Morgunblaðið - 08.12.1984, Page 18

Morgunblaðið - 08.12.1984, Page 18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1984 18 þessum. — Það hefur bæði kosti og galla í för með sér, sögðu þau, það er ágætt að kynnast nýju fólki og starfa með því, en það getur tekið nokkurn tíma að átta sig á því hvernig við eigum að stilla raddirnar saman. En þetta er góð reynsla að syngja svona tónlist, sérstaklega þar sem við skiptumst á að syngja við kór- inn. Þarna erum við ekki eigin- legir einsöngvarar heldur verð- um að falla vel inn í þá heild- armynd sem verið er að flytja með þessum tónverkum. Við verðum að fara eftir því sem stjórnandinn vill fá fram með túlkun okkar, það er hann sem ræður og síðan reynum við að fara að óskum hans, sögðu þau og létu þau orð falla að Mótettu- kórinn væri mjög góður og vel agaður kór í höndum stjórnand- ans. Um önnur verkefni framund- an sögðust einsöngvararnir hafa í ýmsu að snúast, rólegt er fram- undan hjá Sigríði Gröndal, Elísabet Waage syngur um þess- ar mundir í óperukórnum og býr sig undir að taka einsöngvara- próf í vor, Einar undirbýr sér- staka dagskrá á næstunni og Kristinn æfir hlutverk nauta- banans í Carmen, sem hann syngur á nokkrum sýningum milli jóla og nýárs áður en hann heldur áfram námi sínu í Band- aríkjunum. Um verkefni Mótettukórsins á næstunni er það að segja að eftir að jólasöng er lokið tekur Bach- árið við. Er þá í bígerð að taka til flutnings kantötur og mótett- ur og fer nú fram endanleg ákvörðun og skipulagning á þeirri dagskrá. Tónleikar Mótettukórs Hallgrímskirkju: Magnificat og ýmis aðventu- tónlist frá mörgum tímabilum MÓTETTUKÓR Hallgrímskirkju efnir til aðventutónleika í Krists- kirkju, Landakoti, næstkomandi sunnudag, 9. desember. Flutt verð- ur aðventu- og jólatónlist með að- stoð einsöngvara og hljóðferaleik- ara, en stjórnandi kórsins er Hörð- ur Áskelsson organisti. Þetta eru fyrstu tónleikarnir á þriðja starfs- ári Listvinafélags Hallgrimskirkju. Efnisskrá tónleikanna er byggð á lofsöng Maríu, „Magni- ficat“. Er lofsöngur þessi fluttur í fimm ólíkum gerðum, en við þennan texta hafa tónskáld gegnum aldir samið fjöldamörg verk. Þannig má á þessum tón- leikum heyra lofsöng Maríu í gregoríönskum tíðasöng, við sálmalag eftir Johann Eccard, mótettur eftir Lechner og Pach- elbel og hina rómantísku mót- ettu Mendelssohns þar sem kór og einsöngvarakvartett syngjast á. Þessar ólíku magnificat- tónsmíðar eru síðan tengdar með aðventu- og jólasálmum. Tónleikunum lýkur síðan með dýrðarsöng englanna á Betle- hemsvöllum í tónverki Giovanni Gabrielis, Hodie Christus natus est, en það var fyrst flutt fyrir nær 400 árum í Markúsar- dómkirkjunni í Feneyjum. Mótettukórinn hefur á þessum tónleikum fengið til liðs við sig ýmsa tóníistarmenn. Einsöngv- arar eru Sigríður Gröndal, sópr- an, Elísabet Waage, alt, Einar Örn Einarsson, tenór og Krist- inn Sigmundsson, bassi. Einnig munu blásarakvintett og strengjaleikarar úr Sinfóníu- hljómsveit íslands leika með og flytja í upphafi verk eftir Daniel Speer, allegro í a-moll svo og verk eftir Byrd og Brahms á milli atriða kórsins. í spjalli við blm. Mbl. kom fram að þetta er í fyrsta sinn sem einsöngvararnir fjórir koma fram saman á tónleikum sem Mótettukór Hallgrímskirkju heldur tónleika í Kristskirkju á sunnudag kl. 17 og koma þar fram einsöngvarar og hljóðfæraleikarar. Stjórnandi Mótettukórsins er Hörður Áskelsson organ- isti og með honum á myndinni eru einsöngvararnir. Frá vinstri: Kristinn Sigmundsson, Einar Örn Einarsson, Elísabet Waage og Sigríður Gröndal. — gegnVERÐBOLGU Mánaðarlega eru borin saman kjör hávaxtareiknings og verðtryggðra reikninga hjá bankanum, og vaxtabreytingar gerðar svo að Hávaxtareikningur verði alltaf betri kostur. AMERÍSK HEIMILISTÆKI í SÉRFLOKKI KÆLI- OG FRYSTISKÁPUR Hækkandívextír Hávaxtareikningur ber stighækkandi vexti, 17% í fyrstu sem strax eftir 2 mánuði hækka um 1,5% á mánuði uns 24,5% er náð. Eftir samanlagðan 12 mánaða sparnað hækka vextirnir síðan um 1% til viðbótar og eru 25,5% upp frá því. Arsávöxtun Vextir leggjast við höfuðstól 30. júní og 31. desember ár hvert og fer því ársávöxtun aldrei niður fyrir 27,12% en getur náð 27,58% sem ræðst af því hvenær ársins lagt er inn. Vextír frá stofndegí Allar vaxtahækkanir Hávaxtareiknings reiknast frá stofndegi og falla aldrei niður á sparnaðartímanum. Þannig tryggir afturvirk prósentuhækkun bestu kjörin. Nýstáilegt fyrírkomulag Stofnskírteini er gefið út fyrir hverri innborgun og er hvert stofnskírteini til útborgunar í einu lagi. Þvi er sjálfsagt að deila innborgun á fleiri skírteini sem gerir úttekt á hluta fjárins mögulega, án þess að vaxtakjör eftirstöðva rýrni. Obundinn Hvert skírteini er laust til útborgunar fyrirvaralaust. Betri kjör bjóðast varla. GREIÐSLUSKILMALAR HEIMILIS 0G RAFTÆKJADEILD HEKIAHF | LAUGAVEGI170 • 172 SÍMAR 11687 • 21240

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.