Morgunblaðið - 15.11.1984, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1984
21
skrifa stafi, sem líta kannski
þokkaiega út prentaðir, en henta
engan veginn eiginleikum manns-
handarinnar.
Mér þykir sú ákvörðun mennta-
málaráðuneytisins, að nota for-
skrift Alfreds Fairbank, sérstak-
lega gleðileg. Maðurinn var stór-
kostlegur skrifari. En það sem ég
held að forskrift hans hafi umfram
aðrar er hversu vel henni tekst að
fara meðalveginn. Hún hentar öll-
um,“ voru lokaorð dr. Gunnlaugs
Briem í þessu spjalli.
Rætt við þrjá
kennara á endur-
menntunar-
námskeiði
Bíðum með
óþreyju eftir
að skriftar-
kennsla verði
samræmd
Ólafur R. Þorvarðarson, kennari í
grunnskólanum f Grindavfk, Ás-
mundur Kristjínsson, kennari f
Laugalækjarskóla, og Ólafur Jóns-
son, kennari í Laugarnesskóla, voru
meðal þátttakenda i nimskeiðinu,
sem greint er fri hér að framan.
Kváðust þeir ákaflega ánægðir
með námskeiðið. „Það er skemmti-
legt og með eindæmum fróðlegt,"
sagði einn þeirra og hinir tóku f
sama streng.
Sögðust þeir félagar sérstaklega
ánægðir með fyrirlestra dr.
Gunnlaugs Briem um þróun
skriftarinnar og aðspurðir um
hvort þeir tækju oft þátt í þeim
endurmenntunarnámskeiðum sem
í boði væru, sögðust þeir alltaf
fara af og til, en oftar en ekki væri
fjöldi þátttakenda takmarkaður
og námskeiðin miðuð við að ekki
fleiri en einn kennari frá hverjum
skóla tæki þátt í hverju þeirra.
Þeir sögðu mikinn áhuga ríkja
almennt meðal kennara landsins á
endurmenntunarnámskeiðum og
varðandi þetta námskeið sögðust
þeir ekki eiga von á að byrjað yrði
að skrifa Italíuskriftina að ráði
fyrr en eftir um það bil fimm ár.
„En við bíðum með óþreyju eftir
því að skriftarkennslan verði sam-
ræmd í öllum skólum landsins,"
sögðu þeir ólafur Rúnar, Ás-
mundur og ólafur Jónsson að end-
ingu.
Þórir Sigurðsson
námsstjóri í mynd-
og handmennt
Megináhersla
lögð á hreyf-
ingakerfið
Á nimskeiðinu myndaðist hópur
kennara sem gagnrýndi aðstand-
endur nimskeiðsins mjög fyrir að
hafa ekki gefíð út nimsefni iður en
námskeiðið var haldið.
Á námskeiðinu var samþykkt
eftirfarandi ályktun, sem undir-
rituð var af 60 kennurum: „Kenn-
arar á skriftarnámskeiði í Æf-
ingaskóla KHÍ beina því til
nefndar þeirrar sem fer með mál-
efni skriftarkennslu á vegum
menntamálaráðuneytisins að
unnið verði að útgáfu á námsefni
Fairbanks eins og það kemur frá
hans hendi án áhrifa frá öðrum
þjóðum. Einnig að því verði beint
til Námsgagnastofnunar að hraða
sem kostur er allri útgáfu þessa
efnis.“
Þessi hópur bað dr. Gunnlaug
Briem að útbúa námsefni í ítölsku
skriftinni, sem hægt yrði að nota
við skriftarkennslu í vetur. Mun
Gunnlaugur hafa orðið við þeirri
bón og veitt skólunum leyfi sitt til
ótakmarkaðrar fjölföldunar á
kennslubók sinni í eitt ár. Björn
Björnsson skólastjóri grunnskóla
neðra stigs á Sauðárkróki, sem
rætt er við annars staðar í þessari
umfjöllun um skriftarkennslu, er
einn þeirra sem hyggst kenna eft-
ir kennslubók Gunnlaugs. Hann
segir: „Min persónulega aðild að
þessum hópi lýsir ekki vantrausti
á menntamálaráðuneytið né þann
starfshóp sem vinnur að gerð
námsefnisins. Hins vegar vil ég
hefja kennslu í ítðlsku skriftinni
strax og treysti mér ekki sjálfur
til að gera námsefni. Þess vegna
leitaði ég ásamt öðrum kennurum
til Gunnlaugs Briem varðandi
kennslugögnin. Hann lýsti sig
reiðubúinn að vinna þau og hafa
þau til áður en skólarnir færu af
stað, en Námsgagnastofnun sér
sér ekki fært að hafa námsefnið
tilbúið fyrr en um áramót að því
er mér skilst.
Þórir Sigurðsson er námsstjóri
í mynd- og handmennt. Hann hef-
ur kynnt sér námsefni f ítalskri
skrift frá nágrannalöndunum og
víðar og vinnur nú í starfshópi
sem er að hanna námsefni í skrift
fyrir fyrstu bekki íslenskra
grunnskóla. Hann sagði f samtali
við blaðamann Mbl. að námsefnið
yrði unnið út frá skriftar- og
kennslukerfi Bretans Alfred Fair-
bank sem nefndir á vegum
menntamálaráðuneytisins hefðu
mælt með. Megináherslan í náms-
efninu, segir Þórir, verður lögð á
að kenna yngstu börnunum hreyf-
ingakerfið sem ítalska skriftin
hyggir á. Þórir benti á að skriftin
ætti ekki að vera eingöngu kennd
í sérstökum skriftartímum heldur
ættu kennarar ætíð að leggja
áherslu á skrift og góðan frágang
verkefna í hinum ýmsu náms-
greinum.
Varðandi kennslugögn f ftölsku
skriftinni hafði Þórir þetta að
segja: „Endanlega ákvörðun um
val á skriftarkerfi sem kennd
skyldi f íslenskum grunnskólum
var gerð fyrir um það bil ári. Af
ýmsum orsökum hefur útgáfa
byrjunarnámsefnis dregist, en nú
er svo komið að kennaraleiðbein-
ingar í skrift eru væntanlegar um
mánaðamótin september-október
og nemendaefni fyrir yngstu
bekki grunnskólans nokkru síðar.
Að gerð þessa námsefnis vinna
auk mín þau Kristbjörg Eðvalds-
dóttir og Björgvin Jósteinsson,
sem bæði hafa mikla reynslu sem
skriftarkennarar. Þetta námsefni
verður eðlilega byggt á skriftar-
kerfi Alfreds Fairbank."
Guðmundur B.
Kristmundsson
námsstjóri í
íslensku
Stúlkur
skrifa al-
mennt betur
en drengir
„Það má segja að upphafíð að
fyrirhugaðri breytingu á skriftar-
kennslu hafí átt sér stað úti í skólun-
um. Kennarar voru óánægðir með þá
skrift sem kennd hefur verið og voru
margir hverjir farnir að kenna sam-
kvæmt eigin skriftarkerfi," sagði
Guðmundur B. Kristmundsson
námsstjóri í íslensku er blaðamaður
Mbl. ræddi við hann, en skriftar-
kennsla í grunnskólum fellur undir
námsstjórn í íslensku.
Aðspurður um námsefni og
hvers vegna það hefði ekki verið
tilbúið áður en endurmenntunar-
námskeið í skriftarkennslu var
haldið sagði Guðmundur: „Nám-
skeið verður að ákveða með um
það bil árs fyrirvara. Svo var einn-
ig með þetta námskeið. Við vonuð-
umst til að námsefnið yrði tilbúið
fyrir námskeiðið. Sú von brást, því
miður. Ástæður þessa eru sjálf-
sagt mýmargar. Meðal annars fór
verkið seinna af stað en ætlað var
og undirbúningsvinnan varð mun
meiri en búist var við. Námsefni í
skrift krefst mikillar yfirlegu og
nákvæmni.
Guðmundur sagði að á síðasta
ári hefði skrift barna í 7. og 9.
bekk verið athuguð. Helstu niður-
stöður voru þær, segir Guðmund-
ur, að mjög fá börn skrifa ólæsi-
lega skrift í orðsins fyllstu
merkingu. Hins vegar skortir
samræmi i skrift meiri hluta
barnanna. Þá kom í ljós að stúlkur
skrifa almennt mun betur en
drengir og þegar við gerðum okkur
það ljóst vaknaði sú spurning
hvort eitthvað í uppeldi stúlkna
leiddi til þroskaðri finhreyfinga
og þar með betri skriftar. Þetta
vekur einnig til umhugsunar um
hvort við verðum ekki að leggja
mun meiri rækt við að þjálfa
fínhreyfingar yngstu barnanna,
sagði Guðmundur B. Kristmunds-
son námsstjóri að lokum.
Björn Björnsson
skólastjóri Grunn-
skóla neðra stigs
á Sauðárkróki
Skriftarmál
hér á landi
í ólestri
„Skriftarkennslan hér á landi er í
ólestri og þó að við fáum ákveðnar
upplýsingar á þessu námskeiði og
leiðbeiningar um skrift, eru okkur
ekki gefnar neinar ákveðnar línur í
því sambandi. Við verðum að geta
farið afdráttarlaust eftir ákveðnu
kennslumynstri, til að bæta úr þess-
um ólestri," sagði Björn Björnsson,
skólastjóri neðra stigs grunnskóla á
Sauðárkróki, sem var meðal þátttak-
enda á endurmenntunarnámskeið-
inu í skriftarkennslu.
Björn sagði Ítalíuskriftina góða
skrift og námskeiðið 1 sjálfu sér
gott, en það eina sem hann gagn-
rýndi væri skortur á kennsluað-
ferðum sem kennarar gætu af-
dráttarlaust fylgt. Varðandi
kennslugögn i skrift sagði Björn
að þau væru bágborin og að til-
finnanlega vantaði betra og meira
úrval kennslugagna.
Ólafur Jónsson, Ásmundur Kristjánsson og ólafur Rúnar Þorvarðarson.
VfNWQOOj
„CHEr-inn" er allt
miklu me
en veryuleg hrærivél
Kynniö ykkur kosti hennar og notkunar
K möguleika
K KENWOOD CHEE er til í tveimur litum. K
K Innifaiið i kaupunum er: þeytari, K
K hrærari, hnoöari, grænmetis- og ávaxta- K
K kvörn, plasthlíf yfir skál. k
Ávallt er fyririiggjandi úrval aukahluta,
svo sem: hakkavél, grænmetisrifjá:
m- grænmetis- og ávaxtapressa, kartö
hýöari, dósahnífur ofl.
Eldhússtörfin verda leikur einn
meö KENWOOD CHEF.
Verd k
FTÆKJADEL
iiiiiiiiiiaiiiiitiiiSiiiiiiii
p m
K wm
Tjlf — TTfTTTT
IHHIIt 11 lllliTtmTfflffir fí:
I