Morgunblaðið - 27.10.1984, Page 20

Morgunblaðið - 27.10.1984, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 1984 Áframhald viðræðna í Moskvu og Washington - Kirkpatrick spáir bættum samskiptum viö Sovétríkin Moakvu, Sealtle o* Waahington, 26. oklóber. AP. ANDREI A. Gromyko mun innan skamms eiga fund í Moskvu með Arthur Hartman, sendiherra Banda- ríkjanna þar, og í Washington mun George Shultz utanríkisráðherra eiga viðræður við sovéska serdiherrann, Anatoly Dobrynin. Báðir fundirnir munu eiga að fara fram fyrir forseta- kosningarnar í Bandaríkjunum 6. nóvember, að því er vestrænn stjórn- arerindreki tilkynnti í dag. Á fundi með vestrænum frétta- Rand-stofnunin: Hryðjuverkum fjölgar enn SanU Monica, K.liforníu, 26. október. AP. H RYÐJUVERKAMEN N eni enn að færa sig upp á skaftið um allan heim Franska leik- konan Pascale Ogier látin París, 26. oklóber. AP. FRANSKA leikkonan Pascale Ogier, sem nýlega hlaut verðlaun fyrir bestan leik á kvikmyndahá- tíðinni í Feneyjum, lést í gær- kvöldi á heimili vinar síns, að því er umboðsmaður hennar, Suzy Vatine, sagði í dag. Hún var 24 ára að aldri. Fyrirskipuð hefur verið lík- krufning) „samkvæmt venju“ að sögn embættismanna, til þess að ganga úr skugga um hver dánarorsökin var. Pascale Ogier var grönn vexti með stór blá augu og hrokkið svart hár. Hún var dóttir kvikmyndaleikarans Bulle Ogier. Pascale Ogier hóf kvik- myndaleik árið 1978 og vann fyrrnefnd verðlaun fyrir leik sinn í mynd Erics Rohmers, „Les Nuits De la Pleine Lune“. Hún lék einnig í leikhúsi i Nanterre. og ena Bandaríkjamenn og banda- rískar stofnanir enn sem fyrr helsta skotmarkið að því er segir í skýrslu frá Rand-stofnuninni. í skýrslunni segir, að hryðju- verkamenn hafi aldrei látið jafn mikið að sér kveða og á síðasta ári þegar 720 manns létust af þeirra völdum og 963 slösuðust. í Vest- ur-Evrópu er mest um hryðjuverk í Frakklandi en í Bandaríkjunum sjálfum hefur þeim fækkað þótt tilræðum við Bandaríkjamenn hafi fjölgað erlendis. Þeir, sem skýrsluna unnu, segja mestu hættuna nú stafa af hryðjuverka- mönnum í Miðausturlöndum, sem njóta stuðnings ríkisstjórna eins og t.d. þeirrar írönsku, sýrlensku og líbýsku. Ástæðurnar fyrir auknum hryðjuverkum eru sagðar þær, að hryðjuverkamönnunum hefur ekki tekist að ná pólitiskum markmið- um sínum án þess þó, að ríkis- stjórnum hafi tekist að kveða þá í kútinn og undir slíkum kringum- stæðum er oft brugðist við með því að grípa til enn skelfilegri hryðjuverka. Það gerist líka al- gengara, að hryðjuverkamennirn- ir hafi einhver trúarbrögð að yfir- skini auk þess sem ýmsar ríkis- stjórnir hafa séð sér hag í því að styðja suma hryðjuverkahópana. mönnum sagði stjórnarerindrek- inn, að fundirnir hefðu verið ákveðnir til þess að ganga úr skugga um, hvort unnt væri að þoka áleiðis þeim málum, sem rædd voru í siðasta mánuði í Wash- ington og New York á fundum Gro- mykos og bandarískra ráðamanna. í gær sagði Jeane Kirkpatrick, sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum, að hún byggist við að í hönd færi tími bættra samskipta við Sovétríkin, ekki síst vegna meiri stöðugleika í Kreml. „Sovéskir ráðamenn eru að fara inn á alveg nýja braut um þessar mundir," sagði Kirkpatrick, „með því að vilja efna til umræðna á al- þjóðavettvangi og eiga viðræður við ýmsar þjóðir sem þeir hafa ekk- ert viljað tala við í langan tíma. Dæmi um þetta er Kína, sem þeir hafa ekki rætt við síðan 1969.“ Kanna heiðursvörð Francois Mitterrand Frakklandsforseti hefur verið í sögulegri heim- sókn til Bretlands síðustu dagana. Einn úr hópi öryggisvarða forsetans setti allt á annan endann í Lundúnum er hann vildi kanna ágæti öryggisgæslunnar þeirra Breta, við litla hrifningu heimamanna, svo sem lesa hefur mátt í fréttum. En bresk stjórnvöld hafa lýst yfir að atvikið megi alls ekki verða til þess að eyðileggja ferð forsetans. Á meðfylgj- andi mynd eru Mitterrand og Filipus prins að kanna heiðursvörð. Almenningi boðin bréf í Brezka símafélaginu London, 26. október. AP. AUGLÝST voru til sölu 50,2% hluta- bréfa í Brezka símafélaginu, en ekki fylgdi þó hvert kaupverðið skuli vera. Þó er vitað að stjórn Margaret Thatcher forsætisráðherra vonast til að fá fyrir þau um 3,5 milljarða sterl- ingspunda. Brezka símafélagið (BT) er nán- ast einrátt á sviði símasamgangna í Bretlandi. Lágmarksverð hluta- bréfanna verður auglýst um miðj- an næsta mánuð. Vonast er til að hinn almenni Breti fjárfesti í fyrirtækinu með hlutabréfa- kaupum, en þau verða einnig föl í Bandaríkjunum, Kanada og Jap- an. Verða bréfin föl á verðbréfa- markaði í London 3. desember nk. Aðaláhættan, sem fylgir kaup- um á hlutabréfi í símafélaginu, er stefna Verkamannaflokksins. Flokkurinn þjóðnýtti fjölda fyrir- tækja á árunum eftir stríð og hef- ur einnig lagst hart gegn áformum stjórnar Thatcher um að selja ríkisfyrirtæki. Vonast er hins vegar til að bresk alþýða kaupi hlutabréfin og að fleiri einstaklingar eigi hlut í BT en nokkru öðru brezku fyrir- tæki, þannig að þjóðnýting yrði mjög örðug fyrir Verkamanna- flokkinn. Aðeins um 1,2 milljónir Breta af 60 eiga hlutabréf í öðrum fyrirtækjum en þeim sem þeir starfa hjá. Breska símafélagið er auglýst sem ábatasamt fyrirtæki. Það skilaði 990 milljóna punda hagn- aði á síðasta reikningsári, af 6,88 milljarða punda veltu. Spáð er að það skili 1,35 milljarða punda gróða á yfirstandandi reiknings- ári, m.a. vegna endurnýjunar, sem haft hefur í för með sér fækkun starfsmanna, sem eru um 240 þús- und talsins. Ríkið hyggst eiga 49,8% hlutabréfa fyrst um sinn. Væntanlegir hlutabréfakaup- endur sjá fram á verulegan afslátt á símakostnaði, sem er liður í til- raunum til að selja bréfin. Brezka ríkið hefur nú þegar selt hlutabréf að andvirði um 3,5 milljarða punda í nokkrum fyrirtækjum, þ. á m. British Petroleum, Jaguar, Sealink-ferjufélaginu og British Aerospace. Fleiri fyrirtæki verða föl á næstunni, m.a. British Air- ways. Kam mfám « Fellagörðum - Breiðholti III (í dansskóla HEIÐARS) Konur á öllum aldri! öðlist sjálfstraust í lífi og starfi Almenn námskeið Karon skólinn kennir ykkur: • rétta líkamsstööu • rétt göngulag • fallegan fótaburö. Karon-skólinn leiöbeinir ykkur um: • andlits- og handsnyrtingu • hárgreiöslu • fataval • mataræöi • hina ýmsu borösiöi og alla al- menna framkomu o.fl. Öll kennsla í höndum færustu sér- fræöinga. Allir tímar óþvingaöir og frjólslegir. Ekkert kynslóöabil fyrirfinnst í Karon-skólanum. Model námskeiö Karon-skólinn kennir ykkur: • rétta líkamsstööu • rétt göngulag • fallegan fótaburð • sviösframkomu • unniö meö Ijósmyndara • látbragö og annaö sem tilheyrir sýninga- störfum. Innritun og upplýsingar í síma 38126. Kennsla hefst þriöjudaginn 6. nóvember. Hanna Frímannsdóttir. Wellington Ljósmynd af Wellington á háu verði London, 26. október. AP. EINA Ijósmyndin, sem vitað er um af hertoganum af Wellington, sem bar sigurorð af Napoleon við Wat- erloo, var í dag seld hjá Sotheby’s- uppboðsfyrirtækinu fyrir nærri 13.000 dollara, um 440.000 ísl. kr. Var kaupandinn Bandaríkjamaður. Fyrr hefur ekki fengist jafn hátt verð fyrir Ijósmynd frá 19. öld og höfðu uppboðshaldararnir ekki búist við að fá meira fyrir hana en 2,500—3,500 dollara. Margar myndir voru málaðar af hertoganum en ekki er vitað til, að hann hafi farið oftar en einu sinni til ljósmyndara, 1. maí 1844, daginn sem hann átti 75 ára afmæli. Aðeins fáum árum áður hafði Frakkinn Louis Dagu- erre fullkomnað Ijósmyndatækn- ina, sem þá var við hann kennd og kölluð Daguerreotype.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.