Morgunblaðið - 15.11.1984, Page 77
MORGUNBLADIÐ, FIMMTUDAGUR 15. NÖVEMBER 1984
77
Átta marka sigur
Hauka gegn Fylki
Haukar unnu Fylki stórt og ör-
ugglega í 2. deild handknattleiks-
ins í gærkvöldi. Úrslitin uröu
28—20 og í hélfleik var staöan
14—10 fyrir Hauka. Sigur Hauk-
anna var aldrei í hwttu, og í
seínni hálfleik juku þeir forystu
sína jafnt og þétt. Leikurinn fór
fram í Seljaskólahúsinu.
Haukarnir voru fremri Fylkis-
mönnum á öllum sviðum hand-
knattleiksins í gærkvöldi, breiddin
var meiri, samspil Haukanna var
meira og betra, þeir notuöu breidd
vallarins vel og reyndu jafnan að
skapa sér marktækifæri, opna
vörn Fylkis áöur en þeir skutu á
markiö. Þá skoruöu Haukar nokk-
ur ágæt mörk úr hraöaupphlaup-
um.
Fylkismenn reyndu hins vegar
meira að brjóta sór leiö gegnum
Haukavörnina, sem var tiltölulega
þétt, í staö þess aö spila betur
Óvæntur sigur
Svía í gær
SVÍAR sigruöu Portúgal heldur
óvænt 3—1 f Lissabon í 2. riöli
undankeppni HM-keppninnar. öll
mörkin voru skoruö í fyrri hálf-
leik.
Portúgalir byrjuöu af miklum
krafti og fengu óskabyrjun er
Jordao skoraöi strax á 11. mínútu.
Portúgalir sóttu miklu mun meira,
en vörn Svía var afar þétt og svo
voru skyndisóknir Svíanna geysi-
hættulegar. Mörk Svía voru öll
skoruö á 12 mínútna kafla er ekki
stóð steinn yfir steini í vörn Portú-
gala, þeir höföu hætt sér meö of
marga menn fram í sóknina og
Svíarnir notfæröu sér þaö út í ystu
æsar. Robert Prytz skoraöi fyrst
tvívegis, á 26. og 34. mínútu, en
þriöja markiö skoraöi Peter Lar-
son á 38. mínútu. í síöari hálfleik
sóttu heimamenn af miklum móö,
en þeir komust lítiö áleiöis. Þó
fengu þeir fáein tækifæri, en þau
nýttust ekki og því uröu hin
óvæntu úrslit staöreynd.
Sænski markvöröurinn Ravelli
stóö sig sem hetja í leiknum og
varöi m.a. vítaspyrnu á mikilvægu
augnabliki. Þá var staöan 1 — 1.
Jordao framkvæmdi spyrnuna, en
markvöröurinn varöi snilldarlega.
Fylkir 20
Haukar 28
saman og reyna skapa sór færi.
Sóknarleikurinn snýst um þá
Gunnar Baldurs og Jón Leví, en
hjá Haukum tekur hver og einn
virkari þátt í sóknarleiknum og eru
allir jafnvigir.
Beztu menn Fylkis voru Gunnar
Baldurs og Jón Leví, en hjá Hauk-
um voru leikmenn flestir mjög
áþekkir, en Jón Hauks, Snorri
Leifs og Ágúst Sindri skoruöu allir
skemmtilega.
Mörk Fylkis:
Jón Leví 5, Gunnar Baldurs 9,
Sigurgeir Ernst 1, Kristinn Sigurös
4 og Magnús Sigurös 1.
Mörk Hauka:
Árni Sverris 2, Jón Hauksson 7,
Lárus Karl 2, Helgi Ásgeir 4, Snorri
Leifsson 5, Ágúst Sindri 4, Jón örn
3 og Pétur Guömunds 1.
1. deild kvenna:
Naumur Valssigur
á FH í Hafnarfirði
Valsstúlkurnar sóttu dýrmæt
stig í Hafnarfjörö í gærkvöldi er
þær lögöu stallsystur sínar úr FH
naumlega aö velli meö 20 mörk-
um gegn 19 í 1. deild kvenna i
handknattleik. i hálfleik var staö-
an 12—12.
Leikurinn var mjög spennandi
frá upphafi til enda og þokkalega
leikinn af báöum liöum.
Hjá Val var Kristín Arnþórsdóttir
markahæst meö 6 mörk, en Erna
Lúövíksdóttir og Katrín Frederik-
sen skoruöu 4 hvor. Soffía Hreins
og Guörún Knstjáns skoruöu 2
hvor og 1 mark skoruöu Magnea
Friöriks og Marta Siguröar.
Hjá FH skoruöu Margrét Theo-
dórs og Sirrý Hagen 5 mörk hvor,
Kristjana Aradóttir 3, Arndís Ara
og Kristín Péturs 2 hvor, og Anna
Ólafs og Sigurborg Eyjólfs 1 mark
hvor.
Island mætir
Indlandi í dag
íslensku kylfingarnir Siguröur
Pétursson og Ragnar Ólafsson
tóku í gær þátt í ProAm-keppn-
inni sem fram fer í Róm. Keppnin
i gær var sveitakeppni þar sem
ítölsku gestirnir sáu um aö hver
þóö fengi þrjá kylfinga til liös viö
sig og hver sveit var því skipuö
fimm mönnum, okkar sveit var
því skipuð þeim Siguröi og Ragn-
• Sigurður Pétursson keppir
ásamt félaga sinum Ragnari
Ólafssyni fyrir hönd islands i
Róm.
ari auk þrigga annarra kylfinga
frá Ítalíu.
í keppninni í gær lenti íslenska
sveitin um miöu, Spánn sigraöi á
60 höggum, Argentíma og Kól-
ombía uröu í ööru tll þriöa sæti á
60 höggum einnig og Japan í
fjóröa sæti meö 61 högg. islenska
sveitin lék á 65 höggum og var rétt
fyrir framan miöu.
í einstaklingskeppninni sigraöi
Magnus Person frá Sviþóö á 66
Panasonic
★ Hinar velþekktu National Super rafhlöður eru
nú seldar undir gæöamerkinu Panasonic Super.
★ Panasonic Alkaline eru viöurkenndar í neyöar-
talstöövar flugvéla, skipa og björgunarbáta.
★ Þær hafa hlotiö gæöastimpil Good Housekeep-
ing, öflugustur neytendasamtaka Bandaríkj-
anna.
Rauöarárstíg 1. Sími 11141.
höggum, Canizares frá Spáni varö
annar á 68 höggum en þeir Sigurö-
ur og Ragnar léku báöir á 77 högg-
um og voru rétt aftan viö miöju.
Mikil rigning var þegar leikurinn
fór fram og var rétt á mörkunum
aö tækist aö Ijúka keppninni.
I dag hefst síöan hin eiginlega
keppni og leika þeir Siguröur og
Ragnar viö kylfinga frá Indlandi og
ættu þeir aö eiga góöa möguleika
á aö sigra þá.
Handknattleikur:
Margir lelkir
veröa í kvöld
i KVÓLD fara fram þrír leikir í 1. deild islandsmótsins í handknattleik,
allir í meistaraflokki karla. í Laugardalshöllínni eigast viö Þróttur og
KR og Víkingur og Stjarnan. Fyrri leikurinn hefst klukkan 20.15, en sá
síöari strax á eftir. Þó leika í Kópavogi Breiöablik og Valur, hefst sá
leikur kl. 20.00. í meistaraflokki kvenna 1. deild leika Víkingur gegn
Fram í Laugardalshöll kl. 19.00.
Búast má viö bráöskemmtilegum leikjum og án efa veröur hart
barist. Ekkert veröur leikiö í 1. deild karla um helgina vegna leikja f
Evrópukeppninni.
PUMA mittisúlpur stærðir 3-8 kr. 2.045,-
PUMA úlpur stærðir 3-8 kr. 2.320,-
PUMA jakkar XS-XL kr. 1.705,-
pumn
löruwiififfluin
llnqölf/ ©/lk<aiirjF/@in«iir
Klapparstig 44 Reykjavík siml 11783 -10330