Morgunblaðið - 11.11.1984, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. NÓVEMBER 1984
117
Ný bók frá
Reykjaforlaginu:
„Fleira
fólk“
eftir Jónas
*
Arnason
FLEIRA FÓLK er heiti í nýrri bók
eftir Jónas Árnason rithöfund. Út-
gefandi er Reykjaforlagið. Bókin er
myndskreytt meó teikningum eftir
Kjartan Guðjónsson, en þær voru
allar gerðar i þeim irum, sem þætt-
irnir í henni rekja uppruna til. Jónas
Árnason hefur i siðustu tveimur ára-
tugum sent fri sér mörg ný leikrit,
en enga nýja bók. Fyrsta bók Jónas-
ar hlaut nafnið Fólk og því var
ikveðið að velja þessari nafnið
Fleira fólk.
Dagsetningar í bókinni segja til
um, hvenær frumdrög þáttanna
urðu til. Stundum var um að ræða
stutta dagblaðapistla, stundum
dagbókarpunkta, stundum upp-
rifjun gamalla minninga. Jónas
hélt þessum frumdrögum saman,
og mörg þeirra vann hann fljót-
lega, jók við þau og endurbætti, en
smiðshöggið á flesta þættina rak
hann si. sumar heima hjá sér á
Kópareykjum i Reykholtsdal. Seg-
ir á kápusiðu bókarinnar, að i bók-
inni segi frá raunverulegum at-
burðum og raunverulegu fólki —
og ekki síst frá höfundinum sjálf-
um, sem alltaf kemur meira og
minna við sögu. Lítið sem ekkert
af efninu hefur áður birst i þeirri
mynd, sem það birtist í bókinni,
T'r ennfremur.
efnisyfirliti kemur fram að
þættirnir eru fjórtán að tölu og
bera yfirskriftir eins og; Hljóm-
borð hafnarinnar, Enginn glæpur
að syngja dimmalimm, Kálfurinn
Bóbó fær bréf, Mjólk úr Gríms-
nesinu, Hann Skötti karlinn, Und-
ir Ártúnsbrekkum, svo dæmi séu
nefnd.
Bókin Fleira fólk er 174 bls. að
stærð, Prentrún prentaði, en káp-
an er unnin á Auglýsingastofu
Gísla B. Björnssonar.
Demantshúsið í Hafnarfirði:
Eðalsteinar á ýmsum
vinnslustigum sýndir
UM helgina opnar Demantahúsið í
Hafnarfirði sýningu á eðalsteinum.
Sýndir eru óunnir eðalsteinar, slíp-
aðir eðalsteinar og handsmíðaðir
gull- og silfurskartgripir með eð-
alsteinum, þar á meðal perlum og
demöntum sem Demantahúsið
leggur mikla áherslu á, demantar í
hvítagullsskartgripum og gull-
skartgripum.
Næstu tvær vikur mun fólki
verða gefinn kostur á að kynna
sér og skoða þessa muni og fræð-
ast lítið eitt um eðalsteina sem
líta ekki út fyrir að vera merki-
legir fyrr en þeir hafa verið slíp-
aðir.
íslenskt handbragð á góð-
málmum með völdum náttúru-
steinum er yfirbragð þessarar
sýningar.
Sýningin er opin frá 11. til 25.
nóvember. Virka daga frá kr.
13.00 til 18.00 og um helgar frá
kl. 14.00 til 18.00.
U-BIX UÓSRITUNARVÉLAR
j . \ > s s
LANG
SOLUHÆSIAR
Á&ANDT
Á fyrstu sex mánuðum þessa árs settu U-BIX Ijósritunarvélarnar glæsilegt sölumet: Ein af
hverjum þremur seldum Ijósritunarvélum á íslandi var frá U-BIX. Og ekkert lát er á
vinsældunum.
Þrennt skiptir máli við kaup á Ijósritunarvélum; gæði, verð og viðhaldsþjónusta.
Mikil sala U-BIX víða um heim er almenn viðurkenning á gæðum vélanna og vinsældirnar
hér á landi bera þjónustunni fagurt vitni.
Nýafstaðin erlend verðlækkun á öllum gerðum U-BIX vélanna til Skrifstofuvéla léttir svo
valið enn frekar. *Miðað vlð tölur uppgefnar af Hagstofu íslands, relknað út frá innflutnlngsverðmæti.
SKRIFSTOFUVÉLAR H.F.
u
Hverfisgötu 33 — Sími 20560
Pósthólf 377