Morgunblaðið - 11.11.1984, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. NÓVEMBER 1984
83
„Meginnióurstaðan er sú að listamenn séu
35 sinnum líklegri til að þjást af skapgerð-
arbrestum en folk almennt“
Sjá: Sköpunargáfan
AFÆTUR
Glæpamenn fitna
á flugfraktinni
AKennedy-flugvelli í New York
eru það glæpamannafjölskyld-
urnar sem ráða ríkjum, a.m.k. hvað
varðar vöruflutninga um völlinn.
Kemur þetta fram hjá lögreglu-
mönnum sem hafa rannsakað þessi
mál, og segja þeir að fyrirtækin sem
annars sjá um vöruflutningana verði
að greiða milljónir dollara á ári
hverju til að geta haldið starfsem-
inni áfram.
í fimm ár hafa embættismenn
dómsmálaráðuneytisins og alrík-
islögreglunnar verið að afla sér
sannana fyrir að vöruhúsaeigend-
ur og flutningafyrirtæki væru
neydd til að borga glæpamönnum
háar fjárhæðir fyrir það eitt að
komast hjá óvæntum skyndiverk-
föllum. Edward McDonald, sem
hefur það á sinni könnu að fylgj-
ast með ítökum glæpamanna i
verkalýðshreyfingunni, segir, að
glæpamönnunum hafi tekist þetta
vegna tengsla sinna við forystu-
menn hinna alræmdu Teamsters,
Samtaka flutningaverkamanna,
en ekkert verkalýðsfélag í Banda-
ríkjunum hefur jafn lengi og oft
verið orðað við glæpamennsku.
Á síðasta ári var verðmæti
þeirrar vöru, sem flutt var um
Kennedy-flugvöll, 47 milljarðar
dollara og hvergi meira í Banda-
ríkjunum en embættismennirnir
segja þó, að þessi tala væri miklu
hærri ef eigendur flutningafyrir-
tækjanna væru ekki hræddir við
að færa út kvíarnar.
Að sögn lögreglunnar eru
glæpamannafulltrúarnir á flug-
vellinum flestir tengdir Luchese-
fjölskyldunni, sem er valdamesta
glæpahyskið í borginni, en hinar
fjórar glæpafjölskyldurnar fá þó
allar sína sneið af kökunni.
McDonald segir, að ef fyrirtækin
þrjóskist við að borga sé þeim hót-
að með verkföllum en það er þó
ekki nóg að borga einu sinni
ákveðna upphæð, heldur er ýmis
dagleg starfsemi fyrirtækjanna
verðlögð sérstaklega. Það kostar
t.d. svo og svo mikið að segja upp
starfsmanni og svo og svo mikið
að ráða mann, sem ekki er félagi í
viðkomandi verkalýðsfélagi.
Meðal verkalýðsfélaganna, sem
koma við sögu í þessari fjárkúgun,
er Teamsters-deildin á staðnum
en varaformaður hennar er maður
að nafni Harry Davidoff.
Þeir, sem hafa rannsakað þetta
mál, segja, að Davidoff þessi hafi
skotið upp kollinum við rannsókn
öldungadeildarinnar árið 1976 og
þá verið lýst sem „afbrotamanni í
New York, sem einksis svífst,
glæpamanni, sem komst til áhrifa
í verkalýðshreyfingunni til þess
eins að stela af henni“.
— TONY ALLEN-MILLS
TVIEGGJAÐ
Kynlífið
klikkaði
þegar
karl hætti
að reykja
Skoti nokkur, sem hætti að
reykja, varð fyrir því óláni
um leið, að kynferðislífið hrundi í
rúst, að þvf er segir í tímariti
bresku læknasamtakanna. Hann
fékk þó náttúruna aftur þegar
hann var settur í megrun.
Skotinn, sem er 58 ára gamall,
varð fyrir barðinu á sjúkdómi,
sem er kenndur við þann fræga
mann Pickwick og lýsir sér í því,
að menn fitna og þykir gott að fá
sér blund um bjartan dag. Allt
var þetta rakið til þess, að Skot-
inn hætti að reykja, og ekki að-
eins það, því að áður var hann
vanur að njóta konu sinnar
tvisvar í viku en gerði nú ekkert
í rúminu nema að hrjóta.
Það kom fram í tímaritinu, að
læknarnir, sem önnuðust Skot-
ann, hefðu sent hann í rannsókn
til að kanna hvort kynhvötunum
væri áfátt i honum. Þá kom I
ljós, að kynhvatarnir höfðu
minnkað mikið en líkamsþung-
inn hins vegar aukist um tugi
kílóa. Þá settu þeir hann I megr-
un og þegar hann var aftur kom-
inn í fyrra form kviknaði á ný í
ástarlífinu.
Læknarnir draga þá ályktun
af rannsókninni, að allt að 42%
manna með Pickwick-einkennin,
feitir, syfjulegir og andstuttir,
séu getulausir. Ekki fyrr en þeir
grennast og fá meira súrefni í
blóðið er hægt að telja þá til
blóðheitra karlmanna.
GLAPSTIGUR
Svona spillir
spilafíknin
æskunni
Leiktækjasaiir hafa sprottið upp
eins og gorkúlur f Bretlandi á
undanfornum árum. Síðustu þrjú ár
hefur fjöldi þeirra rúmlega þrefaldast f
Lundúnum, og ýmsir líta það óhýru
auga og benda á að háskalegar afleið-
ingar hafi þegar hlotizt af. Tækin sjálf,
sem einkum eru spilakassar og
skjáleikir (video-leikir), eru að sjálf-
sögðu skaðlaus, en hafa hinsvegar leitt
til fíknar meðal unglinga, sem veldur
þvf, að þeir hafa leiðzt út I afbrot og
jafnvel vændi.
Síðastliðið sumar var 17 ára gam-
all námsmaður frá Birmingham
dæmdur til tveggja ára gæzluvistar
á unglingaheimili fyrir að hafa
framið fjöldamörg innbrot í því
skyni að afla fjár til að geta svalað
spilafíkn sinni. Athuganir hafa sýnt
að jafnvel 11 ára börn venja mjög
komur sínar í leiktækjasali.
Nú vilja háttsettir aðilar hjá
Scotland Yard að sett verði ný lög-
gjöf um starfsemi leiktækjasala.
Yrði þar kveðið skýrt á um daglegan
opnunartíma og lágmarksaldur
gesta, en háar fjársektir látnar
koma fyrir, ef út af yrði brugðið. Að
mati lögreglunnar veldur það mikl-
um vandræðum hversu lengi fram
eftir spilasalirnir eru opnir. Það
veldur því m.a. að þangað safnast
ýmsir skuggabaldrar mannlifsins,
Ld. skækjur, fíkniefnasjúklingar og
allskyns glæpamenn.
Nýlega voru stofnuð í Lundúnum
samtök með það að markmiði að
berjast fyrir sérstakri löggjöf um
starfsemi leiktækjasalanna. Er sam-
tökunum það m.a. mikið kappsmál
að menn sem komizt hafa á sakaskrá
fái ekki leyfi til að starfrækja slíka
samkomustaði. Talsmenn samtak-
anna segjast njóta stuðnings fólks
um allar Bretlandseyjar.
Formaður samtakanna heitir Rob-
ert Davis og hann er ómyrkur í máli
um leiktækjasalina og þær hættur
sem þeim geti verið samfara. „Þessir
staðir hafa mikið aðdráttarafl fyrir
bðrn,“ segir hann, „en þeir geta
óbeinlínis stuðlað að þvi að þau verði
altekin af spilafíkn og vanræki nám-
ið, og jafnvel að þau leiðist út í af-
brot og glæpastarfsemi. Það er líka
mikil hætta á því að drengir og
stúlkur láti glepjast út I vændi.“
Það þarf leyfi frá viðkomandi bæj-
aryfirvöldum til að starfrækja leik-
tækjasali, en Davis fullyrðir að ekki
sé meiri vandkvæðum bundið að fá
slík leyfi en að verða sér úti um
stimpil á frímerki.
- SHYAM BHATIA
magnaöra: fatnaöur, á alla og af öllum
stæröum og geröum, aldri og tísku. Sér-
stök furðufataslá. Mikið af barnaúlpum,
sérstakir smábarnafatapakkar. Myndar-
legir stólar, hjónarúm, sjónvörp, hárþurrk-
ur, ritvélar, saumavélar, búöarrúlla ofl.ofl.
ofl.ofl. Búsáhöld, gömul og ný, krukkur og
kirnur, postulín og leir, tekatlar og krukk-
ur, silfurmunir ofl.
Sérstaklega mikiö af bútum, gardínum og
dúkum.
Sértilboð laugard.: tveir skinn-cape.
Sértilbod sunnud.: kínverskt silki ofl.
Sjáumstl
Stjórnin.
STORFLOAMARKAÐUR
FÉLA6S EINSTÆÐRA FORELDRA
verður í Skeljanesi 6, laugardag 10. nóv.
og 11. nóv. frá kl. 2 e.h. Athugiö aö leiö 5
stoppar viö húsiö. Úrval hefur aldrei verið
Viö erum byrjuö aö pósta
jólagjafirnar til ættingja og
vina erlendis.
Ullarvaran er alltaf lang
vinsælust:
VÆRÐARVOÐIR
JAKKAR
HYRNUR
SJÖL
HÚFUR
VETTLINGAR
Við sendum um allan heim.
Allar póstsendingar eru tryggöar.
ÚRVAL GÆÐI ÞJÓNUSTA
SSI.ÍSLENSKUR HEIMILISIÐNAÐUR
^SWSÍini n785.