Morgunblaðið - 15.11.1984, Page 65

Morgunblaðið - 15.11.1984, Page 65
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1984 65 Kristín Ingimars- dóttir — Minning Fædd 26. ágúst 1895 Dáin 3. september 1984 Þeim fækkar nú óðum sem fæddust fyrir og um aldamótin, þeim sem með ósérhlífni og nægjusemi lögðu grundvöllinn að því þjóðfélagi, sem við lifum í í dag. Ein af þessum hetjum hvers- dagslífsins var kvödd hinstu kveðju hinn 12. september sl. Kristín Ingimarsdóttir hét hún. Kristín fæddist á Þormóðsstöðum í Eyjafirði 26. ágúst 1895 og ólst upp á ýmsum bæjum í Eyjafirði, því ekki voru foreldrar hennar eigin húsbændur, heldur voru þau í vinnumennsku með börnin sem upp komust. Um tvítugsaldur lagði hún leið sína suður á land og var meðal annars í kaupavinnu f Flóanum þar sem hún kynntist eiginmanni sínum, Hjálmari Jónssyni frá Stokkseyri. Þau gengu í hjóna- band 1926 og bjuggu öll sín hjú- skaparár í Reykjavík. Sambúð þeirra var farsæl, þau eignuðust 4 börn, en þrjú þeirra lifa foreldra sína. Það hefur verið erfitt að sjá sér og sínum farborða á kreppuárun- um, stöðugur ótti við atvinnu- og húsnæðisleysi, en með þrautseigju og dugnaði sigruðust þau á erfið- leikunum. Hjálmar stundaði verkamannavinnu alla tíð, lengst af hjá Olíuverslun Islands, en þar starfaði hann um 35 ára skeið og naut þar virðingar jafnt sam- starfsmanna sem yfirmanna sakir afburða samviskusemi og dugnað- ar. Kristín lét ekki sitt eftir liggja, hún vann lengst af við sauma, bæði heima og heiman, enda var hún völundur hinn mesti og eru ófá listaverkin sem prýða heimili vina og vandamanna. Það var með ólíkindum hversu fim hún var með heklunálina og hvernig fram spruttu listilega gerðir blúndu- dúkar og aldrei sat hún auðum höndum meðan heilsan leyfði. Sú sem þessar línur ritar er svo lánsöm að hafa átt þessi elskulegu hjón að afa og ömmu. Þegar afi lést, 2. september 1977, var hans sárt saknað áf okkur öllum, þó einkum elsku ömmu, sem sá á bak lífsförunaut sínum eftir 51 árs óslitna samveru. En amma stóð ekki ein eftir, hún naut ástúðar barna sinna og afkomenda og bjó í skjóli elstu dóttur sinnar. Hún var heilsugóð lengst af, en síðustu 2 árin dvaldist hún á EUiheimilinu Grund, farin að heilsu og kröftum og þráði endurfundi við mann sinn. Hún gat yfirgefið þennan heim með góðri samvisku, hún hafði svo sannarlega lagt sitt af mörkum til þjóðfélagsins. Það sást best á um- hyggju barna hennar fyrir henni og þeim kærleika sem þau sýndu henni. Ég kveð ástfólgna ömmu mína með söknuði og þakklæti í hjarta fyrir það sem hún var mér og mín- um og bið henni blessunar guðs í nýjum heimkynnum. Kristín Árnadóttir Minning: Haukur Krist- insson, Núpi Fæddur 4. janúar 1901 Dáinn 23. október 1984 Það var ferskur blær þjóðernis- anda og ungmennafélagshreyf- ingar sem lék um Dýrafjörð um aldamótin síðustu. Á þeim tíma komu bræðurnir Kristinn og Sig- tryggur Guðlaugssynir norðan úr Eyjafirði og settust að á Núpi. Hugsjón þeirra var að rækta jörð- ina — rækta mannlifið. Samfélag- ið var fyrir öllu, einstaklingurinn var fyrir heildina. Sælla var að gefa en þiggja. Kristinn keypti jörðina Núp. Þar stofnaði séra Sigtryggur skóla og þjónaði Núps- kirkju og kirkjunum í grennd. Þessir menn lögðu fram sinn skerf til að hefja hátt merki menningarlífs í héraðinu. Næsta kynslóð bar það uppi í sama anda. Úr þessum jarðvegi var Haukur Kristinsson sprottinn. Haukur var fjórða barn Krist- ins Guðlaugssonar og konu hans, Rakelar Jónasdóttur. Elst var Unnur sem lést aðeins sjö ára gömul. Næst voru Sigtryggur búfræðingur og Hólmfríður kenn- ari sem bæði eru látin. Yngri börn þeirra hjóna eru Haraldur bóndi og smiður, býr í Reykjavík, Valdi- mar skipstjóri og bóndi á Núpi og systurnar Unnur, ólöf og Guðný allar búsettar í Reykjavík. Haukur fæddist á Núpi 4. janú- ar 1901. Á Núpsheimilinu var mikið sungið og leikið á hljóðfæri. Hauk- ur lærði á orgel hjá Hólmfríði systur sinni fimmtán ára gamall. Seinna var hann hluta úr vetri nemandi hjá Páli ísólfssyni. Námstíminn var stuttur eins og algengt var í þá daga en siðan tók sjálfsnámið við. Haukur miðlaði öðrum af kunnáttu sinni en hann kenndi á orgel allt frá 1922. Eftir tvo vetur í Alþýðuskólanum á Núpi hugði Haukur á frekara nám og fór í Kennaraskólann einn vet- ur en varð að hætta. Þá réðst hann í kaupmennsku I Mosfellssveit en fór síðan að Kalmanstungu í Borg- arfirði og vann við fjárgæslu hjá ólafi bónda þar og Stefáni og Kristófer sonum hans. Síðar á ævinni minntist. hann oft veru sinnar í Kalmanstungu. Eitt vor var hann á vitabátnum Hermóði en sjómennskan féll honum ekki. Leið Hauks lá svo til heimahag- anna aftur. Hann kenndi söng við Héraðsskólann á Núpi frá 1929 til 1943. Hann byrjaði búskap á hluta af Núpsjörðinni 1932 en síðar tóku hann og Valdimar við búinu öllu. Þeir bræðurnir voru ákaflega samhentir og smrýndir alla tíð. Á árunum 1930—1940 byggðu þeir íbúðarhús og peningshús á jörð- inni og sléttuðu og ræktuðu land- ið. Þeir keyptu jörðina Fjalla- Skaga í Dýrafirði og höfðu fé þar nokkur vor meðan á ræktun heimajarðarinnar stóð. Á miðjum aldri veiktist Haukur af lömunarveiki svonefndri Akur- eyrarveiki og náði sér aldrei fylli- lega eftir þann sjúkdóm. Hann var þó mjög afkastamikill við vinnu. Hann var mikið snyrtimenni og sérlega reglusamur. Vinnudagur bóndans er langur en oftast var sest við orgelið er einhver frístund gafst. Ég minnist þess er ég agn- arlítil hlustaði á bræðurna fjóra æfa kvartettsöng. Haukur spilaði undir á orgelið og söng sjálfur næstefstu rödd. Seinna kenndi hann mér að þekkja nóturnar. Töluvert lagasafn er til eftir hann í handriti. Árið 1945 tók Haukur við organ- istastarfi við Núpskirkju af föður sínum. Hann hafði mikil áhrif á allt sönglíf í sveitinni og vann að eflingu kórstarfs ásamt Guðjóni Davíðssyni organista í Mýra- kirkju. Voru kóræfingar haldnar einu sinni í viku, oft tvisvar og síðan sungið við ýmis tækifæri. Haukur lagði málefnum sveitar- innar lið á margan annan hátt en með söngstjórn. Hann var formað- ur sóknarnefndar yfir 30 ára tímabil og var eftirlitsmaður Núpskirkju frá því hann hóf bú- skap og til efri ára. Einnig var hann endurskoðandi reikninga Kaupfélags Dýrfirðinga um árabil svo og ritari í Ungmennafélagi Mýrahrepps. Eftirlifandi eiginkona Hauks er Vilborg Guðmundsdóttir ljósmóð- ir frá Hjarðardal. Þau eignuðust tvö börn, Guðmund og Margréti Rakel. Einnig tóku þau til fósturs Torfa Sigurðsson, bróðurson Vil- borgar. Mikil gestrisni var á heim- ili þeirra og oft mannmargt sér- staklega á sumrin. Alltaf var mik- ill samgangur milli heimila bræðranna. Mér eru í fersku minni aðfangadagskvöldin og gamlárskvöldin þegar báðar fjöl- skyldurnar voru saman komnar. Þá settist Haukur við orgelið og síðan var sungið lengi kvölds. En sorgin knúði dyra. Fyrst þegar bróðursonur Vilborgar, Ólafur Gíslason, sem dvaldist hjá þeim lést eftir slys og seinna er einkasonurinn, Guðmundur, og annar bróðursonur Vilborgar Halldór Þorsteinsson, létust einn- ig af slysförum árið 1969. Haukur bar sorg sína í hljóði og aldrei heyrðist æðruorð af vörum þeirra hjóna. Eftir að Haukur og Vilborg hættu búskap bjuggu þau á Þing- eyri að vetrinum en þar hefur Vilborg veitt forstöðu ellideild sjúkraskýlisins. Þau hafa þó alltaf dvalið heima á Núpi á sumrin. Síð- astliðið haust fluttust þau til ísa- fjarðar en þar býr Margrét dóttir þeirra sem gift er Sigurlaugi Bald- urssyni og eiga þau tvö börn, Guð- mund Hauk og Önnu Soffíu. í ferð sinni vestur að Núpi sl. haust sagði Haukur við Valdimar bróður sinn að hann vildi líta yfir allt enn einu sinni. Þetta varð hans síðasta ferð á heimaslóðir. Skömmu seinna lagðist hann inn á Sjúkrahús Isafjarðar og lést þar 23. október. Útför hans var gerð frá Núpskirkju 29. okt. að við- stöddu miklu fjölmenni. • Valdimar og Áslaug á Núpi líta nú yfir liðna tíð og þakka farsæla samfylgd og bróðurbörnin minn- ast allrar þeirrar umhyggju sem góður frændi veitti þeim. Ég og fjölskylda mín sendum innilegar samúðarkveðjur til Vilborgar, Margrétar og Torfa og fjölskyldna þeirra. Asta Valdimarsdóttir t Þökkum samúö og hlýhug viö andlát og útför UNU ELEFSEN. Foroldrar og syatkin. t Alúöarþakkir til allra þeirra sem vottuöu okkur samúö vlö fráfall móöur okkar og tengdamóöur, KRISTÍNAR INGIMARSDÓTTUR, og heiöruöu minningu hennar. Sérstakar þakkir til starfsfólks sjúkradeildar Elliheimilisins Grundar fyrir góöa umönnun. Anna Hjálmaradóttir, Baldvin Magnúsaon, Aöalsteinn Hjálmarsson, Margrét Arnadóttir, Guöbjörg Hjálmarsdóttir, Pátur Þorleifsson. t Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö viö fráfall móöur mlnnar, tengdamóöur, ömmu og langömmu, LÁRU THORARENSEN, Fannborg 1, Björn Helgason, Guörún Ólafsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Hjartans þakkir fyrir auösýnda samúö viö andlát og jaröarför MAGNÚSAR KRISTJÁNSSONAR frá Innra-Laiti. Syatkinin. t Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og útför eiginmanns mins, EINARS EINARSSONAR, Aöalstrœtí 76, Patreksfiröi. Ólafia Ólafsdóttir. t Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför eiginmanns mins, fööur okkar, tengdafööur, afa og langafa, CHARLES W.J. MAGNÚ8SON, Lambeyrarbraut 10, Eskifiröi. Helga Hjartardóttir, Reimar Charlesson, Björg Hjálmarsdóttír, Erla Charlesdóttir, Magnús Bjarnason, Anna M. Charlesdóttir, Reynir G. Hjálmtýsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Viö þökkum hjartanlega auösýnda samúö og vináttu viö andlát og jaröarför eiginmanns mins, föður, tengdafööur og afa, JÓNS ÁRNA KRISTINSSONAR, Öldugötu 33, Hafnarfiröi. Sigrföur Árnadóttir, Kristin I. Jónsdóttir, Baldur Sveinsson, Kristinn Fr. Jónsson, Edda Jóhannsdóttir, Ingibergur Gunnar Jónsson, Júlla Magnúsdóttir, Lilja Björk Jónsdóttir, Lárus Þór Jónsson og barnabörn. t Innilegar þakkir öllum nær og fjær sem velttu okkur hjálp og sýndu okkur hlýhug viö andlát og útför eiginmanns mlns og fööur okkar, STEFÁNS STEFÁNSSONAR fyrrverandi verslunarstjóra, Munkaþverárstræti 29, Akureyri. Sérstaklega færum viö læknum og starfsfólki Fjóröungssjúkrahúss- ins á Akureyri okkar innilegasta þakklætl. Guö blessi ykkur öll. Marla Adolfsdóttir, Friörik Adolf Stefánsaon, Stefán Már Stefánsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.