Morgunblaðið - 08.12.1984, Side 23

Morgunblaðið - 08.12.1984, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1984 23 Sallendur toknir tali í vortídarlok Sfldar- söltunin mikil lyftistöng — segir Gunnlaugur Ingvarsson, fram- kvæmdastjóri Búlandstinds á Djúpavogi „ÞAÐ er Ijóst að sfldarsöltunin í haust hefur verið bæði fyrirtækinu og byggðarlaginu mikil lyftistöng. Söltunin sjálf stóð í um mánaðar- tíma og var þá saltað í 14.453 tunn- ur og einnig hafa verið frystar um 200 lestir. Vinnulaun þennan tíma nema til landverkafólks um 5 milljónum, sem er nálægt einum sjöunda af áætluðum launagreiðsl- um þetta ár. Við söltunina unnu allt upp í 100 manns, þegar mest var, bæði börn og opinberir starfs- menn í verkfalli og var þeim það mikil búbót,“ sagði Gunnlaugur Ingvarsson, framkvæmdastjóri Bú- landstinds á Djúpavogi, í samtali við Morgunblaðið, en Búlands- tindur var hæsta einstaka söltun- arstöðin á öllu landinu. Gunnlaugur sagði ennfremur, að ljóst væri, að hefði Búlands- tindur og fleiri sjávarútvegsfyr- irtæki austanlands ekki fengið síldina, væru þau hreinlega stopp í dag. Svona miklu máli skipti síldin. Það væri stílað inn á síldina með afborganir og ýms- ar greiðslur, bæði fyrirtækjanna og einstaklinga og síðan væri allt á rauða dampi, þegar ævin- týrið hæfist. Því færu pen- ingarnir, sem inn kæmu, að mestu í skuldgreiðslur. Því væri sú hætta fyrir hendi, vegna þess hve söltunin væri sna’r þáttur í afkomunni, að yrði hún stöðvuð, væri ekkert framundan hjá þess- um stöðum annað en „heljar- stökk“. Eins og málum væri háttað meðan á söltun stæði, væri oft á tíðum ekki mannskapur til ann- arra starfa í fiskvinnslunni og væri þá gjarnan gripið til þess ráðs að láta sigla með ísfiskinn. Það kæmi sér reyndar í raun ágætlega, því þannig fengist bæði reiðufé fyrir aflann og möguleikar á kaupum á ódýrum veiðarfærum og öðrum búnaði. Þá bæri þess að geta, að þó sölt- un hefði aðeins staðið í um mán- aðartíma, væri nokkur vinna við síldina allt fram á næsta ár, þannig að mikilvægi söltunar- innar væri verulegt. Værum steindauðir án sölt- unarinnar — segir Bergur Hall- grímsson, fram- kvæmdastjóri Pólar- síldar á Fáskrúðsfirði „VIÐ værum steindauðir, hefðum við ekki fengið sfldina í haust. Hún er það raikil búbót meðan bú- ið er að öðrum sjávarútvegsgrein- um eins og nú er. Við söltuðum nú alls í 12.400 tunnur og vorum með 60 til 70 manns í vinnu við það. Þetta er sá tími, sem launagreiðsl- ur hjá fyrirtækinu eru mestar, skipta milljónum, en auk þess er vinna við sfldina fram á næsta ár. Svo höfum við verið að frysta sfld- arflök, svona í atvinnubótavinnu, að undanförnu,“ sagði Bergur Hallgrímsson, framkvæmdastjóri Pólarsfldar á Fáskrúðsfirði, í sam- tali við Morgunblaðið. Bergur sagði ennfremur, að útgerðarmenn og fiskverkendur væru orðnir svo illa farnir vegna óstjórnar stjórnmálamanna, að þeir vissu ekki sitt rjúkandi ráð. Það væri hreinlega ekkert lag á þessum málum og hann væri ekki frá því, að það hlakkaði í stórum hluta þjóðarinnar yfir því, hvernig þeim væri komið. Nú væri tap á ölium greinum nema síldarsöltuninni og sigl- ingum skipa með afla til annarra landa. Það væri enginn ■ ljós punktur í vinnslu bolfisks í landi og útgerðin gengi ekki nema með löndun erlendis. Enda væri mál- um svo komið, að hvergi væri aukning nema hjá Sambandinu og þá á kostnað annarra. Þá gat Bergur þess, að þeir, sem önnuðust sölumál á saltsíld, hefðu staðið sig frábærlega vel. Það ætti ekki aðeins við um sölu- samninga, afskipanir og greiðsl- ur ættu sér enga hliðstæðu í öðr- um sjávarútvegsgreinum, svo góð skil væru þar á öllum hlut- um. Síldinni væri afskipað eftir framleiðsludegi og greiðslur væru síðan eftir föstu kerfi, þannig að menn vissu nákvæm- lega að hverju þeir gengju. Það væri víst upp á dag, eftir að af- skipun hæfist, hvenær pen- ingarnir kæmu. Það væri betur að skipulagið væri það sama í sölu annarra sjávarafurða. Blómarós við vinnu í sfldinni í Grindavík. Sfldin orðin jafnmikil- væg og vertíðin — segir Eiríkur Tóm- asson, framkvæmda- stjóri Þorbjörns í Grindavík „HJÁ Þorbirni hf. var saltað í rúm- ar 12.000 tunnur og alls í Grinda- vík í rúmlega 43.000 tunnur. Þetta heldur algjörlega uppi atvinnu hér á haustmánuðum og fram í janúar eða febrúar því mikil vinna er eftir þegar söltun er lokið. Þetta er því orðin jafnmikilvæg vertíð fyrir plássið og vetrarvertíðin," sagði Eiríkur Tómasson, framkvæmda- stjóri Þorbjörns hf. í Grindavík, í samtali við Morgunblaðið. Eiríkur sagði ennfremur, að því væri ljóst að bærinn þyldi alls ekki að missa söltunina, enda léti nærri að hún skilaði landverkafólki jafnmiklum tekj- um og vetrarvertíðin. „Hjá okkur heldur síldin uppi atvinnu frá því í september fram í miðj- an febrúar, hún er grundvöllur atvinnulífsins. Það er kannski fullsterkt að segja að silfur hafs- ins sé okkur gullnáma, en síldin má að minnsta kosti teljast silfurnáma. Síldin heldur lífinu í fólkinu og fyrirtækjunum hérna, sérstaklega í slæmu ári eins og nú. Annars væri hér geigvænlegt atvinnuleysi og því eru saltsíld- arsamningarnir okkur gífurlega mikilvægir," sagði Eiríkur Tóm- asson. Muggur Fjórða bókin í bókaflokknum ÍSLENSK MYNDLIST. Hinareru: Ragnar í Smára, Eiríkur Smith og Jóhann Briem. Ævi Muggs og ferill allur er í hugum margra umvafinn ljóma ævintýrisins. Hann var listamaðurinn, bóheminn, sem fór sínar eigin leiðir, frjáls og óhindraður; hugurinn opinn, sálin einlæg, viðkvæm og hlý. Myndir Muggs eru um margt eins og blóm sem spruttu upp í götu hans fremur en ávöxtur vísvitaðs starfs. Þær eru margar yndislegar, spegill mikillar kýmni eða angurtrega, og yfir þeim er ferskur blær vorsins í íslenskri myndlist. BjörnTh. Björnsson listfræðingur er þjóðkunnur fyrir ritstörf sín. Bók þessa hefur Björn skráð og dregið upp eftir margvíslegum heimildarbrotum glögga mynd af sérstæðum listamanni með göfugt hjarta. LISTASAFN ASÍ lögberg Bókaforíag Þinghottsstræti 3, simi: 21960

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.