Morgunblaðið - 08.12.1984, Qupperneq 64
OPIÐALLA DAGA FRA
KL. 11.45 - 23.30
AUSTURSTRÆTI22
INNSTRÆTI, SÍMI 11633
HlfKKUR IHBMSKEDJU
LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1984
VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR.
Fyrsti dómur-
inn vegna
misnotkunar á
greiðslukorti
í SAKADÓMI Keykjavíkur hefur
verið kveðinn upp dómur yfir manni,
sem tók út vörur fyrir upphieó um-
fram heimild frá greióslukortafyrir-
Uekinu Visa og gat ekki staóió við
greióslur til fyrirtækisins. Hann var
dæmdur í tveggja mánaða skilorðs-
bundið fangelsi fyrir brot á 249.
grein hegningarlaganna; það er um-
boðssvik en ekki bein fjársvik.
Maðurinn tók út vörur erlendis
fyrir um 53 þúsund krónur, en
hafði heimild til þess að taka út
vörur fyrir aðeins 10 þúsund krón-
ur. Hann gat ekki efnt skuldbind-
ingar sínar. Greiðslukortafyrir-
iSekið Visa-ísland kærði manninn,
sem nú hefur að mestu greitt
skuld sína við fyrirtækið.
Þetta er fyrsti dómurinn, sem
gengur hér á landi vegna misnotk-
unar með greiðslukort. Embætti
ríkissaksóknara hefur gefið út 5
ákærur vegna misnotkunar á
greiðslukortum. Engin löggjöf er
hér á landi um greiðslukort og því
hefur verið látið reyna á ákvæöi í
hegningarlögunum. Gunnlaugur
Briem, yfirsakadómari kvað upp
aóminn.
Glæsilegur sigur
Morgunblaðiö/Fridþjófur Helgason
Kristján Arason, bezti leikmaður íslenska landsliðsins í sigurleiknum í gærkvöldi gegn Svfþjóð. fsland vann
25:21. Hér brjóta Svfar á Kristjáni. Sjá nánar á íþróttasíðu.
Afengi
og tóbak
hækkar
ÁFENGI og tóbak verður hækkað f
verði á mánudag, samkvæmt heimild-
um Morgunblaðsins. Kftir því sem
Mbl. kemst næst mun hækkunin nema
fast að 20% að meðaltali.
Áfengisútsölur ríkisins verða
væntanlega lokaðar á mánudag á
meðan verið er að reikna út hækkan-
irnar. __ ._______
Bláfjöll:
Skíðasvæðið
opnað í dag
SKÍÐASV/EÐIÐ í Bláfjöllum verður
opnað í dag og fyrirhugað er að hafa
a.m.k. stólalyftuna í Kóngsgili í gangi.
Er nú ágætis skíða- og göngufæri á
svæðinu.
Bláfjallanefnd leggur til við borg-
arráð að verð átta miða fyrir full-
orðna verði 90 krónur en 45 krónur
fyrir börn, dagkort fyrir fullorðna
kosti 220 krónur en 110 krónur fyrir
börn og kvöldkort fyrir fullorðna
kosti 160 krónur en 80 krónur fyrir
börn. Samkvæmt þessu hækka gjöld
í skíðalyftur um 25—26% frá því í
fyrra. Ekki hefur enn verið lögð
fram tillaga að verði árskorta.
Námslánin til út-
hlutunar eftir helgi
„Staöiö veröur við 95 % lánshlutfall“ segir menntamálaráðherra
EFTIR helgina koma til útborg-
unar lán til námsmanna og verð-
^Sr lánshlutfall 95% allt þetU ár
eins og að var stefnt. Mennta-
málaráðherra, Ragnhildur
Helgadóttir, sótti um aukafjár-
veitingu til fjármálaráðuneytis-
ins aö upphæð 46,5 milljónir
króna. Á fimmtudag var 27,5
milljóna króna aukafjárveiting
samþykkt og er unnið að því að
afla þess fjár, sem á vantar.
„Tekist hefur að leysa fjárhags-
vanda sjóðsins, sem reis vegna
gengisfellingarinnar. Við sóttum
um aukafjárveitingu, sem þó
reyndist minni en mörg undanfar-
in ár. Því verður lánshlutfallið
95%, eins og til stóð,“ sagði Ragn-
hildur Helgadóttir, menntamála-
ráðherra, í samtali við Mbl.
„Þó er nokkur vandi vegna
rekstrar- og launakostnaöar enn
óleystur og verður unnið að lausn
hans eftir helgi. En meginatriðið
er að tekist hefur að leysa vanda
vegna greiðslna til námsmanna og
standa við yfirlýsingu um 95%
lánshlutfall,“ sagði Ragnhildur.
Matthías Á. Mathiesen bankamálaráðherra um vaxtamálin:
Stjórnin hefur ekki
faílið frá stefnu sinni
Verðtryggð útlán 40 %, óverðtryggð 60 %
„RÍKISSTJÓRNIN hefur ekki
fallið frá stefnu sinni í vaxtamál-
um, en Ijóst er að jafnháir raun-
vextir og verið hafa að undanförnu
geta tæpast verið á næstu mánuð-
um, miðað við þá verðlagsþróun,
sem búast má við,“ sagði Matthí-
as Á. Mathiesen bankamálaráð-
berra, er hann var spurður, hvort
ríkisstjórnin hefði fallið frá raun-
vaxtastefnu. Bankamálaráðherra
upplýsti ennfremur að skiptingin
milli verðtryggðra- og ótverð-
tryggðra lána í þjóðfélaginu væri
sú, að verðtryggð lán næmu 40%,
en óverðtryggð því 60%
Matthías sagði vegna afgreiðslu
ríkisstjómarinnar á tillögum
Seðlabankans: „Ríkisstjórnin
óskaði eftir því, að Seðlabankinn
frestaði framkvæmd á vaxta-
breytingum, sem fyrirhugaðar eru
af hálfu bankans. óskað var eftir
nánari upplýsingum um skoðun
bankans á þróun verðlagsmála
næstu mánuði til samanburðar
þeim vaxtabreýtingum sem fyrir-
hugaðar eru. Rfkisstjórnin hefur
ekki fallið frá stefnu sinni í vaxta-
málum.“
Varðandi hugmyndir Seðla-
bankans sagði hann: „1 hugmynd-
um Seðlabankans er fyrst og
fremst um leiðréttingu að ræða á
misræmi sem skapast hefur á
kjörum verðtryggðra og óverð-
tryggðra inn- og útlána í kjölfar
verðlagsþróunarinnar, hækkun
verðbólgunnar. Gert er ráð fyrir
að bæta ávöxtun á óverðtryggðu
sparifé en lækka vexti af verð-
tryggðum fjárskuldbindingum.“
Sjá leiðara um vaxtamál og
söluskattshækkun.
Jólaverslunin
í fullan gang
JÓLASVIPUR er farinn að færast yfir borg og bý enda styttist
óðum til fæðingarhátíðarinnar. Jólaskreytingar eru komnar upp
víða um höfuóborgina — enn vantar lítið nema snjóinn.
Verslanir á höfuðborgar-
svæðinu verða opnar til kl. 18 í
kvöld, eins og venja er i jóla-
mánuðinum. Næsta laugardag,
15. desember, verða verslanir
opnar til kl. 22 og laugardaginn
fyrir Þorláksmessu, 22. desem-
ber, verða verslanir opnar til kl.
23. Þorláksmessu ber upp á
sunnudag í ár og verða verslan-
ir þá lokaðar. Opið verður til
hádegis á aðfangadag.
Fimmtudaginn 27. desember
verður opið á venjulegum af-
greiðslutíma, til kl. 18:30, föstu-
daginn 28. desember til kl. 21 og
laugardaginn 30. desember til
kl. 16. Opið verður til hádegis á
gamlársdag. Söluturnar verða
opnir til kl. 16 á aðfangadag og
gamlársdag.