Morgunblaðið - 15.11.1984, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1984
49
Porsche 924
Þessi stórglæsilega sportbifreið er nú til sölu. Bifreiöin er érgerð 1981 og
ekin 50.000 km., aö langmestu leyti erlendis. Bifreiðin er 5 gíra og 4
cylindra. Allar nánari uppl. gefa sölumenn.
Verzlunin Hof
skiptir um eigendur
Hinn 1. september síðastliðinn hekl- og prjónagarni, ásamt
urðu eigendaskipti á hannyrða- fleiru er því tengist. Verslunin
versluninni Hofi hf. Ingólfs- póstsendir um land allt.
stræti 1 Reykjavík. Hinir nýju eigendur verslun-
Verslunin leggur áherslu á að arinnar eru Ásdís Haraldsdóttir
hafa ávallt mikið úrval af og Ásthildur, Jóna og Anna
smyrna- og hannyrðavörum, María Þorvaldsdætur.
Eigendur verzlunarinnar Hofs, frá vinstri: Anna María og Ásthildur
Þorvaldsdætur, Asdís Haraldsdóttir og Jóna Þorvaldsdóttir.
LAUGAVEGUR 170-172 - PÖSTHÖLF 6310 - 125 REYKJAVÍK
SlMI 21240 - TELEX 2018
HEKLA HF
Píslir Árna og
bandalag tossanna
— eftirEinar
Kárason
Einn þeirra sem oft hefur skrif-
að um kvikmyndir í Morgunblaðið
hefur þann óvenjulega stíl að
fjalla næstum eingöngu um sjálf-
an sig, það er jafnvel undir hæiinn
lagt hvort hann nefnir eitthvað
myndina sem hann í orði kveðnu
er að dæma. Nú er Árni Þórar-
insson kominn af Helgarpóstinum
yfir á Morgunblaðið og farinn að
tileinka sér þessar aðferðir. íron-
ískar sjálfsjátningar eru oft bráð-
fínar bókmenntir og nægir að
minna á Þórberg í því sambandi.
En ef gagnrýnendur færu að
keppa i þeirri list er líklegt að
Árni Þórarinsson myndi hlaupa
með bikarinn fyrir grein sína hér í
blaðinu þriðjudaginn 6. þ.m. um
frumsýningu kvikmyndarinnar
Kúrekar norðursins.
Þessi sýning var honum kvala-
full reynsla, hann segist ekki hafa
skilið húmor myndarinnar „og
nenni ekki að snobba fyrir hon-
um“ bætir hann við. Trúlega hefðu
fáir af starfsbræðrum Árna kjark
til að láta svona mikið uppi um
aðferðir sínar við að dæma lista-
verk.
En það er meira af þessu tagi í
greininni, hún beinlínir glitrar af
tvíræðu sjálfsháði. Hann talar til
að mynda um að „reykvíska kúlt-
úrintelligensían" hafi verið alveg
á nálum á frumsýningunni, varla
þorað að hlæja af lamandi ótta við
að opinbera þarmeð ranga skoðun
á myndinni. I þessu sambandi
beit.ir Árni fremur lúmsku orða-
lagi svo maður fattar ekki alveg
um leið hvað hann er að tala um.
Kannski spilar þar inní að ég var
sjálfur á þessari frumsýningu og
allt í kring voru kunnugleg andlit
úr reykvísku kúltúrintelligensí-
unni, samt virtust allir óhræddir
við að skemmta sér ef svo bar und-
ir. Ritstjóri eins dagblaðanna sem
sat skammt fyrir aftan mig og at-
vinnuleikari nokkrum bekkjum
framar hlógu báðir svo smitandi
að maður hefði jafnvel skemmt
sér á þessari sýningu með bundið
fyrir augun. Enda er það ekki
fyrren við nánari skoðun að í ljós
kemur að Árni er þarna að tala
um sjálfan sig undir rós og notar
til þess „sumir um suma“-orðalag-
ið einsog heimasætan á Fæti und-
ir Fótarfæti.
Og það var ekkert smávegis sál-
aruppnám sem maðurinn gekk í
gegnum þarna í bíósætinu:
„Sumir hneggjuðu nervöst ann-
að slagið, svona snöggt hehe, en
flestir horfðu stjarfir fram fyrir
sig og reyndu að klambra saman
einhverri skoðun til að hafa á
takteinum í Þjóðleikhúskjallaran-
um um kvöldið."
Svona lagað hefði getað riðið
taugaóstyrkum mönnum eða veil-
um fyrir hjarta að fullu. En Árni
lifði þetta af sem betur fer: „Sjálf-
ur missti ég móðinn í nokkra
klukkutíma en er óðum að ná
mér.“
Hérna stríði Árni lesendum að-
eins, með því að láta þess ekki get-
ið hvort hann hafi verið búinn að
ná sér nógu snemma til að mæta
með skoðun í Þjóðleikhúskjallar-
ann um kvöldið. Við fáum bara að
vita að eftir allt sálarstríðið ákvað
hann að vera á móti myndinni,
samanber niðurlagsorð greinar-
innar: „Kúrekar norðursins er því
miður ómerkilegt fúsk. Og sem
betur fer komast höfundar mynd-
arinnar aðeins uppávið eftir
þetta.“
Þetta er semsé niðurstaða
greinarinnar. En að öðru leyti ber
umfjöllunin vitni vandræðum
Árna við að mynda sér þessa skoð-
un. Þar segir til dæmis: „Þarna
eru óborganlegir hlutir." Hann
nefnir síðan sem dæmi um það
4—5 atriði og bætir svo við:
„Þarna eru semsagt hrein gull-
korn.“
Það er nú ekkert smotterí. Ég
hélt að hver sem er myndi kætast
yfir íslenskri bíómynd sem býður
uppá bæði gullkorn og óborganleg
atriði. Ég hef séð nokkrar sem
hafa verið gjörsamlega fríar við
hvorttveggja en samt fengið lof og
prís. En þetta er ekki allt og sumt.
Á öðrum stað segir gagnrýnand-
inn:
„Kúrekar norðursins er ómerki-
leg mynd um ómerkilegt efni.
Kúrekar norðursins er merkileg
mynd um merkilegt efni. Allt eftir
því hvar og hvernig menn sitja í
salnum." (Leturbr. ek.)
Þetta er verulega myndrænt.
Maður sér fyrir sér þennan
greindarlega mann prófa mismun-
andi stellinar í bíósætinu; skipta
algerlega um skoðun eftir því útá
hvora öxlina hann hallar höfðinu.
Annars reyndir Árni að snúa
útúr ávarpsorðum stjórnanda
myndarinnar, Friðriks Þórs Frið-
rikssonar, til að renna stoðum
undir fordæmingu sína. Svo er
hann með beinlínis ósmekklegar
dylgjur um virðingarleysi mynd-
arinnar fyrir viðfangsefni sínu
þegar hann gefur í skyn að þyngst
á metunum sé það sjónarmið
framleiðendanna að þeir séu að
fjalla um „hlálega einfeldninga
sem rakið er að gera gys að“. Orð
einsog þessi benda til þess að
gagnrýndandinn hafi verið of
kvíðinn fyrir að hitta hin gáfu-
mennin í Þjóðleikhúskjallaranum
til að geta fylgst með því sem
fram fór á tjaldinu.
Það kemur fram í grein Árna að
verk Friðriks Þórs hafi verið
„hunsuð af opinbera styrkjakerf-
inu“. Rétt er það; Friðrik Þór er sá
eini af þessum fáu starfandi
kvikmyndagerðarmönnum lands-
ins sem hefur þurft að vinna við
þær aðstæður að ekki bara
Kvikmyndasjóður og Kvikmynda-
eftirlitið, heldur líka fjölmargir
starfsbræður hans hafa leynt og
ljóst reynt að svæla hann útúr
faginu. Árangurslaust sem betur
fer, með Kúrekum norðursins hef-
ur hann gert enn eina afbragðs-
góða mynd. Allur þessi samblást-
ur gegn honum finnst manni ein-
ungis renna stoðum undir kenn-
ingu Jonathan Swift um að toss-
arnir muni ævinlega mynda
bandalag á móti hverjum sem
skarar fram úr þeim.
7. nóvember 1984.
Einnr Kírason er ritböíundur.
fbmhjolp
Almenn samkoma í Þríbúöum, Hverfisgötu 42, í
kvöld kl. 20.30.
Dorkas-konur sjá um samkomuna. Fjölbreytt
dagskrá. Allir velkomnir.
Samhjálp
Áskriftarsimirm er 83033
LANDSSAMBAND
IÐNAÐARMANNA
SAMTÖK ATVINNUREKENDA
í EÖGGILTUM IÐNGREINUM
Atvinnumál
á Suðurlandi
Fundur í sambandsstjórn Landssambands iðnaö-
armanna — samtaka atvinnurekenda í löggiltum
iöngreinum — verður haldinn í Hellubíói, Hellu,
Rangárvöllum laugardaginn 17. nóvember nk. Fund-
urinn hefst stundvíslega kl. 10 árdegis.
í tengslum viö sambandsstjórnarfundinn og í sam-
ráði viö Samtök sveitarfélaga á Suðurlandi veröur
haldin ráöstefna um
Atvinnumál á Suðurlandi
Ráðstefnan, sem hefst kl. 14.00 er öllum opin
Dagskrá:
1. Erindi Guðlaugs Stefánssonar, hagfræöings
Landssambands iönaöarmanna.
2. Erindi Þorsteins Garöarssonar, iönráögjafa Suö-
urlands.
3. Pallborösumræöur, þátttakendur veröa m.a.
framsögumennirnir og fulltrúar þeirra þingflokka,
er eiga kjörinn mann á Alþingi af Suöurlandi o.fl.
Stjórn Landssambands iðnaðarmanna.
Til sölu