Morgunblaðið - 08.12.1984, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 08.12.1984, Blaðsíða 48
48 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1984 t Móðir okkar, STEINUNN SVEINBJARNARDÓTTIR, andaöist i sjúkrahúsinu Sólvangi 24. nóvember sl. Úttörin hefur farið fram. Innilegar þakkir til starfsfólks Sólvangs fyrir frábæra hjúkrun og umönnun. Kristin Benjaminsdóttir, Sofffa Benjamínsdóttir Polhemus. t GUÐRÚN BENÓNÍSDÓTTIR, fró Laxórdal, Álftamýri 12, andaöist i Landspitalanum, miövikudaginn 5. desember. Börn hinnar lótnu. t Móöir okkar, INGIBJÖRG JÖRUNDSDÓTTIR, Álfheimum 28, iést í Borgarspítalanum 6. desember sl. Gyða Salomonsdóttir, Lilja Salomonsdóttir, Jóhann Mosdal, Jóhanna Sumarlióadóttir. t ELÍSABET PETERSEN andaöist i Borgarspítalanum 6. desember. Systkinin. t Móöir okkar, SIGRÚN HARALDSDÓTTIR, Bósenda 4, veröur jarösungin frá Fossvogskirkju, mánudaginn 10. desember kl. 10.30. Guörún Stefónsdóttir, Helga Stefónsdóttir Mogensen, Stefón B. Stefónsson. t Þökkum auösýnda samúö og vináttu viö fráfail og jaröarför móöur okkar, tengdamóöur, ömmu og langömmu, GUDNÝJAR MAGNÚSDÓTTUR fró ívarshúsum, Dvaiarheimilinu Höfða, Akranesi. Sérstaklega viljum viö þakka starfsfólki Sjúkrahúss Akraness og dvalarheimilisins Höföa. Guöbjarni Sigmundsson, Sveinn Guöbjarnason, Fjóla Guöbjarnadóttir, Vigdfs Guöbjarnadóttir, Lilja Guöbjarnadóttir, Erna Guöbjarnadóttir, Sigmundur Guöbjarnason, Sveinbjörn Guóbjarnason, Sturla Guóbjarnason, Hannesfna Guóbjarnadóttir, Gyöa Pólsdóttir, Jóhannes Guöjónsson, Jóhann Bogason, Jón Hallgrfmsson, Magnús Ólafsson, Margrét Þorvaldsdóttir, Sigrfóur Magnúsdóttir, Sjöfn Pólsdóttir, Eggert Steínþórsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir færum viö öllum þeim sem sýndu okkur hlýhug og vináttu viö andlát GUDMUNDARJÓNSSONAR, Grfmsey. Guö blessi ykkur öli. Steinunn Sigurbjörnsdóttir, Hafliöi Guömundsson. t Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vináttu viö andlát og útför MAGNÚSAR KRISTJÁNSSONAR rafmagnseftirlitsmanns. Svanhildur Jósefsdóttír, Edda Magnúsdóttir og fjölskylda, Skúlí Magnússon og fjölskylda. Kveðja: Sigjón Jónsson, Suðurhúsum Fæddur 29. október 1894 Dáinn 1. desember 1984 Þegar ég var 11 ára hafði svo ráðist ég færi í sveit að iæra að vinna og verða að manni. Ég sótti það reyndar sjálfur fast, því bróð- ir minn hafði verið tvö sumur í Hólum í Hornafirði og ég vildi ekki vera minni. Faðir minn hafði kynnst Sigjóni Jónssyni smið og bónda í Suðurhúsum í Borgarhöfn í Suðursveit og sagt honum hann ætti dreng sem þyrfti að fara að temja. „Heveðisárinn, láttu strák- inn koma!“ sagði Sigjón og skaut út hægri olnboganum. Það hefur verið í júnímánuði 1932 að Sigurður Ólafsson kom til Eskifjarðar einhverra erinda á nýja Björgvin SF 50 og var þá af- ráðið að senda mig með honum til Hornafjarðar. Ég átti að dveljast í Hvamminum hjá Sigurði og Berg- þóru og konu hans þangað til þeim á Björgvin gæfi að færa Suður- sveitungum björg í bú. Þetta varð langdregið ferðalag, því ekki var lendandi við Bjarnahraunssand vegna brims fyrr en að hálfum mánuði liðnum. Einn góðan veðurdag komu loksins boð frá símstöðinni á Kálfafellsstað að sjór væri geng- inn niður og ládautt við sandana. Var þá strax farið að ferma Björgvin timbri, olíu, kolum, sekkjavöru og síðan lagt í hann. Ég stóð uppi í stýrishúsi við hlið- ina á Sigurði formanni út úr Ósnum. Þó veður væri hið feg- ursta og báturinn hreyfðist varla vorum við ekki komnir nema fá- einar bátslengdir vestur með fjör- um þegar ég tók að kenna drunga yfir höfði og óstyrkleika í hnjálið- unum. Ég litaðist um, kom auga á smurolíudunk í horni stýrishúss- ins bakborðsmegin og tyllti mér. „Ertu nokkuð sjóveikur?" spurði Siggi. Ég veit ekki, svaraði ég tví- rætt til að koma ekki upp um mig í ótíma ef svo ólíklega færi ég slyppi við að æla. „Ég skal opna fleiri glugga svo það verði betra loft,“ sagði Sigurður. Ég dró sjáv- arloftið djúpt að mér og var ekki frá því ég hresstist ögn í svip, en þorði ekki að hreyfa mig. Þó ég væri í vetrarfrakka gráum setti að mér kulda að ofan við að húka þarna, en frá vélarhúsinu lagði notalegan yl upp eftir fótunum. Sigurður fylgdist með mér og fannst ég orðinn grámyglulegur í andliti. „Þér er kalt, settu upp vettlingana mína,“ sagði hann og rétti mér sjóvettlinga sem lágu á syllu í stýrishúsinu. Þeir voru grá- ir og að því leyti í stíl við allt mitt ástand, en svo stórir að þumlarnir hefðu nægt; ég átti erfitt með að hemja þá á höndunum þó ég teygði fitina upp undir olnboga. Svo kom fyrsta gusan og hálffyllti stýrishúsið á Björgvin. „Neh, hgur andskotinn, mahður,“ sagði Siggi og leit ósjálfrátt niður fyrir fætur sér til að athuga hvort hann yrði stígvélafullur. Eg var fljótlega bú- inn að týna sálinni: sat bara þarna gróinn við olíudunkinn og ældi án afláts galli og öllu föstu og fljót- andi sem í mér var. „Djöhfull er að sjá drenginn, mahður," sagði Sigurður og gætti meðaumkunar í rómnum. Loks vorum við komnir á leiðar- enda. Björgvinsmenn byrjuðu strax að ryðja út timbri, bundu það á seil; losuðu um sponsana á olíufötunum, festu línu í milli og hertu að, hentu þeim svo fyrir borð líka. Þetta voru nýstáriegar aðfarir og allstórkarlaleg uppskip- un þótti mér. Eftir dálitla stund kom bátur róandi úr landi og á honum fjölmennt lið. Þegar hann nálgaðist gaf ég körlunum gætur út um stýrishúsgluggann. Þvílíkan fornmannaflokk hafði ég aldrei augum litið: allir í skinnburu, skinnbrók, skinnsokkum og leð- urskóm, vafðir þvengjum um úln- liði og ökkla, með skinnsjóhatt bundinn undir kverk. Einn var hærri en flestir hinna: ekki fríður sýnum, en broshýr, með skro- svertu á vörum sem virtust allar sprungnar. Sigurður sneri sér að honum og sagði: „Ég er kominn með lítinn kaupamann til þín. Rúskinn strákur, bara dálítið sjó- veikur. Jhá, andskotinn, mahður, he-he!“ Þegar búið var að hlaða bátinn bað langi maður Sigurð að rétta sér þann litla. Ég heyrði á tal þeirra, staulaðist á fætur og dróst fram dekkið, kvaddi Sigurð og menn hans, brölti síðan út að lunningunni. „Heveðisárinn, hann er alveg glær“, sagði Sigjón smið- ur og seildist eftir mér. Síðan var róið að landi og mið- aði hægt, því báturinn var hlaðinn og dró langan slóða. Jafnskjótt og kenndi grunns stökk áhöfnin fyrir borð til að styðja skipið og stóð í sjó upp undir hendur uns aldan hafði borið það ofar. Þá varð mér ljóst að hér voru hraustir menn og fumlausir á ferð sem voru ýmsu vanir í skiptum við illskeyttari sjó en þekkist inni á fjörðum. Allt í einu þreif Sigjón mig og bar mig á höndum sér upp á þurrt land. Sem ég stóð þar á fjörunum sjúkur og sálarlaus fannst mér ég kominn nógu langt að heiman. En það átti eftir að breytast svo gagngert við kynni af íbúum þessarar sveitar að ég hef löngum litið á hana sem mín önnur heimkynni. Að lokinni uppskipun lulluðum við af stað ríðandi til bæja. Ég minnist ekki að mikið væri talað á leiðinni. Sigjón fitjaði ekki upp á samræðum, ég var of feiminn og þjakaður af sjóriðu til að hafa rænu á öðru en reyna að lafa á baki. Þó gaf ég húsbónda mínum gætur í laumi. Sem kunnugt er finnst börnum allt fólk gamalt sem komið er um eða yfir þrítugt. Já, Sigjón var öldungur í mínum augum: eiginlega kominn að fótum fram. Hann hefur þá verið 37 ára og átti meira en hálfri öld ólokið! Þegar við nálguðumst Borgar- höfn var mér bent á Suðurhús þar sem ég átti að dveljast og fór þá strax að braggast: húsið bar hátt og var langreisulegast bæjanna í hverfinu, steinsteypt parhús með tveim burstum fram á hlað; hæð, kjallari og ris. Alveg nýtt, ekki að fullu frágengið utan sá ég á leið heim traðirnar. Inni var ýmsu ólokið líka: búið að innrétta eldhús á hæðinni, tvö svefnherbergi á loftinu, annað stóð og beið betri tíma. Og bíður enn. Sigjón var einhleypur og ekki við kvenmann kenndur fyrr né síð- ar svo ég viti. Auk okkar yngis- sveinanna tveggja voru í heimili systur hans Sigríður og Jónína. Siggi var eldri og hafði hússtjórn Minning: Andrés Markús- son, Grímsfjósum Fæddur 21. júlí 1905 Dáinn 6. nóvember 1984 Andrés Markússon, smiður og fyrrverandi bóndi að Grímsfjósum á Stokkseyri, andaðist í Vífils- staðaspítala eftir rúmlega eins mánaðar dvöl þar. Foreldrar hans voru hjónin Markús Þórðarson frá Efra-Seli í Stokkseyrarhreppi, Jónssonar bónda í Gröf í Hruna- mannahreppi, Jónssonar bónda á Högnastöðum, Jónssonar, og Hall- dóra Jónsdóttir, Adólfssonar bónda og formanns í Grímsfjós- um, en móðir Jóns Adólfssonar var Sigríður yngsta Jónsdóttir ríka í Vestri-Móhúsum. Var And- rés sjöundi maður frá Bergi Stur- laugssyni í Brattsholti, sem Bergsætt er komin frá. Andrés var einbirni og ólst hann upp hjá for- eldrum sínum í Grímsfjósum. Á uppvaxtarárum hans var athafn- alíf í uppgangi á Stokkseyri og fé- lagshyggja í blóma. Þar var ung- mennaféíag, verkamannafélag og fleiri félög, vélbátaútgerð talsverð og verslun. Þótt um brimsund sé að fara til róðra hefur Stokkseyri verið um aldir allmikil verstöð og þar hafa alltaf ýtt á haf skipum sínum til róðra frægir formenn og úrvals sjómenn verið í liði þeirra. Andrés i Grímsfjósum varð snemma einn hinna vöskustu sjó- manna á Stokkseyri og stundaði þar lengi róðra á vélbátum, en einnig réri hann um skeið á Kefla- vík. Hann var önnur hönd foreldra sinna við búskapinn í Grímsfjós- um og hinn mikilvirkasti að öllum störfum. Oft var hann á vorin og haustin í atvinnu, sem bauðst til og frá utan heimilis. Vann hann meðal annars við gröf aðalskurðar Flóaáveitunnar í flokki, sem fylgdi skurðgröfu áveitunnar og var sú vinna aðallega fóigin í bor- un og sprengingum á hraunklöpp- inni, er skurðurinn var grafinn gegnum á nokkurra kílómetra kafla. Man ég Andrés vel frá þeim árum, enda var hann eftirtektar- verður sakir prúðmennsku og glæsimennsku, hár og beinvaxinn, mikill um herðar, vel farinn í and- litsfalli, glaður í viðmóti og traustur í orðum og athöfnum. Áhugi Andrésar beindist að því strax á unglingsárum að vilja verða smiður, enda var hann hag- ur strax á trésmíði. Hann hóf því nám í iðnskóla á Éyrarbakka og hugðist læra húsasmíði, en varð að hverfa frá því námi þegar hann veiktist af lungnaberklum og þurfti að dveljast til lækninga á Reykjahælinu í Ölfusi hálft annað ár. Náði hann þar góðri heilsu að nýju. og skömmu síðar tók hann við búi foreldra sinna í Grímsfjós- um, en það var árið 1939 og giftist 27. maí það sama ár eftirlifandi konu sinni, Jónínu Kristjánsdótt- ur, Diðrikssonar bónda í Lang- holtsparti, en móðir Jónínu var Anna Jóhannsdóttir ljósmóðir í Hraungerðishreppi. ólst Jónína upp í Ölvisholti hjá Bjarna Bjarnasyni og Elínu Guðmunds- dóttur konu hans. Var hún svo vinnukona hjá Valdimar Bjarna- syni og Guðrúnu Ágústsdóttur fyrstu búskaparár þeirra í Ölvis- holti, en gerðist svo lausakona og dvaldi á ýmsum stöðum. en flutti til Stokkseyrar 1933 og stundaði meðal annars vélprjón. Þau hjón bjuggu í Grímsfjósum í 30 ár og eignuðust einn son, Hall- dór bílayfirbyggingamann á Sel- fossi. Fluttu þau með honum til Selfoss 1969 í nýtt hús, sem Hall- dór reisti á Engjavegi 73 og hafa dvalið með honum þar síðan. Móð- ir Andrésar dó áður en hann tók við búi, en faðir hans dvaldi hjá syni sínum og tengdadóttur þar til hann andaðist háaldraður. Önnu, móður Jónínu, lóku þau til sín og dvaldi hún þar í ellinni. Andrés og kona hans voru mjög samhent og áttu alltaf fallegt og gott heimili, heilsa Jónínu var oft á völtum fæti. Hafði hún á yngri árum fengið berkla og varð lengi að dveljast á heilsuhælum. Margs- konar veikindi hafa þar að auki þjáð hana og hefur hún oft þurft að dvelja um lengri eða skemmri tíma í sjúkrahúsum, meðal annars nú og getur því ekki fylgt manni sínum til grafar. Allar þessar sjúkdómsraunir báru þau hjón með hinni mestu þolinmæði. Nutu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.