Morgunblaðið - 08.12.1984, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1984
Aðventu-
samkoma
í Árbæj-
arsókn
SUNNUDAGINN 9. desember ann-
an sunnudag í aðventu verður að-
ventuhátíð Arbæjarsafnaðar haldin í
Safnaðarheimili Árbæjarsóknar og
hefst kl. 20.30 kl. hálfníu síðdegis.
Aðventan er undirbúningstími okkar
kristinna manna fyrir komu jólanna,
hátíðarinnar miklu, og við minnumst
fæðingar frelsarans Jesú Krists.
í lífi flestra landsmanna er að-
ventan tími mikils annríkis og
umsvifa. Að svo mörgu þarf að
hyggja, áður en jólahátíðin góða
gengur í garð. Ýmsum finnst að
vonum, að hinn ytri undirbúning-
ur fyrir komu jólahátíðarinnar sé
orðinn of fyrirferðarmikill og að
úr honum mætti draga.
Engum er það til góðs, að um-
búðir yfirskyggi sjálfan kjarnann,
fagnaðarboðskap jólanna. Hitt er
svo ekki nema eðlilegt og sjálf-
sagt, að menn geri sér dagamun
um jólin. Það gerir þjóðin oft af
minna tilefni og um langan aldur
hafa menn tjaldað því sem best
var til bæði í mat og drykk á þess-
ari helgu hátíð. Því ber vissulega
að fagna, að menn virðast nú í
auknum mæli gefa gaum að hinum
innri undirbúningi jólanna. Það
sanna t.d. troðfullar kirkjur við
guðsþjónustur á aðventunni og að-
ventukvöldin í söfnuðunum, þar
sem aðsóknin er slík, að sums
staðar verða menn frá að hverfa
sökum skorts á húsrými. Hinn
innri undirbúningur jólanna er
fólginn í því að við búum hugi
okkar og hjörtu undir komu jóla-
gestsins góða, Jesú Krists, og
reynum að eignast sama hugarfar
og hann átti. Og þá hvarflar hug-
urinn til bágstaddra meðbræðra
okkar og systra í fjarlægri Afríku,
þar sem hungurvofan bíður við
dyr milljón manna. Sá jólaundir-
búningur okkar væri Jesú Kristi
mest að skapi, ef við minntumst
þeirra í verki og annarra bág-
staddra systkina fyrir þessi jól.
Annar aðventusunnudagurinn á
að minna okkur á þessa mikilvægu
hlið jólaundirbúningsins og þann-
ig verður jólagjöfin æðsta best
þökkuð og goldin.
DAGSKRÁ
Dagskrá aðventuhátíðarinnar I
Árbæjarsókn verður á þessa leið:
Organisti safnaðarins Jón Mýrdal
leikur á orgel og kirkjukórinn
syngur. Gunnar Petersen, formað-
ur sóknarnefndar, flytur ávarp.
Anna Júliana Sveinsdóttir syngur
einsong við undirleik Láru Rafns-
dóttur.
Biskup Islands, herra Pétur Sig-
urgeirsson, flytur hátíðarræðu.
Skólakór Árbæjarskóla flytur
helgileik undir stjórn Áslaugar
Bergsteinsdóttur. Þá verður helgi-
stund í umsjá sóknarprests og loks
verða aðventuljósin tendruð og
jólasálmur sunginn. Kynnir á
samkomunni verður Skúli Möller,
ritari sóknarnefndar.
Safnaðarfólk í Árbæjarpresta-
kalli
Eignumst helga hátíðarstund
saman að kvöldi annars aðventu-
sunnudagsins og búum þannig
hugi okkar undir komu hans, sem
er ljósið og lífið og einn veitir
okkur heilaga hátíð ástar, friðar
og yndis.
Verið öll hjartanlega velkomin.
Guðmundur Þorsteinsson
ÍWÖOO^MOHOUN
IOLAKORT*
KREDITKORT?
Helgina 8. og 9. desember verðum við með einstakt tilboð í gangi.
Ef þú hefur með þér jólakort til okkar og sýnir okkur það, þá færðu
gosglas í staðinn, með hverjum keyptum hamborgara.
Við tökum gild, þessa tvo daga, fleiri kort en nokkrir aðrir.
ar gerðir
jólakorta í
fullu gildi.
Það verður alltaf eitthvað
sniðugt í gangi hjá Tommma-
borgurum,allar helgar í desem-
ber.
Kostir þess
að versla
út á
jólakort:
Enginn gjalddagi.
Ekkert afgreiðslugjald.
Ekkert aldurstakmark.
Ekkert eyðublað til útfyllingar
Þú átt kortið sem þú fékkst
sent í fyrra.
Fæst í öllum bókabúðum.
Engar bankaferðir.
Þú verslar út á það fyrst,
sendir það síðan með hlýlegri
jólakveðju.
Gildir á öllum
Tommahamborgarastöðum
TOMMA
HAMBORGARAR
Plorpiwlrlii&í®>
—vpf Askriftarsíminn er 83033