Morgunblaðið - 15.11.1984, Side 68
68
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1984
fclk í
fréttum
Frægðin skiptir
hana ekki máli
aðeins fjölskyldan
EINAR SVEINN
ÞÓRÐARSON
Dansar með
íslenska
dansflokknum
Einar Sveinn Þóröarson
balletdansari hefur verið er-
lendis undanfarin sex ár, fjögur
ár við nám í „School of Americ-
an ballet", en síðan tvö ár á
samningi hjá Pennsylvania ball-
et. Um þessar mundir dvelur
Einar hérlendis og fór blm. á
stúfana, hafði upp á honum og
grennslaðist fyrir um hvað hann
væri að gera.
„Ég kom hingað fyrir um það
bil ári og dansaði sem gestur í
sýningu íslenska dansflokksins
og var því þá stungið að mér að
koma og vinna með flokknum í
vetur," sagði Einar Sveinn. „Ég
var orðin nokkuð þreyttur á
dvölinni þarna vestra og ákvað
að slá til. Því sagði ég upp samn-
ingnum hjá Pennsylvania ballet
en hef þó möguleika á að fá
hann á ný ef mig fýsir aftur
vestur.
Einar Sveinn Þóröarson
balletdansari.
Vegna verkfallsins verða
miklar breytingar á verkefna-
skrá Þjóðleihússins, sýningar
falla niður og aðrar færast til.
Þetta hefur meðal annars það í
för með sér að íslenski dans-
flokkurinn fer ekki á sviðið fyrr
en í fyrsta lagi eftir áramót. 1
vor mun ég dansa Dafnis í
verkinu Dafnis og Klói, sem er
mjög spennandi verkefni. Auk
þess að vera með dansflokknum
kenni ég fjögur kvöld í viku og í
tómstundum mínum sæki ég
bókmenntatíma í HÍ.“
— Hvað er svo framundan?
„Mér finnst alltaf gott að vera
heima en fer líklegast út aftur.
Ég hef t.d. verið að kynna mér
ýmsa flokka í Evrópu. Stefnan
þar er að mínu mati mjög at-
hyglisverð, þar sem mikið er
lagt upp úr leikrænni túlkun í
dansinum, en Bandaríkjamennn
hafa litið framhjá henni að
miklu leyti að mér finnst. Þeir
einblína kannski of mikið á list
sem söluvöru og taka þess vegna
fyrir þannig verkefni.
Því verður ekki neitað að það
eru mikið viðbrigði að vinna hér
heima og aðallega vegna þess að
sýningar eru of fáar. Dansari
lærir mest á sviði og öðlast þar
sína reynslu. Á hinn bóginn er
alltaf búist við mjög miklu af
þeim sem læra og vinna erlendis
og því er best að standa sig.
Einnig gefst mér tækifæri til að
semja hér dansa en það er hlut-
ur sem ég gerði aldrei úti. Þá er
ánægjulegt að vinna að öðrum
leikhúsverkum jafnhliða ball-
ettinum s.s. söngleiknum Gæjar
og píur sem ég mun taka þátt í
þegar sýningar verða aftur
teknar upp í vor.“
Þótt Meryl Streep hafi verið
kjörin drottning Hollywood vill hún
helst ekki koma þangað
Nokkur útbreiddustu tímarit í
Bandaríkjunum voru nýlega
sammála um, að leikkonan Meryl
Streep væri hin nýja, ókrýnda
drottning Hollywood. Þau létu
þess hins vegar ekki getið, að Mer-
yl forðaðist Hollywood eins og
heitan eldinn og hefur margoft
sagt, að þar ætli hún aldrei að
búa. Fyrir henni er New York allt
og annars staðar vill hún ekki
vera.
Meryl Streep forðast ekki að-
eins Hollywood, heldur einnig allt
sem borgin stendur fyrir f hennar
augum, stjörnudýrkunina, glaum-
Inn og gleðina og vægðarlausa
samkeppnina. Hún kærir sig ekk-
ert um að frægðin geri henni
ókleift að lifa venjulegu lífi, ganga
um nágrennið, versla og sinna öðr-
um hversdagslegum hlutum án
þess að hafa á hælunum sæg af
forvitnu fólki og fréttamönnum.
Meryl hefur nú tekið sér árs frí
frá kvikmyndunum til að geta ver-
ið meira með börnum sínum,
Henry, sem er fimm ára og
Mamie, sem er eins árs, og manni
sínum, myndhöggvaranum Don
Gummer.
„Að eignast barn er það stór-
kostlegasta, sem getur komið fyrir
eina manneskju. Allt í einu sést
hvað skiptir máli í lífinu. Fjöl-
skyldan, börnin og makinn. Allt
annað hefur enga þýðingu," segir
Meryl Streep.
Don og Meryl hafa verið gift í
sex ár en þau hittust á þeim tíma í
lífi hennar, sem henni hefur verið
hvað erfiðastur. Frá 1976 hafði
hún búið með leikaranum John
Cazale, sem lék t.d. í „Guðföðurn-
um“ og „The Deer Hunter", en
skyndilega kom í ljós að hann var
með beinkrabba. Meryl var þá að
hefja feril sinn sem leikkona en
þrátt fyrir það hafnaði hún öllum
kvikmyndatilboðum í níu mánuði
til að geta verið með John, Hann
lést árið 1978 en síðustu tvo mán-
uðina bjó hún hjá honum á sjúkra-
húsinu.
„Ég hef ennþá ekki jafnað mig á
dauða Johns og vil það heldur
ekki. Lífið heldur þó áfram og
maður verður að læra að lifa með
minningunum þótt þær séu sárar,"
segir Meryl.
Meryl og maður hennar, Don,
reyna að lifa lifinu á eins eðlilegan
hátt og þeim er unnt. Þau búa í
Kínahverfinu á Manhattan og þar
getur hún farið allra sinna ferða
án þess að vekja of mikla eftirtekt.
Kínverjar eru líka mjög tillits-
samt og þeir eru kurteist fólk og
tala bara um Meryl sem „hvítu
konuna í uppgerðu versluninni“.
Hollendmgum
þykir krón-
prinsinn dýr
Don,
eigin-
maður
Meryl
Streep
r
iHoIlandi er kominn upp nokkur
®kurr meðal landsmanna um það
sem þeir kalla óráðsíu Beatrix
drottningar. Hefur hún varið miklu
fé í að gera upp hallir fjölskyldunn-
ar og sjá margir ofsjónum yfir upp-
hæðunum. Ekki er heldur mikil
ánægja með lífeyri krónprinsins,
sem þykir meiri en hollt er fyrir 17
ára gamlan ungling.
Nú nýlega var lokið við endur-
bætur og viðgerð á höllinni Noord-
einde í miðri Haag og hljóðaði
reikningurinn upp á 1200 millj. kr.
Williem Alexander
með Beatrix móður sinni.
ísl. Það þótti venjulegum skattborg-
uruum meira en nóg og ekki sist
vegna þess að fyrir aöeins einu ári
varð mikill hvellur út af viðgerð á
höllinni Huis ten Bosch, sem kost-
aði 240 millj. kr.
Hollenska konungsfjölskyldan er
einhver sú ríkasta í heimi og eignir
hennar metnar á 20 milljarða ísl.
kr. Hún á átta hallir í HoIIandi og
auk þess glæsileg hús i Austurriki
og á Ítalíu.
Ef Beatrix er ríkasta konan í
Hollandi er sonur hennar, Williem
Alexander, ríkasti táningurinn.
Hann er aðeins 17 ára en fær um 10
milljónir ísl. kr. I lífeyri árlega. í
fjárlögunum stendur, að mestur
hlutinn skuli fara f „heimilishald"
stráksins en hann býr hins vegar
heima hjá pabba og mömmu þar
sem líklega er ekki verið að telja
ofan í hann bitana.