Morgunblaðið - 21.07.1984, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 21.07.1984, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 1984 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoöarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 275 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 25 kr. eintakiö. Afnám tekjuskatts Ikjölfar þess langa tíma- bils vinstri stjórna, sem við höfum búið við í einn og hálfan áratug með stuttum hléum, hafa menn haft vaxandi áhyggjur af því, að efnamunur hafi aukizt mjög í landinu og bilið breikki milli þeirra, sem hafa mikið, og hinna, sem hafa úr minna að spila. Hvarvetna í landi okkar má sjá þess merki, að stórir hópar þjóðfélagsþegna hafi mikil fjárráð en aðrir lítil. Auðvitað verður það alltaf svo, að efnahagslegt jafn- ræði verður ekki á milli fólks, en í fámennu samfé- lagi eins og hér á íslandi getur of mikill efnamunur leitt til misklíðar og ill- deilna, sem samfélagið þol- ir ekki. Margar ástæður valda þessum efnamun, en vafa- laust er ein sú, að það hefur færzt í vöxt, að fólk telji tekjur sínar ekki allar fram til skatts. Fyrir tíma Við- reisnarinnar voru skattsvik algeng og þóttu nánast sjálfsögð. Viðreisnarstjórn- in tók upp sanngjarnt skattakerfi, sem hafði það í för með sér, að skattsvik hurfu að verulegu leyti. Nú er afar erfitt að meta það, hvað skattsvik tíðkast í rík- um mæli, en margt bendir til þess, að þau hafi færzt í vöxt á ný á undanförnum árum. Fólk furðar sig á þeim styrk, sem efnahagskerfi okkar virðist búa yfir þrátt fyrir mikinn samdrátt í sjávarafla. Er hugsanlegt, að hann byggist á því, að hér þrífist blómlegt neð- anjarðarhagkerfi, sem hvergi kemur fram í skýrslum og tölum hins opinbera, en heldur at- vinnulífinu gangandi þrátt fyrir samdráttinn við sjáv- arsíðuna? Ef þessu er svo farið er auðvitað alveg ljóst, að þeir landsmenn, sem eru í þeirri aðstöðu að greiða skatta af öllum tekj- um sínum, eru að borga skattana fyrir þá, sem hafa möguleika á því að telja ekki allar tekjur sínar fram til skatts. Vafalaust munu margir segja sem svo, að sé neðanjarðarhagkerfið svo blómlegt, sé full ástæða til að herða eltingarleikinn við skattsvikarana. Fengin reynsla öldum saman í fjöl- mörgum löndum sýnir hins vegar, að það er ekki auð- veldur leikur. Bezta skatta- eftirlitið er það, að setja sanngjörn skattalög, sem fólk er tilbúið til að virða. Hér á landi hafa skattar verið hækkaðir alltof mikið á undanförnum árum. Það er óréttlátt í hæsta máta, að einungis hluti þjóðar- innar greiði tekjuskatt. Líklega er skynsamlegasta leiðin sú að afnema allan tekjuskatt á einstaklinga, jafnvel þótt það þýddi aukna óbeina skatta, sölu- skatt eða virðisaukaskatt. Til frambúðar sætta skatt- greiðendur sigekki við það, að þjóðin skiptist í tvo hópa: þá sem borga skatta og hina, sem komast hjá því. Sala ríkiseigna Ríkissjóður á í erfiðleik- um. Fjármálaráðherra hefur markað þá stefnu, að selja skuli ríkisfyrirtæki. Þeirri stefnu hefur ekki verið hrundið í framkvæmd nema að takmörkuðu leyti. Það er nauðsynlegt að fylgja þessari stefnu fjár- málaráðherra fast eftir og selja eignir ríkisins til þess að létta undir með ríkis- sjóði, sem á við veruleg fjárhagsvandræði að stríða. Aðild ríkisins að nýjum hlutafélögum, sem verið er að mynda um nýjan at- vinnurekstur, gengur þvert á þessa stefnu. Það er rangt að leggja fé skattgreiðenda í ný fyrirtæki á meðan leit- azt er við að selja önnur. Það er líka rangt af þeim sem hafa hug á að stofna til atvinnurekstrar að leita til ríkisins um fjármagn og aðra aðstoð. Það verður engum til góðs þegar til lengri tíma er litið. „Við höfum vanmet- ið styrk Atlantshafs- bandalagsins“ — segir Carrington lávarður, frkvstj. NATO, í viðtali við Morgunblaðið „Ég held ekki að neinn vilji halda því fram, að sam- skipti austurs og vesturs séu í góðu formi um þessar mundir. En við skulum gæta þess að draga ekki upp ýkta mynd af ástandinu; það leik- ur enginn vafí á því að hvorki aðildarríki Atlantshafs- bandalagsins né Varsjár- bandalagsins vilja stríð. Slík- ar hörmungar vill enginn leiða yfír sig,“ sagði Carr- ington lávarður, fram- kvæmdastjóri Atlantshafs- bandalagsins, í viðtali við Morgunblaðið í gær. Carrington lávarður er hér staddur í opinberri heimsókn í til- efni af því að hann er nýtekinn við starfi framkvæmdastjóra banda- lagsins. Hann hefur þegar sótt heim þrettán af sextán aðildar- ríkjum Atlantshafsbandalagsins og næsti viðkomustaður hans er Grikkland. Hann fer af landi brott síðdegis. Carrington, sem er 65 ára að aldri, er fyrrum utanríkisráðherra í ríkisstjórn Margrétar Thatchers á Bretlandi. Hann heitir fullu nafni Peter Alexander Rupert Carrington og aðalstitilinn erfði hann þegar faðir hans féll frá árið 1938. Á stríðsárunum var hann majór í handsprengjusveit breska hersins og var sæmdur herkross- inum fyrir framgöngu sína. Menntun sína hlaut Carrington í Eton og Sandhurst-herskólanum. I stríðslok hóf hann þátttöku i stjórnmálum og þegar íhaldsmenn komust til valda árið 1951 varð hann, þá 32 ára að aldri, aðstoð- arráðherra landbúnaðar- og fiski- mála í ríkisstjórninni. Carrington varð varnarmálaráðherra Bret- lands árið 1971 og um svipað leyti var hann kjörinn formaður íhaldsflokksins. Hann sagði af sér embætti utanríkisráðherra í ráðu- neyti Thatchers í framhaldi af innrás Argentínumanna á Falk- landseyjar árið 1982 og dró sig þá um skeið út úr opinberu lífi. Sagt er að hann hafi haft mikinn áhuga á því, að láta að sér kveða á ný á opinberum vettvangi, og þegar staða framkvæmdastjóra Atlants- hafsbandalagsins losnaði hvöttu margir áhrifamenn hann til að gefa kost á sér. I þeim hópi var Margrét Thatcher, sem talið er að hafi beitt sér mjög fyrir því að hann hlyti stöðuna. Bandaríkja- menn studdu hann einnig eindreg- ið. Sjálfur lét Carrington ekkert uppi um áhuga sinn i þessu efni, en margir litu svo á að fyrirlestur, sem hann flutti á vegum Alþjóða- hermálastofnunarinnar í Lundún- um (IISS) í apríl á síðasta ári, hafi verið eins konar stefnuyfirlýsing hans um málefni bandalagsins og samsinni við óskum um að hann tæki að sér embætti fram- kvæmdastjóra þess. Carrington tekur við starfi á tímum erfiðra samskipta austurs og vesturs og nokkurrar óeiningar í Atlantshafsbandalaginu. Búist er við því að hann verði fremur sáttfús f orðum gagnvart komm- únistarikjunum. Hann hefur lengi verið þeirrar skoðunar, að nauð- synlegt sé að vera fastur fyrir gagnvart Sovétmönnum, en spara hins vegar stóru orðin. í fyrir- lestri sínum hjá Alþjóðahermála- stofnuninni gagnrýndi hann þá vestræna ráðamenn, sem kjósa að skiptast á orðum við Sovétmenn „með gjallarhornum", eins og hann orðaði það. Kvað hann það ekki vænlegt til árangurs og nauð- syn bæri til að reyna að finna nýj- ar leiðir í samskiptum við þá. Blaðamaður Morgunblaðsins spurði Carrington um ástæður fyrir því að sambúð ríkjanna í austri og vestri væri jafn slæm nú og raun ber vitni. „Fyrir því eru margvíslegar ástæður," sagði hann. „Að drjúgum hluta stafar það af þvi að sá trúnaður, sem áð- ur var fyrir hendi milli ráða- manna í austri og vestri, hefur beðið hnekki og er ekki lengur til staðar. I því sambandi vil ég fyrst minna á innrás Sovétríkjanna í Afganistan 1979. Sú íhlutun var brot á mörgum alþjóðlegum samn- ingum, sem Sovétmenn höfðu skrifað undir, og hún var Vestur- landabúum mikið áfall. Menn veltu því eðlilega fyrir sér hvort unnt væri að halda áfram viðræð- um við þá um afvopnun og bætta sambúð þegar framferði þeirra væri með þessum hætti. í annan stað vil ég nefna atburðina í Pól- landi, sem leiddu til þess að um hríð var mjög lítið um fundi stjórnmálaleiðtoga og háttsettra embættismanna úr ríkjum Atl- antshafsbandalagsins og Var- sjárbandalagsins. Loks er að nefna ákvörðun Sovétmanna að Aukið sjálfræði viðskipta- banka til vaxtaákvarðana — segir Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins „ÞAÐ sem blasir vid núna er fyrst og fremst þrennt: Jafnvægisleysi á peningamarkaði, vandi sjávarútvegs og ástand á vinnumarkaðinum," sagði Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, þegar blaða- maður Morgunblaðsins hitti hann að máli eftir sameiginlegan fund þing- flokks og miðstjórnar á Laugarvatni síðastliðinn fimmtudag og innti hann eftir áliti hans á efnahags- ástandinu. „Útlán eru miklu hærri en inn- lán og sparnaður leyfa, þetta veld- ur verulegri spennu og uppsveiflu i verslun og viðskiptum og á vinnumarkaði. Orsökin er auðvit- að sú að við höfum tekið of mikið af erlendum lánum i neyslu og eyðslu. Það þarf að gera ráðstaf- anir til að ná jafnvægi á þessu sviði mjög skjótt.“ Það er augljóst að aukinn sjálfs- ákvörðunarréttur viðskiptabank- anna til vaxtaákvarðana, hlýtur að verða einn af þeim þáttum sem á verður tekið. Samruni i banka- kerfinu og minni afskipti ríkis- valdsins er einnig þýðingarmikið markmið. Annar þátturinn lýtur að þeim mikla vanda sem við stöndum frammi fyrir í sjávarútvegi og á rætur að rekja fyrst og fremst til þess að afli hefur dregist mjög saman. Þá er fiskiskipastóllinn of stór. Okkur hefur ekki tekist í því gengisfellingarþjóðfélagi, sem við lifðum í, að ná aðhaldi að atvinnu- rekstrinum, sem nauðsynlegur er til að auka framleiðni. Verkefnið framundan er að taka á þessu viðfangsefni og vandamáli innan marka þeirrar efnahagsstefnu sem við erum að vinna eftir, án þess að gefa eftir í viðleitni okkar að viðhalda jafnvægi. — Kemur þá til greina að fella gengið um allt að 5% ? „Við höfum unnið eftir ákveðnu gengissvigrúmi og ég tel nauðsyn- legt að marka efnahagsstefnu á næsta ári með samskonar hætti. Það verður að leysa vandamálin innan þess ramma. — Mun ríkisstjórnin gera ráðstafanir sem auðvelda útgerð- armönnum að leggja skipum í lengri eða skemmri tíma? „Eg hef sagt það áður að efna- hagskerfið þolir ekki að halda úti öllum þeim flota, sem við eigum í dag til þess að veiða jafnlítið af fiski og raun ber vitni. En við höf- um ekki tekið neinar endanlegar ákvarðanir um aðgerðir. Það er verið að vinna að tilllögum í þessu efni. Þriðja atriðið er, eins og ég hef áður sagt, vandamál á vinnumark- aðinum, í kjölfar þess að verka- lýðsfélög hyggjast, mörg hver a.m.k., segja upp kjarasamning- um. Það er okkar mat að kaup- máttur ráðstöfunartekna í heild hafi haldist óbreyttur, þess vegna var ekki tilefni til að rjúfa það samkomulag, sem gert var í vetur og ætlað var að standa fram á næsta ár. Almennt er kaupmátt- arstig hátt í þjóðfélaginu, það sýn- ir neyslan, svona mikil neysla er ekki á vegum fárra er hafa mikil efni. En auðvitað þarf að huga núna, eins og áður, að vanda þeirra sem verst eru settir og skoða sérstaklega hvernig kaup- máttur þess fólks hefur breyst — ákvörðun um það hefur þegar ver- ið tekin. Ríkisstjórnin tók með sérstökum aðgerðum í skatta- og tryggingarmálum á þessum vanda þegar í upphafi og aftur í tengsl- um við kjarasamningana, þar sem við urðum við óskum ASÍ um að- gerðir fyrir þetta fólk, að fullu og öllu. Það er skylda ríkisstjórnar- innar að gæta hagsmuna þeirra er lökust hafa kjörin og eru ekki lengur á hagsmunasviði launþega- samtakanna." — En hvaða önnur áhrif hafa uppsagnir kjarasamninga? „Auðvitað hefur það áhrif, en atvinnurekendur og launþegar vita innan hvaða marka þeir geta samið og þeir vita að það stendur ekki til að kvika frá þeim mark- miðum sem rikisstjórnin hefur sett sér og heitið að vinna að í þágu fólksins í landinu. Ég hef fulla trú á að þeir endurnýi samn- inga í þvi ljósi. Við erum staðráðnir i að hvika ekki frá þeim markmiðum er sett hafa verið, að búa hér til þjóðfélag með efnahagslegu jafnvægi og að skjóta stoðum undir nýsköpun í is-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.