Morgunblaðið - 15.11.1984, Qupperneq 75
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1984
75
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 11—12
FRÁ MÁNUDEGI
- TIL FÖSTUDAGS
^ um-,1 ir
Ein af eldri kynslóAinni skrifar:
Ágæti Velvakandi!
Það hefur oft verið um það rætt
og ritað, að unga fólkið sé betur
menntað og á allan hátt fróðara
en þeir sem eldri eru. Ekki skal ég
þræta fyrir það, en hitt er svo
annað mál hvort unga fólkið er
einhverju bættara. Það er nefni-
lega mjög áberandi, að á einu sviði
er unga fólkið mun verr sett en við
sem eldri erum. Þar á ég ekki við
fjárhag „verðbólgukynslóðarinn-
ar“, sem allir segja feikigóðan,
heldur á ég við almenn samskipti.
Unga fólkið í dag kann alls enga
mannasiði og það ástand fer sífellt
versnandi!
Nó eru sjálfsagt einhverjir
farnir að hugsa sem svo: „Jæja,
þetta er ein af þessum gömlu kerl-
ingum, sem finnst ekki borin
nægilega mikil virðing fyrir sér.“
En ég bendi þessu sama fólki á að
líta í kringum sig, því dæmin um
óforskammaða og ruddalega
framkomu ungs fólks eru mýmörg.
Ég get hér nefnt eitt. Ég var á ferð
með strætisvagni fyrir nokkru og
hugðist heimsækja dóttur mína,
sem býr í hverfi unga fólksins,
Breiðholtinu. Skömmu eftir að ég
var komin upp í vagninn, hófu
nokkrir unglingar að vera með há-
reysti og slagsmál. Loks féll einn
þeirra aftur fyrir sig og kom
harkalega niður á gamalli konu,
sem vissi ekki hvaðan á sig stóð
veðrið. Hún bað unglingana að
gæta að sér, en þeir hófu þá að
kalla hana öllum illum nöfnum,
nöfnum, sem aðrir hefðu ekki vit-
að að væru til. Bar þar mest á
klúryrðum ýmiss konar. Þetta
fékk mjög á konuna, en þegar
unglingarnir ætluðu að stíga út úr
vagninum, þá greip hún í hand-
legg eins þeirra og sagði, að hann
færi ekki út fyrr en hann hefði
beðist afsökunar. Piltur þessi
gerði sér þá líLð fyrir og sló til
konunnar, svo hún missti takið á
honum.
I framhaldi af þessu dæmi, sem
Sparnaður í
Háskólanum?
Laganemi, skrifar:
Ég stunda nám við Lagadeild
Háskóla íslands, en kennsla í
þeirri ágætu deild var skorin
niður um 20% í haust. Var þetta
sagt gert af sparnaðarástæðum.
En hver er sparnaðurinn, þegar
Háskóli fslands er með prófessora
á fullum launum, en þessir menn
birtast ekki til kennslu nema 4—5
tíma á hverju námsári. Það er t.d.
einn prófessor við mína deild, sem
aldrei sést við kennslu, hirðir
samt full laun og þar að auki er
ráðinn kennari til að annast þá
kennslu, sem prófessorinn ætti
með réttu að sjá um. Hvers vegna
er þetta ekki leiðrétt, í stað þess
að minnka kennslu?
Ein af eldri kynslóðinni er smeyk við að fara í strætisvagn, vegna óláta
unglinga í vögnunum.
Unga kynslóðin
er ókurteis
er aðeins eitt af mörgum sem ég
gæti nefnt, þá langar mig til að
spyrja, hvort vagnstjórar hafi
ekki vald til að fleygja svona lýð
út úr vögnunum. Geta ókurteisir
unglingar komist upp með að láta
öllum illum látum, án þess að
nokkur hreyfi legg né lið? Ég veit,
að eldra fólk þorir hreinlega ekki
að skipta sér af svona málum, en
mér finnst að aðrir farþegar og
ekki síst vagnstjórar ættu að gera
það. Það getur ekki verið látið við-
gangast, að yngri kynslóðin fái
óáreitt að koma fram með frekju
og yfirgang gagnvart þeim sem
eldri eru og hafa lagt grundvöllinn
að því góða lífi, sem þessir ungl-
ingar lifa núna. Það mætti gjarn-
an leggja á það meiri áherslu í
skólanámi unglinganna, hve erfitt
var að lifa hér á þessu landi áður
fyrr. Þá væri e.t.v. einhver von til
þess að unga fólkið sæi að sér og
lærði að meta það líf sem það á nú
kost á að lifa vegna gífurlegrar
vinnu og erfiðis undangenginna
kynslóða.
Léleg sjón-
varpsdagskrá
Ung stúlka skrifar:
Síðustu tvær helgar, þ.e. helgina
2.-4. nóvember og 9,—11. nóv-
ember, var ég svo ólánsöm að vera
veik og þurfti ég því að halda mig
heima við. Ég tek það fram að ég
fer yfirleitt á skemmtistaðinn
Traffic um helgar, eða skemmti
mér á einhvern annan hátt. Nú, ég
hugsaði sem svo, að ég yrði bara
að taka það rólega, fyrst ég var
veik, og ákvað að eyða kvöldunum
fyrir framan sjónvarpið. Ég sett-
ist því niður fyrir framan sjón-
varpið og beið spennt eftir að
fylgjast með dagskránni. En ég
átti eftir að verða fyrir svo mikl-
um vonbrigðum, því sjónvarpsefn-
ið var svo lélegt, að ekki var horf-
andi á það. Þessar tvær helgar
þurfti ég því að sitja heima með
sárt ennið og gat ekki einu sinni
stytt mér stundir við að horfa á
sjónvarpið. Ég ætla bara að vona
að þetta fari að skána, svo hægt sé
að eyða kvöldi heima hjá sér, ef
nauðsyn krefur.
Tvennskon-
ar bólga
Jón Helgason, vistmaður á Sól-
vangi, Hafnarfirði, yrkir:
Þegar ég var innantil við tekt
var tíðum svalt í norðanhörkubáli.
Kuldabólgan var þá víða þekkt
en verðbólgan ei til í okkar máli.
Um verðbólgu, í vítahring,
virðast flestir út á þekju.
En hún er augljós afleiðing
ágirndar og heimtufrekju.
Q2P S1G6A V/öGA £ AHVtRAW
Kjarakaup
Seljum mikiö úrval af útsaumi á stórlækkuöu veröi
t.d. rokokkostóla, púöabyrgöi, klukkustrengi,
stólsetur og píanóbekki. Einnig er hægt aö gera
góö kaup á gjafavörum og leikföngum t.d. til jóla-
gjafa eins og eftirfarandi dæmi sína:
Nálapúöar 96.-
Gleraugnahulstur 94.-
Beinarmbönd 55.-
Herrahanskar 135.-
Blævængir 49.-
Appl. dúkar 52.-
Hekl. dúllur 20.-
Stuttir kvöldsloppar 721.-
Síöir kvöldsloppar 895.-
Munnhörpur 62.-
Föndursett 90.-
Kubbakassar 60.-
Sindy baðsett 39.-
Dúkkur 98.-
Vöggusett 435.-
Barnateppi 145.-
Barnanáttföt 429.-
Dömunáttföt 659.-
Sjónval, Vesturgötu 11.
Hín
gömlu
kynni
Skemmtun sniðin fyrir aldraða í
BROADWAY í kvöld fimmtudag-
inn 15. nóv. 1984.
DAGSKRÁ:
Kl. 18.00 Húsiö opnaö — Fordrykkur.
Kl. 18.30 Skemmtunin sett — Hermann Ragnar.
Kl. 18.30 Sameiginlegt boröhald.
Matseöill: Rjómalöguö rósinkálsúpa — Pönnusteikt
sítrónukrydduö lambasneiö m/grœnmeti — hrásalat
og rauövínssósa — Kaffi.
Kl. 18.45 Hljómsveit Gunnars Þóröarsonar leikur þjóölög.
Kl. 19.00 Fjöldasöngur - Lag kvöldsins - Gáta kvöldsins o.fl.
Kl. 19.30 Ávarp: Markús
Örn Antonsson
forseti
borgarstjórnar
Rvk.
Kl. 20.00 Leynigestur kvöldsins.______
Kl. 20.30 Dansaö — Hljómsveit Gunnars Þóröarsonar.
Kl. 21.30 Tískusýning — Módelsamtökin sýna.
Kl. 21.45 Dansaö — Hljómsveit Gunnars Þórðarsonar.
Kl. 22.30 Danssýning — H.R. dansfiokkurinn.
Kl. 22.45 Dansaö til kl. 23.30.
Dansstjóri og kynnir veröur Hermann Ragnar Stef-
ánsson.
Afmælisbörn vikunnar veröa heiöruö.
Verðlaun fyrir ráöningu á gátu kvöldsins.
Takiö þátt í gleöinni — Tilkynnið þátttöku sem
fyrst í síma 77500.
Að gefnu tilefni er ástæöa til aö vekja athygli á því
aö skemmtun þessi er aöallega sniöin fyrir
aldraöa.