Morgunblaðið - 08.12.1984, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 08.12.1984, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1984 Loðskinnauppboö í Qsló: Blárefaskinnin seldust á í GÆR var loðskinnauppboð í upp- boðshúsi norska loðdýraræktarsam- bandsins. Meðal annars voru seld þar blárefaskinn og var verðið svip- að og á uppboðinu í Helsingfors fyrr í vikunni, eða um 2.000 ísl. krónur. Seld voru 19 þúsund norsk blá- refaskinn fyrir um 2.006 krónur islenskar að meðaltali og 8.500 finnsk blárefaskinn fyrir um 1.975 krónur að meðaltali. 75 til 79% framboðinna skinna seldist. Þá voru seld 4.200 norsk silfurrefa- skinn fyrir um 6.638 krónur ís- 2.000 kr. lenskar að meðaltali og seldist 98% skinnanna. Einnig voru seld 16.600 blá-silfurrefaskinn fyrir um 4.268 krónur að meðltali og seldist 99% framboðinna skinna. Jón Ragnar Björnsson fram- kvæmdastjóri Sambands islenskra loðdýraræktenda sagði í samtali við blm. Mbl. að verðið væri ámóta og í Helsingfors fyrr í vikunni en salan verið dræmari. Hinsvegar væri þetta lítið uppboð og þess- vegna ekki eins marktækt varð- andi verðið og sölur. Nýárshátíð ♦ í Broadway ÍJ janúar 1985^ ^ Vegna gífurlegs áhuga fyrir nýárshátíðinni í ^ — Broadway I. janúar nk. viljum við biðja gesti | ^ okkar frá fyrri árum að staðfesta borð sín fyrir miðvikudaginn 12. desember nk. Eftir þann tíma ▲ áskiljum við okkur rétt til að ráðstafa borðunum. Hátíðin er aðeins ætluð matargestum. w Skrifstofan er opin í dag og á morgun kl. 2—5, m og daglega kl. 11—19. Sími 77500. ■ ;i. ♦ Börnin 11, sem hlutu viöurkenningar í ritgerðasamkeppni Kreditkorta sf. Aftari röð frá vinstri: Guðný Guð- jónsdóttir, Helgi Snær Sigurðsson, Auður Harpa Þórsdóttir, Herborg Hauksdóttir, sem hlaut fyrstu verðlaun og Sif Ólafsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Heiðdís Lilja Magnúsdóttir, Eiríkur Jónsson, sem hlaut sérstök aukaverð- laun í sínum aldursflokki, Edda Sólveig Gísladóttir, Kjartan Ilansson, Hlín Olafsdóttir og Anna Sigríður Gunnarsdóttir. „Leið mín í skólann ... 11 börn verðlaunuð fyrir ritgerðir ÚRSLIT ritgerðasamkeppni Kred- itkorta sf. voru tilkynnt við hátíð- lega athöfn í gær. Voru 11 börnum veitt verðlaun fyrir ritsmíðar sínar, sem allar fjölluðu um efnið „Leið mín í skólann og hætturnar á leið- inni“. Haraldur Haraldsson, stjórn- arformaður Kreditkorta sf., hélt stutta ræðu við upphaf athafn- arinnar og sagði, að fyrirtækið hefði ákveðið að hleypa þessari samkeppni af stokkunum til að láta gott af sér leiða fyrir æsku landsins. Hann sagði, að til fyrirtækisins hefðu oft leitað góðgerðarfélög og íþróttafélög, en með því að vekja athygli á hættum, sem steðja að börnum og unglingum í umferðinni, hefði fyrirtækið talið sig fært um að knýja á um úrbætur. Haraldur sagði, að alls hefðu borist um 100 ritgerðir og hefðu börnin bent á margt, sem betur mætti fara. Hann nefndi sem dæmi að mörg börn hefðu skrifað um erfiðleika, sem þau eiga við að etja í mikl- um snjó, þegar ekki er hægt að ganga á gangstéttum, einnig að óvarlega væri ekið út úr heim- reiðum, gangbrautir væru stundum við blindbeygjur, vöru- bifreiðir stöðvuðu oft á gang- stéttum svo börn yrðu að fara út á götu og að bifreiðir ættu að aka með ljósum allan sólar- hringinn að vetri til. Margt fleira nefndu börnin og sagði Haraldur, að Kreditkort sf. ætl- uðu að benda á þessi atriði í auglýsingum og reyna að vekja athygli yfirvalda á þeim. Fyrstu verðlaun í ritgerða- samkeppninni hlaut Herborg Hauksdóttir, 12 ára gömul. Verðlaun hennar voru viður- kenningarskjal og 10 þúsund krónur. Tíu börn önnur fengu sérstakar viðurkenningar, sem voru skjal og 5 þúsund krónur. Eiríkur Jónsson hlaut sérstaka viðurkenningu fyrir ritgerð í aldurshópi 6—10 ára barna. Verðlaunin afhenti 11 ára gömul stúlka, Auðna Hödd Jónatans- dóttir, en hún átti sæti í dóm- nefnd. Að lokinni verðlaunaafhend- ingu var sýnd kvikmynd um hættur í umferðinni og verð- launahafarnir og fjölskyldur þeirra gæddu sér á veitingum. Haraldur Haraldsson sagði, að vonandi væri hægt að efna til slíkrar samkeppni aftur, því aldrei væri nóg að gert í umferð- aröryggismálum. Sláturhús KVB á Patreksfirði: Greiðir aðeins 60 % af grundvallarverði Bændur fá eina krónu fyrir slátrið KAUPFÉLAG Vesturbarðstrend- inga, hefur sent þeim bændum, sem lögðu sláturfé inn í sláturhús félags- ins á Patreksfirði í haust, uppgjör fyrir innlagðar sauðfjárafurðir. Greidd eru tæp 60% af grundvallar- verði kjöts og allt niður í 1,8% af verði sláturs og er það jafnframt lát- ið út ganga að þetta sé lokauppgjör innlagðra sauðfjárafurða. Stangast þetta á við reglur Framleiðsluráðs landbúnaðarins sem hefur eindregið hvatt sláturleyfishafa til að greiða bændum 75% af grundvallarverði fyrir 15. október. Árni Jóhannesson, bóndi í Saurbæ á Rauðasandi, sagði í samtali við Mbl. að hann hefði nýlega fengið uppgjör frá kaupfé- laginu vegna þeirra 50 lamba sem hann lagði inn í sláturhúsið i haust. Sagðist hann hafa fengið 68,18 kr. fyrir hvert kíló kjöts, eða tæp 60% af haustgrundvallar- verði, sem er 113,64 kr. Fyrir dilkaslátrið sagðist hann hafa fengið 3,74 kr., eða 3,7% af grundvallarverðinu sem er 99,84 kr. Þá sagðist hann hafa fengið 1 krónu fyrir slátur af fullorðnu fé í stað 54,95 sem grundvöllurinn segði til um eða 1,8%. Fyrir inn- lagt nautgripakjöt kvaðst hann hafa fengið 95 krónur í stað 106 kr. sem grundvöllurinn segði til um, eða 89,6%. Árni sagðist hafa fengið þær upplýsingar í kaupfélaginu að hér væri um lokauppgjör að ræða, hann gæti ekki vænst frekari greiðslna. Sagði hann að þær skýringar væru gefnar að slátur- kostnaðurinn væri mikill og að kaupfélagið hefði greitt bændum 15 milljónum of mikið undanfarin ár. Það sagði hann að sér þætti skrítið því þeir hefðu ekki fengið greitt fullt verð fvrir afurðir sínar undanfarin ár. Árni sagði furðu- legt að sláturhúsið fengi leyfi til Þessar upplýsingar komu fram í svari Davíðs Oddssonar borgar- stjóra við fyrirspurn frá Sigur- jóni Péturssyni, Alþýðubanda- lagi, um leigubílakostnað. I svari borgarstjóra kom fram slátrunar ár eftir ár fyrst rekstur- inn væri ekki betri. Framleiðsluráð landbúnaðarins samþykkti í haust „skilyrði fyrir leyfi til sauðfjárslátrunar haustið 1984". Þar segir m.a.: „Fyrsti af- reikningur til bænda vegna inn- leggsins miðist í síðasta lagi við 15. október. Stefnt skal að því að útborgun og/eða afreikningur sé ekki lægri en 75% af haustgrund- vallarverði til þeirra sem hafa búmark..." að miðað við verðbreytingar og aukinn fjölda starfsmanna hefur í raun verið um lítilsháttar sam- drátt að ræða, hins vegar þyrfti að auka aðhald. Reykjavíkurborg: Leigubílakostnaður um 7 milljónir króna KOSTNAÐUR Reykjavíkurborgar vegna aksturs starfs- manna með leigubílum á þessu ári er 7 milljónir og 56 þúsund krónur, en 1981 var kostnaðurinn um 1,5 milljónir króna á verðlagi þess árs.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.