Morgunblaðið - 15.11.1984, Page 1
80 SÍÐUR
STOFNAÐ 1913
223. tbl. 71. árg. FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1984 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Líbanon:
Viðræður
um brottfór
*
Israela
Beirút, 14. nÓTember AP.
STJÓRNIR Líbanons og ísraels sam-
þykktu í dag að taka að nýju upp við-
reður um ráðstafanir til þess að
binda enda á hernám ísraelshers á
suðurhluta Líbanons, sem nú hefur
staðið yfir í 29 mánuði. fsraelar létu
jafnframt lausa þrjá bermenn shíta,
sem þeir höfðu handtekið fyrir nokkr-
um dögum.
Samkomulag um viðræður uáðist
í kjölfar málamiðlunar, sem Banda-
ríkjastjórn og Sameinuðu þjóðirnar
höfðu unnu að, eftir að slitnaði upp
úr viðræðunum sl. laugardag.
Rashid Karami forsætisráðherra
Líbanons sagði í dag, að ríkisstjórn
sín hefði samþykkt öryggisáætlun,
þar sem gert væri ráð fyrir því, að
líbanski herinn tæki á sitt vald
strandlengjuna frá Beirút suður að
varnarlínu ísraela við Amalifljót i
suðurhluta Líbanons.
Konur á heræfíngu <AP .hn.mynd>
Frá Nicaragua. Konur á hertefingu eru þar nú algeng sjón. Sandinistastjórnin hefur gefið þar út almennt herútboð og heldur því fram, að
innrás Bandaríkjamanna sé yfirvofandi.
-
Dale Gardner á leið til Westar 6, sem sést til vinstri á myndinni. Þessi mynd var tekin í gær, er aðgerðir áhafnar
geimferjunnar Discovery til þess að ná fjarskiptahnettinum voru að hefjast. AP-símamynd
Geimförunum tókst
að bjarga Westar 6
Kanaveralböfða, 14. nóvember AP.
Eþíópíæ
Harðnandi ofsóknir
á hendur kristnum
ÁHÖFN geimferjunnar Discovery
tókst í dag að ná hinum fjarskipta-
hnettinum, sem áformað hafði verið
að bjarga í för geimferjunnar nú.
„Við höfum nú tvo gervihnetti í far-
angursgeymslunni okkar,“ sagði
Rick Hauck leiðangursstjóri í dag,
eftir að þeim Dale Gardner og Joe
Allen hafði tekizt að ná fjarskipta-
hnettinum Westar 6 og koma honura
fyrir við hlið fjarekiptahnattarins
Palapa B2 inni í geimferjunni.
„Frábært" voru viðbrögð geim-
ferðastjórnarinnar á jörðu niðri.
Þeir Gardner og Allen voru úti í
geimnum utan geimferjunnar i 6
klukkustundir á meðan þeir unnu
að björgun Westar 6 og var starf
þeirra bæði vandasamt og erfitt.
Fylgzt var með því beint í sjón-
varpi, hvernig Gardner nálgaðist
Westar 6 og kom þar fyrir taug,
sem dró hnöttinn yfir til geimferj-
unnar. Þar beið Allen við lyftiarm
geimferjunnar og hjálpuðust þeir
félagar síðan að að koma Westar 6
inn í geimferjuna og nutu þar að-
stoða/ þriðja geimfarans, önnu
Fisher, sem beið viðbúin inni í
geimferjunni.
Fjarskiptahnöttunum tveimur
var skotið upp í febrúar sl., en
vegna mistaka fóru þeir á ranga
braut umhverfis jörðu. Ætlunin er
nú, eftir að þeim hefur verið náð
aftur til jarðar, að skjóta þeim
upp á ný, þegar viðgerð á þeim er
lokið.
Stokkhólmi, U. nóvember.
SAMTÍMIS því sem athygli heimsins
beinist að fórnarlömbum hungurs-
neyðarinnar { Eþíópíu herðir
manistastjórnin þar ofsóknir sínar á
hendur kristnum mönnum í landinu.
Var þetta haft eftir heimildum I
Stokkhóliui í dag.
748 kirkjum lúterskrar trúar-
deildar, sem kennd er við Kale
Heywet í héraðinu Wolayta, var
lokað í októbermánuði. Þetta hérað
er eitt þeirra sem verst hafa orðið
úti í suðurhluta Eþíópiu af völdum
hungursneyðarinnar. Alls hefur
1.700 af þeim 2.790 kirkjum, sem
starfandi voru í landinu, verið lok-
að.
Þá hafa ofsóknir gegn lútersku
Mekane-Jesus-kirkjunni einnig
verið hertar og sitja nú 200 prestar
þessarar trúardeildar í fangelsi.
Fjöldi þeirra presta i landinu, sem
fangelsaðir hafa verið er samt
miklu meiri, því að margir prestar
annarra lúterskra trúardeilda svo
og kaþólskra manna í landinu hafa
verið fangelsaðir og kirkjum þeirra
lokað.
Samkvæmt heimildum i Eþíópiu
er talið, að þetta sé einn þátturinn
í þeirri viðleitni stjórnvalda þar að
koma á fót „ríki með einum flokki
og einni trú“, það er hinni hefð-
bundnu koptísku trú, þar sem
stjórnvöld telja, að þeim muni
reynast auðvelt að ráða yfir kopt-
ísku kirkjunni.
Dollarinn
hækkar
London, 14. nóv. AP.
GENGI Bandaríkjadollare hækkaði
í dag gagnvart öllum helztu gjald-
miðlum heims. Olli þessu orðrómur
um, að bandaríski seðlabankinn
myndi ekki lækka vexti sína meira.
Vestur-þýzki seðlabankinn seldi
mikið magn af dollurum og reyndi
þannig að koma í veg fyrir enn
meiri hækkun dollarans. En það
kom fyrir lítið. Þannig hækkaði
dollarinn bæði gagnvart pundinu,
jeninu og vestur-þýzka markinu.
Nýtt lyf gegn blóðtappa:
Opnar stíflaöar hjartaæðar með
því að leysa upp blóðtappann
Leuven, 14. nóvember. AP.
STÓRÁFANGI hefur nú náðst í
baráttunni gegn blóðtappa og
kransæðastíflu samkvœmt frásögn
vísindamanna við háskólann f
Leuven í Belgíu, en þeim hefur
tekizt að búa til lyf úr eggjahvítu-
efni, sem leysir upp blóðtappa.
Efni þessu hefur verið gefið
hcitið T-PA (CQ) og er það unnið
úr frumum, sem eðlilegt er, að
finnist í ýmsum líffærum
mannslíkamans. Vitað var áður,
að þessar frumur hindruðu
myndun blóðtappa. „Það sem
ekki var vitað var nákvæm sam-
setning efnisins, sem þessu olli,“
sagði Marc Verstráte í dag, en
hann starfar við háskólann {
Leuven. Sagði hann, að Desiré
Collen, sem starfar við æða- og
hjartasjúkdómadeild háskólans,
hefði tekizt að komast að raun
um samsetningu efnisins og
auka upplausnarhæfni þess með
tilraunum sínum.
Fimmtíu sjúklingum, sem
þjáðst höfðu af blóðtappa, var
gefið lyf búið til úr efninu T-PA
og hefði það „opnað stíflaðar
hjartaæðar" hjá 80% þeirra.
Sagði Verstráte, að nú væri haf-
in framleiðsla á lyfinu i Leuv-
en-háskóla, en rannsóknir og
undirbúningur þess hefðu staðið
yfir í langan tíma.
Þetta lyf hefði einnig þann
kost, að unnt væri að sprauta þvi
inn í líkamann fjarri blóðtapp-
anum, sem leysa þyrfti upp. Sá
galli væri hins vegar á, að gefa
þyrfti það inn 4—6 klukkutímum
eftir að blóðtappinn hefði mynd-
azt. Þá kæmi lyfið ekki heldur að
gagni, ef það væri gefið inn
fyrirfram.