Morgunblaðið - 15.11.1984, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1984
45
Mbl./Sigurgeir Jónsson.
Skoðunarferð umhverfis Heimaey með þeim félögum Óla Granz og Hjálmari Guðnasyni á skemmtibátnum Bravo þykir mörgum ferðamannainum
eftirminnileg. Ferðin hefst með því að farið er með sjóferðabsn, Óli gefur góða lýsingu á staðháttum sögu Eyjanna. Hjálmar stýrir bátnum og blæs
síðan í trompett sinn í Klettshelli sem þykir stórkostlegur hljómleikasalur.
Helgarferðir til Vestmannaeyja
Vestmannaejjum, 12. nóyember.
SVOKALLAÐAR helgarreisur til Reykjavíkur hafa notið vaxandi vin-
sælda meðal landsbyggðarfólks og í vaxandi mæli hafa höfuðborgarbúar
haldið í helgarreisur til þeirra staða á landsbyggðinni sem boðið hafa upp
á slíka möguleika. Og nú hefur einn spennandi kostur boðist til viðbótar
fyrir landsmenn. Nýstofnuð Ferðaskrifstofa Vestmannaeyja hefur kynnt
svokallaða Eyjareisu, helgarferð til Vestmannaeyja á mjög svo viðráðan-
legu verði.
Flugleiðir og Ferðaskrifstofa
Vestmannaeyja buðu blaða-
mönnum að kynnast því af eigin
raun hvað í boði er í Eyjareis-
unni. Kom það fram hjá Engil-
bert Gíslasyni, forstjóra FV, að
Eyjareisa væri nýjung á ferða-
markaðinum og kostaði 3.500 kr.
fyrir manninn. í því verði væri
innifalið flugfar Reykjavík-
Vestmannaeyjar-Reykjavík og
gisting á Hótel Gestgjafinn f
tvær nætur með morgunverði.
Hótel Gestgjafinn er nýtt og
einkar glæsilegt hótel sem býður
upp á öll þægindi og mjög gott
veitingahús, Gestgjafinn, er
sambyggt hótelinu. Þá er og
innifalið í Eyjareisu þessari að-
göngumiði á ölstofuna Mylluhól
á föstudagskvöld en á þessari
ölstofu hefur náðst upp sérstak-
lega góð „pöbb-stemmning“ og
þar koma reglulega fram ýmsir
landsfrægir músíkkraftar s.s.
„Hálft í hvoru“-flokkurinn sem
hefur notið fádæma vinsælda
meðal gesta Mylluhóls. Þá hafa
verið á Mylluhól sérstök jass-
kvöld sem hafa þótt heppnast
mjög vel. Á laugardagskvöld
býðst svo Eyjareisugestum
kvöldverður á Skansinum, einum
glæsilegasta skemmtistað lands-
ins. Á Skansinum verður í vetur
boðið uppá fjölbreytta skemmti-
dagskrá og nýlega hefur tekið til
starfa hljómsveit Skansins,
Xport og Pálmi Gunnarsson.
Ýmislegt fleira er að sjálf-
sögðu hægt að gera af sér annað
en eta og tralla á skemmtistöð-
um. Náttúrugripasafnið í Eyjum
er einstakt í sinni röð og ætti
enginn gestkomandi í Eyjum að
láta hjá líða að skoða það undir
leiðsögn forstöðumanns safns-
ins, Friðriks Jessonar. Þá er
mögulegt að skreppa í skoðunar-
ferðir með leiðsögumanni um
Heimaey og í bátsferð umhverfis
eyjuna, þ.e.a.s. sé veður skaplegt
til skemmtisiglinga. í Eyjum er
mjög góð sundlaug og önnur
íþróttaaðstaða mjög fullkomin.
Samgöngur við Vestmanna-
eyjar eru nú í góðu lagi, Flug-
leiðir fljúga til Eyja tvisvar á
dag í vetur og Herjólfur gengur
sína rútu milli Eyja og Þor-
lákshafnar nánast á hverju sem
gengur.
Flugleiðir og ferðaskrifstofur
selja Eyjareisurnar.
- hkj.
Hótel Gestgjafinn.
Leiðbeininga-
þjónusta við
húsbyggjendur
HELGI Ormsson hefur opnaö leiö-
beiningarþjónustu fyrir húsbyggj-
endur, verktaka og aðra, sem aö
framkvæmdum starfa. Fyrirtækiö
nefnir Helgi Byggingaráögjöf Helga
Ormssonar og er þaö til húsa að
Skúiagötu 63. Opið er fýrst um sinn
á óreglulegum tíma, en símsvári
verður í gangi ailan sólarhringinn og
tekur viö óskum um viðtöl. Skrifstof-
an mun hefja fulla starfsemi eigi síö-
ar en um næstu áramót.
Skrifstofan tekur að sér alla
þætti aðstoðar við húsbyggjendur
aðra en fjárútvegun.
Leiðrétting
í viðtali í Mbl. í gær, miðviku-
dag, við Derek Davies, ritstjóra
Far Eastern Economic Review,
féll niður að höfundur viðtalsins
var Jóhanna Kristjónsdóttir.
V^terkurog
k-/ hagkvæmur
auglýsingamióill!
jHfrrigiwfolðfttfr
METSÖLUTÍMARITIÐ
.Markmið mitt er aö æsa tólk
upp og ögra þvi ó öllum hugs-
anlegum sviöum" er meöal ann-
ars haft eftir poppstjðrnunni
Prince I grein i blaöinu, en
Prince er nú tvimælalaust ein
skærasta stjarnan ó popphimn-
inum ó Vesturlöndum.
Svavar Gestsson.
-Hvar ó vegl staddur?" er yfir-
skrift óvenjulegs vlötals viö
Svavar Gestsson formann Al-
þýöubandalagsins, þar sem
hann ræöir uppvöxt sinn, kröpp
kjör i assku, vonbrigöi og póli-
tiskan ferll sinn.
Poppstirnið Prince.
efnis:
Einkaviötal ritstjóra Mannlft* vlö Jesae Jackson, merkasta lelðtoga bandarískra blökkumanna frá þvt Martin Lúther Klng var myrtur. Grein um
megrunarsjúkdóma. Dr. Þorvaldur Gyltason skrlfar um Grétu Garbó, klelfhuga rottur og fleira forvltnllegt. Viðtal vlö Tlnnu Gunnlaugsdóttur
leikkonu. Grein um skoöanakannanlr og stjómmál ettir Ólal Haröarson prótessor. Tískuþáttur. Fólk i fréttum. Kynlíf á 9. áratugnum og margt tleira