Morgunblaðið - 05.09.1984, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 1984
7
Sinfóníuhljómsveitin
í tónleikaferðalag um
Vesturland og Vestfirði
Á MORGUN fimmtudag heldur Sin-
fóníuhljómsveit íslands af stað í
tónleikaferðalag um Vesturland og
Vestfirði.
Hljómsveitin leikur á eftirtöldum
stöðum:
Stykkishólmi, fimmtudag 6. sept.,
kl. 21.00. Búðardal, föstudaginn 7.
sept., kl. 21.00. Þingeyri, laugar-
daginn 8. sept., kl. 21.00. Bolungar-
vik, sunnudaginn 9. sept., kl. 15.30.
ísafirði, sunnudaginn 9. sept., kl.
21.00. Suðureyri, mánudaginn 10.
sept., kl. 21.00. Patreksfirði,
þriðjudaginn 11. sept., kl. 21.00.
Á efnisskránni er m.a. Sinfónía
í g-moll eftir Mozart, atriði úr
óperum eftir Verdi og Counod, ísl.
sönglög o.fl.
Einleikari í þessari ferð er Rut
Ingólfsdóttir, fiðluleikari og ein-
söngvari Kristinn Sigmundsson.
Stjórnandi er Klauspeter Seibel,
en hann kemur gagngert frá
Þýskalandi til þess að fara í þessa
ferð. Hann er aðalstjórnandi fíl-
harmóníuhljómsveitarinnar í
Niirnberg og fyrsti hljómsveitar-
stjóri óperunnar í Hamborg. Seib-
el hefur ferðast víða og stjórnað
mikið bæði austan hafs og vestan
og er nú nýkominn frá Japan, þar
sem hann stjórnaði gestaleik óper-
unnar í Hamborg á ýmsum óper-
um.
Háskólinn tengist einkafyrir-
tækjum á sviði rannsókna
„ÉG HEF þegar kynnt ríkisstjórn-
inni frumvarpið og vonast til að það
verði samþykkt þar,“ sagði Ragn-
hildur Helgadóttir, menntamála-
ráðherra.er blm. Mbl. spurði hana
hvað liði frumvarpi um að Háskóli
íslands gæti tengst einkafyrirtækj-
um á sviði rannsókna. Ennfremur
sagði Kagnhildur Helgadóttir að hún
ætlaði að flytja frumvarpið á Alþingi
strax og það kemur saman.
„Þetta frumvarp er mjög mikil-
vægur þáttur í að tengja atvinnu-
líf, fræðslu og rannsóknir. Það er
grundvallarskilyrði fyrir nýrri
uppbyggingu í atvinnulífinu. Það
er mín skoðun að taka verði tillit
til þessa í öllu menntakerfinu og
efla það með þetta sjónarmið í
huga, bæði í verk- og listgreinum,
almennri fræðslu og í sérþekkingu
á efri skólastigum. Endurmenntun
skiptir líka miklu máli i þessu
sambandi," sagði menntamála-
ráðherra.
Leiörétting
í frásögn Mbl. af árekstri á Vest-
urlandsvegi þegar bræður létust
var sagt, að vinstra framhorn
Saab-bifreiðar hefði rekist utan í
Willysjeppa með þeim afleiðing-
um að ökumaður hans missti
stjórn á bifreið sinni, sem fór yfir
á öfugan vegarhelming og skall á
bifreið bræðranna. Hið rétta er,
að vinstra afturhorn Saab-bifreið-
arinnar og hægra framhorn jepp-
ans rákust saman. Mbl. biðst vel-
virðingar á þessum mistökum.
Dauft fyrir vestan
Léleg veiði hefur verið í Laug-
ardalsá við Djúp og laxarnir sem
á land eru komnir eru eitthvað
fáir yfir hundraðið, sem sagt
miklu lakari veiði en á þessi get-
ur best, og lakari veiði en í fyrra
þó þá hafi verið afspyrnutreg
veiði. Það var komið dálítið af
fiski í ána snema í júní, en svo
virðist sem lítið hafi gengið eftir
það, því botninn datt mjög fljótt
úr veiðinni og hefur hvorki verið
fugl eða fiskur allan seinni hluta
sumarsins. Lítið sést af laxi í
ánni, helst í Blámýrarfljóti og
Affallinu.
Stórgóð veiði í Hreppunum
Góð veiði hefur verið í Stóru-
Laxá í Hreppum eins og áður
hefur komið fram. Erfitt er að fá
heildartölu úr ánni, því veiði-
bækurnar eru þrjár talsins. Þó
er ljóst að komnir eru á sjötta
hundrað laxar á land og spurn-
ing hvoru megin við metið áin sé
nú, en það hljóðar upp á 578
laxa. Virðist næsta líklegt að
metveiði verði ef svo er ekki þeg-
ar og gleðiiegt þegar ein og ein á
heldur sínu í laxaleysinu. Nokk-
uð hefur veiðst upp á síðkastið
og talsvert er sagt af laxi í ánni.
Þá batna nú skilyrði óðum, því
lengst af í sumar hefur verið
ákaflega mikið vatn í ánni. Best
hefur aflast á svæði 2 en ekkert
svæði hefur orðið algerlega út-
undan, óvanir menn sem voru á
„Fjallinu" fyrir skömmu fengu
til dæmis 5 laxa á 2 dögum sem
þykir gott á jafn erfiðu veiði-
svæði og þar er. Mikið af aflan-
um í Stóru-Laxá er stórlax,
14—20 punda og nokkrir yfir 20
pund hafa verið dregnir á þurrt
af kátum veiðimönnum.
Ein lítil ...
Það þarf ekki að fara í lax til
að upplifa ævintýri í veiðiskap,
það eru full vötn og lækir af urr-
iðum og bleikjum um allt land.
Einn veiðimaður var á Arnar-
vatnsheiði í sumar og var á rölti
milli vatna. Gekk hann um hríð
með lækjarsprænu og er hann
gægðist ofan í hana á stað einum
þar sem hún allt að því hvarf
undir bakkann var ekki laust við
að hann sæi þar eitthvað kvikt.
Vildi hann kanna hvort hann
gæti ekki nælt sér í smábónus í
læknum og renndi maðki undir
bakkann. Hann var gripinn með
það sama og hófst harðvítug við-
ureign, því þetta var enginn
putti. Eftir harðan leik landaði
veiðimaðurinn gullfallegum 4
punda urriða, akfeitum og björt-
um. Kappinn hélt að hann hlyti
að hafa styggt þá fiska sem
kynnu að liggja þarna við bakk-
ann, en renndi samt aftur. Þar
sem hann stóð sá hann annan
svipaðan pytt rétt fyrir ofan.
Hann renndi í hann og innan
stundar lá annar glæsilegur urr-
iði á bakkanum. 7 punda fiskur.
Þessi veiðimaður var heila
helgi á Heiðinni og veiddi lítið,
aðeins örfáar smábleikjur. Þessi
augnablik við lækinn litla gerðu
veiðiferðina því þeim mun
ógleymanlegri!
M í bæinn og byrjar á
® bæjarins besta stað
K Broadway um næstu
helgi.föstudag
; og laugardag.
Sumargleöin meö öllum toppskemmti-
kröfftum landsins sló svo sannarlega í
gegn úti á landsbyggöinni í sumar og nú
fá höfuöborgarbúar aö njóta gleöinnar í
öllu sínu veldi. já
Sumir segja aö Sumargleðin í ár sé sú besta frá upphafi og
aðrir aö hún sé sú langbesta.
Komiö, sjáiö, hlustiö og dansiö meö Sumargleöinni, í
Broadway.
Matseðill:
Konlakslöguö humarsúpa.
Fytltur grisahryggur Bordelalse (ramreiddur með
rjómasoönu blómkáll, gláöum gulrótum, sykur-
brúnuöum jaröeplum og hrásalatl.
Is meö perum, heltrl klrsuberjasósu og rjóma.