Morgunblaðið - 15.11.1984, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 15.11.1984, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1984 19 við og skoða mikilfenglegt lista- verkið. Jón Gunnar Árnason átti í nokkrum útistöðum við borgar- verkfræðinginn, er hann vildi setja fram sitt tillegg til sýningar- innar, vegna ákvæða um bann við breytingum á götulagningu. Þó eru listaverk hans langfyrirferð- arminnst og prýða nú alla sýn- ingarstaði hinna þátttakendanna. Eru þau litlir speglar á stærð við krónupening og fylgir þeim þessi formáli listamannsins: „Þegar þú ferð niður í bæ, horfir þú næstum alltaf niður á gangstéttina eða á götuna. Bærinn, götur og vegir eru úr steinsteypu og við fáum sjaldan auga á himninum. Þess vegna er eðlilegast fyrir mig að setja svolít- inn spegil á götuna til þess að þú megir sjá þann himin, sem þú annars sérð næstum aldrei." Jón Gunnar lagði spegla sína í örlitla steinsteypu á torgin „som den frie, islandske mand han er“, eins og Peter Poulsen skrifar i vikulegum helgarþætti sínum f Politiken. Svo að nú færð þú, hver sem þú ert, kveðju hans í þessum litla kringlótta geisla, sem minnir á fegurð himinsins, segir Poulsen ennfremur. Jón Gunnar Árnason er mörgum kunnur hér í borg eftir tveggja ára kennslu við Konung- legu listaakademíuna. Rúrí og Jón Gunnar er óþarft að kynna fyrir lesendum heima. Þau segja í viðtali, að samstarf nor- rænu listamannanna hafi verið mjög ánægjulegt og gefið góða raun og hafi allar sýningarnar stuðlað mjög að kynnum og sam- skiptum listamanna á Norður- löndunum. Sumir þátttakendanna eru þekktir í sínu heimalandi, aðr- ir eru byrjendur, en fást allir við svipaðar hugmyndir. Að sjálf- sögðu taka ekki sömu listamenn þátt hverju sinni, enda nauðsyn- legt að sem flestir fái tækifæri til að spreyta sig. Greinilegt er, að framhald verður á þessari sam- veru og sýningum, enda þó nokkur reynsla komin á eftir þessi 4 ár. Umhverfislist eins og sú, sem hér um ræðir, mun ekki til á sama hátt annars staðar, enda náttúru- tengsl Norðurlandabúa mikil og þeim því eðlilegt að vinna með náttúruleg efni. Norrænar þjóðir geta gefið öðrum þjóðum mörg góð fordæmi, og er varla um slíkt samstarf listamanna að ræöa ann- ars staðar, sögðu þau að lokum. — Sýningin hefur verið framlengd til 16. september. G.L.Ásg. Aflahæsta sveit karla. Á myndinni eru talið frá vinstri: Bjarki Arngrímsson, Andri P. Sveinsson, Rúnar H. Sigmundsson og Páll A. Pálsson. Akureyrarmót í sjóstangveiði — stærsti fiskurinn vó 6,36 kg AKUREYRARMÖTI í sjóstangveiði var haldið dagana 31. ágúst og 1. september sl. Helstu úrslit voru sem hér segir. Stærsta fiskinn veiddi Smári Sveinsson, þorsk sem vó 6,36 kg. Aflahæsti bátur mótsins, Hrönn, veiddi 77,42 kg. Kristinn H. Jó- hannsson veiddi flesta fiska, 165, en fiskarnir sem hann veiddi vógu alls 213,24 kg. Aflahæsta kona mótsins var Arndís Sigurðardóttir sem veiddi 147,94 kg af fiski og aflahæsti unglingur mótsins var Mikael Traustason með 111,98 kg af fiski. Aflahæstu sveit karla skipuðu Rúnar H. Sigmundsson, Páll A. Pálsson, Andri P. Sveinsson og Bjarki Árngrímsson með 499 fiska sem vógu 642,8 kg. í aflahæstu sveit kvenna voru Aðalbjörg Bern- ódusdóttir, Þóra Bernódusdóttir, Arndís Sigurðardóttir og Freyja Aflahæsta sveit kvenna. Á myndinni eru talið frá vinstri: Freyja Önundar- dóttir, Þóra Bernódusdóttir, Arndís Sigurðardóttir og Aðalbjörg Bernódus- dóttir. Önundardóttir með 352 fiska sem reyndust vega 462,2 kg. Aflakóngur mótsins, Kristinn H. Jó- hannsson. Plaslmo^J þakrennur hefðu þolað frostaveturinn mikla 1918 í norðlægari löndum hefur PLASTMO sannað ágæti sitt þrátt fyrir harða veðráttu. PLASTMO þakrennur þola sjávarseltu, loftmengun, hörð frost og veðrabreytingar því plastþakrennurnar vinna með veðrinu, dragast saman og þenjast út eftir aðstæðum. PLASTMO rennurnar eru fáanlegar í 4 litum. Rennur, rör og tengistykki eru öll úr sama óbrjótandi efninu og samsetning er einföld og þægileg. Ekkert viðhald. PLASTMO = þakrennur og fylgihlutir með 10 ára ábyrgð. EB. BYGGINGAVÖKUR HF Nethyl 2, Ártúnsholti, Sími 687447 og Suðurlandsbraut 4, Sími 33331 Beðizt afsökunar ÞAU leiðu mistök urðu í Morg- unblaðinu í gær, að þakkarávarp frá Vilborgu Benediktsdóttur og Guðmundi Árna Hjaltasyni vegna stuðnings við utanför lít- illar dóttur þeirra, Ástu Krist- ínar, til lækninga, var birt með dánarauglýsingum. Þessi mistök urðu vegna nýrrar tölvutækni, sem verið er að taka í notkun þessa dagana á auglýsingadeild blaðsins. Morgunblaðið biður litlu stúlkuna og foreldra hennar af- sökunar á þessum mistökum og lætur í ljósi óskir um góðan bata henni til handa. Við undirrituð fœrum öllum þeim fjölmörgu einstaklingum, fyrirtœkj- um og félagasamtökum sem stutt hafa okkur til utanfarar með litlu dóttur okkar, Ástu Kristínu, okkar innilegstu þakkir. Sérstakar þakkir færum við lœknum og starfsfólki barnadeildar Landakotsspítalans fyrir einstaka umhyggju og ástúð í veikindum hennar. Vilborg Benediktsdóttir, Guðmundur Árni Hjaltason. LISTASAFN Einars Jónssonar Listasafn Einars Jónssonar hefur látið gera afsteyp- ur af höggmynd Einars Jónssonar, Ung móðir, sem hann gerði árið 1905. Myndin verður til sölu í Lista- safni Einars Jónssonar frá og með fimmtudeginum 15. nóv. til og með laugardeginum 17. nóv. kl. 16—19. Inngangur er í safnið frá Freyjugötu. Nánari upplýs- ingar eru veittar í síma safnsins, 13797, kl. 9—17 daglega.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.