Morgunblaðið - 15.11.1984, Síða 23
MORGUNBLAÐID, FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1984
23
talist færir. Þjálfa þarf upp
verktaka í svokallaðar
„drullu“-viðgerðir.
3. Breyta verður skipulagi við-
haldsverkefna þannig að verk-
stjórar hvers svæðis fái frjáls-
ari hendur. Á meðan komist er
út úr vítahringnum verði tæki
Vegagerðarinnar nýtt til hins
ýtrasta auk þess sem fela mætti
sveitarfélögum og eða verktök-
um viðhaldsverkefni samkvæmt
sérstökum samningi er tæki mið
af auknum verkefnum og betri
nýtingu tækja. Styrkja verður
verktaka í hverju héraði og nýta
tæki heimamanna í stað þess að
cinblína á útboð þó þau séu
meginregla við stærri verk.
4. Taka verður til endurskoðunar
yfirstjórn Vegagerðarinnar og
koma á formlegu kerfi sam-
skipta alþingismanna og sveit-
arstjórna við stjórnendur Vega-
gerðarinnar.
5.1 samgönguráðuneytinu verði
sett upp sérstök deild er fari
með málefni Vegagerðarinnar I
landinu og sjái um tengsl milli
Vegagerðar ríkisins, Alþingis og
sveitarstjórna. Deildinni stjórni
tæknimenntaður maður. Fram-
haldsskólum verði falin mennt-
unarmál vegagerðarmanna sem
er raunar langtíma verkefni.
Fjölbrautaskólinn á Akranesi
gæti t.d. tekið að sér það verk-
efni að mennta islenska vega-
gerðarmeistara.
Vegaáætlun verður
að breyta
Að framan hefur verið bent á
alvarlegt ástand vega á Snæfells-
nesi. öll rök hníga að því að þar
valdi fjármagnsskortur mestu og
á það sínar skýringar, fleiri en
skiptingarreglur Vegagerðarinn-
ar.
Engan hef ég hitt sem mælir nú
gegn framkvæmdum við Borgar-
fjarðarbrú. Svo rækilega hefur sú
framkvæmd sannað gildi sitt. í
öllum ályktunum frá þeim tíma
sem brúin var í byggingu stóðu
sveitarstjómarmenn í Vestur-
landskjördæmi saman við bak
þingmanna og lögðu áherslu á út-
vegun fjármagns. Það var gert
þrátt fyrir þá staðreynd að brúin
efni fyrir plastiðnað eða textíliðn-
að svo dæmi séu nefnd, en þær
framleiðslugreinar eru gifurlega
þurftarfrekar á lífræn hráefni til
vinnslunnar. Forsendur fyrir slík-
um iðnaði eru ódýr kolefnishrá-
efni í formi olíu, kola og náttúru-
legs gass (metan). í framtiðinni
verður tré og ýmsar jurtir svo og
jafnvel grasbitaskitur i vaxandi
mæli hráefni fyrir lifrænan efna-
iðnað. Langstærstur hluti afurða
lífræns efnaiðnaðar kemur nú úr
olíu. Má þar nefna plastefni,
gerviefni (textil), málningarefni,
sérhæfðir eldsneytisvökvar, ill-
gresiseyðingarefni, skordýraeitur,
kælimiðlar, frostlegir o.m.fl. Hrá-
efni eru yfirleitt fengin í olíu-
hreinsunarstöðvum eða beint úr
gasleiðslum.
Forsendur til slíkrar efna-
vinnslu eru nær engar á Islandi.
Einu kolefnishráefnin eru i mó og
surtarbrandi, sem verður vænt-
anlega mjög dýr i vinnslu. Mark-
aður hérlendis er mjög smár og
engin umtalsverð þekking er til.
Stóru iðnaðarþjóðirnar hafa nán-
ast allt, sem til þarf og áratuga
reynslu í þokkabót, fjölbreyttan
stuðningsiðnað af ýmsu tagi, stór-
an og fjölbreyttan heimamarkað,
áhættufjármagn, framkvæmda-
vilja og sérfræðinga i þúsundatali.
En eru engar forsendur hag-
stæðar á íslandi? Jú og þær tengj-
ast orku fyrst og fremst. Ýmis
sérhæfð efni væri ef til vill unnt
að framleiða á íslandi, en um þau
verður fjallað í næstu grein.
Dr. Jónas Bjarnason er efnaverk-
fræóingur og fyrrverandi forstjóri
Framleiðslueftirlits sjávarafurða.
Hann er nú deildarverkfræðingur
á Kannsóknastofnun fiskiðnaðar-
ins og er jafnframt útgáfustjóri
handhókar fiskvinnslunnar. Hann
hefur tekið þátt í störfum Rann-
sóknaráðs ríkisins um þróun á
ýmsum sviðum íslenzkra atvinnu-
mála á undanförnum árum.
var að mestu byggð fyrir fé af
hluta Vesturlands sem var mjög
óeðlilegt um svo stórt verkefni.
Hlaut það að koma niður á öðrum
mikilvægum verkefnum i kjör-
dæminu. En Snæfellingar létu
þann afleik i ákafanum um að
koma brúnni áfram óátalinn, enda
sannfærðir um, að til þess yrði lit-
ið þegar að þeim kæmi og vestur-
hluti kjördæmisins fengi næsta
sérverkefni. Það varð því mikið
áfall þegar Alþingi samþykkti
vegaáætlun 1983—1986 þar sem
sérverkefni Vesturlands eru fram-
kvæmdir i Holtavörðuheiöi.
Þessu veldur trúlega fernt, vilji
Vestfirðinga, sem ætla suður um
Holtavörðuheiði þegar þeir koma
af Steingrímsfjarðarheiði, fjöldi
Norðlendinga, áðurnefndar reikni-
forsendur „sérfræðinga" Vega-
gerðarinnar og andvaraleysi Vest-
lendinga.
Hér hafa orðið mistök. Snæfell-
ingar og Dalamenn áttu að fá
næsta sérverkefni. Það átti að
vera vegurinn vestur Mýrar og
vegurinn milli þorpanna á norðan-
verðu Snæfellsnesi auk þess sem
unnið væri að öðrum mikilvægum
verkefnum svo sem fjallvegum.
Þessu verður að breyta, auka
verður fjarveitingu til nýbygginga
á svæðinu og taka þær úr sjóði
sérverkefna og taka tillit til stað-
reynda um fjármögnun Borgar-
fjarðarbrúar á sínum tíma með
því að kjördæmið fái stærri hlut
en nú er.
Það skipulagslausa fálm sem nú
á sér stað í vegagerð á Snæfells-
nesi vegna fjármagnsskorts geng-
ur ekki, svo ekki sé talað um
dæmalausa úthlutun vegafjár úr
Byggðasjóði, en af því fékk Vest-
urland kr. 0. Um þá ráðstöfun
mætti skrifa aðra grein rökstudda
með tölfræði og tilvitnunum í til-
gang Byggðasjóðs.
Uppbygging vega á Snæfellsnesi
er mikilvægt verkefni sem m.a.
varðar þróun atvinnulífs á svæð-
inil. Framþróun atvinnuveganna
og velgengni hefur áhrif á þjóðar-
tekjur og þar með afkomu fólksins
á svæðinu.
Sturla Böðvarsson er sveitarstjóri í
Stvkkishólmi.
Sumt getur bara ekki
beðið jólanna
Bíddu ekki eftir sérstöku tækifæri til
að gefa einhverjum Parker. Penninn sjálfur er
sú ástæða sem þarf.
Við bjuggum hann til í einum tilgangi:
til að skrifa með; skrifa fallega.
Ekki svo að skilja að allt sé fyrirfram
sagt um pennana okkar. Parkergjöf hefur orðið
innblástur ótal ritgerða, snjallra athugasemda
og meistaralegra orðatiltækja. Það er engu líkara
en að hæfni leiði til hæfni.
Gefðu einhverjum svolítinn innblástur á
næstunni. Þiggjandinn mun aldrei gleyma hver
t PARKER