Morgunblaðið - 11.11.1984, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 11.11.1984, Qupperneq 8
80 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. NÓVEMBER 1984 „Finnst ég standa nær lúthersku kirkjunni hér en í Noregi“ —segir kaþólski presturinn Kjeld Ar ild Pollestad, af reglu Dóminikana „Ég er frá SUvangri, sem sagt Vestlendingur, og sem slíkum finnst mér ég eiginlega ekki vera útlendingur á íslandi, þó að fslendingar séu vænUnlega á annarri skoðun,“ er það fyrsU sem norski presturinn Kjeld Arild PollesUd segir, þegar blm. hittir hann að máli í kaþólska safnað- arheimilinu við Hávallagötu í Reykjavík. Séra Pollestad er kaþólskur, af reglu Dóminíkana, og mælir á íslensku, þótt hann hafi aðeins dvalið hér á landi i fárra vikna fríi og þetta sé fyrsta heimsókn hans hingað. „Það var skáldsaga Gunnars Gunnarssonar um Jón Arason sem varð til þess að kveikja áhuga minn á íslandi f upphafi," segir hann, „en hana las ég þeg- ar ég var skólapiltur. Þá hafði ég ekki snúist til kaþólskrar trúar, en við lestur þessarar bókar varð mér í fyrsta sinn Ijóst að eitt- hvað jákvætt hefði verið við kaþ- ólska tímann á Norðurlöndum og ég fékk mikinn áhuga á því að komast til íslands. Það áttu þó eftir að líða tuttugu ár þangað til mér varð að þeirri ósk. En í millitíðinni las ég íslendingasög- urnar á frummálinu og það dró ekki úr lönguninni. Þegar ég kom til Póllands í fyrsta sinn, fyrir tiu árum, án þess að kunna stakt orð i málinu, þótti mér það svo óþægileg reynsla að ég hét sjálfum mér því að fara aldrei aftur til nokk- urs lands án þess að læra a.m.k. undirstöðuatriðin í tungu við- komandi þjóðar. Þess vegna lærði ég það sem ég gat i nú- tíma-íslensku af Linguaphone kerfinu áður en ég kom hingað," segir séra Pollestad og er ekki annað að heyra en að það hafi tekist bærilega. „Ég held líka að maður upplifi landið allt öðru- vísi þegar maður getur talað þetta stórkostlega mál,“ bætir hann við. „Þegar komið er til lands sem maður hefur lengi látið sig dreyma um og búið sér til fmynd af, þá sér maður það sem maður vill sjá þegar á staðinn er komið. Þess vegna hef ég fundið það fs- land sem ég vildi finna,“ segir hann, „... og lokað augunum fyrir öðru, s.s. „grillmenning- unni, sem greinilega hefur skotið rótum hér lfkt og annars staðar í heiminum. En það er krefjandi að heim- sækja ísland, vilji fólk fá eitt- hvað út úr því. Það verður að bera sig eftir björginni. Hér verður ekki gengið að mörgum sjáanlegum minnismerkjum um forna frægð, eins og til dæmis í Grikklandi, þar sem menningin lifir jafnt í marmara sem orðum. Hér lifir hún fyrst og fremst í orðum. En þegar maður horfir á landslagið og minnist um leið orðanna, þá fyrst sér maður landið,“ segir Pollestad með áherslu. „í þessu ferðalagi einsetti ég mér að þræða helstu sögustaði Jóns Arasonar og var meðal annars svo heppinn að lenda á Hólahátíð, sem varð einn af há- punktum ferðarinnar. Þá gleymi ég heldur ekki móttökunum sem ég fékk hjá bóndanum á Munka- þverá, eða nunnunum f Stykk- ishólmi. Ég veit ekki um önnur klaustur á Norðurlöndum þar sem nunnurnar taka jafn ríkan þátt í störfum samfélagsins og heimsóknin í klaustrið í Stykk- ishólmi var mér merkileg reynsla. Sumar þessara ferða fór ég fótgangandi að hluta, aðrar á puttanum og þótti skemmtilegur ferðamáti. Að vísu þurfti ég að hafa nokkuð fyrir þvi að komast heim að Hólum, en þó væntan- lega minna en margur annar hér áður fyrr,“ segir klerkur og bros- ir í kampinn. „En mótmælendur hér á ís- landi eru ólíkir mótmælendum á hinum Norðurlöndunum. Hér Séra Pollestad, „kaþólsk rödd í hinni almennu umræðu“. virðist engin hreintrúarstefna (pietismi) vera ríkjandi meðal mótmælenda og sem kaþólikka finnst mér ég standa nær lúth- ersku kirkjunni hér en í Noregi. Ég held að það hljóti að vera gott að vera kaþólikki á íslandi.“ í Osló býr Pollestad í klaustri Dominikana, en reglan var stofnuð á tólftu öld og meðlimir hennar hafa löngum haft sterk tengsl við hin ýmsu fræði. „Störf mín í Noregi tengjast kynningu á kaþólsku kirkjunni. Það má segja að ég sé sjálfstætt starfandi blaðamaður með það að meginmarkmiði að vera kaþ- ólsk rödd í hinni almennu um- ræðu,“ segir hann. „Ég hef starfað við Aftenpost- en, er með fastan dálk i Stavang- er Aftenblad og einnig í tímarit- inu Sankt Olaf. Auk þess kem ég oft fram í útvarpi og sjónvarpi. En hvað varðar skriftirnar þá er ég í þeirri öfundsverðu aðstöðu, að þurfa ekki að skrifa um annað en það sem mig langar til og hef sjálfur áhuga á að taka fyrir. Þessa dagana er fyrsta bókin mín að koma út i Noregi. Hún heitir „Lofot Torsk paa Nonne- bord“ og er ritsafn, af ýmsum toga spunnið eins og titillinn bendir til. Ekki eingöngu trúar- legum, þó að ég skoði hina ver- aldlegu samtíð frá ákveðnum sjónarhóli, sem í mínu tilviki er guðstrúin. En þegar hún er lögð til grundvallar gerist það oft, að það sem almennt er álitið sjálf- sagt og eðlilegt, verður fjar- stæðukennt og hlægilegt. Það er erfitt að nefna áþreif- anleg dæmi um þetta. En það sem ég reyni að miðla milli lín- anna — án þess að nefna trúna berum orðum — er að þegar maður trúir á guð losnar maður við að trúa á svo ótal margt ann- að. Þannig verður hægt að hlæja að ofstækinu sem er ríkjandi i svo mörgum stefnum og hreyf- ingum. Jafnframt á maður auð- veldara með að sjá það spaugi- lega í egin fari með trúna að bakhjarli. Þegar gengið er út frá trúnni á almættið verður manns eigin persóna nefnilega svo lítilfjörleg, að það jaðrar við að vera hlægilegt. í því held ég að kímnin í samspili guðdómsins og manneskjunnar liggi og þess vegna er húmor í því sem ég skrifa, eða það vona ég a.m.k. En stærsta gleði mín við það að skrifa sprettur af notkun málsins, að mínum dómi stærstu gjafarinnar sem guð hefur fært mönnunum, til þess að þeir mæt- tu opna nýjar víddir hvor fyrir öðrum. Og þó að ríkisnorskan sé fátæklegt mál í samanburði við íslenskuna, þá býður hún samt upp á mikla möguleika fyrir þá sem eru til þess búnir að takast á við hana. Én ég öfunda íslend- inga af málinu og ég held að íbúum hinna Norðurlandanna sé ógerlegt að skilja hugsunarhátt íslendinga nema þeir skilji jafn- framt eðli tungunnar sem þeir tala. — Og svo eigið þið fimm orð yfir hvert eitt sem við eigum í norskunni. Ég hef haft hámessuna hér i Kristskirkju með höndum tvo sunnudaga í röð og predikað á íslensku i bæði skiptin," segir séra Pollestad að lokum. „Ég veit ekki hversu vel mér fórst það úr hendi, en það leit þó út fyrir að hinir trúuðu skildu það sem ég sagði.“ H.HA Sveinbjörn Beinteinsson. „Heiðin" - kvæöabók eftir Svein- björn Beinteinsson. HÖRPUÚTGÁFAN i Akranesi hef- ur sent fri sér kvæðabókina „Heið- in“ eftir Sveinbjörn Beinteinsson allsherjargoða i Draghilsi í Svína- dal. Á bókarkápu segir m.a.: „Höfundur þessarar ljóðabókar er Sveinbjörn Beinteinsson á Draghálsi í Svínadal. Hann er yngstur af átta systkinum frá Grafardal. Foreldrar hans voru hjónin Helga Pétursdóttir og Beinteinn Einarsson. Á heimili þeirra var ljóðagerð og kveðskap- ur dagleg iðja, sem Sveinbjörn meðtók með móðurmjólkinni. Hann er fæddur 4. júlí 1924, og er bókin gefin út í tilefni af 60 ára afmæli hans 4. júlí 1984. Sveinbjörn hefur átt heima á Draghálsi síðan 1934 og hefur stundað búskap frá 1944. Eftir hann hafa komið út fjögur ljóða- kver og að auki „Bragfræði og háttatal" 1953, kennslubók í rímna- og vísnakveðskap. Margt af kvæðum hans hefur birst í blöð- um og tímaritum. Hann hefur í rúman áratug verið allsherjargoði Ásatrúarfélagsins og er hann mörgum kunnur utan lands og innah vegna þeirra starfa. í þessari bók er kveðskapur allt frá 1940 til þessa árs. Sveinbjörn er víða kunnur sem kvæðamaður og hefur komið út hljómplata með kveðskap hans (Eddukvæði) og snælda með rímnalögum. Það mun ekki ofsagt að Sveinbjörn Bein- teinsson sé í hópi mestu rímsnill- inga íslendinga. Kvæðabókin Heiðin er glöggt vitni þess. Bók, sem ekki má vanta í bókasafn unnenda snjallra rímna- og ljóða- gerðar.“ Kvæðabókin „Heiðin“ er 93 bls. að stærð auk mynda. Prentverk Akraness hf. annaðist prentun og bókband. Goðdalakirkja í Skagafirði 80 ára GOÐDALAKIRKJA í Skaganrði er 80 ira i þessu iri en hún var reist irió 1904 eftir að kirkja sú sem fyrir var fauk af grunni í ofsaveðri. Að sögn séra Ólafs Þórs Hall- grímssonar, sóknarprests á Mæli- felli, var lengst af prestssetur í Goðdölum, með Ábæ í Áusturdal sem annexíu. Siðasti prestur sem sat í Goðdölum var séra Sveinn Guðmundsson en hann fékk lausn frá embætti 1904 og árið 1907 var prestakallið sameinað Mælifells- prestakalli. Sagði séra ólafur að Goðdalakirkja sú sem nú stæði væri hið fegursta guðshús og vel við haldið af söfnuðinum, en i Goðdalasókn væru nú 19 bæir. Siðastliðið sumar hefði verið skipt um járn á kirkjunni, þak einangr- að og lagfæringar gerðar á turni enda hefði sú framkvæmd verið orðin mjög aðkallandi. Afmælis Goðdalakirkju verður minnst með hátiðarmessu í kirkj- unni sunnudaginn 18. nóvember og hefst messan kl. 14.00 og að sögn séra Ólafs eru allir velunnar- ar kirkjunnar velkomnir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.