlotið hefur nafniö „Reykjavíkur maraþon", er alþjóólegt hlaup, er
allur almenningur getur tekió þátt í, konur og karlar. Auk þátttöku
ísiendinga er búist vö þátttöku erlendra skokkara, sem tekiö hafa þátt
í álíka hlaupum víóa um heim.
íslenskir sem erlendir þátttak-
endur geta valiö um tvær vega-
lengdir: 42 km, sem er maraþon
vegalengdin; eða hálft maraþon —
21 km. Auk þess á landinn kost á
Islandsmet
í skriósundi
Ragnar Guðmundsson, sonur
Guðmundar Haröarsonar sund-
þjálfara, setti á dögunum tvö ís-
landsmet í skriösundi. Hann synti
1500 metra skriósund á 16.53.1 en
Valur
• Dregiö hefur veriö í happ-
drætti knattspyrnudeildar Vals.
Vinningsnúmerió var 115.
gamla metið, sem hann átti sjálf-
ur, var 17.09.73 mínútur. í þessu
sama sundi setti hann einnig ís-
landsmet í 800 metra skriði en
hann synti þá vegalengd á
9.03.40. Á móti í Noregi sigraði
hann síðan í 400 metra skriósundi
á 4.21.0 mínútum. Systir hans,
Þórunn Guðmundsson, setti
einnig íslandsmet I 400 metra
skriósundi en hún synti vega-
lengdina á 4.40.8 mínútum.
Landskeppni
í fimleikum
A sunnudaginn lauk lands-
keppni milli Skotlands og íslands
í fimleikum og fór keppnin fram í
Aberdeen. Úrslit í piltaflokki uróu
þau aö Skotar sigruöu meö
249.05 stig en íslenska sveitin
hlauf 221.55 stig. í stúlknaflokki
sigruðu Skotar einnig, hlutu
173.70 stig en íslensku aúlkurnar
hlutu 151.90 stig. Heimir Gunn-
arsson, úr Ármanni, náói bestum
árangri piltana en Hulda Ólafs-
dóttir, úr Björkunum, var stiga-
hæst íslensku stúlknanna.
Á morgun keppir íslenska
kvennalandsliðiö viö Wales og
veröur keppt ytra.
aö velja sér nokkru styttri vega-
lengd, eöa 8—10 km. Er þaö sér-
staklega hugsaö fyrir byrjendur.
Aöaláhersla er lögö á aö vera meö
og aö Ijúka hlaupinu, en ekki aö
veröa fyrstur í mark. Til marks um
þaö veröur einnig boöiö upp á 3ja
manna sveitakeppni, þannig aö
þrír þátttakendur í stystu vega-
lengdinni (8—10 km) mynda sveit.
Dregið veröur um sérstök verölaun
úr hópi 10 fyrstu sveitanna. Aö
ööru leyti veröa veitt verölaun i eft-
irfarandi flokkum:
Karlar
39 ára
40—49 ára
50 ára og eldri
Enginn getur
maraþon vegalengdinni
sem ekki er oröinn 16
Konur
35 ára
36—40 ára
41 árs og eldri
þó tekiö þátt í
42 km,
ára eöa
verður þaö á árinu.
Hlaupið hefst kl. 10:00 f.h.,
sunnudaginn 26. ágúst í Lækjar-
götu og er áætlaö aö þaö endi á
sama staö u.þ.b. 4 tímum síöar, en
bestu hlaupararnir Ijúka 42 km á
u.þ.b. 2 klst. og 25 mínútum.
Hlaupið er austur aö Elliöaám, til
baka vestur á Seltjarnarnes og
endar hálft maraþon (21 km) síöan
í miöbænum þar sem þaö hófst, en
þeir sem keppa á maraþoni (42
km) hlaupa annan hring.
Brautir veröa merktar meö 5 km
millibili eöa oftar eftir því sem þarf.
Auk þess verða vegalengdir
merktar. Matar- og drykkjarstööv-
ar veröa einnig á 5 km millibili.
Þaö eru Feröaskrifstofan Úrval
hf., Flugleiöir hf„ Frjálsíþróttasam-
band íslands og Reykjavíkurborg,
sem standa aö Reykjavíkur mara-
þoni. Um veröur aö ræöa víötækt
samstarf mjög margra aöila aö
framkvæmd þessa viöburöar og
má þar nefna auk þeirra sem áöur
voru nefndir, lögreglu, ýmsar
stofnanir borgarinnar auk fjölda
einstaklinga bæöi innan íþrótta-
hreyfingarinnar og utan. Þá hefur
veriö ákveöiö aö ganga til mjög
víötæks samstarfs viö þýska
íþróttavörufyrirtækiö Puma, sem
kemur til meö aö styrkja keppnina
verulega. Auk þess mun Puma
veita ýmis aukaverölaun, m.a. mun
sigurvegari í 42 km, sem hleypur á
Puma-skóm, hljóta ferö til Þýska-
lands í verölaun.
Undirbúningur aö Reykjavikur
maraþoni hófst fyrir nokkrum
mánuöum meö útgáfu bæklings á
ensku. Hefur dreifing og kynning
erlendis fariö fram í samvinnu viö
markaðsdeild Flugleiöa hf. og
söluskrifstofur í hinum ýmsu lönd-
um, auk þess sem Feröaskrifstof-
an Úrval hf. hefur haldiö uppi
kynningu í gegn um sína umboös-
menn. Þá hefur Frjálsíþrótta-
samband islands kynnt máliö á
erlendri grund viö ýmis tækifæri.
Óhætt er aö fullyröa aö hlaupiö
kemur til meö aö setja verulegan
svip á borgina, en slík hefur raunin
oröiö erlendis þar sem hlaup sem
þessi eru haldin. í sumum tilvikum
flykkist fólk þúsundum saman til
þátttöku og nægir þar aö nefna
London marathon, er haldiö var
13. maí sl. meö þátttöku 21.200
manns.
REYKJAVIK
MARATH0N
26Augustá
1MB •Cni ANDiC ATHtfe'T;C UNIOK
• Forsíðan á enskum kynn-
ingarbæklingi sem gefinn er út til
þess aö kynna Reykjavíkur-
maraþoniö.
Magnús áfram
meó UBK
Þrálátur orörómur hefur gengiö
um bæinn nú é síöustu dögum
um aö Breiðablik hafi rekið þjálf-
ara meistaraflokks karla í knatt-
spyrnu, Magnús Jónatansson. í
samtali viö Mbl. sagöist Magnús
ekki hafa heyrt þetta fyrr en á
æfingu á þriöjudagskvöldiö og
taldi hann ekkert hæft ( þessu.
Hann sagöist aö vísu ekki vera
ánægóur meö gengi liösina að
undanförnu en bæði hann og
leikmenn geröu sér grein fyrir
hvaö væri aó án þess þó aó hann
vildi ræöa um þaö í fjölmiölum.
Gunnar Þórísson, formaður
meistaraflokksráös karla, sagöi aö
hann heföi ekki heyrt á þetta
minnst og lagöi áherslu á aö þetta
stæði alls ekki til af hálfu félagsins.
„Þaö ríkir mjög góöur andi í liöinu
og þetta stendur alls ekki til,“
sagöi Gunnar. SUS.