Morgunblaðið - 15.11.1984, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 15.11.1984, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1984 Rúst Rúríar i Kultur-torginu í Kaupmannahöfn. Kaupmannahöfn: Fljúgandi steinsteypa — List í borginni Norræn sýning Jónnhúfli, Ktupnunnahofn. Kaupmannahafnarbúar og hinir mörgu gestir í borginni ráku upp stór augu á göngu sinni um miðborg- ina í haust Á öllum helztu torgum gefur að líta sérkennilegar högg- myndir svo afar ólíkar þeim gömlu. Blöðin bér hafa líka gert sér mat úr þessari kærkomnu tilbreytingu fri hinni vanabundnu götumynd og eru frásagnir af sýningunni fjölmargar, en þetta er ein norræn sýning, þótt listaverkin standi dreift. Ekki sízt er fjallað um verk íslenzku listamann- anna tveggja, en rúst Rúríar á Kul- torginu vakti mikla athygli og umtal varð um spegla Jóns Gunnars Árna- sonar, sem bannað var að setja upp. Sýningin „Fljúgandi stein- steypa" er sjötta norræna sýning- in á umhverfislist og sú fyrsta þeirra, sem sett er upp í ys og þys borgarlífsins. Fyrsta slík sýning var á íslandi 1980 og var haldin á Korpúlfsstöðum, þar sem 36 nor- rænir listamenn sýndu. Voru þau Rúrí og Jón Gunnar upphafsmenn að þessu sýningahaldi á Norður- löndunum og vakti sýningin al- menna umræðu heima eins og menn muna. Næst var sýnt í Finnlandi, þá aftur á íslandi á akademíu fyrir listamenn í Laug- argerðisskóla sumarið 1983. Fjórða sýningin var í Danmörku, nálægt Ribe á Jótlandi, síðan í Noregi um síðustu páska og voru listaverkin þar eingöngu unnin úr snjó, mjög hrífandi sýning. Að þessu sinni eru listamenn- irnir 12 og hófu þeir samstarfið 23. júlí sl. Bjó hópurinn I heilu húsi á Fríðriksbergi, hélt þar daglega fundi og hafði samráð og tókst hið bezta samstarf með þeim. Var í fyrstu ætlunin að fá leyfi til að vinna listaverkin á sýn- ingarstað, en það fékkst ekki. Skiptu listamennirnir torgum og gatnamótum á milli sin, sendu borgar- og lögregluyfirvöldum uppdrætti að listaverkunum og hófust svo handa um smíð þeirra ásamt mörgum aðstoðarmönnum, enda skyldu listaverkin unnin á einni viku. Frumkvöðull að sýningunni að þessu sinni var sýningarnefnd Hússins í Mag-stræti undir for- ystu Christians Holsten og mynd- höggvaranna Finns Nielsen og Williams Louis Sörensen, og feng- ust styrkir frá norræna menning- arsjóðnum og steypufyrirtækjun- um Rasmussen og Schiötz, Höj- gaard og Schultz og KH-Beton, sem lögðu til efni, vinnu og að- stöðu. Auk þess styrkti Húsið listamennina með skipulagningu og hvers konar aðstoð auk fjár- styrks. í Húsinu er sýning á upp- dráttunum ásamt með hugmynd- um og skýringum listamannanna og er þar líka litskyggnusýning frá tilurð verkanna, sem lýsir vel hinni miklu undirbúniningsvinnu. Haft er eftir forráðamönnum Hússins, að steinsteypa hafi orðið fyrir valinu til að minna á, að list er hægt að skapa úr hvaða efrii sem er, sbr. m.a. snjóinn á sýning- unni í Noregi, og einnig til að reyna að gera hugsun almennings gagnvart steinsteypukössunum jákvæðari. Kostnaður við listsköp- unina var ákaflega misjafn, allt frá dkr. 181. — og til 100 þúsund pr. listaverk. Hannu Siren frá Finnlandi sýn- ir á þremur stöðum sementsúlur málaðar röndóttar, en landi hans, Pekka Nevalainen, bætir 3 óbel- iskum við þá einu á Biskupatorg- inu. Listaverk Svíans Lars Ek- holm skreytir Torg vorrar frúar klettum og skerjum og Vassil Sim- ittchiev, búlgarskur maður frá Svíþjóð, sýnir á Kompagnie- stræti. Grænlendingurinn Jessi Christiansen á stærðar steypu-egg á Nýjatorgi á Strikinu, og er hún fyrsti Grænlendingurinn, sem er með í sýningunni. Mun hún veita grænlenzkum myndlistarskóla forstöðu næsta vetur. Af Dönun- um 4 fengu 2 að sýna í og hjá Húsinu í Mag-stræti, Finn Nielsen og Claes Blrch, en Ole Broager setti upp steyptan bíl með sömu- leiðis manneskju á Ráðhústorg- inu, táknrænt vegna mestu um- ferðaræða borgarinnar, sem þar liggja hjá. Daninn William Louis Sörensen deilir Kóngsins Nýja- torgi með Norðmanninum Helge Röed, og heitir listaverk hins fyrr- nefnda „Hljóðtækið úr steypu". Rústin hennar Rúrí á Kul- torginu fær langmesta umfjöllun í Ljósmynd/Aager Seuinge. Jón Gunnar kemur spegli sínum fyrir i Riðhústorginu. blöðunum. Hún er 10x11 m að grunnfleti og 4 m á hæð og var því flutt á torgið með kranabíl frá verkstæði Rasmussen og Schiötz. Segir í Berlingi, að listaverkið sé nákvæm eftirlíking af 40 ára gam- alli rúst á íslensku nesi og geti því minnt á, hvað orðið geti um arki- tektúr nútímans á 40 árum. Rúrí segir í viðtali við blaðið Aktuelt, að hún hafi aldrei unnið úr steinsteypu fyrr og hafi velt verk- efninu lengi fyrir sér og sé gaman að geta sýnt, að steypa er eðlilegt efni, sem hægt sé að nota til lista- verkasmíði. Er verki Rúríar hrós- að og er það sagt vekja menn til umhugsunar. Það er áreiðanlegt, að enginn gengur um Kul-torgið þessa dagana án þess að staldra Málefni aldraðra Þórir S. Guðbergsson Öldrunarþjónusta í Reykjavík Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar íslenskt samfélag hefur breyst mjög á undanförnum áratugum. Ungir menn og dugmiklir sem lögðu hönd á plóg fyrir hálfri öld eða meira, brutu leiðir, mörkuðu stefnu, börðust fyrir sjálfstæði landsins, vissu að „landið var þeirra" — eru nú orðnir háaldr- aðir, sumir á heimilum sinum enn, aðrir á vistheimilum en fáir hjá bðrnum sínum, þvf að þjóð- félagsmyndin hefur breyst. Ungir og dugmiklir menn og konur, sem unnu í kyrrþey, lifðu fyrir hugsjónir sínar, dreymdi drauma um betri tíð f fallegu landi með risjóttri tíð — menn sem lifað hafa tvær heimsstyrj- aldir, „risjótt hugarfar og við- horf“, kreppuár og harðæri — eru nú orðnir háaldraðir og e.t.v. margir einmana og einangraðir. Hver ber ábyrgð á þessum kon- um og körlum sem lögðu svo mikið af mörkum? Hið opinbera? Við kjósum stjórn og mörkum því nokkuð stefnu með því! Félaga- samtök? Þau eru byggð upp af ein- staklingum sem okkur og þvf höf- um við áhrif í lýðræðisþjóðféiagi! Kirkjan? Hún er stofnun þar sem starfið stendur og fellur með mér og þér! Fjöldi aldraðra einangr- ast á heimilum sínum, fá sjaldan heimsóknir virka daga og eiga e.t.v. erfitt með að komast leiðar sinnar upp á eigin spýtur. Hafa þessir þegnar þjóðfélagsins gleymst? Hver ber ábyrgð? Er hún öll hjá því opinbera, félaga- samtökum eða skyld- mennum? Verða ekki allir að leggja hönd á plóg? Félagsmálastofnun Reykja- víkurborgar hefur rekið dagviat- un fyrir aldraða á þriðja ár. Hún er einkum ætluð þeim sem eiga erfitt með eða geta ekki sótt al- mennt félags- og tómstundastarf í borginni af ýmsum orsökum. Augljóst er að opinberum aðil- um ber skylda til að sinna þjóð- félagsþegnum sfnum sem best. Þjónustan þarf að vera í sam- ræmi við þjóðfélagsmyndina f heild og þær aðstæður sem rfkja á hverjum tíma. Ef allir sem vettlingi geta valdið verða að vinna til þess að komast af — einangrast þeir sem geta ekki tekið þátt í atvinnulífinu — börn — unglingar — öryrkjar — aldr- aðir. Dagvist í þjónustu- íbúdum aldraðra við Dalbraut Þjónustuíbúðir aldraðra við Dalbraut voru teknar í notkun síðla árs 1979. Þetta voru fyrstu íbúðir á landinu sinnar tegundar þar sem gert var ráð fyrir ákveð- inni þjónustu og öryggi fyrir íbúana. Starfið óx og efldist og brátt var tekin ákvörðun um það f félagsmálaráði að setja á stofn dagvistun fyrir aldraða í þjón- usturými hússins. Margir aldraðir vilja búa sem lengst á eigin heimilum. Fjöldi þeirra aldraðra sem eiga sínar eigin íbúðir eða sitja í óskiptu búi vex stöðugt eftir því sem ár- in líða. Af þessum orsökum er m.a. nauðsynlegt að auka þjón- ustu við þá sem búa f heimahús- um, auka öryggi þeirra og gefa þeim möguleika á að komast út af heimilum sínum til þess að njóta samvista með öðrum. Allir þurfa á félagslegri samveru að halda hvort sem þeir eru ungir eða aldnir. Dagvist á Dalbraut er rekin alla virka daga. Þátttakendur eru sóttir að morgni og ekið heim síðdegis. Á staðnum njóta þeir hvers kyns félags- og tóm- stundastarfs, hvíldar eða endur- hæfingar. Þeir eiga einnig kost á böðun, hársnyrtingu og fótsnyrt- ingu á staðnum og innifalið f greiðslu er heitur hádegismatur, tví- og þríréttaður ásamt kaffi. Kostnaður á mánuði er nú rúmar 4.000 krónur, en innifalið í honum er akstursþjónustan, hádegismatur, kaffi, leiðbeining og kennsla f félags- og tóm- stundastarfi o.fl. 30—35 manns geta notið dag- vistar hverju sinni og dveljast þátttakendur alla daga vikunn- ar, þ.e. virka daga, á staðnum. Oftast nær hefur verið unnt að sinna eftirspurn með tiltölulega litlum biðtíma og dvalartfmi er mismunandi og fer eftir mati hverju sinni. Umsóknareyðublöð fást hjá Þjónustuibúðum aldraðra við Dalbraut. Forstöðumaður Þjón- ustuíbúðanna er Róbert Sigurðs- son en forstöðumaður dagvistar er Karen Eiríksdóttir, hjúkrun- arfræðingur, sími 85798.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.