Morgunblaðið - 15.11.1984, Síða 63
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1984
63
ir voru og settu svip á samtíð sína
hér í bænum. Trúlega átti hann
eitt stærsta og sérstæðasta
myndasafn af gömlum myndum er
fyrirfinnast í einkaeign. Þorsteinn
hafði mikla ánægju af þessum tal-
andi og segjandi myndum sínum.
Hann tók okkur kaffifélagana
stundum í hugarskoðun: hvort við
þekktum staðar- eða mannamynd-
ir er hann átti í fórum sínum til
sönnunar um skarpskyggni manna
eða kölkun.
Knattspyrna var ein af hans
mörgu áhugamálum, enda einn
allra besti Víkingurinn er ég hef
kynnst. Eins og ég minntist hér á
að ofan fellur eplið aldrei langt
frá eikinni. Víkings-eldmóðurinn
gekk í ættir fram, fyrst hjá syni
Þorsteins, ólafi, síðan hjá dótt-
ursyni Þorsteins, syni Kristínar,
er hann var skrýddur nýsaumuð-
um Víkingsbúningi á eins árs af-
mælinu. Það hafa margir spurt
mig í gegnum árin hvað við félag-
arnir sem höfum verið nokkuð
margir í gegnum árin, sumir falln-
ir, aðrir á lífi, séum að gera á stof-
unni hjá Steina á hverjum morgni,
langt áður en venjulegur vinnu-
tími hefst. Hafa menn dregið ýms-
ar ályktanir, svo sem að þar fari
fram einhver leynistarfsemi. Haft
hefur verið í flimtingum að þar
fari Hulduher, framverðir og bak-
verðir Alberts miðherja Guð-
mundssonar. Því hann leit þar við
stundum eins og svo margir aðrir.
Mikið og gott mannaval tók þátt í
þessum morgunstundum á stof-
unni hjá Steina.
Menn úr öllum stéttum og
greinum þjóðfélagsins komu þang-
að, háir sem lágir. Þar var fjallað
um dægurmálin í léttum stíl ef svo
bar undir, þjóðmálunum og menn-
inpinni gerð skil. Umræðunni
stjórnaði Steini af sinni alkunnu
festu, enda veitti stundum ekki af.
Ekki gleymdist hin liðna tíð né
látnir vinir eða kunningjar.
Þingsalirnir í nærliggjandi húsi
gætu verið hreyknir af svo mál-
efnalegum umræðum er þar fóru
fram.
Að koma til Steina, hversu
dumbungslegt og hryssingslegt
sem utandyra var, fylltust menn
hlýju, sálarhlýju sem er grunnur-
inn að allri góðri mannrækt. Við,
vinir Þorsteins, erum fullir sakn-
aðar við missi þessa góða drengs.
Nú þurfum við ekki að skipuleggja
morgnana vel, sérstaklega þeir
eru fóru í sundlaugarnar fyrst áð-
ur en mætt var í Skólabrú og
mættu síðan á réttum tíma í
vinnu. Mynstur sem búið er að
vera í föstum skorðum í tugi ára
hefur nú raskast.
Skólabrúin með sínu tignarlega
umhverfi, Alþingishúsinu, Dóm-
kirkjunni, menntaskólanum, Frí-
kirkjunni, gamla iðnskólanum og
Iðnó ásamt Tjörninni, öll tign
gamla miðbæjarkjarnans, hlýtur
að hafa haft áhrif á lífsmynstur,
framkomu og gjörðir hins látna
vinar míns, Þorsteins ólafssonar.
Kvosin er fátækari í dag eins og
við. En Kvosinni fylgja ýmsir
annmarkar sem ráðast af náttúru-
öflunum, það er stórstreymið er
vindur blæs inn Flóann. Þorsteinn
vinur minn þurfti oft á stundum
að berjast við náttúröflin á öllum
tímum sólarhringsins. En aldrei
kom fyrir að ég heyrði hann form-
æla þessum höfuðskepnum, er þær
öngruðu hann hvað mest, þegar
sjór flæddi inn í húsið á stór-
straumsflóði. Fyrst f stað barðist
hann aðeins vopnaður fægiskúffu
og vatnsfötu við flóðið, en á þessu
varð bót síðar. Eftir að hann fékk
rafdrifna lensidælu má segja að
flóðahættunni hafi verið bægt frá.
Oft var þetta erfitt verk einkum í
svartasta skammdeginu. Ávallt
tók Steini þessu mótlæti með sínu
jafnaðargeði. Þetta væri svo,
svona ætti þetta að vera.
Ekki stóð Steini einn og óstudd-
ur í lífi sínu og starfi. Hann var
mikill gæfumaður, heilsteyptur
heimilisfaðir og á heimilinu hefur
ætið ríkt mikil samstaða og gagn-
kvæm virðing heimilisfólksins.
Það var mikil gæfa fyrir Steina
að eignast Löbbu fyrir lífsföru-
naut. Ekki einasta að búa honum
og börnum þeirra einstaklega
vinalegt og vistlegt heimili var
þessi vel gefna og bráðskemmti-
lega kona lífsakkeri hans. Barna-
lán segja menn stundum að sé eitt
hið mesta lífslán hverra foreldra.
Barnaláni eiga þau að fagna og því
stendur Labba ekki ein og óstudd
eftir hið sviplega fráfall síns
trygga eiginmanns.
Eg vil í nafni morgunvinanna
færa þér, Labba, Óla og Kristínu,
innilegar samúðarkveðjur, svo og
bræðum Steina, Stefáni og ólafi
og öðrum ættingjum.
Guð blessi ykkur öll.
Oddgeir Bárðarson
Það er eitt af því ánægjulega við
það að eiga heima í Reykjavík hve
hér er margt öðlinga. Einn í þeirra
hópi og með hinum mestu, sem ég
hef kynnst, var Þorsteinn ólafs-
son tannlæknir. Víkingur var
hann til verka og víkingshugsjón
átti hann. Sárt er til þess að hugsa
að nú er þessi öðlingur horfinn af
sjónarsviðinu langt fyrir aldur
fram. Við sem áttum því láni að
fagna að verða honum samferða
geymum myndina af óvenjulegum
persónuleika.
Kæra frú ólöf, megi Guð og
gæfan fylgja ykkur öllum og inni-
legar samúðarkveðjur.
Þorkell Valdimarsson
✓
£1
TOLEDO
VOGIR OG
VOGAKERFI
Niislos lil
BÍLDSHÖFÐA 10 - SÍMI 82655
Guðríöur Ólafs-
dóttir - Minning
Fædd 21. október 1919
Dáin 21. október 1984
Guðríður Ólafsdóttir, fæddist á
bænum Fagradal í Mýrdal, dóttir
hjónanna Sigrúnar Guðmunds-
dóttur og ólafs Jakobssonar. Þau
búa nú í Vík í hárri elli.
Guðríður ólst upp í föðurgarði
meðal 8 systkina, en réðist ung til
starfa í Vestmannaeyjum þar sem
hún kynntist eftirlifandi manni
sínum, Pétri Sigurðssyni.
Þau Pétur og Gugga, eins og
hún var jafnan kölluð, gengu f
hjónaband 24. des. 1942 og hófu
búskap. Börnin urðu 6; Erling,
Sigrún, Erla, Svana, Ingibjörg og
Guðrún, en auk þess ólu þau upp
Agnesi dótturdóttur sína. Börn
þeirra hjóna eru öll gift og afkom-
endahópurinn orðin stór.
Þau hjónin byrjuðu búskap í
Eyjum og bjuggu þar lengst af.
Pétur stundaði þá sjóinn og var
Gugga því oft ein með barnahóp-
inn t.d. þegar hann „var á síld“.
Ávöxt verka sinna, sem góð móðir
og traustur uppalandi, fékk hún
endurgoldinn i einstöku barnaláni
og nóg átti hún eftir af ástúð fyrir
barnabörnin sem mikið sóttu til
afa og ömmu.
Eftir „Eyjagosið" settust þau
hjónin að á Eyrarbakka og þá hóf-
ust kynni okkar þegar ég ásamt
móður minni og bróður fluttum
okkur um set og lentum í næsta
húsi við þau og Agnesi sem þá var
telpa. Strax fyrsta daginn eignuð-
ust þau í okkur hvert bein og
heimilin að Háeyrarvöllum 44 og
46 hafa verið eins og eitt heimili
sfðan.
Hjálpsemi, góðvild og ósérhlffni
mótuðu sterkan persónuleika
Guggu. Smáborgaralegur hugsun-
arháttur eins og rætni í garð
náungans voru henni vfðs fjarri.
Hún var húsmóðir af Guðs náð.
Heimilið bar þess jafnan fagurt
vitni að þar léku létt við lipra
fingur heimilisstörfin og handa-
vinnan. Gestrisnin var slik að hjá
þeim hjónum var alltaf standandi
veisluborð fyrir gesti sem gang-
andi.
Gugga tók oft að sér einhverja
aukavinnu með heimilinu og
vegna barnanna helst eitthvað
sem hún gat unnið heima við. Þó
Gugga væri vel til forystu fallin
var fjarri henni að ota sér fram til
slíkra starfa hún var ein af þeim
sem gekk í verkin og drjúgt var
framlag hennar til kvenfélagsins
„Líkn“ í Eyjum svo eitthvað sé
nefnt. Hún var fundvfs á þá sem
erfitt áttu og jafnan tilbúin til
hjálpar.
Með móður minni og Guggu
tókst einlæg vinátta og þau verða
aldrei talin handtökin sem hún
rétti okkur nágrönnunum og um-
hyggjuna sem hún sýndi aldraðri
móður minni getur Guð einn
endurgoldið henni.
Um síðustu áramót veiktist
Gugga mjög alvarlega af þeim
sjúkdómi sem dró hana til dauða.
í þeirri erfiðu baráttu var hún
borinn á höndum eiginmanns,
barna og tengdabarna. Hlé varð á
hinni erfiðu læknismeðferð í
sumar og var hún þá heima í
nokkrar vikur öllu nágrenni sínu
til gleði og blessunar. Dæturnar
önnuðust hana þá til skiptis af
einstakri natni og veittu föður sín-
um ómetanlega hjálp. Þær hafa
erft móðurhendur mömmunnar og
náð til að nota þær á sama hátt. Á
milli sjúkrahúsvista dvaldist hún
annars mest á heimili Erlu dóttur
sinnar en hjá þeim hjónum, Erlu
og Sigurði, var hún umvafin
traustum verndarfaðmi hvenær
sem hún þurfti með.
Það má segja að þar til yfir lauk
hafi Gugga legið margar bana-
legur en alltaf reis hún upp á milli
og maður gat einhvernveginn
aldrei trúað öðru en Gugga „hefði
það af“. Yrði manni á að aumkva
hana vegna vanlíðanar, var svarið
gjarnan, „það er einhver leti í mér
núna,“ en „leti“ var algert bannorð
í lífi hennar — svona svara hetjur
einar.
Á lækna sína og hjúkrunarfólk
minntist hún jafna með trausti og
þakklæti.
Einn „förunaut" átti Gugga f
þessu stríði sem ekki hefur enn
verið nefndur, það var „bænin“.
Hún óskaði eftir fyrirbænum ann-
arra og bað sjálf, ein og með öðr-
um. Þegar hún kvaddi þennan
heim var hjarta hennar fullt frið-
ar — Jesús Krists sonar hins
Hæsta. Hún dó, viðbúin kallinu.
Öllum aðstandendum Guðríðar
votta ég mína dýpstu samúð eink-
um öldruðum foreldrum hennar
sem hún var jafnan hin mesta
hjálparhella og eiginmanninum
sem hefur verið jafn æðrulaus og
þolgóður og klettur f þessari
þungbæru reynslu. Ég bið góðan
Guð að létta þeim ástvinamissinn.
Samhentur nágrannahópur á
Eyrarbakka saknar vinar f stað.
Við kveðjum öll hina látnu með
þðkk og virðingu.
Ársæll Þórðarson
TILKYNNIÐ ÞATTTOKU
í SÍMA 82930
SUÓRNUNARFÉLAG
k ÍSLANDS
Markmið: Þjónustufyrirtæki eru í raun mjög frábrugðin fram-
leiðslufyrirtækjum. Framleiðsla þeirra, „þjónustan", einkenn-
ist af því að vera óefnisleg og að framleiðsla, dreifing og notk-
un verður ekki aðskilin heldur sett saman sem þjónustuheild
sem viðskiptavinurinn upplifir. Stjórnun þjónustufyrirtækja
krefst þess vegna annarra viðhorfa, tækni og stefnu. Það
sama gildir um þjónustustjórnun framleiðslufyrirtækjanna.
Efni:
A námskeiðinu verður fjallað um eftirtalda málaflokka:
— Hugtakið þjónusta og þróun þess í þjóðfélaginu á síðustu
árum.
— Hvað er þjónustupakki?
— Þjónustukerfi og uppþygging þeirra.
— Stefnumörkun og þátttaka stjórnenda í þjónustusköpun.
— Þjónustukerfi I reynd (dæmi).
— Þjónustustoðir.
— Stjórnskipulag fyrirtækis, þróun þess og áhrif á þjónustu-
kerfið.
— Hópvinna o.fl.
Þátttakendur: Námskeið þetta er einkum ætlað stjórnendum
og þeim sem verða að marka stefnu og uppþyggingu þjón-
ustu í fyrirtækjum sínum. ennfremur er námskeiðið gott fyrir
þá sem bera ábyrgð á framkvæmd þjónustu og eru þátttak-
endur í umfjöllun stjórnenda þegar þjónustustefnan er mörk-
uð fyrir fyrirtækið.
Leiðbeinandi: Hjörtur Hjartar, rekstrarhagfræðingur. Hann
lauk prófi í kerfisfræði frá Tölvuskólanum í Álaborg og síðan
H.A. og Cand. Merc. prófi frá Háskólanum í Álaborg. Starfar
nú sem deildarstjóri hagdeildar Félags íslenskra iðnrekenda.
Tfmí: 19.—20. nóv«mb*r kl. 9.00—17.00.