Morgunblaðið - 15.11.1984, Síða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1984
Sœrðist í árás
ísraelskur herlæknir og óbreyttir borgarar hjálpa manni sem særðist í arabískum strætisvagni skammt frí
hinum gamla hluta Jerúsalem. Vagninn varð fyrir flugskeyti og á miða sem fannst sagði á herbrezku að árásin
hefði verið gerð til að hefna tveggja gyðinga, sem Palestínumaður hafði myrt í Jerúsalem.
írskir blaðamenn
farast í flugslysi
Jeyington, 14. nóvember. AP.
Flugmaður og átta farþegar tveggja
hreyfla flugvélar af gerðinni Rock-
well Aerocommander, fórust er flug-
vélin (laug í fjallshlíð við suður-
strönd Bretlands er hún var á leið-
inni frá írlandi til Frakklands.
Hið versta veður var á
slysstaðnum, úrhellisrigning og
myrkvað vegna skýjaþykknis. Sást
til flugvélarinnar lágt yfir
baðstrandarbænum Eastbourne,
sem er í nágrenni slysstaðarins, og
virtist flugvélin eiga í örðugleik-
um.
f hópi farþega voru kunnir veit-
ingamenn frá Dyflinni og blaða-
menn tveggja systurblaða, The
Dublin Evening Herald og The Ir-
ish Times.
Voru þeir á leið til Frakklands
til að bragða á fyrstu framleiðslu
af Beaujolais-vínum þessa árs.
Hefur það verið árlegur viðburður
siðasta áratuginn og á heimleið-
inni er jafnan í farangrinum
nokkrar flöskur í árlega veizlu af
sama tilefni.
Blaðamennirnir, sem fórust,
voru Nial Hanley ritstjóri Even-
ing Herald, John Feeney dálka-
höfundur við Evening Herald,
Kevin Marrov dálkahöfundur,
fyrrum ritstjóri Dyflinnarblaðs-
ins Sunday World, og Tony Henn-
igan dagbókarritstjóri Irish Ind-
ependent.
„Clockwork Orange“-
stigamenn gómaðir
Rómarborg, 14. nÓTember. AP.
Lögreglustjórinn f Rómarborg
sagði í dag að lögreglunni hefði tek-
ist að hafa hendur í hári 30 félaga í
stigamannaflokki sem hefur tekið
sér til fyrirmyndar bófaflokk í
þekktri kvikmynd, „A Clockwork
Orange“. Samkvæmt lögreglustjóra
Ötrúlegur eiturlyfjafundur í Mexíkó:
Lögreglan brenndi 8.000 tonn af
eiturlyfjum og frelsaði 7.000 þræla
Mexíkóborg. 14. nÓTember. AP.
FJÖLDI lögreglu- og hermanna
hafa frelsað 7.000 þræla og jafn-
framt stöðvað einhverja um-
fangsmestu eiturlyfjaframleiðslu
sem um getur á fjalla- og eyði-
merkursvæðum Mexíkó nærri
landamærum þess við Texas. Þeg-
ar hafa yfírvöid lagt eld að 8.000
tonnum af maríuana, en giskað
hefur verið á, að það magn hefði
fært framleiðendunum 10 millj-
arða dollara í tekjur.
Eduardo Sanchez, talsmaður
lögreglunnar í Mexíkóborg,
sagði að lögregluaðgerðirnar
hefðu breyst í björgunaraðgerð-
Persaflóastríðið:
írakar með nýjar
friðarhugmyndir
D.AJul Í..L 14 AD
Baghdad, írak. 14. nÓTember. AP.
STJÓRNVÖLD í írak eru sögð
hafa áhuga á því að losna úr hinu
langvinna stríði við íran og hafa
lagt drög að friðarsáttmála, sem
vonast er til að íranir geti gengið
að.
Krónprins Kuwait, Saad
prins, upplýsti þetta eftir að
hafa farið í opinbera heimsókn
til írak og rætt þar við æðstu
ráðamenn, þar á meðal forset-
ann, Saddam Hussein. Við
brottförina frá írak sagði hann
frá friðarsáttmálanum og bætti
við: „Ég geri mér talsverðar
vonir um þessar hugmyndir."
Hann lýsti þeim þó ekki að
neinu marki, en gat þess að þær
Skák frestaö
MoskTu, 14. nÓTember. AP.
23. einvígisskák þeirra Anatolys
Karpov og Garys Kasparov í
heimsmeistaraeinvíginu í skák var
frestað í dag og var það gert að
beiðni heimsmeistarans, Karpovs.
Hann leiðir nú 4—0 og vantar tvo
vinninga. Hvert jafnteflið hefur
rekið annað að undanförnu og ein-
vigið dregist mjög á langinn af
þeim sökum þar sem jafntefli telj-
ast ekki.
yrðu ræddar nánar á fundi
Saudi Arabíu, Kuwait, Quatar,
Sameinuðu arabísku fursta-
dæmanna, Bahrain og Oman,
síðar í þessum mánuði.
ir, því forsprakkarnir á staðn-
um hefðu haft þúsundir manna
í prísund. Hafði vinnufólkinu
verið lofuð vinna við löglega
jarðyrkju, en þegar á hólminn
hefði verið komið hefði raunin
verið önnur. Fjöldi vopnaðra
varða voru á staðnum og fengu
verkamenn hvergi að fara, auk
þess sem aðbúnaði þeirra mætti
líkja við þann, sem finna mátti í
útrýmingarbúðum nasista í síð-
ari heimsstyrjöldinni.
Sanchez sagði ennfremur, að
140 manns hefðu gætt uppsker-
unnar, en hinir raunverulega
foringjar hefðu aldrei komið
nærri. Flestum hinna 140 tókst
að komast undan, aðeins 14
voru handteknir, en mikil leit er
nú gerð að þeim sem sluppu.
Sagði fulltrúinn auk þess, að
lögreglan hefði frétt af maríu-
anaekrunum fyrir um mánuði
síðan, en ekkert aðhafst fyrr en
nú vegna þess að vonir hefðu
staðið til að hægt væri að góma
forsprakkana. Sú von brást og
er ljóst varð hvernig farið var
með vinnufólkið var ekki stætt
á því að fresta aðgerðum
ganga 18 aðrir félagar enn lausir, en
þeirra er leitað.
Bófarnir náðust er lögreglan
gerði skipulega leit í nokkrum
borgarhverfum í Róm. Eru stiga-
mennirnir ákærðir fyrir að hafa
framið yfir 700 innbrot, einkum í
íbúðir stjórnmálamanna, lög-
manna, skemmtikrafta og iðnrek-
enda.
„Vinnubrögð þeirra minna mjög
á kvikmyndina „Clockwork
Orange“, þeir klæða sig líkt og í
myndinni, berja og limlesta hús-
ráðendur og nauðga oft kvenfólki
sem kann að vera fyrir í ránunum.
Að barsmíðum og nauðgunum
loknum láta þeir svo greipar sópa
og stela öllu steini léttara," sagði
lögreglustjórinn.
ERLENT
Risagreiðslur
fyrir Picasso-
pastelmyndir
New York, 14. DÓTember. AP.
MÁLVERK eftir meistara Pablo
Picasso var slegið á 4,29 milljónir
dollara i málverkauppboði í
„Christie’s“ í dag. Annað eftir Mo-
Frakkland:
Hjón myrtu 7 af
12 börnum sínum
Tnlle. I'nkkludi, 14. DÓTembtr. AP.
FRÖNSK hjón, Jean Pierre Leym-
arrie 45 ára og Rolande Leymarrie
32 ára hafa fengið fangelsisdóma
fyrir að hafa myrt 7 af 12 börnum
sínum. Hlaut fjölskyldufaðirinn 8
ára dóm, kona hans 5 ára skil-
orðsbundinn dóm. Ástæðurnar
sem hjónin gáfu voru að þau hefðu
ekki ráð á því að gefa svo stórri
fjölskyldu að borða.
Leymarrie-hjónin hafa búið
nærri fjallaþorpi litlu, La
Bonnefougie, í fjöllunum í Mið-
Frakklandi. Þau eiga tvö börn á
lífi, 11 og 13 ára, en þrjú stálpuð
börn þeirra hafa látist af slys-
förum. Þau gengu í hjónaband
árið 1968. Börnin sem hjónin
myrtu fæddust á árunum 1976 til
1983.
Fjölskyldufaðirinn kæfði þau
öll í fæðingu og gróf þau í haug
fyrir aftan litlu hlöðuna þeirra.
Það voru nágrannar sem bentu
yfirvöldum á að ekki væri allt
með felldu á Leymarrie-bænum.
Jean Pierre bar við að bú
þeirra gæti ekki séð fyrir einum
munni til viðbótar, slfk væri fá-
tæktin. Hann sagði jafnframt að
þau hjónin hefðu verið ásátt um
morðin fyrirfram, en því and-
mælti móðirin. Aðspurð hvort
þau hefðu aldrei heyrt getið um
getnaðarvarnir, svaraði móðirin
neitandi, en faðirinn þagði.
digliani var slegið á 1,925 milljónir
dollara og alls voru 45 listaverk sleg-
in á 21,3 milljónir dollara.
Picasso-verkið, pastelmynd frá
árinu 1923, heitir: „Femme Assise
Au Chapeau" og var önnur tveggja
Picassoverka á uppboðinu. Þetta
er næst hæsta verð sem greitt hef-
ur verið fyrir Picassomynd á upp-
boði. Kaupandinn nú gaf ekki upp
nafn, en metið á sjálfsmynd sem
listamaðurinn gerði og seldist árið
1981 á 5,8 milljónir dollara. Hitt
Picassoverkið sem boðið var upp
var slegið á 1,925 milljónir doll-
Egyptar efla
flugher sinn
Kxiró, 14. nÓTember. AP.
EGYPTAR fá 40 nýjar F-16 orrustu-
þotur frá Bandaríkjunum í lok
næsta árs. Fengu Egyptar nýverið 80
flugvélar af þessu tagi frá
Bandaríkjamönnum.
Þá fá Egyptar í næsta mánuði
fyrstu Hawkey-eftirlitsflugvélina,
sem einnig er smfðuð i Bandarikj-
unum.
Er hvort tveggja hluti af hern-
aðaraðstoð, sem Bandaríkjamenn
ákváðu að veita Egyptum í kjölfar
friðarsamningsins við ísrael 1979.