Morgunblaðið - 15.11.1984, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1984
59
lykkju á leið sína til að kyssa erki-
óvin sinnn Mubarak Egyptalands
forseta. Hagvöxtur í heiminum
tók stóran kipp á meðan á sam-
komunni stóð en tók að minnka
aftur strax daginn eftir að henni
lauk (graf I). Líkt og þegar slökkt
er á ljósaperu, hverfur frá henni
birtan. Verðbréfamarkaðir heims-
ins sýndu óvæntan vöxt (graf II).
Smitsjúkdómum fækkaði í Band-
aríkjunum (graf III). Alþjóðleg
samskipti bötnuðu milli þriðjungs
þjóða heims að risaveldunum
meðtöldum. Dauðaslysum fækkaði
um næstum helming í heiminum. I
Bandaríkjunum fjölgaði umsókn-
um um einkaleyfi á uppfinningum
um 15% frá því sem áætlað hafði
verið, sem sýnir vakna skapandi
greind með þjóðinni. Þannig
mætti endalaust telja. Meðan
heimurinn naut hins sæta keims
af Útópíu gengu öll mælanleg
meðaltöl yfir heiminn til betri
vegar en féllu í sama far og fyrr
jafn skjótt og samkomunni lauk
og fólkið hélt flest heim til fjöl-
skyldna sinna. (Síðan í október
1982 hafa um 1.500 manns flogið
að staðaldri kvölds og morgna í
MIU, USA, sjá þróun bandarísks
þjóðfélags og efnahags síðan.)
Nýjustu fréttir
Ekki fór á milli mála að heimur-
inn var sælli en venjulega. Það
endurspeglast vel í ummælum
þjóðarleiðtoga á meðan á Útópí-
unni stóð. Þeir kepptust hver um
annan að lýsa friðarást sinni og
Reagan svaraði því t.d. þegar
hann var spurður hvað hann vildi
helst í jólagjöf: „heimsfrið".
Um síðustu páska var haldin
2.000 manna samkoma í Júgóslav-
íu. Sá fjöldi dugir ekki til að hafa
áhrif á alla Evrópu. Þegar sú sam-
koma stóð komst aftur á nokkur
ró í Líbanon og mynduð var þjóð-
stjórn þar.
Þann 28. júní hófst svo 500
Sidha-samkoma á nýjan leik í
MIU, Iowa í Bandaríkjunum, og
lauk 14. júlí. Þessi fjöldi er varla
nægilegur til að áhrif samkom-
unnar umvefji alla jörðina. Þó
hurfu fréttir af átökum nær alveg
úr blöðunum þennan tíma og strax
á öðrum degi samkomunnar buðu
Rússar mjög óvænt Bandaríkja-
mönnum til geimvopnaviðræðna,
og Bandaríkjamenn svöruðu með
jái“ strax sama dag. Á þriðja degi
hennar var kominn friður í Beirút
og eftir tíu ára borgarastríð var í
alvöru hægt að tala um frið í Lí-
banon, þó ekki sé að vita hvað
verður þegar frá þessu hópefli
heimsvitundarinnar líður.
Á íslandi ríkti mesta blíðskap-
arveður í langan tíma og aðal-
^hyggjuefni manna var hvað ætti
að gera við alla tómatana sem
móðir náttúra gaf bændum þessa
daga. Gaman væri að hafa tölur
um fjölda slysa, banaslysa, inn-
brota, sjálfsmorða og fleira þessar
vikur á íslandi en þær hef ég ekki.
Einhver mætti taká þetta sem
ábendingu um að ná þessum tölum
saman. En nánar um allan heim-
inn seinna þegar tölfræðin fyrir
þessa síðustu samkomu liggur
fyrir.
ÞAR sem verkfollin og fleiri sam-
verkandi ástæður hafa orðið til að
gera þessa grein nokkru eldri við
birtingu en ég hefði kosið eru þau
tíðindí sem ég kynni sem nýjustu
fréttir það alls ekki lengur. Miklir
atburðir hafa ítt sér stað um allan
beim. Ekki færri en tíu þjóðir hafa
gengið að tilboði Maharishi að
skapa það andrúmsloft að ríkis-
stjórnir þeirra geti leyst vandamál
þjóðarinnar. Þar er efst á blaði rfkis-
stjórn Filippseyja. Þar eru þegar
þetta er skrifað 1200 kennarar tækn-
innar og er það þeirra hlutverk að
mynda tvo svona 7000 manna
Sidha-hópa og kenna um 100.000
manns „venjulega'* innhverfa íhug-
un. Um þetta mun ég birta grein
síðar ef færi gefst.
lielgi J. Hauksson er kennarí rið
Öldutúnsskóla í Hafnaríirði.
Efla ber sameiginlega yfir-
stiórn mjóikuriðnaðarins
DAGANA 31. okt. og 1. nóv. sl. var haldin á vegum Félagsriðs Osta- og Smjörsöl-
unnar, Stéttarsambands bænda og Framleiðsluráðs landbúnaöarins í Reykjavík
landsráöstefna mjólkurframleiðenda. Hana sátu 27 fulltrúar bænda frá 15 af þeim
17 mjólkursamlögum sem starfandi eru og auk þess sem gestir, allmargir mjólk-
urbússtjórar, ráðunautar Bf. íslands og aðrir sem tengjast þessum málum. í
upphafi ávarpaði landbúnaðarráðherra r
I máli hans kom fram að hann
taldi æskilegt að framleiðendur land-
búnaðarvara réðu sem mestu um það
sjálfir, hvernig framleiðslu búvara
væri háttað svo og öðru sem þá
snerti. Hann hvatti til aðhalds í fjár-
festingu og góðs skipulags i fram-
leiðslu og sölu búvara. Hann taldi að
islenskar mjólkurvörur hefðu unnið
sér þá viðurkenningu að þær stæðust
samanburð við það besta á því sviði.
Því næst fluttu eftirtaldir 9 menn
framsöguræður: Guðmundur Sig-
þórsson ræddi um framtíðarhorfur
mjólkurmarkaðarins, Árni Jónasson,
Haukur Halldórsson og Magnús Sig-
urðsson ræddu um stefnumörkun og
stjórn framleiðslumála og dr. Þor-
steinn Karlsson ræddi um samvinnu
og sameiningu vinnslustöðva. Þá
ræddi Pétur Sigurðsson um sölu-
skipulag mjólkurvara, Þórarinn
Sveinsson ræddi um verðlagningu og
Bjarni Guðmundsson ræddi um
endurskoðun laga um Framleiðslu-
ráð landbúnaðarins.
I upphafi umræðna greindi Reynir
Kristinsson, starfsmaður Hagvangs,
frá þvi starfi sem hann hefur unnið á
vegum Framleiðsluráðs að samningu
á bókhaldi mjólkursamlaganna og
gagnsemi sliks bókhalds fyrir stjórn-
endur þeirra.
Að umræðum loknum var fuli-
trúum skipt niður i 3 starfshópa til
að draga saman niðurstöður ráð-
stefnunnar, sem í meginatriðum voru
þessar:
1. Við endurskoðun laga um fram-
leiðsluráð landbúnaðarins verði
eftirtalin atriði höfð að leiðarljósi:
a) Tekjur bænda verði ekki siðri
en þær sem sambærilegar
stéttir þjóðfélagsins njóta.
b) Bændur fái sama verð fyrir
sömu vöru hvar sem er á land-
inu.
c) Neytendur fái mjólkurvörur á
sama verði um allt land og
njóti sambærilegs vöruvals
eftir því sem frekast verður
við komið.
d) Samtökum bænda verði sem
áður falir. stjórnun fram-
leiðslunnar og skipulagning
vinnslu og dreifingar mjólk-
urvara á heildsölustigi.
e) Samtök framleiðenda eigi
vinnslustöðvarnar og beri
ábyrgð á rekstri þeirra svo
sem verið hefur.
2. 1 ljósi ríkjandi ástands á heims-
markaði verður að fallast á að
framleiðsla mjólkur hérlendis
verði miðuð við innlenda markað-
inn. Þó verður ekki komist hjá ein-
hverri umframframleiðslu ef full-
nægja á þörfum landsmanna i
breytilegu árferði. Því telur ráð-
stefnan alls ekki rétt eða sann-
gjarnt að bændur gefi með öllu
eftir núverandi rétt sinn á stuðn-
ingi rikisvaldsins við útflutning
mjólkurvara.
3. Lögun mjólkurframleiðslunnar að
innlenda markaðnum eykur mjög
hættu á tímabundnum skorti á
vissum mjólkurafurðum í öllum
landshlutum og krefst því aukinn-
ar skipulagningar og samræm-
ingar. Slík skipulagning er einnig
nauðsynleg til að ná meiri hag-
kvæmni í mjólkurvinnslunni. Því
ber að efla sameiginlega yfirstjórn
mjólkuriðnaðarins undir forystu
Framleiðsluráðs.
4. Mjólkurframleiðendur hafa nú bú-
ið við framleiðslustjórnun eftir
búmarkskerfinu í 5 ár og hafa
reynst jákvæðir gagnvart henni.
Nú þarf að skilgreina nánar jarða-
búmark og setja reglur um svæða-
búmark, svo einstök héruð haldi
æskilegum svæðiskvóta þótt byggð
grisjist.
5. Afla þarf lagaheimildar til stöðl-
unar efnainnihalds neyslumjóikur
og skilgreina markmið kynbóta-
starfsins i því sambandi.
6. Efla þarf rannsóknir á fóðrun
mjólkurkúa með aukna hlutdeild
innlends fóðurs í huga.
7. Beitt verði hvetjandi aðgerðum til
að bændur jafni árstíðasveiflu i
mjólkurframleiðslu.
(FrétutUkjnnÍBg frá frimkvcmdi
nefnd mjólknrrátMtefnnnnar)
Ert þú samferða ?
Úrval vinnur nú að skipulagningu sérstakra ferða í tengslum við fjölda vörusýninga
sem haldnar verða víðs vegar um Evrópu á næstu mánuðum. Úrvai sér
viðskiptavinum sínum fyriröllum nauðsynlegum upplýsingum um sýningarnar sjáifar
og fyrsta flokks þjónustu í sambandi við ferðalagið, gistinguna og allan aðbúnað.
Næstu sýningar eru:
Buildings for billions Kaupmannahöfn
Int. furniture fair Köln
ISM - Int. sweets and biscuits fair Köln
International spring fair Birmingham
Domotechnica — int. fairfor
Household appl. and technical Kitchens Köln
Int. men's fashion week together
with int. Jeans fair Köln
Frankfurt fair Frankfurt
Scandinavian fashion week and
menswear fair Kaupmannahöfn
Int. trade fair
children & young people Köln
Leipzig spring fair Leipzig
British designer show London
The sea for all Norwegian Int. boat
and engine show Osló
GD5 - int. footwear fair Dusseldorf
Scan fair '85 Kaupmannahöfn
Hannover fair Hannover
Nordbag '85 - bakery fair '85 Kaupmannahöfn
Scandefa '85 - Scandinavian
dental fair Kaupmannahöfn
DRUPA Dusseldorf
Nor—Shippings Osló
Byggma—int. building exh. Malmö
World fishing exhibition Kaupmannahöfn
28/2- 3/3 '85
mars
10/3—16/3 '85
15/3-18/3 '85
12/1-20/1 ‘85
15/1-20/1 '85
27/1-31/1 '85
3/2- 7/2'85
6/2- 9/2 '85
12/2-21/2 '85
23/2-27/2 '85
15/3-24/3 '85
23/3-25/3 '85
23/3-26/3 '85
17/4-24/4 '85
18/4-22/4 '85
25/4-27/4 '85
2/5-15/5 '85
6/5-10/5 '85
7/5-10/5 '85
júní '85
i
i
<•