Morgunblaðið - 15.11.1984, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1984
53
í Austurstræti
— eftir Hannes H.
Gissurarson
Ég rakst á gamlan kunningja í
Austurstræti á góðviðrisdegi núna
fyrir skömmu og tðk hann tali
eins og okkar Islendinga er siður.
Það var margt um manninn, úti-
markaðurinn í fullu fjöri og gatan
full af Ástum og Tótum eins og
þegar Tómas var uppi.
„Jæja,“ dæsti hann. „Ertu búinn
að frétta, hvað þessi hagfræðing-
ur, sem þeir komu með frá Banda-
ríkjunum, Friedman eða hvað
hann nú heitir, segir?“
„Ja, ég veit svona óljóst, hvaða
boðskap hann hefur að flytja,"
svaraði ég. „En var það nokkuð
sérstakt?"
„Heldur betur,“ svaraði kunn-
ingi minn, sem er gamall og gró-
inn framsóknarmaður. „Hann
sagði víst á fundinum, sem þeir
héldu með honum á Hótel Sögu, að
okkur væri nær að nota einhvern
annan gjaldmiðil en krónuna. ís-
land væri allt of lítið gjaldmið-
ilssvæði. Við ættum að leggja
niður Seðlabankann!"
„Sagði hann þetta, blessaður,"
svaraði ég. „Margt er nú vitlaus-
ara, verð ég að segja. Hvað höfum
við að gera við Seðlabanka með
mörg hundruð manns í vinnu og
sérstaka krónu?“
Nú varð kunningi minn hissa —
og meira en það: hann varð
stórhneykslaður. „Hvað höfum við
að gera við seðlabanka? Erum við
ekki sjálfstæð þjóð? Það þekkist
hvergi á byggðu bóli, að þjóð hafi
ekki sína eigin mynt.“
„Ertu nú alveg viss um það?“
sagði ég með hægð. „Ég man ekki
betur, þegar ég flaug hérna um
árið í gegnum Lúxemborg en Lúx-
emborgarar notuðu belglska
frankann. Þeir eru að vísu með
sinn eigin Lúxemborgarfranka, en
hann er jafngildur belgiska frank-
anum, svo að þeir komast í raun
og veru af án eigin seðlabanka og
gjaldmiðils. Og samt eru þeir fjöl-
mennari þjóð og líklega efnaðri en
við íslendingar. Er okkur eitthvað
vandaðra um en þeim? Og Færey-
ingar, grannar okkar, nota i raun-
inni dönsku krónuna."
Það kom dálítið á kunningja
minn, framsóknarmanninn þjóð-
rækna, og hann hugsaði sig um
smástund. Siðan sagði hann: „Já,
en krónan er tákn um sjálfstæði
okkar. Hún sýnir, að við stöndum
á eigin fótum. Sannur íslendingur
getur ekki lagt til, að krónan sé
lögð niður.“
Ég yppti öxlum. „Ég held, að
þeir lslendingar, sem einhverja
sómatilfinningu hafa, hljóti ein-
mitt að leggja til, að krónan sé
lögð niður. Fátt hefur satt að
segja verið þjóðinni meira til
skammar en meðferðin á krón-
unni. Hún er fyrir löngu orðin
handónýtur gjaldmiðill."
„Já, en núna höfum við Seðla-
banka, sem á að sjá um að fram-
leiða trausta peninga, en hann er
tiltðlulega nýr. Við verðum að
treysta því, að hann komi smám
saman lagi á þessi mál,“ svaraði
kunningi minn.
Ég gat ekki leynt því, að mér
þóttu þessar upplýsingar heldur
spaugilegar. „En kæri vinur!
Seðlabankinn hefur starfað frá
1961 eða í 23 ár. Hvort skyldi hafa
verið betra lag á peningamálunum
næstu 23 árin á undan stofnun
hans eða næstu 23 árin á eftir? Ég
þori að veðja heilli koniaksflösku
við þig um, að ástandið versnaði
heldur en batnaði, ef við berum
saman þessi tvö tímabil. Viltu
veðja?“
„Það þýðir ekkert fyrir þig að
beita svona brögðum," sagði kunn-
ingi minn, framsóknarmaðurinn.
„Auðvitað veðja ég ekki við þig,
allra síst eftir síðustu verðhækk-
anir á brjóstbirtunni. En eru þetta
ekki í rauninni rök fyrir að efla
Seðlabankann? Sýnir það ekki, að
við þurfum einmitt að gera meira
Hannes H. Gissurarson
og láta hendur standa fram úr
ermum?“
„Nei, nei, nei! Farðu nú ekki að
nota gamla bragðið úr ársskýrsl-
um allra opinberra stofnana,"
svaraði ég. „Þegar allt gengur illa,
þá er sagt, að auka þurfi fjárveit-
ingar og efla starfsemina. Þegar
allt gengur vel, þá er sagt, að
halda verði áfram á sömu braut,
auka þurfi fjárveitingar og efla
starfsemina. Þessar stofnanir
forðast eins og heitan eldinn að
lagður sé einhver efnislegur mæli-
kvarði á frammistöðu þeirra. Eini
efnislegi mælikvarðinn á frammi-
stöðu Seðlabanka er fólginn í töl-
um um verðbólgu. Og þær segja
sína sögu hér á landi.“
„En verðbólgan er allt öðrum
aðilum að kenna,“ sagði vinur
minn í afsökunartón. „Ríkis-
stjórnin lætur undan kröfum ým-
issa sérhagsmunahópa og skipar
síðan Seðlabankanum að prenta
peninga."
„En sérðu ekki, að með þessu
ertu í rauninni að segja, að Seðla-
bankinn sé óþarfur? Ef ríkis-
stjórnin tekur hvort sem er allar
þær ákvarðanir, sem máli skipta
um peningamál, þá þarf ekki ein-
hver stofnun að stimpla: „Sam-
þykkt!“ Og allra síst þarf 100—200
manns i dýrindis húsakynnum til
þess!“ svaraði ég að bragði.
Það var farið að síga í vin minn,
framsóknarmanninn. Hann undi
illa þessum athugasemdum, sem
rákust algerlega á gamlan og nýj-
an rétttrúnað hans. Það var líka
tekið að kólna í Austurstræti.
Hann sagði: „Ég er ekki viss um,
að ég nenni lengur að hlusta á
þetta tal. Hvað myndi gerast, ef
Seðlabankinn væri lagður niður og
Bandaríkjadalur gerður að lögleg-
um gjaldmiðli? Færi ekki allt í
einhverja vitleysu og ringulreið?“
„Það er í rauninni auðvelt að
segja fyrir um, hvað myndi í stór-
um dráttum gerast," sagði ég og
setti mig í stellingar. „Verðbólgan
hér myndi fara niður í það, sem
hún er í Bandaríkjunum. Þau
fyrirtæki, sem haldið er á floti
með ódýru lánsfé ríkisins, myndu
fara á hausinn, en önnur fyrir-
tæki, sem hafa eðlilegan rekstr-
argrundvöll, myndu blómstra.
„Reddingar" stjórnmálamanna
VERA
4. tbl. kom út
í september
VERA, málgagn kvenfrelsisbar-
áttu, 4. tbl. kom út í spetember sl.
í blaðinu er m.a. fjallað um vel-
ferðarmál og kjör kvenna, rætt við
Drude Dahlerup, stjórnmálafræð-
ing, um kvennabaráttu, ritað um
þá kvenímynd sem birtist í aug-
lýsingum og grein Kristínar Hall-
dórsdóttur um nauðgunarmál.
Útgefendur Veru eru Kvenna-
framboðið í Reykjavík og Samtök
um Kvennalista.
myndu hverfa, því að valdið í pen-
ingamálum væri ekki lengur í
þeirra höndum. Þetta vald væri
ekki lengur í landinu sjálfu. Við
gætum að vísu prentað okkar eigin
gjaldmiðil og jafnvel kallað hann
eitthvað annað en Bandaríkjadal,
tekið til dæmis upp mörk og eyri,
okkar fornu einingar, en það
breytti engu um, að peningar
okkar væru í rauninni utanaðkom-
andi stærð. Ástandið í peninga-
málunum yrði ekki ósvipað því,
sem það var fyrir fyrri heims-
styrjöldina hér á landi, þegar
íslandsbanki mátti gefa út seðla,
en aðeins í hlutfalli við gullforða
sinn. Seðlaútgáfan þá réðst af
gullforða bankans. Seðlaútgáfan
nú myndi ráðast af birgðum okkar
af Bandaríkjadölum."
Nú lifnaði aftur yfir vini mín-
um: Hann hafði fundið ný rök. „En
þá erum við aftur komnir að
kjarna málsins. Þetta brýtur í bág
við þjóðernistilfinningu okkar.
Hvers vegna eigum við íslend-
ingar, komnir af víkingum og
kóngum í ættir fram, að nota út-
lenda peninga, útlendar mæliein-
ingar á verðmæti?"
Eg var sjálfur að þreytast á
þessum samræðum, sem voru
komnar í hring, svo að ég ákvað að
binda enda á þær. „Að vísu notuðu
víkingarnir útlenda peninga, jafn-
vel rómverskt silfur, en það er
annað mál. Þú hefur rétt fyrir þér
um það, að peningar eru í rauninni
mælieiningar á verðmæti. Ég er
sannur íslendingur eins og þú og
Pétur þríhross og aðrir af þeirri
ætt, og þessi rök þín eru því að
mínum dómi sterk. Auðvitað eig-
um við ekki að nota útlendar
mælieiningar á verðmæti. Við
skulum þvl hafna hugmynd Fried-
mans, þótt hún kunni að vera
snjöll frá einhverju köldu, rök-
rænu sjónarmiði séð.“
Og ég hélt áfram: „En við af-
komendur víkinga eigum að ganga
feti framar en þetta. Hvers vegna
eigum við yfirleitt að nota útlend-
ar mælieiningar? Hvers vegna
eigum við til dæmis ekki að nota
íslenskar einingar yfir mál og vog,
sem þróast hafa i aldanna rás, í
staðinn fyrir metra, lftra og kíló-
grömm, sem eru ekkert annað en
franskar uppfinningar frá átjándu
öld? Af hverju notum við ekki
spönn, fet og alin og fleira gamalt
og gott? Nú tek ég þig á orðinu:
Við skulum stofna Þjóðernishreyf-
ingu Sannra íslendinga á Þing-
völlum og krefjast þess í ávarpi
þaðan til þjóðarinnar, að bannað
sé að nota útlendar mælieiningar!
Skundum á Þingvöll og treystum
vor heit!“
Vinur minn, framsóknarmaður-
inn, hlustaði á þessa tölu með
undrunarsvip. Hann var ekki viss
um, hvaða stefnu þessar samræð-
ur væru að taka, svo að hann flýtti
sér að kveðja, hálfvandræðalegur í
fasi. Og ég hraðaði mér inn á
Sölvhólsgötu, en þangað hafði
ferðinni verið heitið. Á leiðinni
gekk ég fram hjá hinu mikla húsi
Seðlabankans, sem er í smiðum
við Arnarhól. Það lagði skugga af
húsinu yfir götuna...
Forsíða blaösins VERU
Hjartanlega
velkomin
#X
|
v4iú-:
'4 f
JÍW
V
\ ? j -y W
V
V
j
fef f ! ©
if ,/í.
—nll ?
!! n
I
1. 1
H I) *
Hjá okkur er opið á hveiju kvöldi
Nýr sérréttaseðill
og fáguð þjónusta
tryggja ánægjulega kvöidstund
Borðapantanir í sima 11340
‘■#f
M
mt
ÁUSTURSTRÆTI22
INNSTRÆTI, SÍM111340
IjÍjjjFERÐA.
IM!I MIÐSTODIN
AÐALSTRÆTI 9 S. 28133