Morgunblaðið - 15.11.1984, Page 80
OPID ALLA DAGA FRÁ
KL 11.45-23.30
O //*'í •'
^aakeninn
AUSTURSTRÆTI22
INNSTRÆTI. SÍMI 11633
HIEKKURIHÐMSKEDJU
FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1984
VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR.
Átök um framhald
kjarabaráttunnar í
Kennarasambandi
ÁGREININGUR um framhald kjarabaráttu kennara varð til þess að þrír
forystumenn Kennarasambands fslands, þar á meðal varaformaður og fram-
kvæmdastjóri KÍ, féllu út úr viðræðunefnd sambandsins á fundi fulltrúaráös
og samninganefndar KÍ um síðustu helgi. Viðrsðunefndin mun hafa forystu í
væntanlegum sérkjarasamningum kennara við ríkisvaldið.
Þremenningarnir, Guðmundur
Árnason, varaformaður og fram-
kvæmdastjóri KÍ, Gísli Baldvins-
son, formaður Kennarafélags
Reykjavikur, og Haukur Helgason,
skólastjóri í Hafnarfírði, sögðu í
samtölum við blm. Mbl. i gær, að
ástæðan fyrir því að þeir væru ekki
í viðræðunefndinni væri sú, að þeir
hefðu talið rétt að fara aðrar leiðir
í væntanlegum sérkjarasamning-
um en meirihluti samninganefndar
vildi fara. Haukur Helgason sagði
ljóst, að í samtökum kennara væri
óánægja með heildarsamning
BSRB, sem hann hefði átt þátt í að
gera. Hvað varðaði sérkjarasamn-
ingana, þá hefðu þeir viljað halda
öðru vísi á málum — „við óttumst
að meðbyr kennara nýtist ekki með
þessari framsetningu kröfugerðar-
innar,“ sagði hann.
Gísli Baldvinsson, formaður
Kennarafélags Reykjavíkur, sagði í
samtali við blm. Mbl. í gær, að
hann hefði nú ákveðið að láta af
störfum sem kennari eftir 13 ára
starf og snúa sér að öðru. Hefur
hann sagt upp með lögboðnum
þriggja mánaða fyrirvara frá og
með deginum í dag. „Ástæðurnar
eru bæði persónulegar og fjár-
hagslegar — m.a. þær, að ég treysti
mér ekki lengur til að lifa á launum
kennara," sagði hann.
Sjá nánar á bls. 4.
Kjörbúðaríki í Mjóddinni
„VIÐ eigum bolu þarna uppi í Mjódd-
inni, þar sem í nokkur undanfarin ár
hefur veríð etlunin að reisa áfengis-
útsölu og hugmyndin er að taka þar
upp kjörbúða-fyrirkomulag," sagði
Höskuldur Jónsson, ráðuneytisstjóri í
fjármálaráðuneytinu, er hann var
spurður hvað liði framkvæmdum við
áfengisútsölu ríkisins í Mjóddinni í
London
Shakespeare
Company sýn-
ir Machbeth
LONDON Shakespeare Company
nefnist átta manna leikhópur sem
væntanlegur er hingað til lands 11.
desember nk. og verða mun með
nokkrar sýningar á hinu þekkta
leikriti Shakespeares Machbeth.
Gísli Alfreðsson þjóðleikhús-
stjóri sagði í samtali við Morg-
unblaðið, að leikhópurinn kæmi
hingað fyrir milligöngu breska
sendiherrans í tilefni 50 ára af-
mælis The British Council. Hóp-
urinn verður hér með fjórar sýn-
ingar, í Þjóðleikhúsinu 12. og 15.
desember og á Akureyri 13. og
14. s.m.
Breiðholti.
Höskuldur sagði að í tengslum við
þessar byggingaframkvæmdir hefði
það verið athugað á sínum tíma, að
taka upp svipað fyrirkomulag og
tíðkast í Finnlandi, það er, með
kjörbúðasniði. Þetta fyrirkomulag
felur einnig í sér að birgðir eru tald-
ar um leið, en í afgreiðsluborðinu
verða tæki sem lesa af sérstökum
miðum á vörunni, og er mikil hag-
ræðing þessu samfara. Aðspurður
sagði Höskuldur að ekki væri vitað
hvenær útsalan í Mjóddinni yrði
opnuð, enda væru framkvæmdir enn
nánast á byrjunarstigi, og hefði lítið
þokast um nokkuð langt skeiö.
9aC
v*
Ljísmynd: Árni iohnnen.
Útskipun með gamla laginu á Gjögri
Það er óvíða hér við land sem skipað er út með gamla laginu, en þessi
mynd var tekin fyrir nokkrum dögum á Gjögri á Ströndum þar sem
verið var að skipa saltfiski út í Hekluna sem lá við festar skammt
undan bryggjusporðinum. Traktorar með kerrur fluttu saltfiskpakk-
ana niður að útskipunarprammanum, sem var síðan siglt að skipshlið
Heklu. Heklan sótti sama dag fisk í Djúpavík og einnig á Norðfjörð,
en venjulega er skipað út þaðan. Mjög langt er liðið frá því að skipað
hefur verið út á þennan hátt á Gjögri.
Teppabúð
í Sigtún
EIGENDASKIPTI hafa orðið á stór-
um hluta húseignarinnar Suður-
landsbraut 26, þar sem veitingahús-
ið Sigtún er til húsa. Halldór Svav-
arsson kaupmaður keypti megin-
hluta hússins af Sigmari Péturssyni
veitingamanni.
Halldór mun flytja verslun sina,
Teppabúðina sem nú er í Síðumúla
31, í húsið. Það húsnæði sem Hall-
dór keypti er 1100 fermetrar að
flatarmáli, en Sigmar á áfram efri
hæðina og lítinn hluta neðri hæð-
arinnar. Verður hann þar áfram
með veitingastað. Halldór fær
húsnæðið afhent um áramót og
býst hann við að flytja Teppabúð-
ina þangað í apríl á næsta ári en
talsverð vinna er við að breyta
húsnæðinu úr skemmtistað í
verslun.
Hærri vextir
fjárfestinga-
lánasjóða
RÍKISSTJÓRNIN hefur heimilað
fjárfestingalánasjóðum að taka allt
að 8% vexti af verðtryggðum útlán-
um. Ákvörðun um þetta var tekin á
fundi ríkisstjórnarinnar sl. þriðju-
dag, að sögn Þórðar Friðjónssonar,
efnahagsráðgjafa ríkisstjórnarinnar.
Fjárfestingalánasjóðum er þar
með heimilað að taka jafn háa
vexti og bankarnir en vextir sjóð-
anna hafa verið nokkuð lægri um
nokkurra mánaða skeið.
Viðbótarsala fyrir 200 milljónir til Portúgals:
Allar saltfiskigeymslur
verða tómar um áramót
HAFIN er útskipun á þrjú þús-
und tonnum af saltfíski, að verð- ,
mæti um 200 milljónir króna, I
sem SÍF hefur selt til Portúgals.
Stefnt er að því að saltfískurinn
verði kominn til Portúgals fyrir
Afurðalán vegna útflutnings sjávarafuróa:
Fjármögnuð með
erlendum lánum
SEÐLABANKI íslands hefur heimilað viðskiptabönkunum að fjármagna af-
urðalán vegna útflutnings sjávarafurða með erlendum lánum og því fé sem er á
innlendum gjaldeyrisreikningum í bönkunum. Jafnframt verða lánin hækkuð í
75% af útflutningsverðmæti. Ekki er talið að þetta leiði til aukinnar erlendrar
lántöku, heldur flytjist lántakan frá Seðlabanka til viðskiptabankanna.
Lárus Jónsson, bankastjóri (Jt-
vegsbankans, sagði í samtali við
Mbl. að þessi breyting ætti ekki að
leiða til þess að ný erlend lán verði
tekin heldur verði um að ræða
breytingar á lánum sem þegar
hefðu verið tekin, vegna þess að
þörf Seðlabankans fyrir erlend lán
ætti að minnka á móti. Sagði hann
að lánin yrðu hækkuð í 75% af út-
flutningsverðmæti birgða, en gat
þess að bankarnir hefðu hvort eð er
verið bundnir með þetta fé í at-
vinnugreininni vegna slæmrar
stöðu sjávarútvegsins. Þá væri
stefnt að því að Seðlabankinn hætti
að endurkaupa afurðalánin en lagði
á það áherslu að það yrði að gerast
í áföngum.
Lárus sagði að þetta fyrirkomu-
lag ætti að létta eitthvað á aðal-
viðskiptabönkum sjávarútvegsins,
sem þurft hefðu að binda mikið af
fjármagni sínu í sjávarútveginum
þegar miklar birgðir söfnuðust þar
fyrir. Sagði hann að þessi lán ættu
ekki að vera óhagstæðari fyrir lán-
takendur en fyrri lán, ef gengi væri
stöðugt, en ef gengið félli þá myndu
útflutningsvörurnar í geymslunum
hækka að sama skapi. Birgðir sjáv-
arafurða væru í raun og veru gjald-
eyrisvarasjóður þjóðarinnar og
sagðist hann þess vegna telja meiri
ástæðu til að fjármagna þær með
erlendu lánsfé en margt annað.
12. desember en þá er talið aö
12% tollur á innfluttan saltfísk
taki gildi, en gildistöku hans var
frestað í sumar eftir opinbera
heimsóks Barretos, þáverandi
viðskiptaráóherra landsins, til
íslands. í árslok verða litlar sem
engar birgðir af saltfíski til í
landinu en svo hefur ekki verið í
langan tíma.
Að sögn Friðriks Pálssonar,
forstjóra SÍF, var gerður við-
bótarsölusamningur við Portú-
gali fyrir nokkrum vikum um 3
þúsund tonn af saltfiski. Stað-
festing á samningnum barst í
fyrradag. Strax var hafist
handa við lestun fyrsta skips-
ins og allt kapp er lagt á að
koma fiskinum til Portúgals
fyrir 12. desember. Friðrik
sagði að saltfiskframleiðslan
af þorski hefði verið orðin
28.500 tonn 1. nóvember síð-
astliðinn og hefði verið búið að
flytja út 26 þúsund tonn af
framleiðslunni. Þegar þau 3
þúsund tonn sem seld voru til
viðbótar væru komin í skip
væru allar saltfiskgeymslur
orðnar tómar. Fyrir utan þetta
sagði Friðrik að allur sá tand-
urfiskur sem framleiddur væri
færi jafnóðum til Spánar.
Brenndist við
skammhlaup í
rafmagnstöflu
VINNUSLYS varð í fyrirtækinu
Stálveri á Funahöfða 17 laust uppúr
klukkan 15 í gær. Rafvirki brenndist
í andliti og á höndum af völdum
sprengingar sem varð við skamm-
hlaup í rafmagnstöfíu sem hann var
að vinna við.
Rafvirkinn var að tengja loft-
pressu við rafmagnstöfluna en
ekki var ljóst í gærkvöldi af hvaða
ástæðum skammhlaup varð í raf-
magnstöflunni. Maðurinn brennd-
ist talsvert á andliti og höndum en
var í gær ekki talinn í lífshættu.
Hann var með gleraugu sem talið
er að hafi hlíft augum hans að
einhverju leyti.