Morgunblaðið - 21.07.1984, Síða 27

Morgunblaðið - 21.07.1984, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 1984 27 Góð undirstöðumenntun forsenda tæknivæðingar — segir í áfangaskýrslu starfshóps um nýja tækni Ljósm. Mbl./Friðþjófur. Ingvar Ásmundsson, skólastjóri og Alexander Stefánsson, félagsmálaráó- herra, kynna álitsgerð starfshóps, sem kannar áhrif tölvuvædingar á íslenskt atvinnulíf. STJÓRNVÖLD allflestra vestrænna ríkja hafa undanfarin ár skipað starfshópa til að kanna áhrif þeirrar umbyltingar á vinnumarkaði, sem rafeindatæknin hefur í för með sér. Með þingsályktunartillögu, sem samþykkt var af Alþingi árið 1982, var ríkisstjórninni falið að skipa nefnd, sem gera skyldi athugun á stöðu og þróun í upplýsinga- og tölvumálum. í kjölfar þessa kannaði Alex- ander Stefánsson, félagsmála- ráðherra, undirtektir helstu sam- taka launþega og atvinnurekenda og var í framhaldi af því skipaður starfshópur, sem kanna skyldi hugsanleg áhrif tölvuvæðingar og sjálfvirkni á íslenskt atvinnulif. Hópurinn skipti viðfangsefni sínu í þrjá þætti, a) öflun gagna, b) könnun á áhrifum nýrrar tækni á íslenskan vinnumarkað, ásamt út- tekt á helstu atvinnugreinum og c) tillögur um stofnun og viðgang nýrra atvinnugreina. Er nú komin stutt álitsgerð frá hópnum, þar sem hann lýsir helstu viðhorfum sinum. Ingvar Ásmundsson, skóla- stjóri, formaður hópsins, lýsti yfir ánægju sinni með að bæði full- trúar launþega og atvinnurekenda ættu sæti í nefndinni, þvi raunin hefði oft verið sú erlendis, að þess- ir hópar elduðu grátt silfur saman er rætt væri um tölvuvæðingu og tækniþróun. Þar kæmi helst til ótti launþega við atvinnuleysi, ef tæknivæðing væri ör. Ingvar kvað það heillavænlegast fyrir báða að- ila, að þeir væru samtaka i að mæta þróuninni. í álitsgerð starfshópsins kemur m.a. fram að mikil nauðsyn er að efla tækniþróun, ef íslendingar ætla að bæta samkeppnishæfni sína og lífskjör. Tækniþróun kann að valda timabundnum örðugleik- um á vinnumarkaði, en að áliti hópsins eru þeir óverulegir í sam- anburði við þann vanda, sem kyrrstaða leiðir af sér. Hópurinn álftur aðstöðu íslendinga til að nýta sér nýja tækni að ýmsu leyti ákjósanlega og nefnir nokkur at- riði þvf til stuðnings. Atvinnuleysi sé óverulegt hér og hjöðnun verð- bólgu skapi ný tækifæri til að bæta stjórnun og auka arðbæra fjárfestingu. Auk þess sé menntun Islendinga almennt góð. Sérstaka áherslu leggur hópurinn á að kon- ur séu hvattar til að haga mennt- un sinni svo, að atvinnuþátttaka þeirra verði fjölþættari og vekur athygli á því forskoti, sem karl- menn fá á vinnumarkaði við tíma- bundið brotthvarf kvenna vegna meðgöngu og barnauppeldis. Lagt er til að þessu vandamáli verði mætt með því að tryggja örugga uppeldisaðstöðu barna og jafna þátttöku foreldra i því starfi. Breiða og sterka undirstöðu- menntun, sem lagar sig að breytt- um aðstæðum á vinnumarkaði, telur hópurinn forsendu allrar framþróunar. Kvikmyndasýning í Menningarstofn- un Bandaríkjanna ÝMSAR nýlegar frétta- og fræðslu- myndir frá Bandaríkjunum verða sýndar í Menningarstofnun Banda- ríkjanna að Neshaga 16, Reykjavík, í dag, laugardag, kl. 16—18. í tilkynningu frá stofnuninni segir að meðal annars sé ein myndanna frá Kfnaför Ronald Reagan í aprfl siðastliðnum og ennfremur verði sýndar margar stuttar myndir. Aðgangur að kvikmyndasýningunni er öllum frjáls. Alexander Stefánsson, félags- málaráðherra, kvaðst mjög ánægður með álitsgerð starfs- hópsins og sagði að hann myndi starfa áfram og m.a. koma með tillögur um nýjar atvinnugreinar, eins og áður er sagt. Hann kvað reynt að hraða störfum hópsins, en þau tækju að vonum mikinn tíma, enda verkefnið viðamikið. Ráðherrann sagði mikilvægt, að allir skildu þýðingu þess að taka við nýrri tækni, sem nú ryddi sér til rúms. Starfshópinn skipa þeir Ingvar KVÖRTUNARNEFND ferðaskrif- stofa og Neytendasamtakanna, sem stofnuð var í vetur með samningi Félags íslenskra ferðaskrifstofa og Neytendasamtakanna, hefur nú ver- ið skipuð og hélt hún sinn fyrsta fund 11. júlí síðastliðinn. Nefndina skipa Ólafur Ólafsson, formaður, fyrir hönd samgönguráðuneytisins, Ingólfur Hjartarson frá Félagi ís- lenskra ferðaskrifstofa (FÍF) og Jón Magnússon skipaður af Neytenda- samtökunum. Nefndinni er ætlað að skera úr ágreiningsmálum milli félags- manna Neytendasamtakanna og ferðaskrifstofa sem aðild eiga að FÍF. Til þess að mál verði tekin fyrir þarf skrifleg kvörtun að hafa bor- Guðbrandsbiblía með eigináritun hans meðal sýningargripa BIBLÍUSÝNING sú, sem haldin var á Selfossi fyrir skömmu til minn- ingar um 400 ára afmælisútgáfu Guðbrandsbiblíu, verður til sýnis í Skálholtskirkju á Skálholtshátíðinni á morgun, sunnudag. I fréttatilkynningu sem Mbl. hefur borist frá Skálholti segir að sýning þessi sé að því leyti sérstök að á henni séu allar þær biblíur Ásmundsson, sem er formaður hans, Haukur Helgason, skóla- stjóri, og Hilmar Jónasson, for- maður verkalýðsfélagsins Rang- æings, tilnefndir af launþega- samtökum, Þorsteinn Geirsson, skrifstofustjóri, og Þórarinn V. Þórarinsson, aðstoðarfram- kvæmdastjóri VSÍ, eftir tilnefn- ingu samtaka atvinnurekenda, en Þórarinn var skipaður í hópinn í mars sl. í stað Magnúsar Gúst- afssonar, forstjóra, sem réðst til starfa erlendis. ist skrifstofu samtakanna innan mánaðar frá lokum ferðar og reynir skrifstofan að leita sátta milli aðila. Náist þær ekki getur kærandi óskað úrskurðar nefndar- innar gegn því að greiða 500 króna kvörtunargjald. Að öllu jöfnu skal nefndin úrskurða í málinu innan 30 daga frá því að það berst henni í hendur. Ef aðilar una ekki úr- skurði nefndarinnar, geta félags- menn Neytendasamtakanna í öll- um tilfellum skotið málinu til dómstóla. Jafnframt geta ferða- skrifstofur tilkynnt nefndinni og viðkomandi aðila að bætur verði ekki greiddar nema að undan- gengnum dómi, ef úrskurðurinn hefur í för með sér verulega fjár- hagsleg útgjöld eða fordæmisgildi. (Úr fréttatilkynningu.) sem út hafa komið á íslenskri tungu, þær séu eign aðeins tveggja klerka, séra Sigurðar Pálssonar vígslubiskups og séra Eiriks J. Eiríkssonar fyrrverandi prófasts. Á sýningunni verður ennfremur til sýnis Guðbrandsbiblía með eig- ináritun hans. Steingrímur Jónsson, bókavörð- ur á Selfossi, sér um framkvæmd sýningarinnar, en hann átti frum- kvæðið að henni. Á hátíðinni heldur séra Jónas Gíslason dósent ræðu, sem fjallar sérstaklega um Odd Gottskálks- son og þýðingu hans á Nýja testa- mentinu. Kvörtunarnefnd ferða- skrifstofa og Neytenda- samtakanna tekin til starfa Skálholtshátíð í Skálholtskirkju OG EFNISMEIRA BLAÐ! FRÉTTASKÝRING UM STÖÐU SJÁVARÚTVEGS VERÐUM AÐ DRAGA ÚR KOSTNAÐI VIÐ ÖFLUN HRÁEFNIS Rætt viö Brynjólf Bjarnason, forstjóra, um breytingar á rekstri BÚR. BURGES VELUR SÉR BÆKUR 40 ÁR SÍÐAN HITLER VAR SÝNT BANATILRÆÐI „EYDDI OF LÖNGUM TÍMA í LEIT AÐ SANNLEIKANUM“ — Um Lillian Hellman sem nú er nýlátin og var einn þekktasti leikritahöfundur Bandaríkjanna. ÓPERUHÚS EVRÓPU UPP GÆTI KOMIÐ FLÓKIN STAÐA — Um kosningarnar í (srael sem eru á mánudag. VIÐEY GO — í þættinum SPIL & TÖFL er fjallað um eitt elsta og vandaöasta spil jarðar. VERÖLD FAÐIR OG FJÓRIR SYNIR FÉLLU í SÖMU STYRJÖLD BJÓ Á FLOTASTÖÐ BANDA- RÍKJAMANNA Á KÚBU RÖSTIN ER SANNLEIKURINN SAGNA BESTUR? ÚTIGRILL — Um það er fjallað í þættinum Matur og matgerð. GÖNGUSTAFIR UPPGJÖR QUISLINGS INDIANA JONES OG MUSTERI REFSIDÓMSINS ÚR HEIMI KVIKMYNDANNA Sunnudagurinn byrjar á síðum Moggans

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.