Morgunblaðið - 21.07.1984, Side 46

Morgunblaðið - 21.07.1984, Side 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 1984 Spjótið sveif fyrsta sinni yfir 100 metra múrinn! Uwe Hohn, 22 ára Austur-Þjóðverji, kastaði 104,80 metra á móti í Berlín í gær UWE HOHN frá Austur-Þýskalandi warft í gær fyrsti maöur sögunnar til að rjúfa 100 metra múrinn í spjótkasti, á frjálsíþróttamóti í Austur-Berlín. Hann kastaöi spjótinu hvorki meira né minna en 104,80 metra. Litlu munaði aö spjótiö svifi yfir litla giröingu sem afmarkar íþróttasvæöiö. Mót þetta kölluöu Austur- Þjóöverjarnir „Ólympíudag". Þar voru saman komnir flestir bestu frjálsíþróttamenn Austantjaldsþjóöanna sem ekki taka þátt í Ólympíuleikunum, og lýstu mótshaldarar því yfir að þeir heföu hvatt keppendur til aö reyna aö slá heimsmet á mótinu til aö varpa skugga á Ólympíuleikana. A mótinu í Berlín í gær var einnig sett heimsmet í hástökki kvenna, Ludmila Andonova frá Búlgaríu stökk 2,07 metra. Uwe Hohn, sem er 22 ára og frá Potsdam, náöi metkasti sínu í ann- arri tilraun — hann bætti gamla heimsmetiö sem Bandaríkjamaö- urinn Tom Petranoff átti um rúma fimm metra. Met Petranoff var 99,72 metrar. Þaö setti hann 1983. Besti árangur Hohn þar til í gær var 99,52 metrar. Austur-þýskir fréttamenn gátu þess í gær aö spjótiö sem Hohn notaöi í met- kastinu í gær væri bandarískt. Heimsmeistarinn í greininni, Detlez Michel, Austur-Þýskalandi, heföi eignast þaö í Bandaríkjunum í fyrra. Andonova, 24 ára gömul, fædd- ist í Sovétríkjunum en fluttist ung til Búlgaríu. Hún stökk yfir 2,07 í fyrstu tilraun. Sóvéska stúlkan Tamara Bykova átti gamla heims- metiö: 2,05 metra. Setti þaö 23. júní síöastliöinn á sovéska meist- aramótinu. í gær var reyndar fyrst gefin út yfirlýsing um aö Andonova heföi stokkiö 2,06 metra, en síöar var tölunni breytt í 2,07. Heldur kalt var í veöri í Austur- Berlín í gær er metin voru sett á Friedrich Ludwig Jahn-leikvangin- um. Mönnum þótti reyndar of kalt — þar til metin voru skyndilega sett meö aöeins tíu mínútna milli- bili. 21.000 áhorfendur fögnuöu ákaflega er tilkynnt var um heims- metin. Uwe Hohn sagöi viö fréttamenn eftir keppnina aö hann heföi veriö viss um aö rjúfa 100 metra múrinn á þessu ári. „Þegar ég sá svo á eftir spjótinu, hve vel þaö sveif, fann ég þaö á mér aö nú færi þaö yfir 100 metrana." Litlu munaöi að hann bætti heimsmet Petranoff í vor er hann kastaöi 99,52 á móti í Potsdam 25. maí. Hohn er 1,98 metrar á hæö og vegur 116 kíló. Hann sagöi viö fréttamenn í gær aö þetta met sitt nálgaöist ekki af- rek Bob Beamons, er hann stökk 8,90 metra í langstökki á Ólympíu- leikunum 1968. „Þetta er ekkert einstakt eins og met Beamons — ég veit aö ég get kastaö enn lengra. Ekki kannski strax í næstu keppni en í framtíöinni mun mér takast það.“ Þess má geta hér aö islandsmet Einars Vilhjálmssonar er 92,40 metrar. Andonova, Ijóshærö, hávaxin, grönn kona, var hrærö yfir óvænt- um árangri sínum. „Þaö var erfitt aö keppa ekki viö neitt nema rána,“ sagöi hún, og átti viö hve litla keppni hinir stökkvararnir veittu henni. Bykova stökk 1,98 Andonovu mistókst þrivegis aö komast yfir 2,10 metra eftir að hafa sett heimsmetiö. Besti árang- ur Andonovu fram aö mótinu í gær var 1,99 metrar þannig aö hún bætti sig um hvorki meira né minna en átta sentimetra. Þess var getiö á fréttaskeytum aö hún ætti ungabarn — sem yröi ekki eins árs fyrr en í október! Sovétmanninum Sergei Bubka, heimsmethafanum í stangarstökki, gekk illa í gær og blístruöu áhorf- endur á hann. Honum mistókst aö komast yfir 5,50 metra en heims- met hans er 5,90 m. Landi hans Sergei Volkov sigraöi í stangar- stökkinu í gær. Stökk 5,70 metra. Heike Daute, Austur-Þýska- landi, náöi öörum bestum heims- árangri á þessu ári í langstökki kvenna á mótinu — stökk 7,32 m. Heimsmet rúmensku stúlkunnar Anisoara Cusmir er ellefu senti- metrum lengra: 7,43 m. Rúmenía er eina Austantjaldslandiö sem sendir keppendur á Ólympíuleik- ana í Los Angeles og Búlgarir tóku ekki þátt í mótinu í Berlín i gær. Marlier Göhr frá Austur-Þýska- landi sigraöi í 100 m hiaupi kvenna á 10,91 sek. Sjötta hlaup hennar á árinu undir 11 sekúndum. Yuri Tamm, Sovétríkjunum, sigraöi í sleggjukasti á mótinu í gær, kastaöi 82,02 metra. Finninn Juha Tiainen varö annar, kastaöi 80,42. í langstökki kvenna sigraöi Heike Daute frá Austur-Þýska- landi, stökk 7,32 metra, Helga Radtke, landi hennar, varö önnur, meö 7,07 metra. • Mætt til leiks á vörubílspalll I fylgd lögreglu og mótorhjóla- kappa. Búningar Hildibranda í fjóröu deildinni eru allsérstæðir og í óhefðbundnum litum, svaöalegar blússur og liölega hnésíöar brækur. A fyrsta leik þeirra mættu þeir á völlinn í fylgd lög- reglu og mótorhjólakappa og Lúörasveit Vestmannaeyja lék, þá hafa þeir boöiö vallargestum upp á kaffi og kleinur, krökkum upp á poppkorn og sleikju- brjóstsykur, hljómsveitar- skemmtun, eitt sinn buöu þeir elliheimilinu í Eyjum sem heiö- ursgestum á völlinn og þannig mætti lengi telja, en leikir þeirra eru fjölsóttir, enda ýmissa veðra von og leikurinn gerður til þess aö skemmta sjálfum sér og öör- um. Aöaláhyggjuefni þeirra um þessar mundir er velgengni þeirra í fjóröu deildinni, því þaö gæti oröiö dýrt spaug aö spila upp í þriöju deild, en Hildibrand- ur er nú efsta lið í fjóröu deild í öörum riðlinum. Meöfylgjandi myndir tók Sigurgeir í Eyjum af þjóölífi Hildibranda. • Gústi, píanósnillingur Hildibranda, leikur stundum undir leiki þeirra á flygil fyrirtœkisins. þeir voru tilneyddir aö skipta um nafn og úr varö Hildibrandur „corporated" og markmiö fé- lagsins varö aö berjast fyrir frelsi suöurríkja Bandaríkjanna. Prakkaraskapur hefur veriö í hávegum haföur innan hópsins og utan undir kjöroröinu maöur er manns gaman og ekki veröur kleina fyrr en úr pottinum flýtur. Samkomur Hildibranda hafa ver- iö fjölsóttar og til dæmls mættu 600 gestir í tvítugsafmæli Páls Schevings juniors sem Hildi- brandar stóöu fyrir í Samkomu- húsinu í Eyjum. Þetta eru úr- ræöagóöir piltar og á síöustu Þjóöhátiö reistu þeir eigiö veit- ingatjald ( Herjólfsdal, en þar sem þeim bar ekki saman um hvort tjaldiö ætti aö rísa viö Þórsgötu eöa Týsgötu, þá bjuggu þeir tjald í tvöfaldri stærö og lótu þaö standa viö báöar göturnar, opiö í báöa enda og í miöju tjald- inu létu þeir standa forláta flygil, sem þeir keyptu í tilefni tjaldris- unnar. • Hjalli á Vegamótum, síöar Hól, stjórnar Lúðra- sveit Vestmannaeyja á einum leik Hildibranda. • Allt aö tvö þúsund gestir hafa sótt leiki Hildi- branda, en hér er sýnishorn af mannskapnum, fólk á ölfum aldri. • Hildibrandar í brókunum góöu, en þeir hafa einnig borið viö aö leika brókarlausir eöa svo gott sem. Þá vitnuöu þeir til bókar Steinbeck, The East of Eden, og kölluöu sig „The Center of Eden“. Myndin er af liöi Hildibranda. Efri röö frá vinstri: Bergur Kristins- son, Sigbjörn Óskarsson, Sigurjón Aöalsteinsson, Viöar Hjálmars- son, Böövar Bergþórsson, Siguröur Sveinsson þjálfari, Siguröur Friöriksson, Viktor Ingvarsson, EKas Bjarnhéöinsson, Vilhjálmur Garöarsson, fjölmiölafulltrúi liösins. Neöri röö: Einar Ottó Högna- son, fyrirliói, Benedikt Guöbjartsson, Herbert Þorleifsson, Ragnar Sigurjónsson, Páll Scheving, Georg Arnarsson, Grétar Sævalds- son. Fjóröudeildarliöiö Hildibrand- ur frá Vestmannaeyjum hefur sett sérstæöan svip á leiki deildarinnar í sumar meö alls kyns uppátækjum sem flest hafa miöast viö saklausa skemmtun og prakkaraskap. Hildibrandur var á sínum tima félagsskapur ungra sveina úr Eyjum sem kölluöu sig Úlfana, en aö eigin sögn voru þeir búnir aö fá svo slæmt orö á sig að Hildibrand- ar úr Eyjum innn • Stundum virka brækurnar eins og blússandi segl eins og sjá má.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.