Morgunblaðið - 15.11.1984, Qupperneq 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1984
Kartöfluverksmidjurnar
lækka franskar um 20 %
Verksmiðjan á Svalbaröseyri framleiðir á lager
Kartöfluverksmiðjurnar á Sval-
barðseyri og í Þykkvab* hafa Iskk-
að verð á frönskum kartöflum um
20% og verksmiðjan á Svalbarðseyri
hefur aukið afköstin um helming.
Verksmiðjurnar eru í harðri sam-
keppni við innfluttar vörur og eru
með þessu móti að reyna að koma
offramleiðslu landsmanna á kartöfl-
um í verð.
Verksmiðjan á Svalbarðseyri
framleiðir nú úr 15 til 16 tonnum
af kartöflum á sólarhring. „Við er-
um að reyna að bjarga verðmæt-
um með þvi að auka framleiðsl-
una, en á sama tíma neyðumst við
til að lækka verðið vegna harðrar
samkeppni við innfluttar vörur,“
sagði Karl Gunnlaugsson kaupfé-
lagsstjóri í samtali við blm. Mbl.
Karl sagði að verksmiðjan stæði
ekki undir að framleiða og selja á
þessu lága verði og ef að verðstríð-
ið héldi áfram sagði hann að það
hlyti að koma niður á lægra skila-
verði til kartöflubænda. Karl
sagði að salan væri dræm, hún
væri rétt að komast af stað eftir
verkfallið. Nú á verksmiðjan 70
eða 80 tonn af frönskum kartöfl-
um í frysti. Sagði Karl að gífur-
lega erfitt væri að vera með svo
mikið fjármagn bundið i birgðum
en kartöflurnar geymdust jafn-
góðar í marga mánuði. Aðspurður
um ástæður þess að innfluttu
kartöflurnar væru ódýrari þegar
hægt er að framleiða slíka vöru
hér sagðist Karl hafa heyrt að
mikil uppskera hefði verið í Evr-
ópu og markaðsverð hráefnisins
þvi lágt. Sagðist hann til dæmis
vita til að kartöfluverksmiðja f
Danmörku þyrfti ekki að greiða
nema 3 krónur íslenskar fyrir
kartöflukílóið á sama tíma og hrá-
efnisverðið hér væri 15,65 kr.
Friðrik Magnússon, fram-
kvæmdastjóri kartöfluverksmiðj-
unnar í Þykkvabæ, sagði í samtali
Þrír af hljóðfæraleikurum Pax Vobis
Pax Vobis leik
ur á Borginni
HLJÓMSVEITIN Pax Vobis
heldur tónleika á Hótel Borg í
kvöld í tilefni að nýútkominni
plötu hennar. Hljómsveitina
skipa þeir Ásgeir Sæmundsson,
Skúli Sverrisson, Þorsteinn
Gunnarsson, Þorvaldur Þor-
valdsson og Þorsteinn Jónsson.
Hljómleikarnir hefjast klukk-
an 22. Þá má einnig geta þess að
hljómsveitin mun einnig leika í
Safarí á föstudag og laugardag.
BÓKAÚTGÁFAN Iðunn hefur sent
frá sér bókina Ja, þessi heimur, ver-
aldarsögu og reisubók Péturs Karls-
sonar Kidson. Þorgeir Þorgeirsson
skráði eftir frásögn Péturs sjálfs.
Pétur Karlsson Kidson, njósnari
Breta á íslandi á stríðsárunum og f
þorskastríðinu fyrra, fæddist á
Norður-Englandi en gerðist síðar
íslenskur ríkisborgari. Hann kom
fyrst til íslands á vegum breska
setuliðsins sem fáum mánuðum
fyrr hafið hernumið landið. í þess-
ari bók rekur Pétur lífshlaup sitt.
Segir hann fyrst frá uppvexti sín-
um, dvöl í Þýskalandi 1938 og því er
hann var kvaddur f herinn við byrj-
un stríðsins. Um langt skeið starf-
aði Pétur í bresku leyniþjónust-
unni, hafði það hlutverk að afla
upplýsinga sem utanríkisráðuneyt-
inu komu vel en lágu ekki altént á
lausu. Þetta var starf hans hér á
landi á hernámsárunum þar sem
hann fékk m.a. það verkefni að
fylgjast með ferðum þýskra njósn-
ara norður á Melrakkasléttu. Frá
íslandi fór Pétur skömmu eftir að
Bandaríkjamenn tóku við vörnum
Höfundarnafn
féll niður
NIÐUR féll höfundarnafn á inn-
lendum vettvangi, sem birtur var í
blaðinu í gær og fjallaði um Járn-
blendiverksmiðjuna á Grundar-
tanga. Höfundurinn er Stefán
Friðbjarnarson blaðamaður.
landsins og barst þá víða um lðnd.
Súes, Jerúsalem, Kairó, Róm, þetta
eru fáeinir áningarstaðir. Hann var
líka í Noregi þegar uppgjör við
þýsku nasistana fór þar fram. Síðan
dvaldist hann um skeið f Rússlandi
og hafði margháttuð kynni af
ofurvaldi sovéska kerfisins.
Pétur kom aftur til íslands á ör-
lagatímum þegar útfærsla land-
helginnar í tólf mllur stóð fyrir
dyrum.
í bókarauka er birt skýrsla frá
1945 um njósnir Þjóðverja á Islandi
og Grænlandi og koma þar fram
upplýsingar sem hingað til hafa
verið á fárra vitorði. — Bókin er
prentuð í Odda. Kápa hönnuð á
auglýsingastofu Ocavo.
(Úr fréttatilkynningu.)
-þessj
heimui
við blm. Mbl. að þar hefði verð
framleiðslunnar einnig verið
lækkað. Hinsvegar hefði ekki ver-
ið farið út i að framleiða á lager
en höfuðáherslan lögð á söluna,
enda hefði hún aukist að undan-
förnu. Sagði hann að samkeppni
við innflutning væri gifurlega
hörð og sagði að kartöflubændum
þætti það skjóta skökku við að
kartöflur væru eina landbúnað-
arfurðin, sem hömlulaust mætti
flytja inn. Friðrik sagði að í verk-
smiðunni væri framleitt úr um 8
tonnum af kartöflum á dag, en
sagði að nauðsynlegt hefði reynst
að lækka verð steikarkartafln-
anna til bænda vegna verðlækkun-
arinnar.
Páll Halldórsson hjá Ekta hf. á
Eyrarbakka, sem framleiðir kart-
öfluflögur og ýmsar aðrar
„snack-vörur", sagði að hingað til
hefði verksmiðjan eingöngu fram-
leitt vörur úr unnum innfluttum
kartöflum en nú væru þeir að
byrja með kartöfluflögur úr ís-
lenskum kartöflum. Sagði hann að
íslensku kartöflurnar virtust
henta vel til framleiðslunnar en
vandamál væri að fá þær rétt
geymdar. Sagði Páll að salan hefði
gengið vel og þessar vörur fengið
ótrúlega góðar viðtökur. Síðan í
ágúst, þegar verksmiðjan var
stofnuð, hafa selst 120 þúsund
pokar (70 gr.) af „snack-vörum".
Hofsá — nýtt
skip Hafskips
NÝJASTA kaupskip Hafskips hf.,
ms. Hofsá, kom til Reykjavíkur sl.
laugardag, með fullfermi frá Evr-
ópuhöfnum. Hofsá, sem er
sjöunda skip í kaupskipaflota fé-
lagsins, er smíðuð í Austurríki
1972, en skipið var keypt af kanad-
ísku skipafélagi.
Ms. Hofsá er 3.200 lestir og tek-
ur 183 gámaeiningar fulllestuð.
Áhöfnin, 12 manns, er íslenzk og
skipstjóri er Guðmundur Eyjólfs-
Með tilkomu nýja skipsins fer
ms. Hvítá, sem er spánskt leigu-
skip með spánska áhöfn, úr leigu
Hafskips hf. Ms. Hvitá lestar nú
vöru í Bandaríkjunum fyrir Haf-
skip hf. í síðasta sinn, en skipinu
verður skilað í byrjun næsta mán-
aðar.
Ms. Hofsá verður í áætlunar-
siglingum til Norðurlandahafna á
móti ms. Skaftá.
Miklar sveiflur
vinnuleysi sl. 2
í yfirliti vinnumálaskrifstofu félags-
málaráðuneytisins um atvinnuástand-
ið hér í september og október sl. kem-
ur m.a. fram að í septembermánuði
voru skráðir 11.600 atvinnuleysisdag-
ar eða færri en í nokkrum öðrum
mánuði ársins. Svarar þetta til þess að
540 manns hafi verið á atvinnuleys-
isskrá allan mánuðinn, sem er nánast
sama tala og í september i fyrra (530),
eða 0,4% af áætluðum mannafla.
í októbermánuði voru skráðir
rösklega 24 þúsund atvinnuleysis-
dagar á landinu öilu, en það jafn-
gildir því að 1.100 manns hafi verið
á atvinnuleysisskrá allan mánuðinn
eða 10% af áætluðum mannafla
samkvæmt spá Þjóðhagsstofnunar.
„Ja, þessi heimur“
Endurminningar Peturs Karlssonar Kidsons
Þungarokkstónleikar í Safarí
í at-
mánuði
Þetta er 10 þúsund dögum fleira en
skráðust í sama mánuði í fyrra.
Segir í yfirlitinu að ástæðurnar
fyrir þessari þróun, þar sem skráð
atvinnuleysi meira en tvöfaldaðist
milli mánaða, megi rekja til þeirra
erfiðleika sem útgerð og fiskvinnsla
hafa átt við að stríða. Þannig megi
rekja 75% af umræddri aukningu
eða 9.500 af 12.500 skráðum at-
vinnuleysisdögum til sjö staða á
landinu þ.e. Hafnarfjarðar, Akra-
ness, ólafsfjarðar, Seyðisfjarðar,
Eyrarbakka, Vestmannaeyja og
Keflavíkur, en þessir staðir voru
hver um sig með 1.000 til 3.500
skráða atvinnuleysisdaga í október
og ástæðurnar lengri eða skemmri
stöðvun fiskvinnslunnar.
Þá kemur fram í yfirlitinu að
fyrstu 10 mánuði ársins voru skráð-
ir 317 þúsund atvinnuleysisdagar á
landinu öllu eða að meðaltali 32
þúsund dagar í mánuði. Þetta jafn-
gildir því að tæplega 1.500 manns
hafi til jafnaðar verið á atvinnu-
leysisskrá eða 1,2% af mannafla á
vinnumarkaði. Á sama tímabili i
fyrra voru skráðir 234 þúsund at-
vinnuleysisdagar og hefur þeim því
fjölgað um 35% milli ára.
í KVÖLD verða þungarokkstón-
leikar í Safarí. Þar mun hljóm-
sveitin Pass leika eingöngu
frumsamið efni. Tónleikarnir
hefjast klukkan 22. Meðfylgjandi
mynd er af hljómsveitinni Pass.
Smygl fannst í tog-
aranum Arinbirni
TOLLVERÐIR I Reykjavfk fundu
mikið magn af áfengi um borð í togar-
anum Arinbirni RE 54 aðfaranótt
þriðjudagsins. Togarinn lagðist að
bryggju í Reykjavík á mánudagskvöld-
ið cftir að hafa selt afla í Cuxhaven f
V-Þýzkalandi. Um borð fundust 830
flöskur af áfengi; mest 1 líters flöskur
af 75% vodka, en einnig fundust um
borð um 130 flöskur af 96% spfra. Þá
fundust um borð 70 kassar af bjór,
vindlingar, þvottavél, bílaútvarp,
símar og 80 myndbönd og 5 mynd-
bandstæki.
Sjö skipverjar hafa viðurkennt að
eiga góssið, sem var falið á fjórum
stöðum í togaranum, í vél, lest, á
gangi í vistaverum skipverja og
milli þilja í einu herbergi. Þetta er
eitt umfangsmesta smyglmál sem
komið hefur upp um nokkurra ára
skeið.
Leiðrétting
I GREIN eftir sr. Bjartmar
Kristjánsson í Morgunblaðinu síð-
astliðinn þriðjudag hefur ártal f
annarri línu brenglazt í meðförum
blaðsins. I greininni segir, að
Syðra-Laugaland hafi með lögum
frá 1936 verið gert að prestssetri í
Grundarþingaprestakalli. Hið
rétta er að þetta var árið 1935.
Egilsstaðir:
Áskriftartónleikar
EgibHtaðuni, 12. nóvember.
AÐRIR áskriftartónleikar Tónlistarfé-
lags Fljótsdalshéraðs á þessu starfsári
voru haldnir í Valaskjálf á laugardag.
Þar komu fram þeir félagar, sr. Gunn-
ar Björnsson sellóleikari og David
Knowles pianóleikari.
Á efnisskránni voru verk eftir J.S.
Bach, Beethoven, Fr. Schubert og
Sigurð Egil Garöarsson — auk þess
sem þeir félagar léku aukalega verk
eftir Debussy og Brahms.
Áheyrendur fögnuðu listamönn-
unum vel — enda var samspil þeirra
með ágætum. Áheyrendur munu
hafa verið um 80 talsins og er það
orðin nokkuð vfs aðsókn að tónleik-
um hér.
í gær efndi Tónlistarfélagið svo til
árlegrar kaffisölu f Menntaskólan-
um á Egilsstöðum. Þar komu fram
ýmsir ungir og efnilegir heimamenn.
Formaður Tónlistarfélags Fljóts-
dalshéraðs er Bergur Sigurbjörns-
son. _ ólafur