Morgunblaðið - 15.11.1984, Page 4

Morgunblaðið - 15.11.1984, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1984 Deilt um stefnu í sérkjarasamningum kennara: Erum ósáttir við að vera utan við- ræðunefndarinnar — segir Guðmundur Árnason, framkvæmda- stjóri og varaformaður Kennarasambands íslands „ÁSTÆÐAN fyrir því að við erum ekki í viðræðunefndinni endurspeglar óánægju kennara með vinnu okkar í nýafstöðnum heildarsamningum BSRB. Við höfum allir verið áður í viðræðunefndinni en nú var greinilega ekki grundvöllur fyrir því og þessi óánægja kom greinilega fram í umræðum á fundi fulltrúaráðs og samninganefndar Kennarasambandsins,“ sagöi Gísli Baldvinsson, formaður Kennarafélags Reykjavíkur, í samtali við blaðamann Mbl. í gær. Auk hans lentu að þessu sinni utan viðræðunefndar Kennara- sambands íslands í komandi sérkjaraviðræðum þeir Guðmundur Árnason, varaformaður og framkvæmdastjóri Kennarasambands íslands, og Haukur Helgason, skólastjóri í Hafnarfirði, sem verið hefur í flestum viðræðunefnd- um kennara allt frá árinu 1961. Þeir þrír tóku ekki þátt í end- anlegri afgreiðslu kröfugerðar Kl vegna væntanlegra sérkjarasamn- inga. Hún gerir ráð fyrir tíu launaflokka hækkun kennara, þannig að byrjunarlaun verði 26 þúsund krónur og laun eftir 18 ára starf 33 þúsund krónur. í umræð- um á fundi fulltrúaráðs og samninganefndar Kl um sl. helgi kom fram, að þremenningarnir töldu kröfurnar óraunhæfar og að hægt væri að nýta betur þann „byr sem kennarar hafa“ með því að setja kröfur sambandsins fram á annan hátt. Telja þeir að sér- kjarasamningar takist ekki fyrir jól, eins og lög gera ráð fyrir, og því fari kröfugerðin „beina leið I kjaranefnd", eins og það var orðað. Guðmundur Árnason sagðist i samtali við blm. Morgunblaðsins hafa „efasemdir um vissa hluti I þessu sambandi, hvernig ætti að halda áfram. Það mun hafa verið talið nóg að hafa okkur ekki með og það verður að segjast eins og er, að við erum ekki ásáttir við þá niðurstöðu," sagði hann. „Það er ekki það, að við teljum kauphækk- anirnar. sem kröfur eru gerðar Ók af vettvangi eftir slys á Granda U klukkan átta í gærmorgun varð maður á sextugsaldri fyrir bifreið vestur á Granda, gegnt Kaffivagnin- um. Hann hafði farið úr bifreið sinni vestanmegin við götuna og hugðist ganga yfir en varð þá fyrir bifreið, sem ekið var í norðurátt. Maðurinn fótbrotnaði og skarst < andliti. Ökumaður bifreiðarinnar stöðvaði bifreið sína og fólk kom út úr Kaffivagninum og hélt á manninum yfir í veitingahúsið, en ökumaðurinn ók á brott. Lögregl- an í Reykjavík biður ökumanninn vinsamlega að gefa sig fram. um, of miklar eða hrikalegar en við verðum að gera okkur grein fyrir að við erum hluti af ríkis- geiranum. Við vorum ekki við af- greiðslu kröfugerðarinnar — menn voru að tala um hærri tölur þegar við fórum af vettvangi en við vildum ekki hafa afskipti af því hvort farið yrði ofar eða neðar og þá var allt eins gott að vera ekki á fundinum." Hann sagðist telja „líklegra” að kjaranefnd myndi úrskurða um laun kennara eftir sérkjarasamn- ingana. „Mér finnst að það eigi að nota byrinn, ekki misnota hann. Við eigum að láta stöðuna nýtast okkur,“ sagði Guðmundur. Haukur Helgason, skólastjóri, sem manna lengst hefur tekið þátt í samningagerð fyrir kennara- samtökin í landinu, sagði í samtali við blm., að sér þætti „sérstæðast að Guðmundur Árnason er ekki með I viðræðunefndinni. Hann er framkvæmdastjóri Kennarasam- bands fslands og sá maður innan sambandsins sem hefur haft með samningamálin að gera.“ Haukur sagði ljóst, að í samtök- um kennara væri óánægja með heildarsamning BSRB. „Það hefur ekkert farið a milli mála, að við Guðmundur töldum rétt að ganga til þeirra samninga þegar þaö var gert. Hvað varðar sérkjarasamn- ingana vildum við halda öðru vísi á málum — við óttumst að meðbyr kennara nýtist ekki við þessa framsetningu mála,“ sagði Hauk- ur Helgason. INNLENT Fyrstu tónleikar á þessu starfsári um næstu helgi íslenska hljómsveitin heldur sína fyrstu tónleika á þessu starfsári f íþróttahúsi Gagnfræðaskólans á Selfossi nk. laugardag, 17. nóvem- ber, og hefjast þeir kl. 14.30. Á tónleikunum verða flutt Esk- apaden Eines Gassenhauers, svfta fyrir kammerhljómsveit eftir Karl Hermann Pilney; Suite Symphon- ique, svíta fyrir kammerhljóm- sveit eftir Jacques Ibert; Mazurka nr. 17, Scherzo nr. 2 eftir Frédéric Chopin og Píanókonsert nr. 9, í Es-dúr, K 271 eftir Wolfgang Amadeus Mozart. Bandariski pi- anóleikarinn Stephanie Brown leikur einleik með hljómsveitinni í tveimur siðarnefndu verkunum. Þessi efnisskrá verður endur- tekin á fyrstu áskriftartónleikum hijómsveitarinnar á starfsárinu, sem haldnir verða í Bústaðakirkju sunnudaginn 18. nóvember og hefjast kl. 17. Stephanie Brown, bandaríski píanó- leikarinn, sem leikur einleik með ís- lensku hljómsveitinni á tónleikum hennar um næstu helgi. Ingvi Rafn Albertsson ásamt sonum sínum, frá vinstri: Björgvin, Ingvi, Brynjar og Hjálmar. Mokafli á síldinni með blandaðri áhöfn Ingvi Rafn og félagar á Guðmundi Kristni tóku tvöfaldan kvóta á 16 dögum, lönduðu þrisvar sinnum einn sólarhringinn, olíukostnaður í lágmarki Bergur Hallgrímsson útgerðarmaður og sfldarsaltandi, Ingvi Rafn. Berg- ur gerir út Guðmund Kristin. EflkirirAi, 14. nóvrmber. SÍLDARVERTÍÐ sú sem nú er senn á enda, hefur leikið misjafn- lega við menn og á ýmsu gengið við að fanga þann eftirsótta fisk eins og ætíð hefur verið. Sumir skip- stjórar hafa verið fljótir aö klára kvótann sinn, öðnim gengið miður. Sumir hafa bara mátt veiða einn kvóta, aðrir tvo og afkoma sjó- mannanna því misjöfn. Hún er brellin, sfldin, sögðu gömlu menn- irnir og eru víst flestir sammála þvl. Allt fullt af sfld í dag, ekki branda á morgun. Eitt þeirra skipa, sem athygli hefur vakið fyrir velgengni í haust er Guðmundur Kristinn SU 404 frá Fáskrúðsfirði. Skipstjóri þar um borð á síldinni var Ingvi Rafn Albertsson frá Eskifirði, löngu þekktur loðnu- og síldar- skipstjóri, en nú að mestu kom- inn í land. „Við vorum heppnir í byrjun," sagði Ingvi Rafn er fréttaritari Morgunblaðsins hitti hann að máli og innti frétta úr síldinni. „Við byrjuðum á síldveiðum 9. október og fimm mínútum eftir að við slepptum bryggjunni vor- um við búnir að kasta á góða torfu, sem var þarna rétt við bryggjuna á Fáskrúðsfirði. Úr kastinu fengum við 170 tonn, sem við fórum að sjálfsögðu með upp að planinu hjá honum Bergi Hall- grimssyni í Pólarsíld, sem á skip- ið og rekur. Síðan var byrjað að landa og salta síldina og tók það að sjálfsögðu sinn tima, en meðan verið var að landa varð ég var við það á Asdic-tækinu, að síldar- torfa fór inn fjörðinn, fyrir fjarð- arbotninn og út aftur. Eg fylgdist með henni í um tvo tima og um leið og búið var að landa siðustu tonnunum sagði ég strákunum að sleppa og vera klárir. Við köstuð- um síðan strax og við slepptum bryggjunni. I þvi kasti fengum við 70 tonn. Þarna voru komin 240 tonn fyrsta sólarhringinn." Gerðu það gott við Staurinn Menn sem fylgdust með veiðun- um úr landi tóku eftir því að Ingvi Rafn var oft einskipa að veiðum, oft í kringum Vfkursker- ið i Fáskrúðsfirði, oftast nær með veiði. Hann var spurður hvort þetta væri rétt og sagði hann svo vera. Hann hefði fengið mest af sínum afla I Fáskrúðsfirðinum, rúm 500 tonn, og þá oftast við Víkurskerið eða Staurinn, eins og hann kallar það. 100 tonn fengust í Reyðarfirði og 100 tonn í Vopna- firðinum. „Reyndar ætlaði ég aldrei norð- ur í Vopnafjörð," sagði hann, „en síldin gekk út úr fjörðunum og var illveiðanleg hér úti fyrir, svo ég fór norður. Við máttum veiða tvo kvóta, eða um 750 tonn. Því náðum við á 16 dögum. Einu sinni kom það fyrir að við lönduðum þrisvar sama sólarhringinn og tvívegis tvisvar sinnum á sól- arhring. Þegar svona gengur er að sjálfsögðu mikið að gera og segja má að fyrstu sjö sólar- hringana hafi verið stanzlaus vinna, mikið álag á mannskapinn og þetta gengi náttúrlega ekki nema með góðum mönnum.“ Það segir sig sjálft að skip sem tekur mesta veiðina innfjarðar hlýtur að fara sparlega með olíu. „Jú, það er rétt. Við að ná fyrri kvótanum eyddum við um 3 þús- und lítrum af olíu og við að ná þeim báðum um 12 þúsund lítr- um. Því má segja, að olíukostnað- ur hafi verið í lágmarki. Annars fannst mér það einkenna veiðina mest nú, að síldin var smærri en I fyrra, t.d. fóru 70% af því sem við veiddum núna í 2. verðflokk, en I fyrra fóru 80% af okkar afla í 1. flokk. Fyrir tveimur árum var mikið af smásild hér I fjörðunum og tel ég að það sé sú síld, sem við erum að veiða núna á þessari vertíð. Ég held aö það hafi verið mikil síld i fjörðunum skömmu áður en veiðar hófust og við höfum komið í hana rétt áður en hún gekk út úr þeim. Einnig er hér nú mjög smá síld, kræða, sem ekki hefur verið hér seinni ár. Síldin hélt sig hér austanlands sunnan Seyðisfjarð- ar að Berufirði og i Bakkaflóa og Vopnafirði þar sem stærri síldin virðist frekar hafa verið og það er ekki fyrr en nú seinustu daga að hún virðist vera að ganga suður á bóginn. Einnig voru færri skip að veiðum hér vegna veiðanna fyrir sunnan. Tíðarfar var mjög gott til veiðanna," sagði Ingvi Rafn að lokum. _________Blönduð áhöfn__________ Ingvi, sem er veiðieftirlitsmað- ur að aðalstarfi, hafði upphaflega ætlað að eyða sumarleyfi sínu í síldveiðina þegar verkfall BSRB kom inn í dæmið og stóð það ein- mitt yfir meðan á veiðiskapnum stóð. Þá voru þrír synir Ingva með honum á bátnum, Brynjar og Björgvin, sem notuðu verkfallið eins og pabbinn, en þeir eru í skóla, og Hjálmar sem er sjómað- ur. Fleiri sem verkfallið kom við voru einnig um borð, svo sem póstmeistarinn hér á Eskifirði Jóhann Þórarinsson, sem fór sem háseti. Bankastarfsmenn komu einnig við sögu, því um borð var Már Hallgrímsson, yfirmaður Af- urðalánadeildar Landsbanka ls- lands í Reykjavík, en hann er bróðir Bergs Hallgrimssonar. Því má segja, að áhöfnin á Guðmundi Kristni hafi verið blönduð eins og síldin. Aflaverðmætið úr síldveiði Guðmundar Kristins i haust nemur 3,8 milljónum króna. Fréttaritari veit, að þetta er ekki í fyrsta skipti sem Ingva gengur vel á síldveiðum. Er hann var með Seleyna SU 10 fyrir nokkrum árum, kláraði hann kvóta sinn, sem þá var 260 tonn, á tveimur dögum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.